Bjarki - 30.12.1899, Page 3
eins einum degi fyr eða seinna en
síðasta ár, þegar þau koma ekki
sama daginn.
SKÍP.
Egill (skipstj. Endresen) kom áð norð-
an á Aðfángadagskvöldið og fór á Ann -
arsdagskvöld. Farþ. að norðan: frú
Elín Briem, ísak Jónsson íshússmiður;
hjeðan: Þorsteinn kaupmaður Jónsson
með konu sinni.
SKRÍTLUR.
A. Þetta er fyrirtaks hattur! Hvað
kostar hann?
B, Það veit jeg ekki; því þjer að
segja var einginn í búðinni þegar jeg
keyfti hann.
Kennarinn: »Hefur maðurinn
frjálsan vilja, Karl?«
Karl: »Já, á meðan hann er ógift-
ur, segir pabbi«.
Letínginn: »Ef jeg bara mætti
gera það sem jeg vildiL
Kunnínginn: »Hvað ætlaðirðu að
gera þá?«
Letínginn: »Ekki neitt«.
Útskrifaðir 14. Mai 1899, úr Möðruvallaskóla.
I. Sigurður Jónsson úr Þíngeyjarsýslu eink. I. ág. stig 61
2. Benedikt Bjarnarson úr Þíngeyjarsýslu I. 59
3- Jón Jónsson úr Norður-Múlasýslu I. 59
4- Guðmundur Jónsson úr Austur-Skaftafelssýslu I. 56
5- Jón Björnsson úr Skagafjarðarsýslu I. 54
6. Jón Bergsson úr Eyjafjarðarsýslu I. 52
7- Björn Stcfánsson úr Suður-Múlasýslu I. 5i
8. Þorsteinn Grímsson úr Eyjafjarðarsýslu II. 47
9- Sigurður Arnason úr Húnavatnssýslu II. 44
10. Sölvi Sigfússon úr Suður-Múlasýslu II. 42
11. Tryggvi Olafsson úr Norður-Múlasýslu II. 41
12. Lárus Jóhannesson úr Eyjafjarðersýslu II. 41
13- Ofeigur Snjólfsson úr Suður-Múlasýslu II. 39
14- Þorsteinn Guðmundsson úr Strandasýslu II. 39
15- Gunnar Tr. Marteinsson úr Þíngeyjarsýslu * * II. 36
skól Það er varla að þess sjáist getið í blöðunum hverír utskrifast af gagnfræða- um landsins og búnaðarskólum, en það er fróðlegt að vita það; því það sýn-
ir betur en inargt annað menníngarhug hjeraðanna 0. fl. Bjarki væri þakklátur
skólastjórunum eða öðrum, sem vildu senda honum slíkar skýrslur árlega.
Tog
er best borgað hjá:
I. M. Hansen.
Vasahnifur, lítili, hvítur, tvf-
blaðaður hefur týnst. Finnandi
beðinn að skila honum til r i t s t j.
Rentu.r,
Eins og jeg hef áður auglýst
meiga allir sem skulda við verslun
mína, búast við að greiða rentur
af skuldinni.
Seyðisf. 29. Des. 1899.
St. Th. Jónsson.
Púður ágætt á 1,30 pund.
10% móti peníngum fæst hjá
St. Th. Jónssyni.
Skiftafundur
í þrotabúi B. Thorsteinsson et Co
á Bakkagerði f Borgarfirði verður
haldinn hjer á skrifstofunni Mánu-
daginn 8. Janúarmánaðar næstkom-
andi kl. 12 á hádegi; verður þá
tekin ákvörðun um innheimtu á
útistandandi skuldum búsins o. fl.
Skrifstofu Norður-Múlasýslu 21. Des. '99.
Jóh. Jóhannesson.
Gufuskipa-
fjelagið.
Til að fyrirbyggja misskilnfng,
sem getur orðið út úr grein um
hið sameinaða gufuskipafjelag í
síðasta blaði Bjarka, skal þess hjer
getið: að hvorki hefur fjelagið sjálft
nje agentar þess gefið hina minstu
von um, að aukaskipið er fór til
Reykjavíkur í þessum mánuði ætti
að koma híngað til austurlandsins
um leið. — Þvf eru allar sögur um
þetta fjelaginu óviðkomandi.
Seyðisfirði 28, Des. {899.
St. Th. Jónsson.
(afgreiásiumaður.)
Miklar birgóir af afskonar
skófatnc.ði á verkstofu skósmíðafje-
iagsins. Komið og kaupið.
L e i k i ð
verður á Nýársdag
Dreir.gurinn minn.
Byrjar kl- 5.
Eyjólfur jónsson selur að-
gaungumiða.
