Alþýðublaðið - 04.09.1935, Blaðsíða 1
Að vinna fyrir nútímann
er gott.
Að vinna fyrir eftirkomend-
urna er betra.
Hvort tveggja þetta gerirðu
ef þú ert starfandi kraftur í
Kaupfélagi Reykjavíkur.
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
XVI. ÁRGANGUR.
CfTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
MIÐVIKUDAGINN 4. sept. 1935.
224. TÖLUBLAÐ
Stórfeld ratvirk|un i
undirbúningi á Isafirði
Saanskt félag gerlr tllboð i verk-
Ið f pessum mánnðl.
T^RÍR sænskir verkfræðingar
*r hafa undanfarið dvalið a
ísafirði við að gera mælingar og,
áætlanir um rafveitu fyrir ísa-
fjarðarkaupstað.
Hafa þeir nú lokið verkinu og
eru farnir heimleiðis til Svi-
þjóðar.
Leizt þeim hið bezta á öll skil-
yrði til rafvirkjunar á Isafirðl
og mun rafvirkjunarfélag í Sví-
þjóð, sem þeir starfa fyrir, gera
tilboð í verkið, þegar þeir koma
heim í þessum mánuði.
Rafvirkjun fyrir Isafjörð hef-
ir lengi verið eitt af aðaláhuga-
málum Alþýðuflokksmanna á
Isafirði og hafa þeir barist fyrir
því í mörg ár, að hægt verði að
hrinda því máli í framkvæmd.
--Sem stendur er á Isafirði rek-
in vélknúin rafmagnsstöð, sem
er eign einkafyrirtækis og sel-
ur það bæjarbúum rafmagn í
gróðaskyni við mjög háu verði,
en skilyrði eru góð til rafvirkj-
unar inn í firðinum og hafa þeir
Steingrímur Jónsson rafmagns-
stjóri og Ormsbræður gert áætl-
un um virkjun, sem þó ekki hef-
ir komist í framkvæmd vegna
mótstöðu íhaldsmanna meðan
þeir réðu í bæjarstjórn Isa-
fjarðar.
Ríkisábyrgð fyrir láni til raf-
virkjunar hefir þó verið fyrir
hendi og var hún síðast fram-
lengd á þinginu í fyrra og gild-
ir út þetta ár.
Þó að bæjarstjóm Isafjarðar
hafi þegar ráðist í mörg stór-
virki og margvíslegar fram-
kvæmdir síðan Alþýðuflokkur-
inn tók við henni aftur um síð-
ustu áramót, er hún staðráðin
í að hrinda rafvirkjuninni, sem
JENS HÓLMGEIRSSON
bæjarstjóri á ísafírði.
verður mesta mannvirki bæjar-
ins, í framkvæmd á þessu ári.
Hefir bæjarstjórnin fyrir
milligöngu Gísla J. Johnsen
stórkaupmanns komist í sam-
band við ágætt rafvirkjunarfé-
lag í Svíþjóð, sem mun vera
reiðubúið til að framkvæma
verkið og veita lán til þess og
hefir það félag nú sent þrjá
verkfræðinga sína til þess að
gera nýja áætlun um virkjunina.
Er áætlun þeirra nokkuð
öðruvísi en fyrri áætlanir.
Gera þeir ráð fyrir að með
virkjun í Fossá í Skutulsfirði fá-
izt um 600 hestöfl, en það er
meira en nægilegt fyrir bæinn
eins og hann er núna, til Ijósa,
iðnaðar og nokkuð til hitunar,
en þeir gera einnig ráð fyrir, að
virkjunin verði framkvæmd
þannig, að auðvelt sé að bæta
við hana síðar.
Endanlegt tilboð um virkjun-
ina mim berast bæjarstjóm ísa-
f jarðar í þessum mánuði.
15 ára unglingur er mesti
sundgarpur i Vestmannaeyjum.
VestmannaeFingar héldu sund~
mét sitt i sfé á snnnndaginn.
ESTMANNAEYINGAR
halda á hverju ári sund-
mót, sem er einn aðalviðburður-
inn í íþróttalífi eyjaskeggja,
enda ‘ iðka Vestmannaeying-
ingar mjög sund og eingöngu í
sjó. Sundíþróttin mun vera
iðkuð meira af sjómönmmi í
Vestmannaeyjum en í nokkru
öðru sjávarþorpi hér á landi og
eru að þvi leyti til fyrirmyndar
öðrum sjómönnum. Leggja þeir
t. d. mjög mikla stund á björg-
unarsund.
