Plógur - 01.02.1907, Page 7

Plógur - 01.02.1907, Page 7
PLÓGUR. 15 að kaupa útlent efni til húsa- gjörðar, ef aðllutningar eru ekki erfiðir. (A. B.). Svar: Það er alt af mikill skaði að því, að rista upp arð- berandi jörð. En þó er hér um annan meiri skaða að ræða, það er, hve torfhús eru end- ingarlaus, einkum á suðurlandi, hve mikið þau kosta þessvegna. Svo eru torfhúsin yfirleitt ó- hollari til íbúðar en timbur- hús. Hús úr timbri eru dýr fyrst í stað, en séu þau vönd- uð og gerð eftir þörfum vor- um og ástæðum, þá verða þau miklu notasælli. Steinhúsin eru endingarbezt. Þau eru úr íslenzku efni og væri þvi sjálf- sagt bezt að byggja flest hús úr steini, enda þótt ókostir fylgi þeim. En þeir eru þessir: Húsin eru dýr í fyrstu. Þau eru óholl nema þau séu vönduð og ekki flutt í þau of fljótt. Og köld eru þau, nema með mikl- um og vönduðum tilkostnaði. Kostirnir eru aftur á móti talsverðir t. d. ending mikil og á hverjum hundrað árum verða timburbyggingar sjálfsagt tvö- falt dýrari. Annar verulegur kostur við steinbyggingar er sá, að efnið er innlent, ekki keypt fyrir fé, sem flutt er út úr landinu, og vinnan er öll í höndum landsmanna. MLjötsalan. Sigurður stórkaupmaður Jó- hannson í Khöfn skrifar alþm. Hermanni Jónassyni, að hann hafi í þetta sinn fengið til sölu 3000 tn. af íslenzku saltkjöti. Yms slæm mistök kveður Sig- urður enn vera á nokkru af kjötinu, en þó yfirleitt betra en áður. Alt kjöt, sem var í góðu lagi, seldi hann á 60—63 kr. tn. (224 pd.). Riis kaupmaður á Borðeyri sendi Sigurði um 1400 tn., og var óvanalega góðurfrá- gangur á því kjöti í alla staði. Væntanlega verður náuar skýrt frá þessari sölu í Búnaðarrit- inu. (»Lögrétta«). K.irkjusöugisbók Jónasar heit. Helgasonar, sem er uppseld fyrir mörgum árum, er nú út komin í endurskoðaðri útgáfu á kostnað hr. Guðm. Gamalíeslsonar. Endurskoðunin sem er eftir hr. Sigfús Einars- son, samkv. ósk Jónasar heit., er gjörð af hinni mestu alúð og mun óhætt að telja kóralbókina enn eigulegri í þessari nýju út- gáfu. Bókin er prentuð í uótna- prentsmiðju D. Ostlunds. (»Frækorn«). Ritstjóri og ábyrgðarmaðnr. Sisurður E*órólfs«on. Hvitárbakka. Gutenberg.

x

Plógur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.