Kennarablaðið - 01.07.1900, Blaðsíða 8
152
hana í verkinu allsstaðar á Norðurlöndum, svo að þau öfl,
sem hreifa sér í þjóðlífi voru, geti þroskast; reynslan hefir
sýnt, að þessi vegur er fær og að hann liggur í rétta átt, því
að þúsundir manna hafa farið hann, og þeir hafa fundið, að
kraftar þeirra þróuðust, og þeir hafa enn fremur fundið, að
það var skylda þeirra að verja þeim landi og lýð til heilla.
Þessa leið geta norrænir sveinar og norrænar meyjar enn þá
farið. Og þá rætist það, sem hann dreymdi um í kyrð næt-
urinnar, greppinn forna, þegar hann sat yfir skræðum sínum
og var að þýða íornsögurnar á móðurmál sitt, svo að alþýðan
gæti lesið þær; þá kemur það í ljós, fyrir hverju þeir hafa
barist, sem síðan hafa farið að hans dæmi og reynt að fá
landa sína til viðtals bæði í Danmörku og annarsstaðar á Norður-
löndum.
J'TlJ^ðumenfun ó 12orðurlöndum.
4. ísland.
I.
Eftir að í undanfarandi greinum hefir verið minst stutt-
lega á fyrirkomulag alþýðuskóla á Norðurlöndum, skal nú máli
snúið að alþýðufræðslu vorri; þó verður í grein þessari lítt
rakin framfarasaga hennar, að eins drepið á nokkur höfuð-at-
riði, en aðallega gert að umtalsefni ástandið, eins og það er nú.
Eins og kunnugt er, hefir hér eigi komist á almenn skóla-
skylda, ejns og svo víða annarsstaðar; þó hvílir hér á nokkur
fræðsluskylda og hefir all-lengi gert. Pegar eftir siðbót er
prestum gert að skyldu að fræða lýðinn í kristindómi í kirkj-
unni á helgum dögum, skyldu þeir taka einhvern kafla úr
fræðunum til útlistunar á messudögum; síðan er það hert á
kröfum, að foreldrar skuli kenna börnum sínum í heimahúsum
kristin fræði, og prestar hafa eftirlit. með þessu á húsvitjunar-
ferðum sínum. Þá er og farið að brýna fyrir mönnum, að
kenna unglingum bóklestur, að svo miklu leyti sem því yrði
við komið; þó er um miðja síðustu öld ekki komið lengra en svo,