Alþýðublaðið - 18.07.1935, Page 4
FIMTUDAGINN 18. JÚLÍ 1935.
GAMLA BÍÓ
IVenus
danzar,
IStórfenglegur og hrífandi
sjónleikur, með söngvum,
í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika
og danza:
Joan Crawford,
Clark Gable og
Fred Astarire
(úr ,,Carioca“).
Miss extrakt
hörundsolía ver sólbruna,
mýkir húðina og gerir hana
betur brúna án sólar en nokk-
ur önnur hörundsolía eða creme.
Fæst í
Kaupfélagi Reykjavíkur.
„Prosit“-duftið
eyðir hænsnalús, húsdýralús,
möl, flóm og mörgum öðrum
skorkvikindum. Fæst í
Kaupfélagi Reykjavíkur.
FðdænarösvIíBi.
Síðast þegar Gullfoss var hér
bar það við, að stúlka sú, sem
vön er að gera hreina salina á
GulISossi, var forfölluð, og önnur
stúlka úr Þ. K. F. „Freyju“ var
látin gera hreint í bennar stað,
því það félag hefir samning við
Eimskipafélag íslands þess efnis,
að koíiur þær, sem eru í Þ. K.
F. „Freyja“ hafi forgangsrétt að
ölium hreingerningum í skipum
þess. Það eittt fyrir sig, að stúlku-
skifti urðu í þetta sinn, er ekki í
frásögur færandi, ef brytinn,
herra Guðlaugur Guðmundsson,
hefði ekki látið sér sæma að reka
á eftir stúlkunni og skamma hana
allan daginn og að endingu rek-
ur hann smiðshöggið á allan sinn
dónaskap með því að neita að
skrifa undir vinnureikning stúlk-
unnar, þar til stjórn félagsins lét
hann gera það,
Þetta er því svívirðilegra,. þar
sem stúlka sú, sem hér er um að
ræða, er viðurkend af þeim, sem
hún hefir unnið hjá, fyrir dugnað
og prýðilega vandvirkni, og munu
engin vandkvæði ver'ða á að sýna
næg meðmæli þar að lútandi. j
Þetta er nú i þriðja sinn, sem
maður þessi kemur ósæmilega
fram við stúlkur úr Þvottakvenna-
félaginu „Freyju“, sem hafa unn-
ið hjá honum. Ég tel enga þörf
á að þegja við slíku athæfi sem
þessu. Ekki tel ég heldur senni-
iegt að herra Guðlaugur Guð-
mundsson geri húsbændum sínum
sæmd né þénustu með slíku fram-
ferði, sem hér hefir verið lýst.
Það mun nú verða haft eftirlit
með þessum manni hér eftir, og
honum mun ekki líðast að
skamma og reka áfram þærstúlk-
ur, sem vinna undir hans umsjá.
Reykjavík, 16/7 1935.
Þurídur Fridriksdóftir.
Nýr fiokkur
i Kanada.
LONDON 12. júlí. FÚ.
Henry H. Stevens, fyrrum
verzlunarmálaráðherra Kanada
í Bennettstjórninni, tilkynti í
dag, að hann hefði ákveðið að
mynda nýjan stjórnmálaflokk,
og birtir hann stefnuskrá hins
nýja flokks í ýmsum blöðum.
Telur hann þessa flokksmyndun
vera til komna af því, að hvor-
ugur aðalflokkanna í landinu
hafi gert sér grein fyrir hinum
raunverulegu orsökum krepp-
unnar í Kanada.
j LEIÐANGUR TIL GRÆNLANDS.
Frh. af 1. síðu.
| verða með í förinni til flutninga,
j og eru þeir nú á leið frá Kaup-
mannahöfn.
Ráðgert er að gera tilraunir
; með það, að skifta um menn á ^
' stöðvunum yfir veturinn. En
' eins líklegt þykir þó, að það
verði ógerlegt. Er því ætlunin að
ganga svo frá, að að minsta
fcosti tveir menn á hvorri vetur-
setustöð auk aðaistöðvarinnax
j verði við því búnir að vera ein-
angraðir í alt að sex mánuði á
hvorri stöð.
| Eitt af verkefnum þessá leið-
angurs verður það, að kortleggja
ströndina, enn fremur á hann að
rannsaka landið betur en áður
hefir verið gert.
