Alþýðublaðið - 17.01.1927, Page 3
ALEÝÐUBLAÐIÐ
3
atbeina fornleifaíélagsins; samin
er hún eftir fyrirmynd frá M. Þ.
og vir'ðist vera hentug. Þarf ekki
að orðlengja bað, hvert parfa-
verk slíkar örnefnalýsingar eru,
og skulu menn eindregið hvatt-
ir til að gefa sig að þeim. Síðast
er mjög fróðleg ritgerð eftir M.
Þ. um „Legstein og legstað séra
Jóns píslarvotts“, og kemur hún
víða og vel við. Legsteinn séra
Jóns er nú kominn í pjóðminja-
safnið, en verið er að gera stein,
ler settur verður upp í Vestmanna-
eyjum í hans stað. Það er og
góð tillaga hjá Matth. í niðurlagi
ritgerðarinnar, að Tyrkjaráns
verði minst á viðeigandi hátt á
þessu ári, par sem liðin eru 300
ár frá því, að það gerðist.
Sú kyrláta iðja, sem þessir
fræðimenn, sem í árbókina rita
lítillátir, hafa með höndum, er
ólíkt geðugri en sumt, sem ritað
er með hávaða og bumbuslætti,
og jafnast fyllilega, þö minna sé,
á við það, sem meira er að vöxt-
unum, því að alt fer eftir gæðum,
en ekki eftir mergð. Þó væri auð-
vitað gott, ef félagið væri fært
um að hafa árbókina stærri.
í ritinu er eitt hlægilegt að sjá.
Það eru 10 manns, sem sitja í
stjórn félagsins, sem þó ekki hefir
ráð yfir meiru fé 1925 en 3974
kr. 44 aur. og annaðhvert ár gefur
út 11 arkir prentaðs máls. Það
' er meira stjórnarbáknið, en ætti
auðvitað að geta komið þessu af.
Heimili fyrir ofdrykbiumeim.
Eins og menn viía, er nú mikið
atvinnuleysi. En það er víst eng-
in aiieiðing af því, að menn, sem
ég hefi oft orðið var við hér í
bænum, stöðva hina og þessa,
ter þeir hitta, og biðja þá að
i„]ána“ sér 1 kr. eða jainvel minna.
Til hvers þessir menn nota pen-
ingana er augljóst, því að þeir
•eru atlir undantekningarlaust
drykkjumenn, og lenda pening-
arnir því annaðhvort hjá Áfeng-
isvérzlun ríkisins eða leynisölun-
urn. Flestir þessara manna gera
eftir því, sem ég hefi komist næst,
sjaldan eða aldrei handarvik og
teru þar af leiðandi á bænum.
Þeir hafa séð það, að þeir geta
lifað þessu lifi óáreittir af yfir-
völdunum.
En slíkir menn eru skaðlegir
fyrir þjóðfélagið, og er það sjálf-
sagt, að eitthvað sé gert til þess
að fækka þeim, því áð eins og
nú er eru þeir til mildlla þyngsla
.fyrir bæinn.
Væri ekki nær, að einhver heið-
virður, en fátækur barnamaður
nyti þeirra peninga, er þessir
menn fá úr bæjarsjóði?
Það eru líklega flestir, sem
svara þessari spurningu játandi,
en einhverjir myndu aftur á móti
segja sem svo, að þetta yrði svo
að vera, því að ek!-.i dygði að
'láta þá deyja úr hungri og að-
hlynningarleyd.
Nei, ekki dugir það, en þaö er
tii eitt gott ráð við þessum mönn-
um, og það er, að bærinn kaupi
einhverja jörð, eigi mjög langt
frá Reykjavík, og taki þessa h'á'p-
arþurfa menn og láti þá hreint
og beint vinna.
i, Slíkar stofnanir hafa gefist vel
terlendis, og eru mörg dærni þess,
að menn hafi komist aftur á rétta
braut.
Mönnum þessum myndi liða
rnikið betur á slíku heimili en í
öllu draslinu hér í bænum, og að
sjálfsögðu yrði séð svo um, að
þeir gætu ekki aflað sér áfengis.
En ef bæjarstjórnin lætur eigi
til sín taka í rnáli þessu, er hætt
við því, að fleiri og fleiri ungir
menn leiðist út á þessa skaðlegu
braut.
S. s.
Um daginst og treglssn.
Næturlæknir
er í nótt Katrín Thoroddsen,
Vonarstræti 12, sími 1561.
Fyrirlestur
séra Jakobs Kristinssonar í gær
var, eins og hinn fyrri, svo vel
sóttur, að hvert sæti í Nýja-Bíó-
salnum var skipað, bæði uppi og
niðri. Fyrirlestur þessi var flutt-
isr í þeim tilgangi að deyfa eggjar
aðhlátursins að voninni um komu
mannkynsfræöara á vorum dög-
um, — því að þeir, sem unna
góðum málum, komi oft ekki fram
af því, að þeir óttast aðhlátra.
Fyrirlesarinn lýsti stefnu félagsins
„Stjörnunnar í austri“ og von fé-
laga þess. Meistarinn muni ekki
koma með nýja kenningu fyrst
og fremst, sagði hann, heldur með
nýtt líf. Taldi hann svo líklegt, að
mannkynsfræðarinn myndi nofe
tímann sem allha bezt, að meiri
líkur væru til, að hann yrði ekki
barn hér á jörðinni. „Það eru fífl-
in, flónin og letingjarnir, sem
aldrei haf(a ríeitt að gera. Stór-
mennið er alt af kafið önnum,“
sagði séra Jakob. Loks tók hann
dæmi um sérhvern nýjan sann-
leika af Friðþjófi frækna, þegar
hann kom í höll Hrings konungs,
og gledurn hirðmanna að stafkarl-
inum. Hver nýr sannleikur, sagði
hann að síðustu, er Friðþjófur
frækni í stafkarlsgervi, sem þrif-
ur til þess, sem fyrir er, hristir
það til, byltir því við og hefir
endaskifti á hirðsnápum vanans.
Læknir látinn.
Ólafur Gunnarsson læknir and-
aðist i fyrra dag í sjúkrahúsinu
í Landakoti. Banameinið var
þarmasár. ólafur heitinn var 41
árs að aldri,- var læknir í Mið-
fjarðarhéraði 1915—25, en varð
þá að láta af embætti sökum
vanheilsu, flutti hingað vorið
1924. Kona hans lifir eftir hann
og börn þeirra sex.
Kaupið
við afgreiðslu „Botníu“ er kr.
1,40 um klst. samkvæmt taxta
„Dagsbrúnar". Þessa er getið að
gefnu tiLefni.
Sigurður Sigurðsson
búnaðarmálastjóri flutti annan
fyrirlestur sinn um Grænland í
gær við góða aðsókn. Gerði ræðu-
maður grein fyrir endalokum ís-
landsbyggðar á Grænlandi. Fylgdu
fyrirlestrinum skuggamyndir, og
var hann að öllu hinn fróðlegasti,
og er vel varið tíma til að hlusta
á mál Sigurðar.
Kvöldvökurnar.
1 kvöld iesa þeir Árni Pálsson
og Jón Sigurðsson frá Kallaðar-
nesi, en Jósef Húnfjörð og Har-
aldur Stefánsson kveða lausavís-
ur með rímnalögum.
tgjjfjfjj tjgj lCfl
„Dagsbrúnar“-menn
eru beðnir að koma í Verka-
mannaskýlið kl. 7Va í fyrra málið.
Dánarfrétt.
Guðmundur Sigurðsson, starfs-
maður hjá Garðari Gíslasyni, en
áður forstöðumaður sparisjóðsins
á Eyrarbakka, andaðist í morgun.
Átakanlegt
var það um Balholmslysið, að
skipstjórinn, sem á skipinu var,
bafði kvongast rétt áður en hann
lagði upp í ferðina, og var kona
hians með honum og fórst sem
hann.
Veðrið.
0—6 stiga frost, kaldast 4iér í
Reykjavík. Átt norðlæg. Snarpur
vindur á Raufarhöfn. Annars stað-
ar lygnara og víðast hægviðri.
Loftvægislægð fyrir austan land.
Útlit: Norðlæg og austlæg átt.
