Plógur - 01.03.1907, Blaðsíða 7

Plógur - 01.03.1907, Blaðsíða 7
PLÓGUR. 23 aldrei vel áfram í heiminum. Sé hann ekki fæddur í auðlegð, eða að aðrir hafi ekki á ein- hvern hátt lagt auðinn upp í hendurnar á tionum, þá kemst hann brátt á vonarvöl. Oftast riær eru það iðjuleysingjarnir, sem' eyða auðinum, er iðju- mennirnir liaía safnað, og sjald- an liggur nokkurt nýtilegt verk eftir þessa menn. Þeir lifa að eins fyrir sinn eiginn munn og maga, og fara með þann orðs- tír í gi'öfma. Þessu er öðruvísi varið með iðjumanninn. Þó að hann leggi út i lífið með tvær hendur tómar, og enga ment- un, aðra en þá, sem hann hefir sjálfur aflað sér, þá líður ekki á löngu, áður en hann aílar sér fjár og frama. Það má og furðu gegna, hvað margir nám- fúsir almúgamenn haía aílað sér mikillar mentunar, enda þó að þeir haíi engrar fræðslu notið í æskunni, — Og hverju eiga þeir nú að þakka mentun sína? — Einungis iðni og brenn- andi áhuga. Auðvitað hafa góðir námshæfileikar orðið að vera fyrir hendi, en það er jió ekki aðalskilyrði;því að iðni og ástundun áorkar meira, en að- gerðalitlir hæfileikar. í hverju eru yfirburðir af- reksmannanna fólgnir? — Þeir eru einkum fólgnir í frábærri iðni og óbilandi viljaþreki. Ein- ungis lítill hluti þeirra hefir haft mjög mikla yfirburði að gáfum til, eins og svo margir ætla. Hér um bil undantekning- arlaust eiga þeir frægð sína að þakka, starfsemi sinni og eldheitum vilja. Margir þeirra hafa og átt við svo mikla erfið- leika að stríða, að fádæma elju og ástundun hefur þurft, til þess að sigrast á þeim. Sem dæmi þess má nefna gríska mælskumanninn Demosþenes. Það eru ekkiiðjuleysingjarnir sem hafa hrundið hinum miklu stórvirkj um áleiðis. Það kemur fyrir sama þó að hamingjan leiki við þá; þó að þeir, með hjálp annara, komist í eina stöðuna eftir aðra, og allar góðar, þá sitja þeir þær vana- lega sjálfum sér til skammar og öðrum til skfepraunar. — Þeir eru sífelt á leiðinni til örbirgðar, og verða henni að bráð fyr eða gjðar. Aftur á móti fetar iðjumaður- inn sig smátt og smátt áfram til auðs og metorða. Ótal torfærur verða á vegi hans, en hann sigrast á þeim öllum, og við hverja þeirra vex honum ásmegin, svo að hann verður færari um að mæta hinni næstu. Ekkert getur stöðvað liann á braut sinni. Hann nær því takmarki, sem haun hefir einu sinni sett sér. Helgi Salómonsson.

x

Plógur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.