Bjarki


Bjarki - 18.12.1901, Síða 2

Bjarki - 18.12.1901, Síða 2
Er ekki rúm i g\ afreitunum fyrir utanþjóðkirkjumenn ? »Ein er náttbóls alviss gjöf, þótt annarstaðar bresti; allir fá að gista’ í gröf, sern greiðabær er raesti.c Stgr. Th. Svo segir skáldið. En þótt ótrúlegt megi virðast, þá leit fyrir Skömmu svo út, sem einn maður hjer látinn skyldi eigi'»fá að gista í gröf«. Maðurinn var Sigurður sál. Einarsson. Sóknarpresturinn sem sje neitaði að láta jarða hann í neinum af þeim kirkjugörðum, sem hann ræður yfir. Varhann þvíjarðaður nærheimili sínu. En því neitaði presturinn ? spyrja menn. Það mun kunnugt, að Sigurður sál. aðhylltist sömu úuitariska trúarskoðun viðvíkjandi guðdómi Jesú Krists og sumir íslenskir þjóðkirkjuprestar því miður hafa haft (svo sem t. d. séra Páll Sigurðsson í Gaulverjabæ og séra Mattbías Jochumsson), en þessi trúarskoðun Sigurðar mun þó'alls eigi hafa valdið neituninni. Hins vegar tekur prestur fram í brjefi til ekkju hins látna, að neitunin stafi af því að hún (samkv. vilja Sigurðar) ekki óskaði kirkjulegra athafna við jarðarförina. Flestir munu sjá,*að þetta svarp’iestsins er harla óftjálslegt og að ýmsu Ieyti óheppilegt. Kirkjusiðir þeir, sem hjer er um að ræða, eru aðeins mannlegar tilskipanir, sem hverjum ætti að vera frjálst að viðhafa eða sleppa. Ritning- in skipar eigi með einu orði fyrir um prest- legar athafnir við jarðarfarir. Höf. þessara lína hefur sjálfur ekkert á móti þessari athöfn, en vill þó engan veginn að nokkur skyldi þvingast í þessu efni. AHt, sem trú snertir, á að vera frjálst. Slík neitun og hjer er um að tala cr líka mjög svo úbeppileg. Yrði það nokkuð tíðara að menn neyddust til að greftra við heimahús sín, gæti í sumum tilfellum hætta af því stafað með tilliti til heilbrigðis almennings. Og eigi ekki aðgángurinn að kirkjugörðunum að vera mönnum frjáls, þá geta fátækir kom- ist í vandræði út af þvf að fá sér heimareit — þeir er enga j'rð eiga —, en það er þó lík- lega meining allra, að einnig fátæklingar eiga rétt til að hafa sjálfstæðar trúarskoðanir. Að lokum ska! jeg geta þess, að fyrirspurn út af þessu máli rnun verða send til stiftsyfirvald- anna og er að vonast eftir, að svar þeirra verði á betri veg. Mjer vitanlegt er einginn lagastafur til, sem setur prestlega greftrunar- athöfn sem skilyrði fyrir því að fá að liggja f kirkjugarði. Og benda má á dæmi Norðmanna í þessu tilliti. Þar eru margir utanþjóðkirkju- menn; sumir nota eigin athafnir við greftrun, aðrir eingar, og samtf eru grafreitirnir sjálf- sagðir fyrir þá eins en þjóðkirkjunnarmcnn. Jeg hef sjálfur verið viðstaddur í Noregi við marg- ar jarðarfarir utanþjóðkirkjumanna þar sem þjóðkirkjuprestur hefur eigi komið nærri og engri mold hefur verið ausið á kistuna, en •— þar eru garðreitirnir til vegna mann- anna en eigi vegna athafnanna. Seyðisfirði 13/lg 1901 Mjólkurmje!. Sænskur maður, Dr. M. Eken- berg í Gautaborg, hefui nýlega gert merki- lega uppgötvun, sem virðist hljóta að breyta miklu í meðferð mjólkurinnar. Hann býr til mjel úr mjólkinni. Mjelinu breytir hann aftur í mjólk með því að hella á það vatni. Ut- búnfngur vjelanna sem búa til mjelið hefur kostað mikla fyrirhöfn, en kvað annars ekki þurfa að verða mjög kostbær. Hver vjel get- ur skilað 1000 kíló af mjólkurmjeli á dag. Mjelið Iítur út einsog hveitimjel og geymist í tunnum og pokum. Þýngd þess cr aðeins tí- undi partur af þýngd mjólkurinnar; það ermeð öðrum orðum þjettuð mjólk. Mjelið má geyma í lángan tíma án þess að það súrni, eða skemm- ist og það í töluverðum hita og hvenær sem vill má breyta þvf í mjólk með því að hella yfir það vatni. Ur þeirri mjólk má fá rjóma smjör og ost eins og gerist. Bæði nýmjólk og undanrenningu má breyta í mjel. Kostnað- urinn er 1 eyrir á hverjum potti. Fyrir utun það að geyma má mjelið miklu ‘Ieingur en mjólkina er einnig allur flutníngur á því bæði þægilegri og ódýrari. Klondyke. 