Freyja - 01.01.1902, Page 16

Freyja - 01.01.1902, Page 16
244 FREYJA Og hvað þeir voru kátir og ljúfir og sakleysislegir/ Og einn hafði á höfðinu kórónu úr gulli, það var álfakóngurinn, og hásætið hans var bikarinn á Marigóld-blómi. En hvað hásætið ruggaði í viþdinum. Og álfadrottningin sat á hæstu liljunni. Hvað hún var falleg, með „gú- gú“ augu, og spékoppa í kinnunum/ Hún var búin í fegursta skraut, allt úr ilmsætustu og fríðustu blómum. Hún leit til mín og brosti, „Xysstu mig,“ sagði litla ljósllfa-drottningin. „Æ, kysstu inig, lcysstu mig, litli drengur—þú ert—svo elskulegur og—svo sætur.“ Og feg varð svo feim- inn. Mig iangaði að sönnu til að kyssa svona fallega og litla ljósálfa- drottningu. En ég var svo feiminn—og svo var álfakóngurirtn lika svo nærri og atlir Ijósálfarnir litlu. Nei, úg þorði ekki að kyssa álfadrottn- inguna, þó hún væri altaf að segja: „kysstu mig, litli drengur, kysstu mig, kysstu mig.“ Ogallir litlu ljósálfarnir hlógu að mér, og álfakóng- nrinn hló að mör, og elskulega, litla ljósálfadrottningin hlóað mér líka, af því ég var svo feiminn. Og mér fannst ég ætla að verða að ekki neinu.-----En svo var ég allt í einu horfinn heim í rúmið mitt. Eg lauk upp augunum og horfði um herbergið. Lalla sat við rúmstokkinn Hún brosti framan í migog ég trosti líka. „Ó, hvað ég hef soflð fast,“ sagði ég, ,,og mig hefur dreymt ósköpin öll.“ „Já, þú hefur sofl3 vært í nótt, elsku Eiríkur,“ sagði Lalla, „og nú fer þér að batna." Hún strauk svitann af enninu á mér með silkiklútnum sínum, og klappaði á hönd mína. „Þér er að batna, guði sé lof.“ sagði hún. En hvað hún var föl— svo ósköp rnögur og föl- „Eg sé að þú hefur vakað yfir mér t nótt, elsku systir,“ sagði ég. „Þú ert góð." ,,Eg hef ekki vakað nema hálfa nóttina," sagði hún, “en guði sé lof fyrir að þér erað batna.“ „Já, mör er að batna — ég gæti klætt mig í dag." „Nei, ekki í dag.“ , „Jæja, þi á morgun. Mér þykir vænt um að þetta utðu ekki eíns alvarleg veikindi og ég hélt i gær. Það er ekki mikið að liggja veikur þrjá eða fjóra daga. Eg vona að við getum lagt af stað í næstu viku, eins og við höfum ákvarðað.“ Lalla leit undan snöggvast. „Þú mátt ekki tala meira í senn, elskti Eirikur," sagði hún, „því þú ert enn svo óstyrkur.“ Eg brosti, ég gat einhvernvegin ekki lilegið. „Nei, ég hef aldrei verið óstyrkur, það var bara kvef í mér í gær og í fyrradag, en ég svaf það úr mér f nótt,—E.i þeir draumar!'1 sagði ég.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.