Ísland - 12.02.1899, Síða 2

Ísland - 12.02.1899, Síða 2
10 f SLAND. Þættir um íslenzkar bókmenntir. II. Sæmundaredda. Svo nefnist einu nafni safn alimikið af fornum kvæðum, og var það áður trú manna, að Særaund- ur prestur hinn fróði væri höfundur þeirra, eða hefði safnað þeim, og er nafnið þaðan sprottið. En nú vita menn, að hann getur eigi verið höf- undurinn og er talið vafasamt, hvort hann hafi átt nokkurn þátt í að safna kvæðunum. Hand- ritið, sem geymt hefur flest af kvæðum þessnm, er í konungsbókhlöðunni í Kaupmannahöfn; það er á skinni og nefnist Konungsbók. En þá bók átti Brynjúlfur biskup Sveinsson en gaf JDana- konungi. Auk þessara kvæða eru og nokkur önnur calin til Eddukvæða, af því að þau líkjast þeim i öllu, þótt ekki sjeu þau geymd í sömu handritum. Edda er skylt óður, og þýðir: skáldskapur. Snorri Sturluson kallaði svo rit sitt um norrænar goðasagnir og skáldskap. En miklu síðar fá þau kvæði, sem hjer er um að ræða, það nafn, en það fengu þau af því, að menn hugðu þau kornin úr öðru riti sams konar, er Sæmundur fróði hefði ritað. Ekkert vita menn með vissu nm aldur þessara kvæða. En norrænir málfræðíugar hafa ráðið það af málinu á þeim, að þau geti ekki verið eldri en frá 9. öld, og telur Finnur prófessor Jónsson þau ort á 10. og 11. öld. Eigi eru lærðirj menn heldur ásáttir um, hvar þau muni ort, og telja sumir þau keltnesk að uppruna, aðrir norsk ogenn aðrir íslenzk. Hafa margir þauilærðirvísinda- menn ritað þykkar bækur á ýmsum tungum um þetta efni og eru kvæðin allfræg. En engar sagn- ir hafa menn um þau nema frá íslendingum , og ertt þau að því leyti okkar eign, hvaðan svo sem þan kunna að vara runnin upphaflega. Kvæðin hafa lengi gengið í munnmælum manna á milli, áður þau væru rituð; muau þau því víða afbökuð, og líkiegt, að það sem nú er til sjeu ’orot ein, eða kvæðahlutar. Það þótti góð og göfug skemmtun á Norðurlöndum í fornöld, aðheyra kvæði flutt og sögur sagðar; voru þeir menn vel metnir, er slík fræði kunnu. Optast munu þetta hafa verið gamlir menn, er víða höfðu ratað og margt hugsað. Voru þeir nefndir þulir, en það er skyit sögninni að þylja og nafnorðinu þuia, og þýðir skáld eða vitringur. Höfðu konungar og aðrir höfðingjar sjerstakan stól í sölum sínum handa þeim mönnum. Eigi voru þeir ætíð sjálflr höf- undar að því, sem þeir fluttu, en sögðu frá því, sem þeir höfðu heyrt og numið af öðrum. Flest segja kvæðin frá *gömlum goðdsögum eða hetju- sögum og voru þeir, er frá sögðu, fremur taldir fræðimenn en skáld. Rímið á kvæðunum er mjög óvandað og öll byggingin laus. Sum þeirra eru að eins lítt rím bundnar þulur, svo sem Rígsþula, Þrymskviði o. fl., og fylgja engum föstum reglum. Eru þulur ó- vandaðastur kveðskapur og ekki nema að nokkru leyti bundið mái. Byggingin bendir á, að þulur sjeu fyrsti vísir'til kveðskaparins, og líklegt er, að það nafn hafl hann haft í fyrstu, svo sem hin elztu skáld, er sagnir fara af, voru nefndir þulir Fornyrðalagið er líkt þulunni, en nokkuð fast- byggðara. Aðrir bragarhættir í Eddukvæðunum eru málaháttur og Ijóðaháttur. í þesaura þremur háttum er fram komið rím með ákveðnum áherzl- um og fastri skipun stuðla og höfuðstafa. Aunars koma rímstuðlar einnig fyrir í máls- háttum og spakmælnm, og er uppruni rímsins eigi annar en sá, að tilraun er gjörð til að orða eia- stakar setningar sem bezt og snjallast, t. d.: „ekki er allt gull, sem glóir“, „þar er mjer úlfs von er jeg eyrun sje“, „köld eru kvenna ráð“ o. s. frv. Verðurþetta svo að list, og eru heilar sögur sagð- ar á þennan hátt til að gjöra þær áheyrilegri; þær eru fluttar í þulu eða kvæði. Þetta er fornyrðalag oger úr Völuspá: Át var