Alþýðublaðið - 09.07.1935, Síða 3

Alþýðublaðið - 09.07.1935, Síða 3
ÞRIÐJUDAGINN 9. JÚLÍ 1935. ALÞYÐUBLAÐID ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON RITSTJÖRN: ASalstræti 8. AFGREIÐSLA: Hafnarstrasti 16. SlMAR: 4900—4906. 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjóm (innlendar fréttir) 4902: Ritstjóri. 4903: Vilhj. S. Vilhjálmss. (heima) 4904: F. R. Valdemarsson (heima), 4905: Ritstjórn. 4906: Afgreiðsla. STEINDÓRSPRENT H.F. Verkbönn, VERKALÝÐSFÉLÖGIN birtu taxta þann, er pau óskuðu að fylgt yrðljj í síldarvinnu' í suju- ar, snemma í vor. Atvinnureksndur hreyfðu þá engum andmælum, og mátti pví ætla, að þeir væru ásáttir um þennan taxta, enda ekki, af hálfu verkalýðsfélaganna, farið fram á neinar stórvægilegar kaupbreyt- ingar. Það er fyrst nú, þegar síldveiði er byrjuð og ljóst er, að verka- menn, ríkið og atvinnurekendur bíða stórtjón við hvern dag, sem vinna stöðvast, að hið svo kallaða Atvinnurekendafélag á Siglufirði, með atvinnurekendasambandið að baki sér, bannar að unnið sé sam- kvæmt taxta verkalýðsfélaganna, þ. e. a .s. stofnar til verkbanns. Nokkru fyrir jói í vetur birtu verkalýðsfélögin kauptaxta sinn fyrir vinou togaraiuanna, er stunduðu fiskfiutninga. Atvinnu- rekendur þögðu þá roeð öllu, en þegar vertíð var hafin hófu þeir verkbann, neituðu að láta vinna fyrir það kaup, er verkalýðsfélög- in kröfðust. Það er Ijóst af þessu, að at- vinnurekendafélögin kunna ekki siðaðra manna háttu í sahibandi við kaupdeilur. Öllum má vera ljóst, að þegar annarhvor aðili (verkamenn eða vinnukaupendur) hefir birt kauptaxta, þá ber hin- um að gera þá þegar þær athuga- semdir, sem hann telur réttmætar; þögn hlýtur að skoðast sem sam- þykki. En atvinnurekendur hafa Landskappreiðarnar á snnnndaginn. Landskappreiðarnar, sem hesta- mannafélagið „Fákur“ efndi til, voru háðar á Skeiðvellinum við Elliðaár í gær. Eru þetta fyrstu landskappreiðarnar, sem háðar leru í Reykjavík að tilhlutun Fáks. Meðan kappreiðarnar stóðu yfir, frá kl. 15—18, var sunnan-vindur, vindstig 3—4. I hlaupunUm var vindurinn á móti, og hefir það dregið nokkuð úr hraða hestanna. Ef logn hefði verið, má gera ráð fyrir, að hraðameti hefði verið hrundið, því að svo var hesta- kostur mikill á kappreiðunum. — Hins vegar var skeiðvöllurinn góð ur, vel valtaður og sléttur. Á skeiði, 250 metra sprettfæri, urðu úrslit þau, að enginn hest- ur náði tilskildum hraða, 25 sek. til fyrstu verðlauna, kr. 250,00, en önnur verðlaun kr. 100,00 hlaut Valur, 25,6 sek., eigandi Hallgrímur Níielsson, Grímsstöð- um. Fyrstu flokksverðlaun, á skeiði kr. 50,00, fengu þessir hestar: iátið sér sæma að þegja þangað til vinna er hafin, þangað til vitað er, að hver dagur, sem hún er stöðvuð, kostar þjóðina stórfé. . Allir hugsandi menn undrast þessar aðfarir atvinnurekenda. Sú spurning vaknar, hvort hér sé um menn að ræða, sem finna á engan hátt til þeirrar ábyrgðar, sem á þeim hvílir sem handhöfum rekstrarfjár þjóðarinnar. Menn eru því Vanir, að þeir gleynii allri ábyrgð gagnvart verkamönnum og þjóðarheildinni, en svo virðist, sem þeir séu nú einnig í þann veginn að gleyma eigin liag. Hafa ekki s’.