Plógur - 01.04.1907, Blaðsíða 4
28
PLÓGUR.
skonar búrahátt. — Þetta sér
skáldið mitt. —
Ráðsnjall:— Hvaða þjóð lifir
siðmenningar lífi án land-
búnaðar?
* Mestu menn mannkynsins
hafa nálega allir fæðst og alist
upp í sveit við landbúnað.
Heimilislífið og sveitalífið hefir
sett það mark á þá í æsku,
sem aldrei hefir horfið. Heldur
þú Ráðlaus, að þjóðin geti
lengi lifað á gulli, verzlun og
iðnaði? Yeistu það ekki að
maturinn er mannsins megin.
Og það er hann, sem bænda-
stéttin i hverju landi framleiðir.
Sjómenn afla flskjar; hann er
og fæði, en aðeins lítið hrot á
móts við korntegundir, kjöt,
feiti og mjólk, o. s. frv.
Enn gullið er ónýtt, hand ó-
nýtt ef matinn vantar. — Mat
og hey vantar íslendinga framar
en peninga. — Fyrir peninga
fæst ekki hey um sumarmál í
hörðum vetrum, nema lítið eitt
og matur fæst ekki fyrir gull
þegar skepnurnar eru fallnar'
úr hor. —
Ráðlaus. Eg vildi eg ætti
nóga peninga þá skyldi eg hafa
nóg af þessu öllu. — .
Er er ekki hægt að kaupa —
korn, hey, kjöt, ost, og feiti frá
öðrum löndum ef nóg af gulli
er til?
Ráðsnjall. Jú en dýrt yrði
það, og þeir yrðu fáir, sem hefðu
nóga peninga í landbúnaðar-
lausu landi til lengdar. Hollur
er heimafenginn baggi. — Og svo
kemur hafísinn og liggur í kring
um hálft landið fram í ágúst.
Þá eiga menn að flýja, bera vör-
urnar eða hvað—hestar ekki til
—í sjóþorpin á Norðurlandi eða
hvað, stóhorgina, iðnaðar- og
verzlunarborgina þar — er ekki
réttast að hugsa sér lífið þannig ?
Eða húandi menn upp í sveitum
með fulla vasa af gulli en tómar
matarhirslur? —
Ráðlaus. Hugsa þú þér þetta
hvernig sem þú vilt. En eg
hygg, að einyrkjabúskapurinn
sé neyðarúrræði. Yæri ekki
frjálsara og mannlegra,að þessir
svo kölluðu bændur bygðu sér
skrauthýsi í Reykjavík eða á
Akureyri og lifðu í þeim eins
og aðalsmenn innanum alla
borgarsiðmenninguna, við
skemtanir og breytilegt líf.
Þeir geta lifað á vei'zlun dag-
launavinnu sjávarútvegi o. s. frv.
Ef allir íslendingar værulcomnir
i einn bæ þá yrði það lögulegur
kaupstaður, með 80þús. manna.
Þar gætu skólar þrifist, og alt
það er ryður menningunni
braut.
Ráðsnjall. Rétt er nú það,
en þar mundi einnig þrífast
margskonar spilling, sem skapar
ómenningu. — Þar yrði bæði
auður og raunaleg fátækt. Þar
þróaðist manndómur og hins-
vegar dáðleysi og óregla. —
Ráðlaus. Skynsamir eru þeir