alda Jðrð fannst eigi þars Ymir byggði; nje upphiminn; var-a sandr nje særj gap var ginnunga nje svalar unnir. en gras hvergi. Þatta er málaháttur og segir frá för Niflunga til Atla konungs: Fetum ljetu fræknir um fjöll at þyrja marina melgreypu Myrkvið hinn ðkunna. Hristist öll Hónmörk, þars harðmóðgir fóru; ráku þeir vandstyggva völlu algræna. Þetta er Ijóðaháttur: Meyjar orðum Því at á hverfandi hveli skyldi mangi tróa voru þeim hjörtu sköput, nje því er kveðr kona. brigð í brjóst um lagit. Flest eru kvæðin sagnir um goðin eða fornar goðkynjaðar hetjur og valkyrjur. Önnur eru lær- dómskvæði og kenna heimspeki og lífspeki þairra tíma. Sagnakvæðin eru öll kveðin um viðburði, er löngu áttu að vera um garð gengnir, en geymzt höfðu í munnmælum. En tíminn nemur jafnan smáatvikin burt, en aðalviðburðirnir geymast í sögunniogverða æ stórfengilegri eptir því sem lengra líður frá. Því er ætíð svo fyrir augum vorum, sem töfraljóa brenni yfir þeim tíma, er vjer höfum að eins munnlegar sagnir af. Og skoðanir þær, sem hjer koma fram á heiminum og tilverunni, eru óljósar og öfgafullar. Allt verður með undrum og kynjum, táknum og stórmerkjum, göldrum og gjörningum. Leynileg öfl taka sí og æ fram fyr- ir hendur manna. ímyndunaraflið er Iftt bundið af lærdómi eða vísindum og skapar veröldina, guði, menn og viðburði eptir vild sinni. Fuglarnir tala í trjánum og segja fyrir óorðna hluti; menn fara með galdra; valkyrjur ríða iopt og lög o. s. frv. Ghiðirnir hafa að öllu mannlegt eðli og æði, og eiga í höggi við jötna og þursa. Hjer er engin ljós aðgreining guða, manna, jötna og dverga, eða himins og jarðar. Tilveran er öll í töfraljósi. Það er eins og guða andi svífi enn yflr vötnun- um. ímyndunaraflið er ótamið; mannsandinn er hjer í bernskuórum að brjótast um til að fá skiln- ing á heiminum og tiiverunni og stikar geiminn í stórum skrefum. Mörg erindi 1 kvæðunum eru undir eins yndisfögur og stórkostleg; önnur eru aptur þur frásögn eða upptalningar. í flestum kvæðunum er frásögnin aðalefnið, við- burðurinn eða viðburðirnir, sem kveðið er um. Lýs- ingarnar, sem gjörafrásögnina skáldlega, eruhvergi langar nje ýtarlegar. Kvæðin eru fáorð, kjarnorð og dularfuil; það er eins og hálfgagnsæ hulins- blæja iiggi yfir efninu, svo að andann gruni allt af fleira en augað sjer, eins og skáldið segir. Mörg af kvæðunum eru samtöl, og segja menn þeir og guðir, sem kvæðin eru um, þá sjálfir frá Víða er aðalguðinn Óðinn á ferð í dularham, og ræðir við þá, sem hann hittir, um forn fræði, heim- speki og siðaspeki. Þar af er komið nafnið á heizta lærdómskvæðinu, sem heitir „Hávamál“, en það er: mál hins háa, guðs mál eða guðsorð. í Völuspá er Vala ein látin segja frá upphafi heims og forlögum. Menn þeir og konur, sem hetjukvæðin lýsa eru ekki einsog fólk er flest, ekki almennar mennskar verur, heldur goðmagnaðareðatröllmagnaðar feikna- verur. Líf þeirra birtist eins og æflntýri. Allar ástríður þeirraog tilfinningarerumjög sterkar; menn og konur springa af harmi, en brenna af ást, heipt eða grimmd. Miklu næmari athugan kemur fram í lýsingunum á hinu innra lífi, en hinni ytri nátt- úru. Yfirbragði manna og útliti er varla lýst, eða þá mjög ófuilkomlega. Þegar lýst er fríðleik konunnur, er hún sögð hvít eða björt, armhvít og sólbjört og fleira því iíkt; nákvæmari er lýsingin ekki. Þegar Sigurðí Fáfnisbana er lýst, er það með þessum samanburði: Svo bar Sigurður af sonum Gjóka, sem væri grænn laukur ór grasi vaxinn eða hjörtur hábeinn með hvössum dýrum, eður gull glóðrautt hjá grá silfri. Eins eru náttúrulýsingarnar hvergi ýtarlegar Þarerekkilýsteinstökumfjöllum, dölum eða fljótum, blómum eða