Á sundmótinu í ár, sem fór
fram á laugardag og sunnudag,
urðu þau tiðindi, að 15 ára
unglingur reyndist mesti sund-
garpur í Vestmannaeyjum.
Var kept um sundgrip Vest-
mannaeyja, sem félögin „Þór“ og
„Týr“ hafa gefíð. Er gripurinn
skoxinn af Bjarna Guðjónssyinl
myndskera í Vestmiannaeyjum.
Skal keppa um hann i 300
m. frjálsri aðferð, 100 m. bringu-
sundi og 100 m. baksundi. Sá,
sem syndtr þessar vegalengdir á
skemstum tíma samanlagt, vinnur
verðlaunagripinn, þó ekld til
eignar. Verður hann þó einrnig að
synda 25 m. björgunarsund. Hlýt-
xjt hann sæmdarheitið Sundkappi
Vestmannaeyja.
Þrír þátttakendur vor|u í kapp-
sundi'nu, Árni Theódór Jóhannes-
son, 15 ána, og tveir fullorðnir
menn.
Vann Árni Theódór keppnina á
10 mín. 10 sek. samanlagt.
Auk þessa var kept í 50 m.
sundi fyrir konur, og var kept
um verðlaunagrip, sem kvenfé-
lagið Líkn hafði gefið. Vann
sundið Svava Markúsdóttir á 53,9
sek. Enn fremur var kept í 50
metra stakkasundi fyxir sjómenn
og kept um verðlaunagrip, sem
er veggskjöldur, skoxinn af Rík-
arði Jónssyni og gefínn af Vest-
mannaeyjadeild Slysavarnafélags-
ins. Sundið vann óskar Þorsteins-
son á 1 mín. 23,3 sek.
I öllum þessum sundum var
bept I sjó við hafnarbryggjuna.
Kapphlanp om námaaaðæfi Abessiníu.
Eoglaud er flækt í sérleyfissafflniogana, segir Ras Tafari.
Fmdnrina i ráði Þiððabandnlagsins befst i dag.
LAVAL Á TALI VIÐ HAWARIATE, fulltrúa Abessiníu í Genf.
Strokufangarn
ir frá Litla-
Hrauni dæmdir
i dag.
Strokufangarnir frá Litla-
Hrauni, þeir Vernharður Eggerts-
son, Magnús Gíslason og Frið-
þjófur Óskarsson, sem brutust út
af vinnuhælihu í sumar og flækt-
ust um óbygðir nokkra daga áð-
ur en þeir voru gripnir, voru
dæmdir kl. 11 í morgun af lög-
reglustjóra fyrir strokið.
Voru þeir Vernharður Eggierts-
son og Magnús Gíslason dæmdir
í 8 mánaða betrunarhússvinnu
hvor, en Friðþjófur Adolf Óskars-
son í 60 daga fangelsi við venju-
legt fangaviðurværi.
V estur-í slendingar
stórhrifnir aí ót-
varpinu.
Skeyti eru enn að berast for-
sætisráðherra frá Ameríku, um
það, hvernig útvarpið hafi tek-
ist. Ber þeim öllum saman um
það, að það hafi tekist ágætlega.
Meðal annars barst forsætis-
ráðherra skeyti í morgun frá
blaðinu „Lögberg“ í Winnipeg,
er hljóðar þannig á ensku:
„Broadcast thrilling tolceland-
ers in America. Thank you“.
Á íslenzku:
„Útvarpið vakti stórkostlega
hrifningu meðal Islendinga í
Ameríku. Þökkum yður“.
Vesturheimsblöðunum, „Lög-
bergi“ og „Heimskringlu“ hafði
verið send skeyti um það, hve-
nær útvarpið ætti að fara fram,
og þau beðin að tilkynna það
Islendingum í Ameríku. Er því
ekki vafi á því, að „Lögbergi"
hefir verið vel kunnugt um það,
hvernig útvarpið líkaði á meðal
Islendinga, og sýnir þetta
skeyti, að það hefir líkað ágæt-
lega.