Góðir hjeraðsbændurl
Hætrið þjer nú eins og allir aðr-
ir siðaðir menn að rýa uilina af
kíndunum. Eins c>g ölium er kunn-
ugt, finnur kindin talsvert til þeg-
ar hún er rúin, og oft og einatt
hléypur blóðtð fram. Gerið þjer
nú kindunum þann grciða, að
hætta þessum ósið, og fáið ykk-
ur sauðaskæri; það er nóg til af
þeím í norsku búðinni og kosta
kr. 1,60 og 1,35.
Sig. Johansen.
278
»Við vitum það alt! Og í nafni laganna heimta jeg, að
þjer skýrið frá þessu!«
»Sýnið þjer okkur, hvar þjer hafið fólgið hann; það er
best að halda á stað strax,« sagði dómarinn; hann herti upp
hugann hegar hann sá hvað henni brá.
»En hvcrsvegna viljið þjcr vita þetta?«
»Þær eru þýðíngarlausar allar þessa spurnfngar frú mín
góð. Vjer biðjum yður einúngis að svara einni spurníngu. Þjer
skjálfið . . . það kemur fát á yður. Já drepinn er hann, myrt-
ur — og svo jeg segi yður eins og er — þjer hafið gert það!
Það hafa þeir sagt okkur, sem voru í vitorðinu með yður.
»Komið þið þá«, sagði Olga Petrovna og fornaði höndum
af ángist. Jeg faldi hann í baðhúsinu. En jeg ætla að biðja
ykkur í öllum guðanna bænum að láta ekki manninn minn vita
neitt a-f þessu. Jeg held það dræpi hann............«
»Hún tók stóran lykii sem hjekk þar bak við skáp, og
fylgdi svo gestunum út í gegn um eldhúsíð og svo út f garð-
inn. Sjálf gekk hún á undan, og Tschubikof og Dukofskij skálm-
uðu á eftir hcnni. Þegar þau böfðu geingið um hríð yfir for-
arpolla og sorphauga, sáu þeir loks fram undan sjer grilla f
nokkur risavaxin trje í myrkrinu og milli þeirra glórði í dálítið
hús með háum reykháfi.
»Þarna er hann inni*, sagði Olga Petrovna, »en jeg ætla
að biðja ykkur að vera vorkunsamir við mig og segja eingum
frá því«.
Þegar þau voru komin fast að húsinu, sáu þeir Tschubi-
kof að dyrnar voru ramlega læstar og gríðarstór heingilás fyrir.
»Hafið þjer nú kertið og eldspýturnar til!« hvíslaði dómar-
inu að skrifara sínum.
275
fimmtíu búðir. Jeg bað hvar sem jeg kom um eldspýtur. Loks-
ins, þegar jeg kem í Sadofskrána og bið enn um eldspýtur, þá
var mjer feiagið heilt brjef, en jeg sá strax að í brjefinu voru
aðeins níu eldspftustokkar í staðinn fyrir tíu. »Þaá vantar einn
stokk í brjefið,* sagði jeg; »hvað erorðiá af honum ?* — »Ja,
hann er nú seldur.« — »Og hverjum?« spyr jeg, og það er
mjer sagt, og þetta kalia jeg uppgötvun! — Mjer er efins að
þeir geri það betur hinir; það verð jeg að segja, þó jeg eigi
sjálfur í hlut. — En nú er ekki til setunnar boáiá!«
»Nú hvað þá? — Hvert viljið þjer nú að jeg fari með
yður.«
»*Auðvitað til fjórða sökudólgsins. Við verðum að flýta
okkur, því nú er jeg svo óþolinmóður aá jeg ræð mjer ekki.
Og hver haldið þjer að það sje? Ekki licma hún Oíga Petrovna
fallega konan lögreglustjórans!«
»Eruð þjer sjóðandi vitlaus maður?
»Nei, það er lángt frá þvíj Þetta er svo sem fiill greini-
legt. Jeg veit, að hún hefur kcyft eldspýturnar, og svo hefur
hún í lángan tíma verið vitlaus eftir Kljausof. Hann kærði sig
ekkert um hana, en leist betur á Akulínu, og því hefur Olga
viljað hefna sín. En nú skulum við flýta okkur af stað áður en
skyggir meir.«
»Haldið þjer að mjer detts í hug, að trufla næturfriðinn
fyrit' heiðvirðri konu, þó að þjer sjcuð orðimn bandvitlaus.?*
»Jeg vona að þjer gerið það fyrir mig að koma með mjer
ekki mín vegna sjáifs, heldur til þess að rjettvísinni geti orð-
ið framgeingt. Þctia mál vckur ekki litla cftirtekt um alt Rúss-
tand, jcg skal segja yður það! Og þjer vetðið vafalaust stór-
fiagur, cf Jijer k.omist f\rir allar rafur Jjcís. Jeg .er handvis.í