Ráðgert er að leiðangursmenn_
irnir snúi heimleiðis í septem-
ber 1936.
ABESSINÍA.
(Frh. af 1. síðu.)
ustu sína í stríði við Abessiníu.
Að launum munu þeir, eftir
því sem sagt er, krefjast handa
sér hluta af Abessiníu, er kall-
aður verði „Nýja Rússland" og
standi undir vernd ttalíu.
Aukafundur í ráði Þjóða-
bandalagsins um Abess-
iníu-málin
GENF 18. júlí F.B.
Avenol, aðalritari Þjóða-
bandalagsins, hefir sent ríkis-
stjórnum allra þeirra þjóða, sem
sæti eiga í ráði Þjóðabandalags-
ins, boð um að fulltrúar þeirra
verði við því búnir, að koma á
aukafund í ráði bandalagsins,
dagana 25. júlí til 2. ágúst.
Deilur Itala og Abessiníu-
rnanna verða ræddar á fundi
þessum. (United Press).
Árásir og morð
í Belfast.
Brynvarðar bifreiðar á götunum
LONDON í gærkve'dj. (Fú.)
t Belfast lítur enn mjög ófrið-
lega út. Óeirðir brutust út að nýju
síðdegis í dag í sambandi við
jarðarför manns, sem fallið
hafðii í uppþotinu á laugardag. Á
hiorninu á North Street og Royal
Avenue réðist stór hópur á mann
nokkurn og barði hann til jarðar.
Lögreglan gerði tilraun til þess
að koma honum til hjálpar, og
spanst af því snarpur bardagi á
götunni. Hermenn hafa verið
kvaddir á vettvang og brynvagn-
ar eru á verði á óeirðasvæðinu.
Alls hafa nú sex menn dáið síðan
uppþot þessi hófust.
Snemma í morgun heyrði lög-
reglan í Belfast skot, og eftir
nokkra leit fann hún ungan miann
í hliðargötu einni þar í borginni
með svöðusári af skoti í hand-
legg. Hann dó litlu síðar.
Yfirvöldín í borginni hafa nú
skorað á allan almenning að að-
stoða lögregluna vi'ð að kveða
niður þessar óeirðir.
Á stefnuskrá hans er m. a.
bygging nýrra vega, til þess að
auka ferðamannastrauminn
sunnan úr Bandaríkjunum;
bygging verkamannabústaða,
— en til þess að afla fé til þess-
ara framkvæmda séu gefin út
ríkisskuldabréf.
Þá segir Mr. Stevens að hann
ætli að leysa atvinnuleysismálið
og fátækramál „á mannúðleg-
um grundvelli“. Hann gerir ráð
fyrir skipulagningu á afurða-
sölu; vill skifta skattaálagning-
um á greinilegri hátt, milli bæj-
arfélaga, fylkja og ríkis, og
loks segist hann vera að undir-
búa jámbrautarmálin.
lUfBHBUBIB
52 stiga hiti i
Kaliforníu.
EINKASKEYTI TIL
ALÞÝ ÐU BLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN i morgun.
17 RÉTTIR frá Los Angeles
segja frá gífuriegum og
vaxandi hitum á Kyrrahafsströnd
Bandaríkjanna. Fjöldi fólks hef-
ir fengið hitaslag á þessum slóð-
um.
1 Dauðadalnum svonefnda í
Kaliforníu, sem alrnent er talinn
heitasti staðurinn á jörðinni, hefir
hitinn komist upp í 126 stig á
Fahrenheit, eða 52 stig á Cel-
sius.
STAMPEN.
ðil Robies biðst
laasnar, en teknr
iaasnarbeiðvinaaítnr
MADRID 18. júlí. F.B.
Gil Robles, hermálaráðherra
Spánar og foringi fazistaflokks-
ins, baðst lausnar í gærkveldi
og var orsökin sú að forsetinn
hafði gagnrýnt mjög ítarlega
lagafrumvarp, sem Robles hefir
borið fram. Fjallar það um
starfstíma hershöfðingja í
hernum og er svo fyrir mælt í
frumvarpinu, að þeir skuli láta
af störfum nokkrum árum fyrr
en nú tíðkast.
Forsetinn hefir gagnrýnt
frumvarpið á þeim grundvelli,
að afleiðingin gæti orðið sú, ef
frumvarpið yrði að lögum
óbreytt, að herinn hefði ekki
nægum reyndum og velæfðum
hershöfðingjum á að skipa.