LONDON, 3. sept. FÚ.
JÖGUR hundruð menn eru
í yfirvofandi lífshættu á
skipi, sem hefir borið á kletta-
rif hér um bil fjörutíu míl-
ur suð-vestúr af Florida-
strönd. Ofsaveður færist að úr
vestri, þar sem skipið hefir
strandað, og nema því aðeins að
skjót aðstoð berist virðist óum-
flýjanlegt að það liðist 1 sundur
á klettunum. — Skipið heitir
„Dixie.“
Fyrstu fregnirnar um skips-
strandið bárust síðastliðna nótt.
Þegar skipið rakst á rifið, sóp-
uðust aðalsenditæki þess fyrir
borð, en það hefir látlaust sent
út SOS skeyti með varasendi-
tækjum sínum.
Þrjú skip héldu þegar af til
aðstoðar en neyddust öll til að
snúa við aftur og bíða betra veð-
urs. Tankskipið „The Reaper“
heyrði einnig neyðarskeyti
„Dixie. Var það þá um 40 sjó-
mílur á brott. Síðustu fregnir
herma að „Reaper“ sé kominn
á vettvang og bíði átekta.
ElNKASKEYTl TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í morgun.
ÉRLEYFISVEITINGAR
Ras Tafari, Abessiníu-
keisara, eru stöðugt að verða
leyndardómsfyllri og leyndar-
dómsfyllri. Símskeyti frá New
York herma, að kauphallarmiðl-
ari þar í borginni, Chertok að
nafni, hafi nú lýst því yfir, að
haim hafi sem fulltrúi fyrir
amerísk iðnaðarfyrirtæki gert
samning við Abessiníu á undan
Rickett um forgangssérleyfi til
þess að vinna olíu í Abessiníu,
og að sá sammngur hafi verið
undirritaður hjá sendiherra
Abessiníu í London þ. 20. júlí í
sumar. Hann segir ennfremur,
að hann sé ráðinn í því að gera
þennan forgangsrétt siim gild-
andi.
Sendiherra Abessiníu í Lon-
don, Dr. Martin, hefir staðfest,
að Abessinía hafi farið þess á
leit við Chertok, að hann útveg-
aði Abessiníu einnar miljón
dollara lán gegn tryggingu í
olíu, gulli og öðnxm verðmætum
efnum, sem óunnin eru í Abes-
siníu. En samningur þessi rekist
ekki á neinn hátt á við sérleyfis-
samning þann, sem Abessiníu-
keisari hafi nú gert við Rickett.
STAMPEN.
Brezka stjórnin er
flækt í sérleyfis-
samningana I Abess-
inftt!
LONDON, 4. sept.
Frá Addis Abeba er símað, að
ríkisstjórnin hafi tilkynt opin-
Annað tankskip og ávaxta-
flutningaskip eru einnig á leið
til hins nauðstadda skips.
Á „Dixie“ er orðið mjög lítið
um vatn. Veður er svo slæmt
þarna, að „Reaper“ sá ekki
„Dixie“ í dögun í morgun, þó að
ekki væru nema 5 sjómílur á
milli.
Þrjú skip komin
til hjálpar.
LONDON, 3./9. FÚ.
Óveður það, sem veðurfræðing-
ar höfðu sagt að væri í aðsigi á
Kuba og Suður-Florida, hefir
valdið talsverðu tjóni. Einna
harðast lék það nýbyggjanýlendu
á S uður- F1 ori da sltaga n um, en þar
bjuggu um 100 fjölskyldur, og eru
líkur taldar til, að þær verði að
flýja héraðið, eða byggja það að
mestu leyti upp aftur. Frá Kuba
hefir ekki frézt uxn neinar stór-
kostlegar skemdir, og var storm-
sveipurinn á leið norðvestur eftir
frá New Orleans, þegar seinast
fréttíst.
Frh. á 4. síðu.
berlega, að hún muni verja rétt
sinn til þess að veita sérleyfi til
hagnýtingar náma og olíulinda í
Abessiníu, og aðrar þjóðir hafi
ekki neinn rétt til þess að taka
fram fyrir hendurnar á Abes-
siníumönnum í þeim efnum.
