Bjarki


Bjarki - 24.12.1902, Síða 8

Bjarki - 24.12.1902, Síða 8
8 BJ ARKI. millj. Vest Virgina 25, Ohio 19 og Alabama 9 milij. tonna. -©»Æ»ý- Ferðaæfintýri 16 ára gamals dreings. —o— Frá New York er sögð merkileg saga frá því, hvernig 16 ára gamall dreingur frá Dalmatíu, að nafni Bozo Gazina, komst til Ameríku, þar sem hann hyggur að mynda sjer framtíð. Hinn úngi snáði á heima í litlum bæ í Dalmatíu, sem heitir Sebenico. Hann er ýngstur af fjöldamörg- um systkinum sínum og eiga foreldrar hans við mjög 9 þraungan kost að búa. Bozo leið ekki vel í foreldra- húsunum, því eldri bróðir hans var vondur við hann, og þegar faðir hans fyrir hjer um bil 2 árum liðnum fjekk honum 200 kr. og sagði honum að fara með þær út í heiminn og Ieita gæfu sinnar, þá varð Bozo himinglaður. í góðu skapi hljóp hann á stað til 'í'riest og var að öllu ánægður, þegar hann kom til bæjarins. Af peníngunum hafði hann notað að eins 50 kr. í Triest kom hann því miður ekki í góðan kunníngs- skap. Hann kynntist þar mjög vingjarnlegum karl- manni, sem tók frá honum alla peníngana og lofaði að hann skyldi útvega honum ódýrt far til Ameríku með góðri aðhlynningu á leiðinni. Þegar þessi vina- legi kunningi hafði feingið peningana hvarf hann og Ijet ekki sjá sig meir. Bozo varð því mjög halasneyftur að hverfa heim aftur' til Sebeneco. Og það væri synd að segja að hann feingi góðar viðtökur heima. Ættfólk hans sló þó ekki alveg af honum hendinni, og var honum því útveguð staða á lyfjabúð. Fln þar undi Bozo sjer mjög illa. Vinnutíminn var mjög lángur, maturinn slærnur og kaupið lítið, og aumingja Bozo, sem hafði svo leingi lángað til að sjá sig um í heiminum, hljóp burtu og hjelt aftur til Triest og faldi sig í gufuskipi sem átti að fara til Alexandríu. Þegar þángað kom, fór hann næsta dag á stað með gufuskipinu „Fabraii", sem átti að fara til Liverpool og hann gat Iæðst um borð í. Þegar skipið var komið í haf, opinberaði sníkju- gesturinn sig fyrir skipsstjóranum, setn sendi hann til kolamokaranna til að hjálpa þeim til. í Liverpool yfirgaf hann skipið og honuin heppn- aðist þar að fela sig í gufuskipinu „Saxonía", sem tilheyrir Cunard-línunni og á því komst hann til New York. , Hjer lenti hann í klærnar á embættismönnunum, sem hafa eftirlit með innflytjendum, og þeir ákváðu strax, að hann skyldi sendast til þess staðar, sem hann hefði komið frá. Og þannig komst aumíngja Bozo aftur til Liverpool. En hann var samt ekki af baki dottinn þessi úngi glæframaður. Þegar hann hafði dvalið nokkra daga í Liverpool, og lifað þar á sníkjum, heppnaðist hon- um, þann 13. júní, um miðja nótt að smeygja sjer um borð í gufuskipið „Umbria". Þar hljóp haun í fángíð á offisera, sem íinyndaði sjer að hann væri kolamokari og skipaði honum því niður í vjelarúmið þar sem hann ætti heima. Bozo flýtti sjer niður í vjelarúmið og faldi sig þar í katli, sem hafður er til að hreinsa sjó. Til allrar hamíngju var ketillinn ekki brúkaður á ieiðinni, að öðrum kosti hefði aumíngja Bozo orðið að láta líf sitt á hræðilegan hátt. Þángað til fimmtudaginn þ. 19. var Bozo í hæli sínu. Tveír kolamokarar, sem hann hafði sagt til sín, færðu honum af og til dálítið að borða. Mikið var það ekki, rjett að hann gat haldið lífinu fyrir húngri. Þennan sama dag kom þángað mannvirkjufræðíngur Mac Krochen, sem var að hengja föt til þerris nálægt katlinum, og fyrir tilviljun sá hann Bozo, sem var að gægjast eftir, hver væri þar á ferð. Mannvirkjafræð- íngurinn gáði nú betur að, og að lokum var hinn úngi dreingur tekinn úr skumaskoti sínn og færður fram fyrir skipstjórann. Hann fjekk hann í hendur skipslækninum, dr. Burland,sem lagði hann inn á spít- ala skipsins. Farþegjarnir, sem nú komust að raun um það, sem skeð hafði, feingu þokka á þessum únga, fallega og fjöruga dreing, söfnuðu peníngum handa honum svo miklum að hann gat búið sig frá hvirfli til ilja, þegar á land kom. Þegar til Ameríku kom, var Bozofeinginn í hendur yfirvöldunum á EIlis Island. Einn yfirmaðurinn, Williams, fekk þokka á þessum únga manni sem hafði sýnt sig svo hugaðan. Hann hugsaði sem svo, að fyrir þennan únga mann yrði eitthvað að gjöra. Bozo gat ekki talað nema móðurmál sitt. Hann Fiskiskip til sölu. Kutter »Ruth«, sem liggur hjer í vetur, er enn til sölu, en fer líklega til Noregs í Apríl eða maímánuði næstk. ef hún ekki selst áður Seyðisfirði 12. des. 1902. Sig Jóhansen Góð jólágjöf^MC 'j Q Q Q Stúkan »Aldarhvöt no. 72« keldui fund í nýa húsinn sína á Báðareyrí á h 0 erj um sunnudegi klukkan 4 síðdegis. — Meðlimir mœti. Nýu meðlimir vclkomnir. Brúkuð ísienzk rrímerki kaupir Andr. Rasmussen, Seyðisfirði. Hjá öllum íslenskum bóksölum fæst: Brandur, sjónleikur í hendingunt, eftir Henrik Ibsen. íslens-k þýðing eftir Matth. Jochumsson. Arni, saga eftir Björnstjerne Björnson. íslensk þýðiag ettir í’orst. Gíslason. Fallegf, ódýr, einstök í sinni röö, efni í yfirfrakka og tiíbúin föt tii sölu hjá Eyj. Jónssyni. sendi því strax eftir landa hans, Georg Shubert, sem áður hafði verið túlkur, en nú var lögregluþjómt. Hann var látinn taka Óozo að sjer með þeirri um- ‘ sögn, að ef hann gæti fundið einhvern landa hans í New York, sem vildi taka hann að sjer, mætti hann dvelja í Ameríku framvegis. Shubert fór með honum á leit um nýlenduna. Fyrsta húsið sem þeir fóru inní var no. 2099 í 2. götu. Á öðrum sal í þessu húsi bjó-maður frá Dalmatíu. Þegar dyrunuin var lokið upp og þeir sáu inn í herbergið, varð Bozo frá sjer nutninn af gleði, því í herberginu var mað- ur sem hann þekkti, sem hjet Felix Gazina, og var frá sama bæ og hann og auk þess skyldur honum lángt fram í ættir. Gleðifundurinn var mjög mikill og Felix Gazina sagðist skyldi taka að sjer hinn únga jnanti. Bozo fjekk leyfi hjá yfirvöldunum að mega dvelja í Ameríku, og væntanlega heppnast honum að verða nýtur borgari í hinum stóra Vesturheimi. S, Hjá öllum bóksölum fæst: Spánskar nætur, sögtir eftir B. Jansen, kr 1,50 Æfintýrið af Pjetri Píslarkrák,eftir Chamissóo,5o Um ríki og kirkju eftir Leo Tolstoi . 0,50 Blaðið „Reykjavík*4 geta menn pant- að hjá ritstjóraBjarka. Það flytur betri frjettir úr Rvík en nokkurt annað blað, götuvísur úr Reykjavík, góðar útlendar frjettir og miki.5 af skemmtilegum sögum. Kostar að eins 1 kr. árg. 3 runaá byrgðarfjeiagið ojfye danske 2> randforSikringS 3e/skab“ Sformgade 2, X'óbenhaon Stofnað 1864 (Aktiekapital 4,000,000 og Reservefond 800,000) tekur að sjer brunaábyrgð á húsum, bæjum, gripum, verslunarvörum, innanhúsmunum o. fl. fyrir fastákveðna litla borgun (Præmie) án þess að reikna nokkra borgun fyrir brunaábyrgðar- skjöl (Police) eða stimpilgjald. Menn snúi sjer til umboðsmanns fjelagsins á Seyðisfirði $f. Ch. Jónssonar. RITSTJÓRf: ÞORSTEINN GÍSLASON. ---—i> Jólagjafir. Nú með Agli íjekk jeg ýmsar vörur, þar á meðal: M i k i ð ú r v a 1 a f f a 1 1 e g u m lömpum, heingilömpum, borðlömpum, vegglömpum og náttlömpum — skHUta, ljómandi faliega frá kr. 1,25 til kr. 7,50. 10 °|0 afsíáttur gegn peníngum. Hvergi betra að vcrsla. Lángódýrasta verslunin í bamum. St. Th. Jónsson. Prentsm. Seyðisfj.

x

Bjarki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.