Fram

Útgáva

Fram - 27.10.1917, Síða 1

Fram - 27.10.1917, Síða 1
Ritstjórar: Friðb. Níelsson og Hannes Jónasson. 1. ár. Siglufirði 27. október. 1917. 51. blað. Botn vörpungasalan. 10 skip seld. Sá mikli viðburður í sögu íslands gerðist um síðustu mánaðarmót, að landsstjórnin veitti leyfi til að selja 10 af íslensku botnvörpungunum til Fnakklands. Og eru það þessi skip: Apríl, Maí, Baldur, Bragi, Eggert Ólafsson, Earl Hereford, Ingólfur Arnarson, Rorsteinn Ingólfsson, Rór og Jarlinn. Mun skipasala þessi hafa verið á döfinni síðan snemma í sumar, eða jafnvel síðan í fyrra vetur, en lögin um bann gegn sölu íslenskra skipa úr landinu, sem búin voru til á aukaþ. í vetur verið því til fyrirstöðu, og landsstjórnin hinsvegar ekki viljað veita undanþágu frá lögunum á eig- in ábyrgð, þar sem um svo mörg skip var að ræða. En svo er að sjá á nýkomnum Reykjavíkurblöðum, sem afþingis- mennirnir hafi í þinglokin samþykt að landsstjórnin mætti veita undan- þágu frá sölubanninu, og að hún hafi ekki verið sein á sér að nota það, því tæpum hálfum mánuði síð- ar er undanþágan veitt og salan að fullu afgerð með skriflegum samn- ingum, undirrituðum af ræðismanni Frakka í Reykjavík, fyrir hönd Frakk- nesku stjórnarinnar. Söluverð allra skipanna er fjórar og hálf mitjón króna samtals, og er það óefað sú stærsta verslun sem Islendingar hafa gert í einu, enn sem komið er. En misjafna dóma hefir hún hlotið, bæði -hjá blöðunum og einstökum mönnum, og er þess að vænta um jafnmikið stórmál og þetta er, að ekki líti allir sömu augum á það. Við lauslega yfirvegun málsins verður naumast séð, hvað eigendum skipanna hefir gengið til að selja þau, eða þeir hafi neinn verulegan hagnað af sölunni. Aftur á móti er tjónið — atvinnuleysi hundruð og jqfnvel þúsunda manna — sem af sölunni leiðir, bersýnilegt og óvíst að fundin sé leið sem bætir úr því að minsta kosti í bráð, Ástæður landsstjórnarinnar til að yeita undanþáguna, eru aftur á móti auðsæilegri, því hún var ýmsum skil- yrðum bundin frá hennar hálfu. T. d. fær hún tvo þriðjuparta af sölu- verðinu lánað, og verður ekki skil- að eigendum aftur nema varið sé til fiskiskipakaupa. Þannig fá eigendur skipanna aðeins þriðjung verðsins útborgað nú. Auk þessa eiga 3 prc. af söluverðinu að renna í sérstakan sjóð, sem verja á til dýrtíðarráðstöf- unar og hjálpar þeim sem atvinnu missa við söluna. Sjóður þessi sem verður 135 þús. krónur, verður und- ir ráðstöfun landsstjórnarinnar og bæjarstjórnar Reykjavíkur, ogerskipa- eigendunum algjörlega tapað fé. Rarna fær því Iandsstjórnin þrjár miljónirkróna lánaðarog 135 þús. kr. til hjálpar almenningi, og auk þess er fyllyrt að hún hafii eingöngu fyr- ir skipasöluna, komist að miklu hag- feldari kaupum og flutningi bæði á kolum og salti, en annars hefði orðið. Ástæður landsstjórnarinnar eru því sjáanlegar, en naumast ástæður skipaeigendanna. Söluverð botnvörp- unganna er að vísu fullum helmingi hærra en þeir voru keyptir fyrir. En að hægt verði að fá skip aftur lægra verði en þetta, er svo mikið efamál, að naumast virðist á það treystandi, fyr en máske 10 árum eftir stríðið En þótt ástæður landsstjórnarinn- ar séu sjáanlegar, er alveg óvíst að rétt hafi verið að að leyfa söluna, þegar tillit er tekið til þess feykna mannfjölda sem fyrir atvinnumissi verður. Minsta kosti er nú enn meiri ástæða en áður að ætlast til þess af landsstjórninni, að hún nú þegar ráðist í einhver þau verkleg fyrir- tæki er veiti mönnum atvinnu, ekki aðeins í hundraða heldur í þúsunda- tali, og hlutist til um að sú atvinna verði sem víðast í landinu. En hvað svo sem um þessa botn- vörpungasölu verður sagt, þá er víst, að það er stórviðburður í sögu landsins, og fáir mundu hafa trúað því fyrir svo sem 10 árum, að eitt stórveldi Norðurálfunnar myndi fara til Islands til gufuskipakaupa. En nú á timum gjörist svo margt sem vér íslendingar höfum ekki átt að venjast hér áður. Afskapleg kolaekla er nú í Ungverjalandi. { mörgum