22. t. m. fiytja Amerisk blöð þær fregnir.að nokkrir af gullgröfurunum í Klondyke hafi myndað samsæri með því mark- miði, að losa Klondyke frá Canada. Það kvað hafa náðst í skjöl, sem sanna þetta og þar sjest meðal annars, að sarnsærismenn nefna sig »MiðnætursóIar regluna« . Reglan kvað vera stofnað f Dawson City af Amerískum manni sem Feniere heitir. Aform samsærismanna var, að taka fyrst lögreglustöðina í Dawson City þegar vetraði og ferðamenn hættu að koma þángað og svosmátt og smátt aðrar lögreglu- sveitir Canadamanna meðfram Yukonfljótinu. Hve mikið úr þessu hefur orðið vita menn ekki enn. Kinverjar. Eins og kunnugt er gekk mjög seint að koma á samingum milli Kínverja og Evrópumanna eftir að ófriðurinn mátti þó heita um garð geinginn. Danskur maður, J. Henníngsen, sem leingi hefur dvalið í Kína, hefur skrifað um orsakirnar til þessa. Þar er að hans sögn kínversk hugmynd ráðandi, sem Norðurálfumenn eiga erfitt með að skilja. A Kfnversku heitir hún »Lien Mien«, sem þýðir »að bjarga andlitinu«, en það er að gefa við- burðunum annað útlit en hið rjetta og sjcr í hag. Gagnvart Kínversku þjóðinni þurfti stjórn- in um fram allt að dylja ófarir sínar fyrir Evrópumönnum. Eitt af friðarskilyrðum Norðurálfumanna var, að bannaður yrði innflutníngur allra vo_ na og skotfæra í Kína næstu 2. ár. Þetta heimt- uðu þeir kunngert um allt Kínaveldi. Stjórn- in hafði ekkert á móti samníngsatriðinu í sjálfu sjer, en hún vildi ekki orða hann svo, að Kínverjum gæti skilist að útlendíngarnir neyddu hana til samnínga. Um þetta eina at- riði, orðalagið á stjórnar tilskipuninni, var rætt aftur á bak og áfram í margar vikur, og loks feingu Kínverjar að hafa hana svolátandi: »Innflutníngur á vopnum og skotfærum er stríðandi móti lögum landsins, 'sjeu þau rjett skilin. Samt sem áður lítur svo út sem kaup- mennirnir i -höfnum, þeim, sem, opnar eru fyrfr útlendíngum hafi þann vana að flytja inn vopn og skoifæri og selja hjer undir því yfirskyni, að þetta sje gert með samþykki stjórnarinnar. Þar sem nú er ríkjandi megn óánægja og úlfuð milii ýmsra flokka í ríkinu og útlendíng- anna, þá virðíst nauðsynlegt að banna stráng- lega allan innflutníng á skotvopnum og , her- gögnum í ríkið til þess að koma í veg fyrir upphlaup og óeyrðir. Samkvæmt þessu skipum vjer hjermeðund- irkonúngunum og landshöfðíngjunum í öliu.ia hjeruðum ríkisins og tollgæslumönnunum í höfn- um þeim sem opnar eru útlendíngum, að banna allan innflutníng vopna og skotfæra í ríkið fyrst og tremst í 2 ár.« Kfnastjórn stílar bannið með öðrum orðum svo, að það lítur út fyrir, að það sjehúnsem banni Evrópumönnum innflutníng vop lanna til þess að hindra upphlaup og óeyrðir frá þeirra I hálfu. A þennan hátt hefur Kínastjórn að því j er þetta atriði snertir íullkomlega »bjargað I andlitinu.« Sama er að segja um sendiför Chun prins á fund Þýskalandskeisara til þess að biðja fyr- irgefníngar á morði þýska sendiherrans. Prins- inn komst hjá að kniefalia keisaranum og bjargaði þannig andliti bróður síns, Kínakeis- arans. Þar á ofan þá hann háar orður og titla að Þýskalandskeisara. Annar Kínverskur höfðíngi, Na Tung, sem hafði verið einn af forsprökkum Boxarahreif- íngarinnar, var sendur til Japans með fyrir- gefníngarbón fyrir morð á einum af fulltrúum Japansmanna f Kína. Hann fjekk að orða fyr- irgefníngarbónina svo, að Sugiyana »hefði dá- ið i Kína óheppilegum dauðdaga,* og þar með bjargaði hann andliti Kínastjórnar í því máli. Þetta, að fá að haga orðunum einmitt á þennan hátt, hefur Kínastjóin borgað með of fjár. Tyrkland. Þ.ss hefur áður verið getið hjér í blaðinu, að Frakkar sendu flotadeild aust- ur í Miðjarðarhaf til að ógna Tyrkjum og Ijetust mundu taka mcð hervalda einhverja af eyjum þeirra í Grikklandshafi, ef þeir ekki fullnægðu samningum þeim sem gjörðir voru milli þjóðanna um kaup á hafnarkvíum Frakka þar eystra. Tyrkir leituðu víða liðsinnis, en feingu hvergi áheyrn Þó hjetu Bretar að gánga { milli með friðarboð, ef Frakkar yrðu mjög áleitnir, en jafnframt sögðust þeir einnig taka land frá Tyrkjum, ef Frakkar gerðu það. Frakkar fóru sjer hægt og gáfu Tyrkjum góð- an tíma til að hugsa sig um. Þó lögðu þeir að nafninu til hald á eyna Mytylene, þángað til Tyrkir hefðu gert hreint fyrir sínum dyrum. Nú hefur samningunum fullnægt og Frakkar kölluðu þá flota sinn heim aftur, en ekki varð af frekari óeyrðum í það sinn. En 21. f.m. slóst aftur upp á vinskapinn milii Frakka og Tyrkja. Fraoskt herskip Mouette, sótti um leyfi til Tyrkjastjórnar til þess aðf mega fara gegnum Dardanellusund. Frakkar áttu áður eitt skip þar fyrir austan. Soldán ljet utanríkisráðgjáfann svara, að eingint ástæða væri til þess, að Frakkar hefðu þar tvö herskip að staðaldri og því yrði leyfið ekki veitt. Jafnframt var sendiherra Frakka bent á, að rjettast væri að hann afturkailaði umsókn- ina.

x

Bjarki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.