Plógur - 01.03.1907, Page 2

Plógur - 01.03.1907, Page 2
18 PLÓ GUR. að hundahreinsunin geti farið fram á viðunanlegan hátt. Ættu ekki læknar þjóðarinnar að ráða mestu í þessu máli? Hverjir hafa betra vit á því en þeir. Ekki sýslunefndir, með allri þeirri virðingu fyrir þeim sem þær ávinna sér. Að gefnu tilefni hreyfirPlógur þessu máli. — Þeir munu taka þetta mál til sín, sem hafa á- stæðu til þess en hinir ekld. Jafnaðarmenn. ii. »Alþýðublaðið« ræðstaðallega á landbúnaðinn með jafnaðar- kenningum sínum, óbeinlínis. Mikið veður er gert úr meðferð bænda á verkamönnum sínum. Vinnutíminn ollangur, kaup- gjaldið lágt og illa greilt og fæði ekki hið bezta. Vist er um það, að vinnu- tíminn er oflangur, viða. En þó er þetta að breytast. Og mun það engu minni hagur fyrir sjálfa bændurna, en verka- fólkið að þetta breytist til hins betra. En sé vinnutíminn langur um sláttinn á sumum stöðum til sveita, þá er hann ekki síður langur hjá sjómönn- um, sem á þilskipum eru. Dag eftir dag, má svo heita, standa þessir sjómenn hvíldarlaust við íiskidrátt og annað, sem að fiski veiðum lýtur. En þeir hafa meira kaup. Jú, satt er það. En lítil »guðsblessan« fylgir þeim krónunum hjá sumum eftir reynslunni að dæma. — Er ekki betra fyrir verkamenn að vinna skaplega langan vinnutíma á hverjum degi 12— 14 tíma (víðast 12—13) og hafa holt fæði og reglubundinn svefn, en að vera við sjóinn og í kaup- stöðum með meira kaupi, og lifa óhollu og óreglusömu lífi. Þegar þar við bætist, að þeir, sem vinna í sveit, fara sparlegar með kaup sitt, eyða minna af því í óþarfa. Mörg eru þess dæmi, að sjómenn sem vinna fyrir háu kaupi, eiga ekki fötin utan á sig. En allur þorri þeirra sem í sveit eru (verka- menn)græða talsvert. Og hvern- ig hafa flesfir bændurorðið bú- færir? Þeir hafa grætt féð sem vinnumenn eða lausamenn. En frelsið — já frelsið, að meiga vera eins og þeytispjald um alt land, að leita sér at- vinnu það er jafnaðarhugsjón margra. Og mikið gerir alþýðu- blaðið úr slíku frelsi; auðskilið er það. — En frelsið er ekki leikfang. Frelsið er hið dýr- mætasta, sem til er. En það er einnig hættulegt mörgum; það er sem tvíeggjað sverð. — Ekki eru allir færir um að nota frelsið, þeir verða að njóta þess í skjóli annara. Og það er ó- hætt, að fullyrða það, að eng-

x

Plógur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.