Alþýðublaðið - 07.01.1936, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 07.01.1936, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGINN 7. JAN. 193fi. H OAMJLA BlO ■ ftrossfararnir. Aðalhlutverkin leika: LORETTA ¥OUNG og HENRY WELCOXON. ilörn innan 16 ára fá ekki aðgang. Fnndur í Kveimadeild Slysavarnafélags fslands, rniðvikudaginn 8. þ. m. kl. 8y2 síðd. í Oddfellowhús- inu, stóra salnum. Stjórnin. Stœrsta b esna i Rejfkjavik. Knattspyrnufélagið Fram hélt þrettándabrennu á Iþróttavellinum í gænkveldi, og hófst hún kl. 9. Var mjög fjölment við brenn- una og var áætlað, að þar mundi' yera alt að 4 þúsundum. Var þetta einhver stærsta brenna, sem hér hefir verið haldin. Hófst skemtunin á þvi, að lúðrasveitin „Svanur" lék á Aust- urvelli. Flyktist þangað múgur og margmenni, sem streymdi síðan suður á völl. Á -vellinum söng Iðnaðarmanna- kórinn og „Svanur" lék. Pétur Jónsson óperusöngvari var álfa- konungur, en 30 álfar dönzuöu og sungu. Var skotið flugeldum, sem drógu að sér athygli áhorf- enda. Bálið var mikið, og mun bjarminn af því hafa sést langt að. öripir brenna inni í í Kolkuósi. KOLKUÓSI, 5. jan. FO. Á iaugardagsmorgun kviknaði í fjósi í Kolkuósi og köfnuðu ánni 3 kýr, 5 svin og 20 hænsn. Eigendur voru Hartmann kaup- maður Ásgrímsson og Sigurm-on sonur hans. — Eldurinn kvikn- ^iði í moðnisli í inánd við ofn í svííiastíunni. — Frost og hreinviðri hefir verið í Skagafjarðarhéraði imdanfarið og hjarn er yfir alt. Næstuni hag- |aust er í norðaustanverðu hérað- ' iinu, og hross eru komin á gjöf. Bjöm heitinn Sigmundsson, er druknaði af öldunni í ^mannskaða- veðrinu á dögunum, yar jarðsung- iinn við fjölmenni að Hofi 30. f. m. Æsiogar gegn Lit- hauen á Póilandi. BERLÍN, 6. jan. FO. 1 Vilna í Póllandi héldu þjóð- ornissinnuðu hermannafélögin- mótmælagöngur í gærdag. Mót- mæltu þau kúgun þeirri, sem _. þau teija að eigi sér stað gagn- vart pólska minnihlutanum í Lithauen. m. Permanent-hárliðun. Höfum ,3 mismunandi tegimdir af . permanent, Wella, — Eugen, — Zotos. — Getum því gjört alla ánægðá. — Hárgreiðslustofa Lindís Halldórsson, Tjarnar- ötti 11. Sími 3846. Marlene Die- trich flýr frá Bandaríkjunum KALUNDBORG, 5. jan. FÚ. Þýzka kvikmyndaleikkonan Marlene Dietrich kveðst muni fara frá Bandaríkjunum svo fljótt sem auðið er. Ber hún því við, að lítt sé þar lifandi fyrir þungum sköttum, og svo er bæði dýrt og erfitt fyrir hana að gæta dóttur sinnar, en hún hefir fengið margar hótanir um að henni skuli rænt. Er sagt að hennar gæti sex blóðhundar dag og nótt. UÞfBHBUBIB Nýíízku biireiðar handa vegalögregl- unni f Danmörku. KALUNDBORG, 6. jan. FÚ. Vegalögreglan í Danmörku hefir nú fengið til notkunar ný- tízku bifreiðar með stórum betri útbúnaði en hún hefir áður haft. Bifreiðarnar eru búnar tækjum til þess að vega með bifreiðar, mæla ökuhraða þeirra, og