Freyja - 01.08.1900, Side 10

Freyja - 01.08.1900, Side 10
Með þetta fór ráðskonan, en Lyndarm settist við skriftir sínar. Undir húsi þessu var stór og djúpur stein-kjallari hólfraður í sund- ur, sem nú var notaður fyrir fangelsi. Þar voru þeir Karmel ogliobert, bundnir á höndum og fótum, allt sem þeir höfðu meðferðis hafði verið tekið frá þeim. Þar voru tveir trébútar í stóla stað, og hálmhrúga fyrir rúm. Litla glætu bar til þeirra gegnum rifur í loftinu. „Hvað lieldurðu að þeir gjöri við okkur?“ spurði liobert eftir nokkra þögn. ,,Eg veit ekki. En það er auðvelt fyrir þá að sanna að ég sé njósnari,“ svaraði Karmel. „Njósnari! Þú liefur aldrei komið í herbúðir Breta fyr?“ „Ekki eiginlega, En ég hef ónýtt marga leynifundi þeirra, og þeir vita vel, að það var ég, sem lagði gildruna fyrir Cörnwalles, svo þeir eiga sín í að hefna. En þig geta þeir ckki kallað njósnara.“ „Nei, en þeir vita að ég er kafteinn á yankee-skipi,og skoða mig sjálfsagt sem sjóræningja. Svo verða þeir búnir að frétta um skipið sem ég tók sein- ast. Við erum illa farnir, Karmel.“ „Já, en samt megum við ekki . ör- vænta.“ „Þeir sleppa okkur aldroi lifandi.“ „Ekki ef þeir meiga ráð;r. En máske við getum sloppið.“ „Það er ólík legt. “ „Og máskeómögulegt En maður vonar meðan maður lifir,“ svaraði Karmel. En þeir sem gættu þeirra, höfðu engar slíkar vonir. IV. KAPITULI. Dœmdir— Undarlejir endurfuiidir. Næsta morgun var þeim færður lélegur morgunverður, sem þeir átu af þvt þeir voru hungraðir og ekki völ á betra. Svo var þeim skipað að fylgja varðmönnunum, og gjörðu þeir það. Loks stönzuðu þeir hjá reis- uglegu húsi, sem var eign sir Lincolns, er komið hafði frá Englandi fyr- ir 18 árum. í stofunni í húsi þessu sat höfðinglegur maður vel búinn- Hinar þunnuvarir, livössu leiftrandi augu og ýglibrún hans, toðuðu ó_ vinum hans litla vægð. Maður þessi var sir William Hove, yflr hers. höfðingi brezka hersins. A borðinu hjá honum lá kort af Deleware ánni og öllum bæjum og þorpum meðfram henni. Þetta sá Karmel þegar þeir félagar komu inn, og þótti auðsjáanlega betur. „Þetta eru fangarnir, herra,“ sagði sá sem fylgdi þeim inn. „Ein- mitt. 0g báðir njósnar$r,“ svaraði Hove, og sambland af ótta cg harri skein út úr svip hans. „Annar njósnari, hinn sjóræningi, og báðir hætt-

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.