Hæg hér um slóðir, hreinviðri í
nótt. Allhvöss norðaustanátt og
hríðarveður á Norðurlandi og dá-
lítil snjókoma á Austfjörðum og
á útkjálkum nyrðra og vestra.
Heilsufarsfréttir.
(Símtal í dag við landlækninn.)
H|ér í Reykjavik hefir „kikhóstinn“
talsvert ágerst síðustu viku. Ber
mest á honum í Þingholtsstræti.
Taugaveiki kom upp á einu heim-
iii hér í borginni. Upptök hennar
enn ókunn. Ekki aðrar farsóttir
hér. Á Suðurlandi virðist „inflú-
enzu“-faraldrinum iokið að mestu,
;nema i Vestmannaeyjum. Þangað
kom veikin seint, og er hún tals-
verð þar nú, líkt og þegar hún
var mest hér i Reykjavík í vetur.
„Kikhóstinn“ er kominn á eitt
heimili í Borgarnesi. Annars er
gott heilsufar á Suðurlandi. „In
flúenzan“ ágerist heldur á Vest-
urlandi, einkum á ísafirði. Að
öðru leyti er gott heilsufar vestra.
„Kikhóstinn" er, að því er læknar
yita, í þremur héruðum á Norð-
urlandi, Blönduóss-, Sauðárkróks-
og Hofsóss-héruðum, mestur í
Blönduósshéraði. Otbreiðslan cr
hvergi mikil og veikin væg. Að
öðru ieyti er farsóttalaust á Norð-
urlandi og gott heilsufar, og
taugaveikin á Sauðárkróld er
stöðvuð að fuilu. Einnig er gott
heilsufar á Austfjörðum, nema
væg „inflúenza“ á Eskifirði og
Fáskrúðsfirði.
Skipafréttir.
iT'
„Botnia“ kom hingað í gær, en
að hafnarbakkanum í morgun,
þegar sóttvarnardagarnír voru
liðnir. Fisktökuskipið „Bru“ fór
utan á laugardaginn, en „Thore-
þofte“ í gær.
Togararnir.
„Belgaum“ kom inn í fyrra dag
með bilaða vindu, en er farinn
aftur á veiðar. Enskur togari kom
hingað i gær til að taka veikan
mann. Auk „Draupnis" er ver-
ið að búa „Njörð“ á veiðar.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund.........kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 121,64
100 kr. sænskar .... — 122,00
100 kr. norskar .... — 117,26
Dollar................— 4,568/*
100 frankar franskir. . . — 18,31
100 gyllini hollenzk . . — 182,88
100 gullmörk þýzk... — 108,44
i
Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur verður annað kvöld
kl. 71/2 í Bárusalnum.
Iiamleíid tfiHsndi/"
ísafirði, FB., 15. jan.
Bæjarstjórnarkosningin á ísa<*
firði.
Bæjarfógetinn hefir fallið frá
því að segja upp fulitrúa sínurn
út af framboði hans til bæjar-
stjórnar. í kjöri verða því þeir
tveir listar, er getið var um í
skeyti 9. þ. m.
Aflabrögð.
Góður fiskafli, einkum á útmið-
um Djúpsins. V.
Seýðisfirði, FB., 15. jan.
Maður verður úti.
Ungur trésmiður af Seyðisfirði,
Sigurður Hannesson, fór frá Eið-
um til Seyðisfjarðar og lagði á
Vestdalslieiði á miðvikudaginn.
Hrepti hann snjóbyl á leiðinni.
Eftir mikla leit á fimtudag og
föstudag fanst hann örendur efst
í Stafdal.
Bæjarstjórnarkosning
á Seyðisfirði.
2 listar komnir fram: A-listi:
Sigurður Arngrímsson ri stjðri,
Sveinn Árnason yfirliskima smað-
ur og Sigurður Þ. Guðmundsson
prentari B-listi: Sigurður Bald-
vinsson póstmeistari, Gunnlaugur
Jónasson verzlunarmaður og Guð-
mundur Benediktsson rafvirk.i.
Hœnir.
FB„ 15. jan.
Innfiutningur í dezember.
Fjái málaráðuneytið tilkynnir: