Freyja - 01.04.1907, Side 18

Freyja - 01.04.1907, Side 18
FREYJA IX. 9. 236 vott um vaxandi velmegun nýlendubúa, enda eru nú allir a5 vonast eftir framlenging járnbrautarinnar norftur eftir ný- lendunni og búa sig undir hana. Þar eö þessi ferö mín var aöallega gjörð í þarfir Freyju vil ég grípa þetta tækifæri til aö þakka öllum sem ég hitti, fyrir greið og góö skil. Einnig vil ég þakka þeim öllum er greiddu ferð mína á einn eða annan hátt, og til þeirra tel ég Gunnstein Eyjólfsson og konu hans, sem þrátt fyrir nœstum ófæra vegi, keyrðu með mig fram og aftur um Geysir- og Fljótsbyggðina í tvo daga. Gunnsteinn er einn af þeim mönn- um er maður þekkir þá bezt, er eitthvað reynir á. Það er forn-íslenzka drenglyndið sem meira kemur fram í verki en mörgum orðum. Margra annara hefi ég og að minnast með þakklœti fyrir samskonar greiðaog meðal þeirra hinna ungu efnilegu hjóna, í Breiðuvíkinni, Kristjáns Þorsteinssonar og Jónínu konu hans. Keyrðu þan rnig um Breiðuvíkina, þó óvíð- argætum við komið sökum ófoerðar, en ég hefði vil.jað. Að endingu keyrðu þau með'mig inn í Árnesbyggðina til þeirra hjóna Stefáns Sigurðssonar og Guðrúnar Magnúsdóttur. Á leiðinni þangað heimsókti ég nokkra kunningja, og þó það væri aðeins stutta stund í hverjum stað, var þeim tíma vel vaiið. Valgerður Sigurðson á Hnausum slóst í förina og varð okkur samferða til frœndfólks síns, Magnúsar Magnússonar á Eyólfsstöðum og konu hans. Þar töfðum við í tvo tíma og höfðum langa og fjöruga samræðu um kvenn- frelsismálið, og bar oss fœrra á milli en vænta mátti. En þar eius og hvervetna annarstaðar í þessari ferð var ináli mínu vel tekið. Ég se.gi vel, því þó suma greini enn þá á um það mál, sérstaklega urn það, að hvað miklu leyti ætti að rýmka til um hag kvenna eða hvað mikið sé ábótavant, eru flestir vi’jugir að gefa mikið eftir. Nú eru og flestir svo langt komnir, að geta rætt á- greiningsmál sín í bróðerni, og er þá mikið unnið. Næst kom ég að Mýrum til Sigurgeirs Einarssonar og konu hans. Átti .ég þar sönnum vinum að mæta þó það væri fyrsta sinni sem ég liefl mætt þeim hjónum. Þau eru ákveðnir mannréttindavinir og góðir liðs- menn þeim málum er þau unna, það hafa þau sýnt á Freyju, ekki einungis með því að kaupa hana 0g borga, heldur og með beinum peningastyrk.

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.