Freyja - 01.04.1907, Side 17
RITSTJÓRNAR-PISTLAR.
í Nýja Íslandi.
í marz inánuði fer5aöist ég n°r©ur um Nýja ísland um
það leyti sem kosningahríðin stóð sem hœst. Eigi vil ég
þreyta lesendur Freyju á því málefni, en geta má þess þó, að
einkennilegr'a virtist mér pólitíska loítslagiö þar nyrðra en
annarsstaðar þar sem ég hefi því áður kynnst. Þar bar meira
á þeim eiginleikum, sem kallað liefir verið að einkenni ís-
lenzku þjóðina, n. 1. þögulli ásetningsró, sem ætlar sér að
sigra ogsigra hávaða lítið. Mávera aö mér hafi fundist meira
um þetta af þeirri ástæðu, aö fundarhöldin sjálf, með þeim
hávaða sem þeim e.ru jafnan samfara, voru að mestu um garð
gengin þegar ég kom fiorður á því svœði sem ég fór um.
í haust sem leið sagði ég all-nákvœmlega frá Gimli og er
þar litlu við að bœta. Síðan hefir járnbrautin komist þangaö
alla leið. Nokkrum húsum hefir verið bætt við, stærst af
þeim er hótel sem herra Baldvin Anderson hefir látið byggja
skammt frá járnbrautarstöðinni. Einnig eru þau Christie
hjónin, aö bæta við Hótel Baldur afar stórum parti úr stein
steypu. Verður hann 42 fet á breidd, 70 fet á lengd og þrí-
lyft með kjallara undir öllu húsinu. A fyrsta lofti verður for-
stofa, skrifstofa, borösalur, setustofa, móttökusalur og eldhús.
Á öðru lofti 14 svefnherbergi og stáss-stofa, og á þriðja lofti
16 svefnherbergi m. fl. í því eiga að verða öll nútímans
þœgindi eins og bezt í stór borgum, á það og að verða full-
gjört í júnf n. k.
Á leið minni norður um nýlenduna hitti ég marga gamla
kunningja, hafa sumir þeirra reist sér vegleg heimili síðan ég
fór þar um síðast. Meðal þeirra er ég sá og það hafa gjört
eru þau Hnausa hjónin, Stefán kaupmaður Sigurðson og
Valgerður; Kyrkjubæjar hjónin, Baldvin Jónson og Arnfríður
Jónsdóttir; og Fitja hjónin, Sigurður Vídal og Kristín, öll í
Breiðuvík hinni svo kölluðu. Við Fljótið (Icelandic River)
hafa og risið upp all mörg timburhús í stað bjálkahúsanna
gömlu. Sama má og segja um Geysir-byggðina. Allt ber