Plógur - 01.06.1907, Blaðsíða 3

Plógur - 01.06.1907, Blaðsíða 3
PLÓGUR. 43 bændurnir, sem framtíðarvonir lands og þjóðar byggjast að mestu leyti á. En bændurnir verða að treysta sjálfum sér og landinu, en kasta ekki um of áhyggju sinni upp á stjórnina og yfir- völdin, því að alt slíkt er öfug- streymi, sem má ekki eiga sér stað í menningarstraumi tím- ans. Bændastéttin er, eða á að vera óháðasta og sjálfstæðasta stéttin í þjóðféiaginu, því að til hennar þurfa allar aðrar stéttir að sækja lífskraft sinn og til hennar á alt hið mikil- verðasta rót sina að rekja. Það eru bændurnir sem eiga mestan þátt í, að sá þeim fræ- kornum, sem seinna bera arð- samasla og hollasta ávexti. S. D. Fróðleiksmolar. v. Frumagnir og frumvægi. Með skynjaninni verðum vér eldci varir við smærri ögn en sem svarar V10 hlut úr þstk. (þúsundstiku). 011 tilveran mundi líta öðruvísi út, en lnin vana- lega kemur oss fyrir sjónir, ef skynjanarfæri vor væru næmari eða fullkomnari; sérstaklega er hér átt við sjónina. Smásjáin er nú orðin svo fullkomin, að með aðstoð hennar getum vér I greint hluti, sem eru ekki stærri en V*5000 úr þstk. Vísindamenn kalla V1000 úr þstk.: »mikrón«. — En mikrón er í sama lilut- falli við þstk. sem þstk. við stiku. — Þannig geta menn nú séð '/4 úr mikron í beztu smásjá. Að líkindum geta mcnn aldrei búið lil svo nákvæma smásjá, að hægt sé að greina í henni, eða skynja í gegnutn hana, stærri ögn en sem svarar 1 /1o úr mikron, þegar litið er á eðli ljósvaka- bylgjanna. Tekist heíir að fletja út gull í svo þunnar himnur, að þær rcyndust ekki þykkri en V* úr mikron, eða svo þunnar gull- flísar, sem í þvermál aðeins var hægt að greina þyktina í beztu sinásjá. En náttúran íletur hlut- ina enn þá betur út en þetta. Tökum víðan stamp, hellum vatni í hann; reiknum svo ná- kvæmt út flatarmálið á yfirborði vatnsins í stampinum. Látum síðan lítinn dropa af steinolíu í vatnið. Dropinn þenur sig út yfir alt yfirborðið á valnsstamp- inum (afarstórum stampi). En áður er reiknað út teningsmál dropans, og er það harla tétt verk með góðum tækjum og ná- kvæmri hugsun. Það má á þennan hátt komast eftir þvi, live þykt olíulagið er, sem flýt- ur ofan á vatninu; hefir það þannig sannast, að olívdiúðin á

x

Plógur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.