Alþýðublaðið - 07.02.1927, Blaðsíða 1
1927.
Erlei&gi sinssls©ffi.
Khöfn, FB., 5. febr.
Þjóðernissinnar á Þýzkalandi
viðurkenna Íýðveldið.
Frá Berlín er símað: Westarp
Ixefir sagt í þingræðu, að þýzkir
þjóðernissinnar hafi fallist á sátía-
stefnuna í utanríkismálunum og
viðurkenni lögmæti lýðveldis-
stjórnarfarsins, en séu þó stöð-
ugt keisarasinnar eftir sem áður.
Þýzkur ráðherra, Keudell, borin
gamalli landráðasök.
Jafnaðarmenn hafa borið það
frarn í þinginu, að einn af ráð-
herrum þýzku íhaldsstjómarinnar
hafi tekið þátt í byltingartilraun
Kapps, og að honurn hafi þá ver-
ið vikið frá því embætti fyrir
landráð, er hann hafði með hönd-
tim,
Kínverjar vinna á.
Frá Shanghai er símað : Kanton-
herinn hefir unniö nýjan sigur í
■Chekianghéraði.
Khöfn, FB., 6. febr.
Miðflokkarnir pýzku sætta sig
við yfirlýsingu Westarps.
Keudellsmálið verður
rannsakað.
Stjórnin pýzka fær trausts-
yfirlýsingu.
Frá Berlín er símað: Miðflokk-
arnir hafa sætt sig við ýfirlýs-
ingu Westarps til þess að komast
hjá því, að stjórnin falli. Marx
hefir lofað að rannsaka hlutdeild
Keudells ráðherra í byltingartil-
iraun Kapps. Þingið hefir samþykt
traustsyfirlýsingu til stjórnarinnar.
Tviveðrungur í Japönum!
FráLundúnum er símað: Stjórn-
Sn í Japan, sem hingað til hefir
verið mótfallin því að taka þátt
í að verja Shanghai fyrir Kanton-
hernum, hefir ákveðið að senda
herskip til Shanghai.
K oi’ púlf ss t aðssm álí ð,
Það hefir gerst í því nráli síð-
an, er frá því var sagt, að Ólafur
Thórs hefir fyrir hönd föður sins
boðið þeirn af vinnumönnunum,
er burtu var vísað frá Korpúlfs-
stöðum, sem veitti sömu svör um
aukna vinnu og maðurinn, sem
ieftir var, að hann yrði tekinn
,-aftur, en maðurinn hefir ekki
þegið boðið. Færði hann það tii,
að hann vildi ekki vinna með Ey-
þóri eftir það, sem á undan væri
gengið. Sjálfsagt stafar þetta boð
af því, að við þenna rnann varð
©efiB ilt af ^lpýdiifiokkissaiM
Mánudaginn 7. febrúar.
31. tölublað.
ekki haft að tylliástæðu fyrir
brottvikningunni, að hann hefði
neitað að bæta á sig vinnu.
Viiinusamningur
milli verkamannafélagsins „Dags-
brún“ annars vegar og H.f.
„Eimskipafélags íslands", Nic.
Bjarnasons og C. Zimsens hins
vegar.
1. grein.
Kaupgjald í venjulegri hafnar-
vinnu hjá ofan greindum skipa-
afgreiðslum er:
Dagvinna kl. 6 f. h. til 6 e. h.
kr. 1,20, eftirvinna kl. 6 e. h. til.10
e. h. kr. 2,00, næturvinna kl. 10
e. h. til 6 f. h. kr. 2,50, helgi-
dagavinna allan sólarhringinn kr.
2,50. ■
2. grein.
Matmálstími kl. 12—1 e. h.
frádregst, en 2 hálftímar til kaffi-
drykkju á daginn reiknast sem
vinnutími.
3. grein.
Samningur þess.i gildir frá 5.
febrúar kl. 12 að kveldi til 31.
dezember 1927 kl. 12 að kvöldi.
Reykjavík, 5. febr. 1927.
f .h. verkamannafélagsins „Dags-
brún“.
Héðinn Vctlclimarsson.
Pétur G. Guðmunclsson.
H.f. Ehnskipafélag íslands.
Emil Nielsen.
Nic. Bjarnason.
C. Zimsen.
Oddur Hermannsson
skrifstofustjóri andaðist í Kaup-
mannahöfn á laugardaginn var.
Var banamein hans lungnabólga.
Hafði hann átt við langa van-
heilsu að búa, og var hann er-
lendis sér til heilsubótar. Oddur
heitinn var fæddur 1884 og varð
skrifstofustjóri í stjórnarráðinu
1918. Oddur var vel áð sér og
ágætur maður bæði um dagfar og
embættisfærslu. Lík hans kemur
heírn um mánaðamötin næstu.
Hæstaréttardómur
var kveðinn upp, í dag' í búnað-
arstjöramálinu. Var fógetaúr-
skurðurinn í máli Sigurðar Sig-
urðssonar staðfestur og það talið
rétt að vera, að lögleg Búnaðar-
félagsstjórn hafi sagt honum upp
stöðunni. Kröfu Jóns H. Þorbergs-
JÞsonar var vísað frá dómi, þar
Hér með tilkyœmfst vinram og vaiadaimömia&m fjær
og nær, að eiginmaður minn elskulegnr, Bernharðnr
Jónsson, er andaðist 28. Janúar 1927, verðnr Jarð-
sunginn frá heimili okkar, Garðbæ á Stokkseyri ÍO.
febráar 1927. Fyrir Iiiind rnína, barna og tengdaharna.
Jórnnn Jónsdóttir.
Fulltrúaráðsfnndur
verður haldinn í kvöld (mánudag) kl. 8 í Iðnó
uppi. Til umræðu verða mál frá
síðasta fundi.
ISALAN
heldur áfram í fáa daga. Á morgun verða allir
9V Bútar
seldir; þá getur nú margur gert góð kaiap.
Auk þess hrein tækifæriskaup á margs konar
góðum vörum i kvenna- og karla-deild.
Stelnhús
stórt vandað og á bezta stað í bæn-
um, til sölu.
MT Saa&mgiHrii utl»urguu.
A. v. á.
UtlBOð.
Trésmiðir, er gera vilja tilboð í að leggja skammbitaloft í geðveikra-
hælið á Kltppi, vitji upplýsinga i teiknistofu húsameistara ríkisins.
Reykjavík, 5. febr. 1927.
Elnar Erlendsson.
Sfmaskráin 1927-28.
Ákveðið er að prenta nú símaskrá fyrir árið 1927—28 og eru síma-
notendur hér með beðnir að tilkynna skriflega skrifstofu bæjarsímans
(kl. 10—12 og 1—4) eða ritstjóra simaskrárinnar innan 10 þ. m. þær
breytingar, sem þeir óska að gerðar verði á skránni. Enn frernur eru
þeir, sem ætla að fá talsíma á þessu timabili, beðnir að undirrita
pöntunareyðublöð, er einnig fást i skrifstofu bæjarsímans. þannig að
nöfn þeirra og númer geti orðið tekin upp í skrána.
Reykjavík, 2. febrúar 1927.
Bæjarsfmastjórinn.
eð um hann hafði ekki verið dæmt
í fógetaúrskurðinum. Var Sigurð-
ur dæmdur til að greiða 200 kr.
málskostnað, en Jón 100 kr.