Alþýðublaðið - 22.08.1935, Qupperneq 1
Að vinna fyrir nútímann
er gott.
Að vinna fyrir eftirkomend-
urna er betra.
Hvort tveggja þetta gerirðu
ef þú ert starfandi kraftur í
Kaupfélagi Reykjavíkur.
213. TÖLUBLAÐ
RirSTJORI
tJTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Nýir kaupendur
fá
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ókeypis
til næstu
mánaðamóta.
Togarinn Sindri á karfaveiðum
Hann fékk 48 tonn á 30 kist.
Lýsið verður selt til Englands.
Dlmitroff
myrtur
í Moskva?
Englaid
verndi
heimtar
Abessinin
að bjððabaidalagið
fjrrir ‘itabkri árás.
Togarinn sindri
stundar karfaveiðar
frá Sólbakka. Er karfinn
lagður upp í Sólbakka-
verksmiðjuna og unnið úr
honum lýsi þar.
Þórður Þorbjarnarson fiskifræð-
ingur er nýlega kominn til Sól-
bakka, og hefir hann umsjón með
lýsisvinslunni úr karfanum og út-
sendingu þess, en það verður flutt
fryst út til Englands. Hefir hann
sannað, að karfalýsi er auðugt
af A- og D-fjörefnum og að lýs-
ið er auðunnið úr honum.
Togarinn Sindri kom til Sól-
bakka í gær með 48 tonn af
karafa, 11 tonn af ufsa og um
15 tonn af flöttum og söltuðum
fiski.
Var togarinn að veiðum á Hala-
miðum í einar 30 klst. og fékk
allan aflann á þessum tima.
Varð hann þó fyrir miklum töf-
um, því að varpan bilaði og misti
hann mikið af fiski.
Alþýðublaðið átti í morgun
viðtal við Þórð Þorbjarnarson og
skýrði hann svo frá, að byrjað
væri að vinna lýsið úr karfan-
um og á morgun yrði byrjað að
bræða.
Siglufjarðarbær fer
fram á
að ríkið veiti honum 10
’þús. kr. til atvinnubóta
og 20 þús. kr. lán.
SIGLUFIRÐI í gær.
AFUNDI bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar var i fyrrakvöld
kosin bjargráðanefnd að tillögum
fátækranefndar.
Af hálfu bæjarstjórnar voru
jxosnir: Ole Hertervig, GunnarJó-
hannsson, Gunnlaugur Sigurðs-
son, Hjálmar Kristjánsson og
bæjarfógeti sjálfkjörinn.
Auk þessara tilnefndi kvenfé-
lagið Von, styrktarnefnd sjúkra-
hússins, kvennadeild Slysavarna-
félagsins og Alþjóðasamhjálpar
verkalýðsins sinn manninn hvert
í nefndina.
Fátækranefnd Siglufjarðar bar
fram tillögu um að skora á ríkis-
stjórnina að leggja Siglufjarðajr-
kaupstað til 10 þús. króna at-
vinnubótafé og ábyrgjast 20 þús.
króna lán fyrir bæinn í sama
skyni.
Tillaga kom frá Þóroddi Guð-
mundssyni um að reyna að fá
handa bænum 50 þús. króna
bjargráðasjóðslán, og að ríkið
veiti aðrar 50 þúsundir króna til
styrktar íbúum Siglufjarðar, er at-
vihna hefir brugðist. — Báðum
þessum síðargreindu tillögum var
vísað til fjárhagsnefndar til end-
anlegrar afgreiðslu. (FO.)
Síldarsöltun á Siglufirði.
Söltun sildar var í gær sem
hér segir á Siglufirði:
Þrjú hundruð sjötíu og níu
tunnur saltsíld, 24 tunnur sykur-
söltuð síld og 265 tunnur krydd-
uð síld. Af þessu var 209 tunnur
af Ernu, 31 tunna af Frigg og
137 tunnur af Venusi. Síldinveidd-
|at i Húnaflóa.
Sagði hann að ekki gengi eins
vel að vinna lýsið og æskilegt
hefði verið, því að fiskurinn
væri orðinn nokkuð morkinn.
Um 40 manns vinna nú við
síldarbræðsluverksmiðjuna á Sól-
bakka, þar af 16 við karfann.
Ákveðið er, að Sindri stundi
karfaveiðar að minsta kosti tii
mánaðamóta.
Verð á karfa mun vera nokk-
uð hærra en á síld.
Veiði útlendinga fiér
við land.
Eftir frásögn finska móður-
skipsins hafa síldarleiðangurs-
skipin norsku, sænsku og finsku
aflað alls í sumar 70000—75-
000 tunnur síldar. 1 dag segir
fréttaritarinn blíðviðri og hafi
nokkur skip fengið dágóðan
afla. (FÚ.).
Osló, 21. ágúst. FB.
AMKVÆMT símskeytum frá
Moskva til Dagbladet var
hinn heimskunni búlgarski
kommúnisti Dimitroff myrtur í
Moskva í gær, af lautinant
nokkrum í rauða hernum.
Lautinantimi skaut hann
nokkrum skammhyssuskotum
og beið Dimitroff þegar bana.
Þessi frétt hefir enn sem kom-
ið er enga opinbera staðfestingu
fengið frá Moskva.
Kýlsistn firéttir:
Samkvæmt tilkynningu
frá F. B. er tilkynt frá
Moskva að fregnin um
morð Dimitroffs sé einber
uppspuni.
Eru ísleozka inattspyrouieuninilF
ofMakaðir af leizlin og ■■staael ?
Þelr l&afa fengið tvS mSrk ú hvern kapp*
liðsmann og kenna velllnnm nm pað.
ISLENZKI knattspyrnuflokk-
urinn háði annan kappleik
sinn í Þýzkalandi í gær.
Var lýsingu á síðari helming
kappleiksins endurvarpað hér
og heyrðist lýsingin ágætlega.
Þeir Pétur Sigurðsson, Guðjón
Einarsson og Gísli Sigurbjörns-
son lýstu leiknum, en það spilti
mjög fyrir lýsingunni, að Gísli
Sigurbjörnsson þvaðraði svo að
segja viðstöðulaust um hvernig
tekið hefði verið á móti þeim fé-
lögum og þuldi óðamála nöfn
ýmissa manna, er hann hafði
kynst á ferðalaginu.
Eftir lýsingunni að dæma
léku Þjóðverjar harkalega í
fyrri hálfleik, enda fengulslend-
ingar marga aukaspyrnu á þá.
Settu Þjóðverjar 6 mörk í þeim
hálfleik. Síðari hálfleikur var
öllu jafnari og gerðu íslending-
ar mörg snörp upphlaup og
skutu oft á mark Þjóðverjanna,
en misheppna^ist alt af.
Virtist bera mest á þeim
Björgvin Schram, Ölafi Þor-
varðarsyni, Sigurði Halldórs-
syni, Jóni Magnússyni og Hans
Kragh á vellinum og voru þeir
Björgvin Sehram í vörninni og
Jón Magnússon í sókninni oft-
ast með boltann eftir lýsingunni
að dæma.
Friðþjóður Thorsteinsson lék
útframherja í síðari hálfleik, því
að Guðmundur Jónsson hafði
meiðst, vatn farið á milli liða,
og mun þetta ekki hafa orðið til
að styrkja lið Islendinga. I
marki var Hermann Hermanns-
son.
Eftir lýsingu þeirra félaga að
dæma voru íslenzku knatt-
spyrnumennirnir óþekkjanlegir
frá því sem þeir eru hér. Enda
geta allir sagt sér það sjálfir, að
eitthvað er að. Slíka útreið og
Islendingar hafa fengið í þeim
tveimur kappleikjum, sem háð-
ir hafa verið í Þýzkalandi nú,
BJÖRGVIN SCHRAM,
sem hefir getið sér mjög góðan
orðstír í Þýzkalandi.
hafa þeir aldrei fengið.
Þeir félagar vildu telja or-
sakirnar þær, að íslendingana
skorti leikni og úthald, að völl-
(Frh. á 4. síðu.)
Svavar GaðmnðssoD
baskastjðri víð fitbú
Útvegsbankans fi Akur-
ey.I.
Svavar Guðmundsson fyrver-
andi starfsmaður hjá Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga hefir
verið ráðinn bankastjóri við
IJtvegsbankann á Akureyri.
Tekur Svavar við starfinu 1.
september.
Þessi ákvörðun var tekin á
fundi í bankaráði Útvegsbank-
ans s. 1. laugardag.
Svavar Guðmundsson hefir
verið formaður bankaráðs Út-
vegsbankans en Stefán '-Jóh.
Stefánsson mun taka við því
starfi.
Svavar er þegar farinn til Ak-
ureyrar.
Ensk s|álfist|énaapnýlenduraar 03 stjérnmála-
flokkarnir á Englandi standa einhuga á bak viO
stjérnina í deiiunni við Italfiu.
tlNKASKEYTl TtL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í jnorgun.
NÝJUSTU símskeyti frá
London benda ótví-
rætt í þá átt, að England
muni krefjast þess, að
Þjóðabandalagið geri allar
þær ráðstafanir, sem því
er heimilt og skylt, sam-
kvæmt Þjóðabandalags-
sáttmálanum til þess að
afstýra hinni yfirvofandi
árás ítalíu á Abessiníu.
Endanleg ákvörðun mun verða
tekin um þetta á aukafundi ráðu-
neytisins í dag. En á undirbún-
ingsfundum, sem Samuel Hoane
uíanríkisráðherra átti við fulltrúa
brezku sjálfstjórnarnýlendnanna
og foringja ensku stjórnmála-
flokkanna í gær, kom þaðgreini-
lega í ljós, að allir voru á einu
máli um það, að styðja slíka póli-
tík af hálfu stjórnarinnar.
Italía sendir fulltrúa á
fund Þjóðabandalagsins.
í frönskum blöðum er mikið
talað um það, hvort ítalía muni
senda nokkurn fulltrúa á hinn
fyrirhugaða fund Þjóðabandalags-
ráðsins. Undanfarna daga hafa
menn efast um það. En af slíkri
afstöðu væri augljóst, að ítalíá
ætiaði sér að hafa allar sam-
þykti'r Þjóðabandalagsins í þessu
máli að engu.
Samkvæmt símskeytum fráRóm
er nú þó talið ábyggilegt, að It-
alía muni þrátt fyrir öll stóryrði
Mussolinis senda fulltrúa á fund-
inn til þess að loka ekki öllum!
sundum fyrir samkomuíagi, ef
Þjóðabandalagið skyldi gera sig
líklegt til þess að grípa til al-
mennra þvingunaiTáðstafana
gagnvart henni til þess að hindra
árás á Abessiníu.
STAMPEN.
Enska stjórnin ráðgast
við fulltrúa sjálfstjórnar-
nýlendaiina.
LONDON, 22. ágúst. FB.
Fulltrúar sjálfstjórnarnýlendn-
anna, Kanada, Ástralíu og Suður-
Afríku, og einnig fulltrúar írlands,
Egiptalands og Nýja Sjálands
konru saman á fund í utanríkis-
málaráðuneytinu í gærkveldi til
þess að láta í ljós skoðanir sín-
ar að því er viðhorf Bretaveldis
snertir nú til Abessiníudeilunnar.
En ríkisstjórnin hafði óskað eftir
því, að fulltrúar allra stærstu
landa í Bretaveldi væru hafðir
(mteð í ráðum um hvað gera skuli
vegna þess hversu alvarlega
horfir.
David Lloyd George, Lansbury,
leiðtogi Alþýðuflokksins á þingi,
Cecil lávarður, Herbert Samuel og
Atherton, sem til bráðabirgða
gegnir sendiherrastörfum Banda-
ríkjannia í JLondon hafa allir heim-
sótt Samuel Hoare utanríkismála-
SAMUEL HOARE
ráðherra, til ráðagerða út af
Abessiníudeilunni. I þessu mikla
vandamáli ætlar ríkisstjórnin því
að hafa nána samvinnu við leið-
toga andstæðingaflokkanna og
eins við Bandaríkin.