hafa blásturshom af sömu gerð eins og slökkviliðsbifreiðar. Hafofirðíngsrt Eins og yður ier kunnugt um, ieru nú mjög erfiðar ástæður hjá aðstandendum þeirra, sem urðu fyrir mestum slysförum og tjóni í eldsvoðanum í Kefiavjík 30. des- ember s. 1. Mun því listi verða 1 borinn um bæinn næstu daga til samskota handa hinu bágstadda j fólki. Sömuleiðis munum við und- irritaðir góðfúslega veita gjöfurn viðtölku í þessu augnamiði. Hafnarfirði, 7. jan. 1936. Ámi Mathíesen, Ásgeir Stefáns- son, Bergur Jónsson, Emil Jóns- son, Fr. Hansen, Garðar Þor- steinsson, Guðmundur Einarsson, Jón Auðuns. fskyggilegir vaína- vextir á Frakklandi LONDON, 6. jan. FÚ. I Vatnsborð í Signu heflr hækkað um 3 fet síðast liðinn sólarhring, ! og eru menn nú hræddir um að vatnið komist í meðanjarðarjárn- ’ brautargöing í borginni. Er borg- j árstjómin nú að gera ýmsar ráð- I stafanir, sem líklegar þykja til þess að geta komið í veg fyrir tjón af völdum vatnsflóðs. Þjóðverjar smiða nýja tegund her- skipa. LONDON, 6. jan. FÚ. 1 dag tók þýzka flotamála- stjómin til notkunar í þjónustu flotans herskipið „Graf Spee". En það er hið þriðja í röðinni af hinum litlu nýtízku orustuskipum, sem Þjóðverjar eru nú teknir að smíða. Á skipinu eru sex 11-þumlunga fallbyssur, 12 byssur til varnar gegn flugvélum, átta tundur- sikeytabyssur, ein árásarflugvél og útbúnaður til þess að hleypa hienni í loft upp frá skipinu. Fjárskaðar á Suður Frakkiandi. KALUNDBORG, 6. jan. FÚ. 1 Suður-Frakklandi verða vatns- flóðin með hverjum degi ískyggi- legri. Hefir margt kvikf jár drukn- að í sumum hémðum, og ekki taldar líkur á að flóöin réni fyrst úm sinn. Landburður af siid við þýzku Norður" sjávarströndina. BERLlN, 7. jan. FÚ. í fyrsta sinni í mörg ár vaða nú þéttar síldartorfur í Helgo- landflóanum fyrir Norður- Þýzkalandi. Fiskiskip frá Hamborg veiða nú þama meiri síld en áður eru dæmi til. Sum h fa fyllt netin hvað eftir annað á sama blett- inum. Mikíl sildveiðl í Noregi. OSLÓ, 8. jan. Frá Bergen er símað, að mikil síld aflist nú fyrir sunnan Stad. Aðfaranótt sunnudags og í gær komu til Bergen 25 snurpinóta- skip með um 20.000 hektolítra af síld og auk þess 3000 hekto- lítra af reknetasíld. Síldin er aðallega flutt til Þýzkalands og Englands. Mikið af henni er fryst og er verðið 11—12 kr. hektolítrinn. (NRP.—FB.). 70 ára var í gær Guðm. Bjamason frá Stykkishólmi, nú til heimilis á Lokastíg 19. Starfsmannafélag Reykjavíkurbæjar minnist 10 ára starfsemi fé- lagsins að Hótel Borg n. k. laug- ardag. Um fyrirkomulag afmæl- ishátíðarinnar verður síðar aug- lýst hér í blaðinu. Skipafréttir: Gullfoss er í Kaupmannahöfn. Goðafoss er í Vestmamiaeyjum. Brúarfoss er í Kaupmannahöfn. Dettifoss er í Hamborg. Lagar- foss er í Kaupmannahöfn. Sel- fos er í Reykjavík. Drottningin fer frá Leith á morgun. Island er 1 Kaupmannahöfn. