Bjarki - 12.05.1900, Side 1
Eitt bíað á viku minst. Árg. 3 kr.
borgist fyrir 1. Júlí, (erlendis 4 kr.
borgist fyrirfram).
BJARKI
Auglýsíngar 8 aura línan; mikill af-
sláttur ef oft er auglýst. Uppsögn
skrifleg fyrir 1. Október.
Seyðisfirði, Laugardaginn 12. Mai 1900
V. ár. 19
Munið eftir að ullarvinnuhúsið
„HILLEVAAG FABRIKKER“
við Stafángur í Noregi vinnur besta, fallegasta, og ódýrasta fataefnið,
sem hægt er að fá úr íslenskri ull, einnig sjöl, gólf- og rúmteppi; því
ættu allir sem ætla að senda ull til tóskapar, að koma henni sem allra
fyrst til einhvers af umboðsmönnum verksmiðjunnar.
Umboðsmennirnir eru:
( Reykjavík herra bókhaldari Ólafur Runólfsson.
- Stykkishólmi — verslunarstjóri Armann Bjarnarson.
- Eyjafirði — verslunarm. Jón Stefánsson á Svalbarðseyri.
- Vopnafirði — kaupmaður Pjetur Guðjohnsen.
- Breiðdal — verslunarstj. Bjarni Siggeirsson.
Aðalumboðsmaður Sig- kaupm. Johansen, á Seyðisfirði.
Markaskrá.
Sýsfunefnd Norður-Múlasýslu á-
kvað á síðasta aðalfundi sínum að
láta prenta viðauka við markaskrá
sýslunnar í sumar, Á að taka upp
í hann þau fjármörk sýslubúa sem
eigi standa ( markaskránni frá 1895.
Þeir sem vilja koma mörkum sín-
um í viðauka þennan verða að
hafa afhent þau hlutaðeigandi
hreppsnefndaroddvita, hvert mark
greinilega skrifað á sjerstakan miða,
fyrir miðjan Júní næstkomandi. Við-
auki þessi verður kostaður að öllu
leyti úr sýslusjóði.
Skrifstofu Norður-Múlas., 28. Apríl 1900.
Jóh. Jóhar.nesson.
Brunaábyrgðarfjelagið
»Nye danske Brandforsikr-
ings Selskab«
Stormgade 2 Kjöbenhavn.
Stofnað 1864 (Aktiekapital
4,000,000 og Reservefond 800,000).
Tekur að sjer brunaábyrgð á
húsum, bæjum, gripum, verslunar-
vörum, innanhúsmunum o. fl. fyrir
fastákveðna Iitla borgun (premie),
án þess að reikna nokkra borgun
fyrir brunaábyrgðarskjöl (police)
eða stimpilgjald.
Mcnn snúi sjer til umboðsmans
fjelagsins á Seyðisfirði
ST. TH. JÓNSSONAR.
Póstar.
13. — Sunnanpóstur kemur.
— (óákveíinn dagur) ínga frá útlöndum.
20. — Norðan- og sunnanp. fara.
21. — Ceres kemur hingað beina leið 'sunnan lands frá Rvík, fer hjeðan suður um fjörðu og utan.
22. — Hólar á norðurleið.
Danska ráðaneytið nýja.
f>að er nú sest á rökstóla. For-
sætisráðherra er Hannibal Sehe-
sted, karnmerherra; hann er líka
utanríkisráðgjafi. Dómsmálaráðgj.
er C. Goos leyndarráð og
fslandsráðgjafi þá um leið. Juul-
Rysensteen, barón, vinnumálaráð-
gjafi. Fr. Friis hefur landbúnað-
inn, Schnack óberst hefur landher-
inn, W. Scharlíng, prófessor, fjár-
málin, Middelboe, kommandör, her-
flotann, Bjerre prófastur kirkju og
kenslumál og Bramsen grósseri inn-
anríkismál. þeir eru nú 9 í stað
7, sem áður voru, og kosta Dan-
mörk 108 þúsundir um árið og 54
þús. ( eftirlaun æfilángt þeg.ar þeir
saddir lífdaga þoka fyrir eftirkom-
endunum.
Ekki hefur þetta ráðaneyti feing-
ið neina sjerlega fagnaðarmóttöku
í blöðunum. Vinstri blöðin ausa
yfir það bitrasta háði og storkun-
aryrðum og segja sem satt er, að
það hafi minnihluta í báðum þíng-
um. Þó er ekki alvcg sjeð að það
fái ekki meira hluta í Iandsþínginu,
en í neðri deild á það mjög fá at-
kvæði. Fjöldi hægriblaða og hægri
manna er því óvinveitt líka og telja
þeir rnenn tjón bæði fyrir flokkinn
og landið að mynda slíkt ráðaneyti.
Nationaltidindi og fleiri hægriblöð
hafa mælt fastlega með að skipað-
ur verði sjerstakur ráðgjafi fyrir
Island, Islendíngur, og cr það gleði-
Jegt að við Valtýíngar höfum þó
unnið svo mikið á, því ekki eru
mörg ár síðan að þau blöð og
hægri flokkurinn yfir höfuð litu
öðrum augum á þá kröíu okkar.
Við feingum þó ekki ráðgjafann
í þetta sinn, en vonandi verður
hans ekki lángt að bíða hjeðan af
fyrst bæði hægri og vinstri flokk-
urinn eru sammála um þetta.
Þ. E.
Útlendar frjettir.
—:»:«: —
Kaupmannahöfn 3. Maí 1900.
Striðið. Astandið þar syðra
er þetta í dag: Roberts situr
ennþá með meginher Breta í Bloem-
fontein og hefur ekki enn komist
af stað norður til Kronstað 'og
Transvaals. Búalið bekkist þar
til við hann á allar síður og ángrar
hann og lið hans sí og æ, svo að
þar sýnist nærri fremur sókn en
vörn af hendi Búa. f>ó þeir þoki
einn daginn fyrir ofureflinu koma
þeir fram næsta dag á öðrum stað
hættulegri en hinum fyrra. Bretum
þykir Roberts æði hægfara, og kunn-
ugur maður þar syðra segir vel geta
svo farið að þessum ófriði verði
ekki lokið fyrri en alt að tveim
árum liðnum hjer frá.
Frá Mafeking eru mjög strjálar
frjettir; síðustu fregnir komu það-
an 12. Apríl og segja að Búar hafi
skotið í gríð á borgina allan dag-
inn fyrir eins og til hátíðabrigðis í
minníngu um það, að þá höfðu þeir
setið um hana í hálft ár. f>að var
því einskonar júbildagur. Baden-
Powel, yfirforíngi Breta þar inni,
segir þá að bærinn muni geta þol-
að umsátur cinn mánuð enn, en
hreint frá leingur. Hersveitir hafa
nú verið mánuðum saman á Ieiðinni
til að leysa borgina úr læðíngi, en
Búar hafa hrakið þær og tafið og
mjög lítil von um að Bretar geti
forðað Powel falli og hans hraustu
dreingi og kanske hafa þeir nú
þegar neyðst til að gefast upp.
General French, sem stýrir nokkr-
um sveitum af her Roberts og
staðið hefur nálægt Wepenerbæ,
nál. 10 mílum austur frá Bloem-
fontein, sýnist eftir fregnum ( dag
vera komin þar í hálfgerða
úlfakreppu og hreint ekki trútt um
að Buar reyni að einángra hann og
skilja hann frá meginhernum. Lík-
iega hafa þeir ekki rnannafla til
þess, en djarft væri jrað og dug-
lega gert.
Hergagnabúr sprakk í loft upp \
fyrir Búum í Jóhannesborg. Segja j
Búar það af völdum Breta eða vina
þeirra og hafa vtsað þeim Bretum
úr landi sem eftir voru í Transvaal.
Bretar segja svo frá liðstölu og
manntjóni Búa í ófriðnum híngað
til: í Desember síðastl. höfðu Bú-
ar als 54 þús. manna, en nú (
miðjum Mars höfðu þeir eftir að-
eins 26 þús. Af 28 þúsundunum
voru 6,500 fángaðir, 8 þús. sárir og
fallnir en um 14,000 höfðu að líkind-
um horfið aftur heim til búa sinna.
Sum blöð telja þessar tölur ekki
ósennilegar, en flestum ber þeim
saman um, að s(ðasta talan sje
raung, að líkindum hreinn tilbún-
íngur, því Búar hafa víst aldrei
verið 54 þúsundir.
Belgia. Morðin í Kongo-
ríkinu. Blað eitt í Belgíu »Pct-
it BIeu«, birtir brjef frá Paul Cour-
eur, fregnritara sínum í Kongórfk-
inu, og kemur hann þar upp um
hryllilegustu svívirðíngar, sem þessi
kristna og mentaða stjórn Kongó-
ríkis lætur gánga yfir innborna
menn þar í landinu. Courcur seg-
ir meðal annars: Þcgar innborna
fólkið kemur ekki mcð svo mikið
gúmmí,_ sem gúmm(fjelögin hcimta
af þeim, þá fá þeir sem á vantar
hjá 100 stafshögg. Hafi af 100
manna aðeins 50 skilað fullum
mæli, þá er þessum 50 haldið sem
gíslum meðan hermenn umkríngja
hina 50 og höggva þá niður í strá
en brenna þorp þeirra. Á þessum
ferðalögum eru vopnaðir svertíngj-
ar sendir út og leyft að drepa og
myrða sem þá lystir og jeta svo
skrokkana á eftir.
í skýrslu frá herforíngja einum,
Moray að nafni, tveim undirforíngj--
um og tveim liðsmönnum, scgir, að
einn af sporgaungumönnum stjórn-
arinnar, Vansycken, forstöðumaður
Naooo Zone, hafi skipað að kveykja
í öllum þorpum frá Ambas til Naobo
og drepa alla innborna mcnn, kon-
ur og börn. Mennina ljet hann
hálshöggva alla saman og skera
hendur af þeim en setja höfuðin á
staura. Konunum Ijet hann raða í
hrfng, ljet svívirða þær fyrst og
taka síðan af h'fi.
Sami fanturrak stafsinn 4 þuml-
únga í bakið á ættarhöfðínga sín-
um og ekki annað til saka en að
hann fjckk ekki af manninum þau
svör sem honum líkaði um hand-
byssu, sem horfm var frá líki af
hvítum manni. Síðar reyndi hann
að flýja og var þá skotinn og höf-