íkir menn sannað það frammi fyrir aiþjóð, að þeir eru óhæíir til þess að hafa forystu á hendi í atvinnulífi þjóðarnnar? íhaldsmenn hafa á síðustu tím- um við og við verið að ta'.a um þörf á vinnulöggjöf. Framkoma þeirra sjálfra virðist benda til þess, að þörf sé á slíkri löggjöf. Hún myndi án alis efa útiloka verkbönn eins og það, sem hafið var í vertíðarbyrjun í vetur, og eins og það, sem hafið er nú á Siglufirði. Sindri, 27,8 sek., eig. Þorlákur Björnsson, Eyjarhólum, Rauður, 26,6 sek., eig. ALexander Guð- mundsson, Reykjavík, VífMI, 27,4 sek., eig. Hallgrímur Nielsson, Grímsstöðum. Önnur fiokksverðlaun á skeiði, kr. 30,00, fengu þessir hestar: Stóri rauður, 28,0 sek., eig. Ág- úst Einarsson, Arnarhvoli, Rang- árv.s. og Blakkur, 28,0 sek., eig. Oddur Eysteinsson, Snóksdal. Á skeiði voru reyndir alls 17 'hestar í 4 flokkum. Einn hestur var dæntdur úr leik. Var það fyrir illa reiðmensku knapans, sem á hestinum sat. Á stökki, 300 metra hlaupvelli, náði enginn hestur lágmarkshraða 24 sek., til fyrstu verðlauna, kr. 100,00, í úrslitaspretti. Önnur verð laun, kr. 50,00 hlaut Fífill, 24,4 sek., eig. Jón Gíslason, Loftsstöð- um. Fyrstu fiokksverðlaun, kr. 25,00, fengu þessir: Gráni, 25,7 sek., eig. Guðmundur Sigurðsson, Oddgeirs hóla-Austurkoti, Gnýfari, 21,7 sek., eig. Þorgeir Jónsson frá Varma- dal og Fífill 24,4 sek., eig. Jón Gíslason, Loftsstöðum. Önnur verðlaun, kr. 15,00, fengu Hrafn, 25,9 sek., eig. Axel Hall- grímsson, Grímsstöðum, Glaum- ur, 24,7 sek., eig. Haraldur Jóhann esson, Reykjavík og Svartur, 25,2 sek., eig. Guðmundur Magnússon, Hafnarfirði. Á 300 metra stökkspretti voru reyndir 11 hestar í þrem flokk- um. Á stökki, 350 metra hiaupvelli varð fyrstur að marki í úrslita- spretti Reykur 26,9 sek., eig. Ól- afur Þórarinsson, Hafnarfirði. — Hlaut hatin fyrstu verðlaun, kr. 250,00. Önnur verðlaun, kr. 75,00 hlaut Háleggur, 26,9 sek., eig. Ól- afur Þórarinsson, Hafnarfirði. í flokkshlaupunum, sem voru tvö, fengu þeir Háleggur 28,7 sek. og Reykur 28,2 sek., fyrstu flokks- verðlaun, kr. 50,00 hvor. Enginn hestur fékk önnur fiokksverð- laun. 7 hestar keptu í þessu hlaupi. Er þessum hlaupum var lokið, voru enn reyndir saman 5 hest- ar á skeiði vegna áskorana áhorf- j enda. 1 þeim flokki varð fyrstur j Rauður 26,0 sek., eig. Alexander ; Guðmundsson, Reykjavík og fékk hann kr. 25,00 í verðlaún. Á landskappreiðunum voru greidd 20 verðlaun, alls kr. 995,00. Dómarar voru Árni Óla blaða- maður, Ludvig C. Magnússon endurskoðandi, og Magnús Andr- ésson fulltrúi. Vallarstjóri Daníel Daníelsson formaður Fáks. Hæsti vinningur í veðbankanum varð er úthorgað var 105 krónur fyrir hverjar 10 krónur, 52 kr. fyrir hverjar 5 krónur, 21 kr. fyr- ir hverjar 2 krónur og 10 kr. fyrir hverja 1 krónu, sem lagt hafð; verið á Rauð Alexanders Guð- ínundssonar í öðrum flokki skeið- hesta. Mikill mannfjöldi sótti kapp- reiðarnar. Var þar samankomið rúmlega 3 þúsund manns. Togaraveiðar Breta við ísíand. I brezka blaðinu Morning Post birtist þ. 24. júní ritfregn um bókina „Trawler", eftir R. M., en bókin er gefin út af forlaginu Methuen. I ritfregninni segir, að R. M. sé ekki ungur maður, en hann hafi tekið það í sig að kynnast lífi sjómanna á togur- unum sem stunda fiskveiðar