borgum fá íbúarnir engin kol og eru horfurnar þar mjög ískyggilegar, því kuldar eru miklir þar á vetrum. Hvalnefndin. ii. Hve mikið allir háhyrningarnir gerðu að krónutali samtals,vita menn ekki, — og nefndin veit það naum- ast sjálf. — Hve mikið búið er að borga út í verkalaun, skotfæri, kaðla og hnífa o. fl. vita menn heldur ekki og ekki hve miklu nemur úthlutun sú sem getið var í síðasta blaði, til þeirra er hjálpuðust að, að koma háhyrningunum á land. Einn sjöundi allra háhyrninganna fór til Reykjavíkur, en þaðan eru engin reikningsskil komin, og full- yrða kunnugir menn, að þaðan komi aldrei neitt eða mjög lítið, því mik- ið af kjöti og spiki hafi orðið þar ónýtt. Ennfremur mun talsvert ó- innheimt hjá einstökum mönnum bæði hér og annarsstaðar. Verður ekki betur séð en þetta sé ódugn- aður í hæðsta máta, Rví ekki ætti það að vera ofvaxið 9 mönnum, að innkalla ekki fleiri þúsund en þetta er, á 5 mánuðum. En um söluna til Reykjavíkur er það að segja að vér viljum ekki fyr en vér megum til, trúa því, að nefndin hafi sent há- hyrningana og látið þá liggja í Reyk- javík á sína ábyrgð. En hafi svo ekki verið, hafi nefndin selt vöruna hér, og sent hana á ábyrgð kaup- anda, eins og alment er í viðskifta- lífinu, þá getur ekki komið til mála annað en Reykvíkingar borgi fulla upphæð, enda þótt alt hefði orð- ið ónýtt. Annaðhvort hefir nefndin því selt vöruna á þann klaufalegasta hátt sem hægt var, eða hún hefir sýnt af sér einstakt ósjálfstæði gagn- vart Reykvíkingum, og er hvoru- tveggja óverjandi. Pá er það álit margra, og það mikils meirihluta manna, að nefndin sé komin útfyrir starfsvið sitt, þar sem hún er farin að taka áhvarðan- ir um endanleg afdrif peninganna. Segja, að hún hafi til þess eins ver- ið kosin, að standa fyrir sölu á þessari himnagjöf, og koma henni í »afl þeirra hluta sem gjöra skal.« Vér skulum að svo komnu máli engan dóm á það leggja, til hvers nefndin var kosin og til hvers ekki. Sjálfsagt þykist nefndin hafa óskerta heimild til fullnaðar ráðstöfunar peninganna, annars væri hún ekki farin að borga 200 kr. »premíu« til einstakra manna, eða 100 kr. verð- laun fyrir skot, eða leyft sér að fara { mál við Hafnarbændur á kostnað háhyrninganna. En hvort sem fullnaðarráðstöfun peninganna er hlutv. þessarar nefnd- ar, eða nýrrar nefndar, þá er óhætt að fullyrða að ráðstöfun þeirra pen- inga, sem komnir eru inn fyrir jafn óvænt og sjaldgæft happ, sem hver einstakur virðist með svo mikilli sanngirni geta tileinkað sjálfum sér jafnt og öðrum, verður ekki látin afskiftalaus af almenningi. Bending til hreppsnefndarínnar. Stjórnarráóið hefir gefið út reglu- gerð um sölu og útflutning á salt- kjöti. Er þar svo ákveðið að allir þeir er saltkjöt hafa til sölu, skulu til- kynna það kjötsölunefnd, sem skipuð er af stjórnarráðinu og sæti á í Reyk- javík. Nefnd þessi á svo að selja til Noregs svo mikið af kjötinu sem hægt er, og hefir stjórnarráðið feng- ið leyfi Breta til að flytja þangað 15 þúsund tunnur, en óvíst enn hve mikið Norðmenn vilja kaupa. — Enn fremur er svo ákveðið í reglu- gjörðinni að sveita- og bæjarstjórnir geti fengið keyft það kjöt sem afgangs verður söiunni til Noregs, og fyrir verð, sem er mitt á milli enska og norska verðsins. En þær pantanir verða að vera í höndum kjötsölu- nefndar eigi síðar en31. okt. Verði eitthvað afgangs þegar pantanirsveita- og bæjarstjórna hafa verið afgreidd- ar, selst það Bretum. Rað má því búast við að alt það kjöt sem á annað borð verður selt, komi á markaðinn í einu, og að ekki verði um annað saltkjöt að ræða til almennings nota, en það sem keyft verður af kjötsölunefndinni, að minsta- kosti í þeim sveitum og kauptún- um sem enga eða mjög litla kjöt- framleiðslu hafa, eins og t. d. Siglu- fjörður. Ress vegna væri ekki úr vegi að

x

Fram

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fram
https://timarit.is/publication/34

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.