Alejandro Lerroux forsætis-
ráðherra og hinir ráðherrarnir
vildu fyrir hvern mun koma í
veg fyrir, að enn einu sinni
þyrfti að endurskipuleggja
stjórnina, og fengu þeir loks
Robles til þess að afturkalla
lausnarbeiðni sína. Bentu þeir
honum m. a. á, að forsetinn
gæti ekki komið í veg fyrir að
frumvarpið væri lagt fyrir
þjóðþingið, og væri því engin
ástæða fyrir Robles til þess að
halda fast við lausnarbeiðni
sína nú, en bíða heldur og sjá
hverjar undirtektir frumvarpið
fengi í þinginu.
(United Press).
SchuscbDigg tekor
aftnr við embætti
síun.
LONDON 17. júlí. F.U.
Schussnigg kanzlari Austur-
ríkis tók aftur til starfa í dag.
Snemma í morgun gekk hann
inn á skrifstofu sína einn sam-
an og er það í fyrsta skifti,
sem ekki fylgir honum vörður,
síðan hann tók við kanzlara-
embættinu.
Japanir auka skipa-
útgerð sína.
OSLO í gærkveldi. (FB.)
Aubert sendiherra Niorðmanna
í Tokio hefir simað til norska
utanríkismálaráðuneytisins, að
japanska stjórnin undirbúi víðtæk
áform til styrktar skipaútgerð
Japana.
Er áformað að ríkið veiti fjár-
hagslegan stuðn-ing til þess að
rífa gömul skip og smíða fyrsta
flokks nýtízku skip í þeirra stað.
Einnig verða þau skipafélög, sem
hafa skip í förum til annara
Janda, styrkt ríflega.
I DAfi
Næturlæknir er í nótt Hall-
dór Stefánsson, Lækjargötu 4. |
Sími 2234. j
Næturvörður er í nótt í '
Reykjavíkur og Iðunnar apó-
teki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 9
stig. Yfirlit: Nærri kyrstæð
lægð milli íslands og Færeyja.
Lægð suðvestur í hafi á hreyf-
ingu austur eða suðaustur eftir.
Utlit: Norðan kaldi. Þurt og
víða bjart veður.
UTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Lesin dagskrá næstu
viku.
19.30 Tónleikar: Lög eftir
Verdi (plötur).
20,00 Erindi: Frá útlöndum
(séra Sig. Einarsson).
20.30 Fréttir.
21,00 Tónleikar: a) Einsöng-
ur: (Hermann Guð-
mundsson); b) Endur-
tekin lög (plötur); c)
Danslög.
Skemtiferð í Borgarfjörð.
Farið verður með „Laxfossi“
kl. 5 síðdegis á laugardag og
til baka frá Borgarnesi á sunnu-
dagskvöld. Hjómsveit skemtir á
„Laxfoss“ báðar leiðir. Dansað
verður að Hreðavatni á þar til
gerðum palli. Farið kostar 12
kr. báðar leiðir.
Skipaf réttir:
Gullfoss er á leið til Vestm,-
eyja frá Leith. Goðafoss er í
Hamborg. Dettifoss er á Pat-
reksfirði. Brúarfoss er ájeið til
Leith frá Vestm. eyjum. Lagar-
foss er á Akureyri. Selfoss er
á Önundarfirði. Prímúla er í
Leith .ísland er væntanlegt á
morgun. Drotning Alexandrine
er í Kaupmannahöfn.
Höfnin:
Fisktökuskip kom í gærkveldi
frá útlöndum. British Pluck fór
í morgu til útlanda.
70 ára
er í dag Oddur Björnsson,
prentsmiðjueigandi frá Akur-
eyri.
Kappleikurinn í kvöld.
1 kvöld keppir Valur við Þjóð-
verjana og verður kappliði Vals
þannig skipað: Hermann Her-
mannsson, Grímar Jónsson,
Frímann Helgason, Jóhannes
Bergsteinsson, Guðmundur Sig-
urðsson, Frímann Ólafsson,
Agnar Breiðf jörð, Hans Peter-
sen Magnús Bergsteinsson, Gísli
Kærnested og Óskar Jónsson.
Farþegar
með e/s. Dettifoss til Vestur-
ur- og Norður-landsins 17/7 '35:
Hafsteinn Bergþórsson, W. A. Al-
len, Mr. Smethurst, Mr. Robt.
