Bjarki - 11.06.1898, Qupperneq 3
91
þegar út um allan líkama dýrsins
eftir slagaeðunum og eftir fáar
mínútur er svo allur skrokkurinn
gagnsaltaður.
Þó miklu sje slátrað, getur ket-
ið aldrei skemst við að bíða sölt-
unar ef þessi aðferð er höfð, og
telja menn þessa uppgötvun mji g
þýðíngarmikla og góða framför.
LÓNI, AU. SK., 27. MAt.
(Tíðarfar. Hvalrekar. Voltakrossinn).
Nú er hjer hver dagurinn öðrum
ketri, en allan fyrra helmíng þ. m. var
kuldakast, og veturinn hefur verið hjer
miklu óhagstæðari en eystra, rignínga-
og umhleypíngasamur framan af, en
snjóasamur þorrann og góuna, og var
þá (Ieingi nokkuð) haglaust víða hjer
í Lóni, þótt verra væri sunnar. 3 hvali
hefur rekið 1' Hornafirði í vetur sem
leið, 1 áttu Árnanesmenn, 1 umboðið
(landsjóður), og um 1 cr þræta milli
Arnaness og umboðsins. Maður einn
hjer í Lóni (Guðmundur Guðmundsson
á Svínhólum) hefur feingið sjer 2
Voltakrossa til heilsubótar, en kveður
þá með öllu ónýta, og óskar að hann
væri svo pennafær, að hann gæti sett
um það meinlega grein í Bjarka móti
öllum gyllíngunum og þakkarávörp-
unum.
Seyðisfirði n. Júní.
Veðurátta köld og leiðinleg, oft þoka
stundum suddi eða regn. Einn góður
dagur hefur komið þessa viku, Mið-
vikudagurinn. í>á var hiti og heiðríkja.
Fiskilítið alstaðar sem til spyrst,
enda misjafnar gæftir. Nokkur afii
sagður þó nú úr Borgarfirði.
Kiskigufuskipin þessa viku:
Bjólfur 2340, Egeria 3370, Elín 1910.
Sýslumaður er nú í þíngaferðum;
lagði af stað á Sunnudaginn var; og
verður þeim ekki lokið fyrri en þ. 20.
þ. m. eins og getið hefur verið hjer
í blaðinu. Störfum á skrifstofu bæarfó-
geta gegnir á meðan Lárus bóksali
Tómasson.
Fyjólfur Jónsson skraddari og
ljósmyndari er nú suður á Breiðdal;
hann fór þángað um daginn mcð Hólum.
SKIP. Vaagen kom' sunnan af
fjörðum þann 8. og fór utan næsta dag.
Með skipinu kom híngað Friðrik kaupm.
Wathne.
Tvö gufuskip frá Þórarni Túliníusi
lágu hjer á höfninni í gær;
Hjálmar sem kom þ. 8. og fór aft-
ur í gær með dálítið af fiski frá Stef-
áni kaupm. Jónssyni.
Moss kom þ. 9. með vörur til Ras-
mussens kauprn, Thostrúps versl. o. fl.
Aldebaran, seglskip, kom í gær
með kol tll .Seydisfjords Dampfiskeri-
selskap..
Lifsábyrgðarfelagið
^Skandia’.
Hjer nteð leyfi jeg mjer að til-
kynna almenníngi að lífsábyrg ðar-
fjelagið »SKANDIA« í Stokk-
fi^lmi hcfur sett kaupmann St. Th.
Jónsson á Seyðisfirði til að ferðast
scm fulltrúa - u
ua smn a þessu sumri a
norðurlandi, 0g gC(-a þv( þejr sem
trysgja Vilja líf sitt> feíngíð hjá
honum allar nauðsynlegar upplýs-
íngar.
Scyðisfirði 10. Júní 1898.
H. 1. Ernst
lyfsali og viceconsúl.