við strendur Islands, og tók hann þátt í einni veiðiför, sem stóð yfir í 20 daga. Tók hann sjálfur þátt í ýmsum störfum á togar- anurn og skýrir ljóst frá öllu. I ritfregninni segir, að það megi ) skiija það af frásögninni, að veiðar innan landhelgi sé tals- vert stundaðar og að hinar þungu sektir, sem dæmdar séu á brezka togaraskipstjóra, séu ekki altaf óverðskuldaðar. — I ritfregninni er sagt frá því, að í bókinni sé ein villa, þ. e. höf- undurinn telji sambandi Islands og Danmerkur líkt varið og milli Bretlands og sjálfstjórnar- nýlendnanna, en Morning Post bendir á það, að Island sé sjálf- stætt ríki í konungssambandi einu við Danmörku. Dánarfregn. Nýlega lézt í Sandgerði Egg- ert Eggertsson í Stöðulkoti, á áttræðisaldri. Eggert var Hún- vetningur að ætt og uppruna og var í ætt við margt ágætis fólk sem þaðan er runnið. Sjálfur var Eggert hinn mesti sóma- maður, afkastamaður til vinnu, svo orð var á gert. Hafa mér sagt samtíðarmenn hans, að á meðan hann stundaði sjó, hafi tæplega liðtækari maður lagt út ár á Miðnesi en hann. Eggert var og ágætlega greindur mað- ur og stakt prúðmenni. Þreyta og gigtarkvalir í ellinni falla í hlut manna eins og Eggerts, sem lifa langa og starfsama æfi og hlífa sér aldrei. Eg ætla, að hann hafi því fagnað hvíldinni. Eggert mun lifa í minnum þeirra, er þektu hann, því að hann var fyrirmyndar maður. IFéöaiPWörasr frá J. Rank. Mixed Corn „A“ Mixed Corn ,,X“ Layers Mash Growers Mash. Alexandra hveiti seljum við ódýrt í heilum sekkj- um ferksmíðjan Rún Selur beztu og ódýrnstu LlKKISTURN Fyrirliggjandi af öllum stærðum og gerðum. Séð um jarðarfarir. pgr- Sími 4094, Tílkynnmg, IfisBéelar! E( Eér þartit að Eanpa: Kjörfars, Fiskfars, Kindabjúgu, Miðdagspylsur, Vínarpylsur Þá munið Kjöt & Fiskmetisgerðin, Grettisgötu 64. Sími 2667. Reykhúsið, Grettisgötu 50 B. Sími 4467, Kjötbúðina, Verkamannabústöðunum, sími 2373, þá fáið þið það bezta og ódýrasta. Grjótmulningur. Verð á grjótmulningi til húsabygginga frá grjót- námi bæjarins hefir verið lækkað sem hér segir, frá og með mánudegi, 8. þ. m. að telja: Mulningur Nr. I Áður kr. 7,50. Nú kr. 6,40. Mulningur Nr. II Áður kr. 7,50. Nú kr. 6,40. Mulningur Nr. III Áður kr. 6,00. Nú kr. 5,10. Verðið miðast við 6 tunnur pr. bíl. Pöntunarfélag V. M. F. Hlíf í Hafnarfirði opnaði á laugar- dag nýja búð í Verkamannabú- stöðunum. Gamla búðin verður einnig opin. Borgarstjórinn í Reykjavík, 7. júlí 1935. Guðm Áshjörnsson settur. trúum öldungadeildarinnar. — Næsta dag bað frönsk skáld- kona um upplýsingar um það, hvar það líffæri væri, sem til þyrfti, að skilja stjórnmál, og karlmennirnir hefðu, en kon- urnar ekki! Á Þýzkalandi er ástandið verst fyrir konurnar, og alt, sem þar er gert til þess að und- iroka þær, er framkvæmt með ótrúlegri hörku. Giftar konur eru sviftar atvinnu sinni, og karlmennirnir látnir sitja fyrir allri sæmilega launaðri vinnu. Það eina, sem konunum er trygt, er kauplausa vinnan heima á heimilunum. Hið ráð- andi kyn tekur sér algert ein- ræði um það, hvað helmingur- inn af þýzku þjóðinni skuli vinna. Og ákvörðun Nazista er sú, að konurnar skuli ýmist passa pottana eða liggja á sæng. Þær eiga að framleiða það, sem Þýzkaland vantar í dag, en það er fallbyssufóður. Borgararétt- indi hafa þær ekki. Þau eru, eins og Hitler segir í bók sinni, „Barátta mín,“ forréttindi karl- mannanna. Konurnar fá þau með því að gifta sig. Ógiftar konur geta því að eins fengið þau, að þær reki eitthvert fyrir- tæki. Á Italíu hafa áhrif fazismans á kjör kvenna ekki verið eins mikil. Þau kjör, sem ítölsku konurnar áttu við að búa, voru mjög áþekk þeim, sem Musso- lini vildi vera láta. Sama er að segja um öll þau lönd, þar sem kaþólska kirkjan hefir haldið fólkinu í fáfræði og gert kon- urnar háðar klerkunum. Þegar samningurinn var gerður milli ríkis og kirkju á ítalíu, milli svörtu hempanna og svart- stakkanna, og páfinn ofurseldi ítölsku þjóðina fazismanum fyr- ir ofurlitla peningaupphæð, var eins og ísköld hönd*væri lögð yfir hið sólbjarta land, Italíu, og hina glöðu íbúa þess. I öllum löndum eru, hvort sem fazisminn er ráðandi eða ekki, konurnar hið kúgaða kyn. Þær hafa ekki komist í nokkra stjórn, eða nokkurt af þeim em- bættum umboðsstjórnarinnar eða annarsstaðar, þar sem þær [ gætu haft úrslitaáhrif. Farið inn í sal Þjóðabandalagsins í Genf og spyrjið, hvar sæti kven- fulltrúanna séu. Það er búið að fjarlægja sæti Japans. Sæti Þýzkalads stendur autt og bíð- ur. En engin kona hefir nokk- uru sinni átt sæti á þeirri sam- kundu. Núverandi forsætisráðherra Englands, Baldwin, sagði fyrir nokkru síðan, að veröldinni væri stjórnað af vitfirringum. Hann hefði getað sagt: af vit- firrtum karlmönnum, og hann hefði getað bent á Þjóðabanda- lagið sem þá stofnun, þar sem þessir vitfirringar safnast sam- an. Konurnar eru að minsta i kosti ekki á meðal þeirra vitfirr- ; inga, sem stjórna veröldinni. En j það er líka það eina, sem þær geta huggað sig við gagnvart þeim raunveruleika, að veröldin er eins og vitlausraspítali. Konurnar eru í því sálar- ástandi, sem einkennir alla þá, sem eru kúgaðir. Þær hafa það á tilfinningunni, að þær séu minna virði en karlmennirnir, tortryggja hver aðra, og eru hræddar við lítilsvirðingu yfir- boðara sinna. Flestar þeirra kjósa heldur að þegja en að eiga það, á hættu, að verða fyrir með- aumkvunarfullu og lítilsvirð- andi brosi karlmannanna. Margra alda undirokun hefir vanið þær á að fara krókaleiðir, að beita lævísi og brögðum til 1 að hafa það fram, sem þær vildu, og þær eiga afar erfitt með að venja sig á það, að fara beinar leiðir. Það verður ekki með neinum tölum talið, hve mikið tjón hef- ir hlotist af þessari undirokun og útilokun annars kynsins, bæði fyrir konurnar sjálfar og fyrir þjóðfélagið í heild sinni. En um æfintýrið um vald kon- unnar er það að segja, að það er víst bezt fyrir karlmennina að segja það annarsstaðar en í miðstöðvum menningarinnar. Flettið upp orðinu kona í stóru ensku alfræðiorðabókinni „En- cyclopedia Britannifca". Þar stendur: Kona, maki karl- mannsins, sjá orðið karlmaður. Og annarsstaðar er ekki að henni að leita. Berjast konurnar yfirleitt á móti fazismanum? Skilja þær að fazisminn þýðir stjórn aftur- ! haldsins ? Áð fazisminn er harð- ! stjórn auðvaldsins, sem hefir verið framkvæmd í þeim lönd- um, þar sem auðmennirnir ótt- uðust, að verkalýðurinn væri að verða svo sterkur, að hann myndi geta tekið ríkisvaldið í sínar hendur? Að fazisminn er ! voðalegasta vopnið, sem þeir ! ríku eiga yfir að ráða á móti j þeim, sem ekkert éiga, á móti réttlátri og skýnsamlegri skift- ingu á gæðum lífsins? Lítið á Þýzkaland ’og ítalíu. Þegar ég kom við í Berlín á dögunum, sagði Mathilde Vaert- ing prófessor, sem Iiit’er rak fyrir nokkru síðán frá háskólanum í Jena: „Það, sem er hryggilegast fyrir okkur, er að horfa upp á konurnar hylla Hitler." Ég sá það líka með eigin augum >og varð að viðurkenna það, sem hún sagði. í augum allra, sem ekki eru sjón- lausir, er Hitler orðinn að lifandi mynd af æfintýri H- C. Andersens, „Nýju fötin keisarans". Síðan Hit- ler fór úr sauðargæru national- sósíalistisku loforðanna, síðan flett var ofan af hans sviknu lof- orðum um það, að skifta herra- görðum junkaranna upp á milli smábændanna, stóru vöruhúsun- um upp á milli smákaupmann- anna og um að þjóðnýta bank- ana, sfendur hann berstrípaður frammi fyrir öllum heiminum, studdur af hergagnai naðinum auðvaldinu og kvenfólkinu eins og Mussolini. Og roeð þeim stuðn ingi hefir honum sem einvalds- herra á einum tveimur árum tek- ist að breyta landinu í, eitt alls herjar fangelsi og komið upp glæpamannafélagsskap, sem'í bók staf'egum skilningi ræðst inn í önnur lönd, til þess að ræna Þjóðverjum, sem þar hafast við, rétt eins og hinir illræmdu barna- ræningjar í Ameríku . Hit!er á Þýzkalandi, Mussolini á ítalíu. Báði'r í útsognum, þraut- píndum löndum, þar sem öll aud- staða við stjórnina er kyrkt og meyðarópin kæfð með vopnagný. En Mussolini var hyggnari en Hitler. Hann tryggði sér með samnignum við páfann alla pre- dikunarstó'ana og allar hempurn- ar. En konurnar hafa þeir báðir roeð sér. í mínum augum er þó Nazism- inn verri. Því að hann sviftir mig trúnni á það, að upplýsing geti leitt þjóðirnar út úr villimensku og inn á þær brautir, sem liggja til virðingar fyrir lífinu — en það er að inínu áliti hin eina sanna menning. Nazisminn leiddi hina upplýstu þýzku þjóð út í hlægilegan kynflokkahroka, sem hefir haft miðalda villimensku í för mieð sér; og auk þess póli- tiskar pyntingar. Konur yfirstéttarinnar skoða fazismann sem varnarmúr á móti sameignarstefnunni. Konur milli- stéttanna studdu Mussolini og Hitlier i von um betri kjör. En konur verkamannanna sitja þús- undum saman í fange’sunum, tugthúsunum og fangabúðunum, sérstak'iega á Þýzkalandi. Það eru þess vegna konur verkamannarma, sem berjast á móti fazismanum. Og svo stríðshættan. Berjast jk'onurniar í raun og veru á móti stríðshættunni? Halda þær ekki f'iestar, að það sé nóg, að setja nafn sitt uudir lista ásamt 8 milljónum annara kvenna og senda hann til Þjóðabandalagsins í Genf? Á aðalfundinum, sem Banda'ag kvienna fyrir friði 'Og frelsi hélt i Zúrich, komst forsct- inn, Clara Ragaz, þó að þeirri níðuvsíöðu, að það væri ekki hægt að vera á móti stríði nema því að eins að vera e'nnig á móti auð- valdinu. En hvað haldið þið að margar af þeim 8 milljónum kvenna, sem sendu ndirskriftir sínar til Genf til þess að liggj þar í g’erskáp hj Þjóðabandalag- inu, hafi verið búnar a ðgera sér grein fyrir því? Frh.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.