Deans, Marin Guðmundsd., Elisa-
bet Kristjánsdóttir, Ingibjörg Guð-
mundsd., Margrét Briem, lón Haf-
liðason og frú, Hans R. Þórðar-
son og frú, Dr. Hildegard Bonde,
Frl. Wortmann, Guðm. Hannes-
son, Kristján Sveinsson, Egiil
Kristjánsson, Kjartan Ölafsson,
Jón Högnason Garl Proppé, Mr. J.
D. Pemberthy, Tómas Tómasson,
Sigríður Guðmundsd. o. fl.
~*.«U*s**'‘
Kristján Sveinsson
augnlæknir er farinn í ferða-
lag til Vestf jarða. Læknisstörf-
um gegnir fyrir hann á meðan
Sveinn Pétursson, læknir.
Freymóður Jóhannsson
flytur framhaldserindi sitt um
Rembrandt í útvapið annað
kvöld.
Ný siglingaleið.
OSLO í gærkveldi. (FB.)
Leiðangurinn mikli til Karáhafs
eða Kariska hafs (milli Novaja
Semlja, Vaigateyju iog Norðvest-
ur-Sibiriu) er nú tilbúinn til þess
að leggja af stað. 1 leiðangrin-
um, sem Rússar standa fyrir, eru
60 skip, og eru 15 þeirra rúss-
nesk. — Rússneskir ísbrjótar eiga
að brjóta skipunum leið. Tilgang-
urinn með þessum leiðangri er
að nýta hina miklu skóga í
Norðvestur-Sibiríu og flytja við-
inn þaðan sjóleiðis. Hepnist á-
form þetta er ný sjóflutninga-
leið komin til sögunnar.
NÝIR
KAUPENDUR
FA
&LÞTBUBLABIB
ÓKEYPIS
til næstu
mánaðamóta.
Kaupið bezta
fréttablaðið.
Smurðbrauðsbúðin hefir síma
3544.
Reitaskór með tækifærisverði
verða seldir næstu daga eftir
kl. 6 síðdegis í Gunnarssundi 6,
Hafnarfirði .
NíJA BIÖ
Svarti
hvalurinn.
Þýzk tal- og tónmynd,
samkvæmt frægu leikriti
eftir Marcel Pagnot.
Aðalhlutvekrið leikur
snillingurinn
EMIL JANNINGS.
Aðrir leikarar eru:
Angela Giilstorff
Franz Niklisch og
Max Giilstorff.
Skemtiferð i
Borgarfjörðinn
Frá Reykjavík á „Laxfossi á
laugardaginn kl. 5 síðd. og til
baka frá Borgarnesi á sunnu-
dagskvöld. Hljómsveit skemtir
á „Laxfossi“ báðar leiðir, í
Borgaresi á laugardagskvöld
og að Hreðavatni á sunnudag.
Dansað verður að Hreðavatni á
palli í bjarkarlundum, þar sem
f jölbreytta náttúrufegurð er að
finna, alt í kring. — Síðastliðin
eunnudag var dimmviðri. Næsta
sunnudag er líklegt að verði
bjart veður og sólskin. — Og
hvar er þá skemtilegra en að
Hreðavatni ?
Málaflutningur. Samningagerðir
Stefán Jóh. Stefánsson^
hæstaréttar málaflm.
Ásgeir Gnðmundsson,
cand. jur.
Austurstræti 1.
Innheimta. Fasteignasala.
fflUNÍB,
að líftryggjayður
hjá ANDVÖKU.
Sfðasta sundnámskefð
okkar í sumar, byrjar mánudaginn 22. júlí.
Þeir, sem ætla að taka þátt í því, tali við okkur í þíma
föstudag og laugardag milli kl. 12 og 2.
Vignir og Július,
Sími 2240. Sími 2130.
Ath. Tími fyrir eldri menn frá kl. lOýc—11 f- h.
RÉYKIÐ
TYRKNESKAR
CGARETTUR
n óff\ STK.
PAKKINN
KOSTAR
FAST
OLLUM VERZLUNUM
Venus dansar
heitir myndin, sem Gamla
Bíó sýnir um þessar mundir.
Er það söngvamynd í 10 þátt-
um, leikinn af Joan Crawford
Clark Cable og Fred Astarire