Freyja - 01.08.1900, Side 6

Freyja - 01.08.1900, Side 6
130 FREYJA sína hvað prakt og sællífi snerti, og þó vináttan hafi verið meira í orði en á borði, tengdi hún aðal beggja þjóðanna saman íi yfirborðinu. En Tiu íirastriðið braut þcnna brothætta hlekk gjörsamlega í sundur, því það var verk aðalsins, og blóði hans var úthelt eins og vatni. Menn af göfg- ustu ættum fóru í stríðið sem óbreytt ir dátar, og konur þeirra og dætur sem áldrei höfðu stígið fæti & bera jörð, fóru huidu höfði og höfðust við í skógum,,en alþýðufólk,vinir þeirra buggu þeim þar laufskúla og skutu dýr þeim til matar, og vernduðu þær fyrir ofsóknum Spánverja. Að stríðinu loknu, voru margar hinar göfgustu ættir á Cuba orðnar fúlausar. Allar þeirra eignir, lönd og lausir aurar lentu f klóm Spánverja. Enda var eftir það fullur fjandskap- ur milli þeirra, og það svo, að engi spánverji, ekki einusinni æðsti hers- höfðinginn kom eftir það inn fyrir dyr nokkurs manns af inum gömlu aðalsættum Cuba. Einusinni á ári hverju urðu þær þó að sýna hershöfð- ingjanum lotningu sfna og holln- ustu, og gjörðu þeir það nauðugt, eins og nærri má geta. En heimili þeirra voru helgidómur sem enginn Spánverji dirfðist að saurga ineð nærveru sinni, þar var harðstjórinn útlægur. Hjónaband milli þessara þjóða, var ómögulegt. Kænii það fyr- ir, var hinn seki þjóðarkvistur óðar afkvistaður og enginn af ættingj- um hans kannaðist við hann upp frá þvf. HÁTÍÐAHALD LANDS- DKOTTNANNA. Um það mætti rita heilaf bækur. Þó var rétt fyrir Tíu ára stríðið, ein tegund af hátfðahaldi sem náði mik- illi hefð hjá aðalsfólkinu og tíðkað- ist mjögáöllum tfmum árs.Hún var þannig: Nokkrar fjölskyldur 50 — 60 f hóp, heimsækja einhvern lands- drottinn, og eftir dans og aðrar skemmtanir taka þær sig upp og heimsækja hinn næsta, og svo koll af kolli þangað til allir hafa heim- sókt og veirið heimsóktir. Cestimir reyndu að koma að húsbændunum óvörum, og húsbændurnir kepptust hver við annann að fagna gestunum og veita þeim sem ríkmannlcgast. Þessu fólki fylgdi æfinlega sægur af þjónum og þjónustumeyjum. Aðal skemmtanirnar voru dans og vín- drykkjur, og var þá praktin og við- höfnin fram úr öllu hófl. Lang beztar og dýrðlegastar voru veizlur Senora Marta Abreau í Santa Clara. Hún hafði flesta þjóna.og þeg- ar hún hélt veizlur sínar, löt hún sækja gesti sfna og flytja þá heim aftur. Sagt er að f einu hafi oft farið tvö hundruð kerrur frá heimili henn- ar sem hún átti sjálf. Gestrisni hennar var takmarkalaus, og allt á heimili hennar bar vott um auðlegð og fegurðartilfinning. Eöðurlandsást hennar var eins og gestrisnin. I síðasta stríðinu gaf hún og maður hennar Senor Estevez, nú hæstaréttarskrifari f ráðaneyti gen. Woods, nálægt §200,000, meira en nokkur annar einstaklingur eða fjöl- skyldufaðir. Þau hjón hafa dvalið mikið erlendis og semja sigmjögað siðum hins göfgasta og bezta fólks annara þjóða.

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.