grösum, ekki litbreytingum hafs og himins eins og í skáldskap nútímans. Jörðin er kölluð græn og iðjagræn, en fleiri liti hefur hún þar ekki. Er nákvæmnin í lýsingum eigi lengra komin þar, en þar sem konan er kölluð hvít og sól björt. Sól skein sunnan Þ4 var grund gróin á salarsteina grænum lauki. Dómsdegi heiðinna manna, þá er jörðin á að farast í Surtarloga, er í Völuspá lýst með þessum fáu en skörpu dráttum: Sól tjer stortna, geysar eimi sökkur fold í mar, ok aldurnari, hverfa af himni leikr hár hiti heiðar stjörnnr, við himinn sjálfan. Þegar jörðin endurfæðist eptir Surtarloga er því svo lýst, eg er það völva, sem sjer sýnina: Sjer hón upp koma öðru sinni jörð ór ór ægi iðjugræna falla fossar, flýgr örn yfir sá er 4 fjalli fiska veiðir. Þetta eru kjarnorðar, fagrar og áhrifamiklar náttúrulýsingar, eiga við stóra viðburði og tapa sjer ekki í smámuni. En smágjörvari drættir og nákvæmari lýsingar eru heldur ekki til í þessum kvæðum. Aptur á móti eru lýsingarnar miklu nákvæmari þegar farið er að lýsa skapi manna og geðshrær- ingnm. Tárinu er á einum stað svo lýst, að það er kallað „úrsvalt, innfjálgt, ekka þrungið" Ást, sorg, heipt og hatri er svo vel lýst í Eddu- kvæðunum, að því er við brugðið. Þó eru Iýs- ingarnar ekki langorðar nje ýtarlegar. En þessar iyndisleinkunnir eru svo skarpt dregnar fram, einkum hjá kvenfólkinu, Brynhildi Buðladóttur, öuðrúnu öjúkadóttur og Sigrúnu ástmey Helga Hundingsbana, að ýms beztu skáld á þessari öld hafa tekið sjer þaðan fyrirmynd. (Framh.) Ex umbra ad astra! Eptir Guðm. Guðmundsson. II. Yfir kletta og klungur. Manstu eptir því þegar, við gengum saman forð- um? — Jeg man það svo vel sem það hefðiverið í gær. Jeg var á ferð og kom á fjarlægu æskustöðv- arnar þínar og þekkti engan mann, — jeg var einn meðal allra ókunnugra, aðkomumaðurinn, gesturinn! Og enn er mjer sem finni jeg hjartað slá eins og það sló forðuro við það að sjá þig, hitta þig. Jeg sá þig gegnum gluggann og hljóp út á móti þjer, — jeg átti þar engra kunningja von, —sízt átti jeg þín von — jeg vissi ekki, að þar voru þínar stöðvar; — þetta kom mjer svo óvænt. Jeg varð glaður, en fyrst átti jeg þó fulít í fangi með að átta mig, þegar endurminningarnar um þig og tilfinningarnar risu upp og stóðu lifandi fyrir sjónum sálar minnar í bendu, svo allt komst á kynlega ringulreið, og jeg gat ekki í skjótum svip greint eitt frá öðru. En svo mætti jeg dökku augunum þínum, þegar íeg kom ofan af dyrariðinu, og undir eins áttaði jeg mig. — Já, manstu það? Við gengum saman, þú sýndir mjer átthagana þína. — Þá var sumar og sólin skein, Ijómi ljek yfir vogum og víkum, fjörðum og fjöllum. Norður á hæðirar gengum við, — grýttu hæð- irnar; lágir kofar og lagleg smáhús blöstu við í grænu rjóðrunum milli hæðanna. Og vinalega brostu smátúuin við okkur í hallanum. Hvítar holtasóleyjar, — hvítar sem sakleysið og þráin unga — vögguðu sjer í blænum milli gráu steinanna, vöfðust upp að þeim og mændu tárvot- um augum til sólarinnar og himinsins bláa, sem var svo yndisblár eptir Ijúfa og lífgandi gróðrar- skúr; hvítu krónublöðin blöktu og börðust við grjótið. En steinarnir voru harðir og hljóðir og högg- uðust ekki fremur en endrarnær! — Og tengdum höndum klifruðum við saman í klettunum, •— horfðum yfir hjeraðið af snösunum, — stóðum í skjólinu af dröngunum, þar sem Hulda býr, — þaðan sem aptansöngur álíanna hljómar yfir voginn á kvöldin. — Mjer datt í hug einhver leið, — jeg sá ein- hvern veg í hugsjón minni, grýttan, brattan, með

x

Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísland
https://timarit.is/publication/30

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.