Jafnframt hefir abessinska
stjórnin lýst því yfir skýrt og
skilmerkilega, að hún telji sig
til neydda að ásaka Itali fyrir
skýlaus brot á alþjóðaskuld-
bindingum með því að grípa til
þeirra ráða, að undirbúa stríð á
hendur Abessiníumöxmum.
1 tilkynningu stjórnarinnar
segir loks — og það hefir vak-
ið ekki minsta eftirtekt eins og
að líkum ræður — að brezka
stjórnin sé flækt í olíulinda-sér-
leyfisveitinguna. (United Press.
— FB.).
LONDON, 3./9. FÚ.
Eden og Laval komu til Genf í
morgun og ræðast við um ýms
mikils varðandi mál í dag.
FunÖur Þjóðabandalagsráðsins
á morgun hefst klukkan 4 eftir
miðdag. Eden og Laval munu
báðir gefa skýrslur um þriggja
veldaráðstefnuna í París, en það
þykir fullvíst, að skýrslur þeirra
muni verða algerlega samhljóða.
Þá hefir það frézt, að Laval sé
fullkomlega ánægður með skýr-,
ingar þær, sem Anthony Eden
hefír gefið á afstöðu btezku
stjórnarinnar til sérleyfa þeirra,
sem African Exploration and
Development Company hefír feng-
ið. Tjáði Mr. Eden Laval, að Eng-
land hefði ekki og myndi engan
þátt eiga í þessu fyrirtæki.
Skærurnar í Wal-Wal,
hvorki ítalíu né Abessiníu
að kenna.
LONDON, 3. sept. FÚ.
Sátta- og gerðardómsnefndin í
deilumálum ítalíu og Abessiníu
hefir lokið störfum sínum, og !
nefndarmennirnir fara frá París I
til Genf í kvöld. Nefndin mun
leggja álit sitt fyrir Þjóða-
bandalagsráðið á morgun.
Óstaðfest fregn frá Frakk-
landi, segir, að nefndin hafi
komist að þeirri niðurstöðu, að
Englendingar geta ekki
hreinsað sig af samning-
itnum, segja ítölsku blöðin.
BERLlN, 3. sept. FÚ.
I Róm er nú ekki talað um
annað meðal stjómmálamanna
en sérréttindi þau, sem Abessin-
ia hefir veitt hinu brezk-ame-
ríska auðfélagi.
Benda ítölsk blöð á það, að
samningurinn um sérréttindi
þessi hafi verið undirritaður af
brezkum þegni, og geti því Bret-
landi ekki verið málið óskylt.
Halda þau því fram, að samn-
ingur þessi hafi fyrst og fremst
pólitískt innihald og útiloki
hagsmuni allra annara aðila á
því svæði, er hann snertir, en
þar telja Italir sig eiga sérstakt
tilkall til sérréttinda.
hvorki Abessinía né ítalía beri
neina f járhagslega eða siðferði-
lega ábyrgð á viðburðunum við
Wal-Wal, né þeim ágreiningi,
sem síðan hefir risið út af þess-
um viðbui’ðum.
Biður Abessiniu um
brezka vernd?
LONDON, 3./9. FÚ.
Frétt frá Abessimu herinir, a'ð
(mr í liandi sé fólk farið að mækt
með því, að landið verði sett
undir vernd Breta, á sama hátt
og Egyptaland og Sudan.
Engin ástæða er þó til þess að
álíta, að brezka stjórnin myndi
taka slíkjt í máí,. í Genf er álitið,
að Bretland myndi færast undan
því, að takast slikt á hendur eins
og nú standa sakir.
Ftðnshn hermenni.nir
fá ekkert orlof á þessu
ári.
BERLfN, 3/9. (FÚ.)
Hermálaráðherra Frakka hefir
gefið út yfirlýsingu þess efnis,
að hann geti ekki á þessu ári veitt
frönskum hermönnum hið vetxju-
lega orlof, þar eð her sá, sem nú
er undir vopnum, geri ekki bet-
ur en fullnægja brýnustu þörfum.
Frh. ú 4. síðu.
400 manns í ytmrofandi lífshættn.
Skip strandar á klettarifl suð-vestor af Florida.
Eden og Laval leggja ftam
samhljóOa skýrslnr fi Genf.
f