Alþýðwflokkurinn enski
heimtar, að Þjóðabanda-
lagið geri vaid sitt
gildandi.
Að því er United Press hefir
fregnað frá áreiðanlegum heim- ;
ildum, sagði Lansbury við Hoare,
að Alþýðuflokkurinn brezki væri
eindregið þeirrar skoðunar, að
Bretlandi bæri skylda til ab
vinna að því, að sáttmáli Þjóða-
bandalagsins væ,ri. í heiðri haldinn
og koma í framkvæmd þeim á-
kvörðunum, sem Þjóðabandalagið
tæki með skírskotun til og( í saím-
ræmi við sáttmálann. Lansbury
hét ríkisstjórninni stuðningi Al-
þýðuflokksins, ef hún styddi
Þjóðabandalagið í öllu.
Samkvæmt áreiðanlegum fregn-
um hefir United Press einnig
fregnað, að á fundi utanrikismála-
nefndar í gær hafi sú skoðun
komið glögt fram, að allir flokk-
ar í landinu ættu að standa sam-
an og styðja stjórnina til þess að
vinna að því að Þjóðabandalagið
geti komið svo ár sinni fyrir borð,
að sú stefna, sem það tekur út af
Abessiníudeilunni, nái fram að
ganga, og einnig að bandalags-
þjóðirnar, sem vilja afstýra ófriði,
snúi bökum saman og horfist
djarflegia í augu við hættuna. Alt
bendir því til, að Bretar muni
taka föstum tökum á málinu og
Þjóðabandalagið starfi áfram og
ákvarðanir þess verði virtar, en
ráðstafanir teknar eins og lög
bandalagsins gera ráð fyrir, ef
ákvarðanir þess eru að vettugi
virtar.
Dr. Sebaeht setnr
Hitler úrslitakosti.
hótar að segja af sér nena
GyhÍK&gaofsóknirnar hætti.
EINKASKEYTI TIL
A LÞÝ ÐU BLAÐSINSs
KAUPMANNAHÖFN í tmorgun.!
ENSKA blaðið „News ’
ChronicIe“ flytur í
dag fréttir frá Þýzkalandi
um það, að milli æðstu
manna Nazistastjórnar-
innar sé allt komið í bál
og brand.
Dr. Schacht bankastjóri rík-
isbankans, sem jafnframt er
atvimmmálaráðherra og fjár-
málaráðherra, og undanfarið
hefir verið svo að segja einvald-
ur um alla atvinnumála- og f jár-
málapólitík stjórriarinnar, hef-
ir hótað að segjaaf sérjnemaþvd
aðeins að Hitler veiti honmn
fulla tryggingu fyrir því, að
pólitík hans verði ekki fram-
vegis trufluð af ábyrgðarlaus-
mn æsingamönnum eins og dr.
Göbbels, Helldorf greifa og öðr-
um, sem með Gyðingaofsóknum
sínum eru í þann veginn að eyði-
leggja allt traust erlendra fjár-
málamanna til Þýzkalands.
Dr. Schacht hefir þegar oft áð-
ur með tilliti til þeirra miklu á-
hrifa, sem Gyðingar haía í fjár-
málum úti um allan heim, var-
að alvarlega við Gyðingaofsókn-
um Nazistanna og reynt að draga
úr þeim.
Hann ásakar nú dr. Göbbels
opinberlega fyrir það, að standa’
á bak við og blása að þessum
ofsóknum. Enn fremur mótmæl-
ir hann því harðlega, að dr. Göb-
bels befir sem útbreiðslumálaráð-
herra leyft sér að breyta í op-
inberri greinargerð ræðu þeirri,
sem hann hélt nýlega um áhrif
Gyðingaofsóknanna á fjánnál
Þýzkalands, að nærri stappar
fullri fölsun.
Eftir því sem „News Chroni-
cle“ hennir, mun dr. Schaclit ein-
hvern allra næstu daga heimsækjd
Hitler í sumarbústað hans suður
í Bayern til þess að kæra dr.
Göbbels og setja „foringja.num”
sína úrslitakosti. STAMPEN.