Samkvæmt ofanrituðu, gerist
hjer með kunnugt, að jeg fyrir hönd
lífsábyrgðarfjelagsins »Skandia« mun
ferðast á þcssu sumri um Húna-
vatnssýslu og þar nærliggjandi
sveitir, samkvæmt eftirfylgfandi á-
ætlun, og vil jeg biðja þá sem
vilja tryggja líf sitt eða fá upp-
lýsíagar um það, að finna mig á
þessum tilteknu stöðum eða ef
þeir óska að jeg komi til þeirra,
þá að skrifa mjer til og senda
brjefin helst á Akureyri, Sauðár-
królc eða Blönduós eftir því sem
best á við.
Áætlunin er þannig:
16. Júlí af Seyðisfirði.
17- — á Vopnafirði.
17- — á Þórshöfn.
i7- — á Raufarhöfn.
18. — á Húsavík.
20. — á Akureyri.
22. __ á Möðruvöllum.
23- — í Steinstaði.
24. — á Miklabæ.
25. — á Sauðárkrók.
28. — á Holtastöðum.
29. — á Geitaskarði og
Blönduós.
3L — um Hnausa að K
I. Ágúst í Víðidalinn.
2 . — í Vesturhópið.
4- — í Svínadalinn
5- — í Blöndudalinn.
6. — á Víðimýri.
8. —. frá Silfrastöðum
til Akureyrar.
Þessari áætlun verður fylgt að
því Ieiti sem hægt er, en getur
þó breyst að mun eftir kríngum-
stæðum. Leiðarvísi um lífsábyrgð
á islensku, geta menn feingið hjá
mjer ókeypis.
Seyðisfirði 10. Júní 1898.
Virðíngarfylst.
ST. TIT. JÓNSSON.
Eftir Guðmundi þvers um. Það
væri duglegur Daði sem bæri hann
sjera hest allan daglángan vorinn og
kæmi svo kvöklgóður að jafni.
Kvennaskóli
Eyfirðínga.
Stúlkur, sem vilja fá inngaungu
á kvennaskóla Eyfirðínga á Akur-
eyri, ættu að sækja um það sem
allra fyrst til undirritaðs.
Möðruvöllum í Hörgárdal, 13. Maí '98.
Stefán Stefánsson.
Kveðjuspjöld,
(gratulationskort)
ljómandi falleg fást í bókaverslan
L. S Tómassonar.
B y s s u r
og öll skotáhöld eru nú komin
i verslan
St. Th. Jónssonar
á Seyðisfirði.
Kúluriflar á 60 kr.
Haglabyssur tvi-
hleyftar, bakhlaðnar,
stálofið hlaup ágætar
á 45 til 75 kr.,
bakhlaðnar, einhleyft-
ar óvandaðri ái8kr.
Salonriflar 6 m)m á
15 til 18 kr.
Skammbyssur marg-
hleyftar frá 4— 11 kr.
Patrónur úr pappa
af mörgum tegund-
um, central og með
pinna, nr. 12 og 16, hundraðið á
2,40 til 3.25 kr.
Patrónur úr látúni þunnar og
þykkar á 7 til 15 au.
Hvellhettur f patrónur stórar og
smáar á 30 og 35 au. hndr.
Hvellhettur fyrir framhlaðnínga
á 14 au. hndr.
Högl stór og smá, góð tcgund,
á 25 au. pd.
Fjohlöð pr flóka 500 I pakka á
1,00 til 1,40, forhlöð úr pappa
500 í pakka á 45 til 60 au., og
enn fleiri tegundir.
Smábyssuskot og salonbyssuskot,
kúlu og hagla, frá 80 au. til 2 kr. hnd.
Þurkustokkar frá 20—50 au.
Hleðsluverkfæri 1 kr. og dýrari.
Teingur til að ná úr hvellhett-
unni 2—3 kr. o. fl. þess háttar
verkfæri.
Byssureimar á 0,90 til 1,50 kr.
