Freyja - 01.08.1900, Page 4

Freyja - 01.08.1900, Page 4
FREYJA sem hindrar Cnbakonurnar frá að brjóta af sér okið og taka upp háttu ameríkanskra kvenna. Þó Cuba sö ey-land, á hún samt viðburðaríka og stórkostlega sögu. Þessi perla Antileyjanna er nú íi þroskaskeiði sínu. Engil-Saxar eru að kenna latneska þjóðflokknum undirstöðu atriðin í sjálfstjórn, oger þess sannarlega þörf. Fyrir drengi- lega hjálp Ameríkumanna er hún nú frelsuð undan ánauðaroki Spán- verja, og þjóðin er frj&ls, en að liálfu leyti aðeins. því dætur hennar eru enn þá háðar þrældómsoki vanans svo, að í kvennabúrum austuuianda eru konur ekki ófrjálsari. Astæð- urnar cru alstaðar liinar sömu n. 1. drottnunargirni karlmannsins,þó að- ferðin sé mismunandi. Enn sem kom- ið er, hefur engin vinarhönd snert við hlekkjum kvennfólksins á Cuba. Það verður sjálft að berjast fyrir frelsi sínu, með aðstoð hinna fáu bræðra sinna, sem krefjast þess, að þvf sé sýnd sama virðing og veitt sama frelsi, og heimsmenningin gefur annara þjóða konum. Endurfæðingartími sérhverrar þjóðar hefur ætíð baráttu í för með sér. Afturhaldsmennirnir halda fast við liið gainla, endurbótamennirnir heimta liið nýja, og eina dagleið frá oss eru öll öfl siðmenningarinnar sett í hreifingu og biturt innbyrðis stríð liafið á hverju heimili, að þeim ein- um undanskildum sem umgengnin við erlendar þjóðir—ferðafólk hef- ur þegar borið sigur úr býtum, og konurnar standa jafnfætis bræðrum sínurn heima hjí ser. Félagslííið í Havana samanstend- ur af allra handa sundurleitum og ó- Ííkum efnum, sem ekkert land, nema Bandarikin gæti sameinað. Fyrst eru konur ameríkanskra hershöfðingja og annara embættismanna, sumar af göfgustu ættum, fleiri af almúga ætt- um. Þá er fólk frá Kalamazoo sem dvelur sér til skemmtunar í Havana lengri eða skemmri tírna. Þá er sæg- ur af skrifstofu þjónum, þingmönn- um, fregnritum, stjórnmálaherrum, auðmönnum og stjórnarsnöpum með óundirritaða samninga í vösunum. Af öllu þessu samanstendur félags- lifið á Cuba, og þetta hlýtur að \ erða grundvöllurinn undir þjóðfélags fyr- irkomulag komandi tíma í llavana. STÉTTASKIPUNIN Á CUBA. Stéttadramb aðalsins á Cuba þekkist ekki í Ameríku. „Fyrir Tfu ára stríðið sté engin aðalborin kona fæti stnum á bera jörð, þær stigu af marmarastéttinni heima hjá sér upp í skrautvagna sína ogóku eftir stein lögðum götum út um stólpahliðin, sitjandi í dúnmjúkum silkisessum, með konunglegri prakt Hvorki auður né aðrir verðleikar opnuðu al- þýðnfóiki dyrnar að félagsliíi þess- ara hamingjunnar óskalmrna, og ekkert nema ættgöfgi og óflekkað skjaldarmerki. Og þótr vér nú sé- um fátækir, svo sumir af vorum beztu ættum neyðist til að vinna á skrifstofum og við illa launuð em- bætti, og kvennfólk vort verði nú að gangaog bera sjálft böggla stna, þá littr samt stéttadrambið, og haflð milli aðalsins og almúgans er eins breitt og djúpt og nokkru sinni áð-

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.