Freyja - 01.04.1908, Blaðsíða 18
226
ERFYJA
X. 9.
,,Hver hefir kennt þér aö syngja?“
,, Enginn, “ svaraöi hún.
,,Hvar lœrir þú þá kvœðin sem þú syngur?"
,,Ó, ég hlusta, ég er allt af aö hlusta, “ sagöi hún, Og
svo sagði hún honum hvernig hún lœröi brot úr kvæðum sem
húnheyröi á ýmsum stöðum og setti svo sjálf saman eftir því
sem henni sjálfri þœtti bezt viö eiga og syngi þaö svo fyrir
fólkið. Alvörugefni og smekkvísi barnsins, fremur en söng-
ur þess, hreif Meistarann. Hann fann þegar foreldra stúlk-
unnár, fékk þau til aö sleppa henni við sig, og gjörðist upp
frá því, lærimeistari hennar og velgjörðamaöur.
Heimurinn kannast ekki við þessa stúlku, sem Elizabeth
Felix, heldur sem, leikkonuna Rachel.
Sjálfsagt heföi sagan aldrei getið um dóttur Faraós heföi
hún ekki borgiö lífi Mósesar. Leonardo da Vinci, er var óskil-
getinn og átti fyrir móöur, umkomulausa bóndadóttur, ólst
upp meö fátækum frœndum sínum, þangað til faðir hans, sem
var aðalsmaöur, kvongaöist aðalborinni konu og tók hann
heim til sín. Sagt er aðsveinninn hafi náö hylli stjúpmóður
sinnar og síðar veriö arfleiddur af föðursínum og fóstru. En
þeir sem hafa unun af að horfa á ,,Kvöldmáltíðina“ (The Last
Supper) og ,,Mona Lisa, “ eru án efa og hafa ástæðu til að
vera þakklátari fátæku frœndunum, sem af eintómri hjarta-
gœzku hlúðu aö hstamannsefninu, meöan enginn sá í því ann-
að en munaðarlaust barn, en föðurnum, sem þá tók Vinci aö
sér, er hann síður þarfnaðist lians.
Mörg fleiri dœmi mætti til nefna ef tími og rúm leyfði,
en þess gjörist ekki þörf. Flestir vita af nokkrum dœmum
nœr sér.
------o------
Presturinn við vinnumanninn:
,,Þér megið ekki aka hjólbörunum yðar eftir kyrkjugarð-
inum, maður minn, eða vitiö þér ekki að þetta er heilagur
staöur?“
Vinnumaðurinn: —.
Ó-jú, herra prestur. En ég hélt að börurnar kynnu að
vera heilagar líka af því aö meðhjálparinn á þœr. “
N