Patrónutöskur 3,50 kr.
— belti 1,35 og dýrari.
Byssuhólkar úr striga með leðri
á 4 — 6 kr.
Veiðimanshnífar 1,50; gúmmí til
að fægja ryð af byssum 20. au.
Auk þess sem hjer er talið,
hef jeg marga aðra hluti byssum
tilheyrandi og svo má panta hjá
mjer allar aðrar byssutegundir.
Gerið svo vel að skrifa mjer ef
ykkur vanhagar um eitthvað af
þessu tagi, og það skal verða af-
greitt með fyrstu ferð.
St. Th. Jónsson.
Hjer með Ieyfi jcg mjer að til-
kynna heiðruðum skiftavinum mín-
um og öðrum, að jeg ætla mjer að
stunda iðn mína og verslan hjer á
staðnum fram að hausti. Nýar,
vandaðar og fásjenar vörur, het
jeg í vcrslan minni, líkt og áður
og sel að .eins gegn borgun út í
hönd, en tek nú góðar íslensk-
ar vörur á móti, svo sem verk-
aðan saltfisk, uil og æðardún
með því hæsta verði, sem jeg sje
mjer framast fært. Gegn peníng-
um gef jeg 10 procent afslátt.
Allir sem skulda mjer eru vinsam-
legast beðnir að borga mjer á
næstu sumarkauptíð.
Seyðisfirði í Maí 1898.
Magnús Einarsson.
V i ð k o n u s í n a.
Marja, Marja, farðu að vakna helv..
dr....þín- — Reykurinn á Mýri er
kominn leingst út á mýri og farinn að
slá. Gísli stendur beint upp úr strompn-
um.
Verðlaunuð, hljómfögur,
vönduð og ódýr
Orgelharmonia,
Og ýms önnur hljóðfæri
útvegar L. S. Tómasson
á Seyðisfirði.
A. Heyrðu lagsmaður hvaðan
hefur þú feingið svona falleg og
traustleg föt, sem þú ert í?
B. Já, það skal jeg segja þjer
kunníngi. Jeg sendi í fyrra sumar
8 pund af svartri og mórauðri ull
til ullarvinnuhúsins „Hiilevaag
Fabríkker11 við Stavángur í Nor-
egi og laungu fyrir Jól var vaðmálið
komið aftur svo jeg gat verið í nýu
fótunum á Jólunum. Vaðmálið var
6 álna lángt og tvíbreitt og kost-
aði á það aðeins 6 krónur 98 aura
og þó hefði það orðið tiltjfulega
ódýrara, ef jeg hefði sent meira í
einu ; því það hafa menn sagt mjer
síðan, sem hafa sent um 40 pund,
að vinnulauniná vaðmáli þeirra hafi
orðið fyririnnankrónuátvíbreiðaalin.
En nágranni minn sendi alhvíta
ull og fjekk úr henni dökkblátt
vaðmál (cheviot) og svo ljómandi
talleg rúmteppi, sem jeg hef aldrei
sjeð fyrri.
A. En til hvers á jeg að snúa
mjer til þess að koma ull til þessa
vinnuhúss?
B: Þú skalt senda hana til
Sig. kaupmans Jóhansens
á Seyðisfirði og skrifa honum greini-
iega, hvernig þú óskar að unnið
sje úr þinni ull.
En þú verður að senda hana
svo tímanlega að hún verði komin
tii hans fyrir 7. Agúst, ef þú átt
að hafa von um að fá efnið upp
aftur í haust eða fyrri part vetrar.
- Með þvi að aðalfund-
ur, sem boðaður var f Síldarfje-
lagi Seyðisfjarðar, I. þ. m. fórst
fyrir, þá er hjer með á ný boðað
til aðalfundar í þessu fjelag', Laug-
ardaginn þ. 18. þ. m. á skrifstofu
minni.
Seyðisfirði 3. Júní '98.
Sig. Johansen.
pt. formalur.