Plógur - 01.03.1907, Page 6
22
PLÓGUR.
Vatnið er bæði svalandi og
hressandi drykkur. Það er
samsett af tveimur frumefnum,
sem kalla mætti eldi ogvetni
(eða súrefni og vatnsefni).
Bæði eru þessi efni ein útaf
fyrir sig loftkynjuð efni. í hverju
vatns frumvægi eru tvær frum-
agnir af vetni og ein frumögn
af eldi. En í 1 pt. af vetni
eru jafnmargar frumagnir og í
1 pt. af eldi, og þó er pottmál
af eldi 16 sinnum þyngra, en
1 pottmál af vetni.
Flestir fastir hlutir eru lítið
eitt fyrirferðarmeiri heitir, en
kaldir. Blýstöng, sem er 3510
þuml. á lengd, lengist hér um
hil 1 þuml. við livert hitastig,
sem blýið hitnar. Útþensla
járnsins er hálfu minni. En
eins og blýið lengist því meira,
sem það er meira hitað, þannig
verður það og að sama skapi
gildara. Þetta bendir á, að
frumvægin i blýinu hreyfast,
fjarlægjast hvert annað lítið
eitt. Ef t. d. blýið er hitað
213 °C þá bráðnar það. En
það þýðir: að frumvægi þess
hafa mist aðalfrumeinkenni
sín, hraði þeirra aukist, svo að
þau gátu runnið. Járnið þarf
yfir 1000 °C hita til þess að
bráðna, frumvægi járnsins
liafa því meiri mótstöðu-
kraft gegn hitanum, en frum-
vægin i blýinu, gefa seinna
upp sjálfstœði sitt. Öll efni,
hversu hörð sem þau eru geta
bráðnað, ef þau eru hituð nógu
mikið. Enn hefir þó ekki
hepnast, að bræða demant,
en hann er allra hluta harðast-
ur. En hann hlýtur að bráðna
ef hitinn er nógu mikili, sem
verkar á hann.
Málmar og steinar bráðna.
og verða að rennandi efni eða
vökva. Sé þessi málmvökvi
hitaður enn meira, sýður hann
sem kallað er, þ. e. breytist í
gufu eða loftkynjað efni. Þessi
afarheita lofttegund verður
svo aftur að vökva, ef hún er
kæld, og sé vökvinn enn kæld-
ur verður hann að föstu efni
t. d. járnvökvi kældur svo, að
hann verði aðeins 1000 ° C
heitur, þá storknar hann fljótt,
en verður fast glóandi efni þar
til kælingin verður enn meiri,
og verður þá járnið eins og
það var áður, dökkleitt, hart og
kalt.
Þannig geta málmar ogstein-
tegundir verið í þrenskonar
ástandi, eftir því hve hitinn er
mikill, sem verkar á þá eða
frumvægi þeirra.
Starfsemi.
Vertu starfsamur, sóaðu ekki
tímanum til einskis, svo að
örbirgðin heimsæki þig ekki.
Starfsemin er aðalhyrningar-
steinninn undir vellíðan ílestra
manna. Iðjuleysinginn kemst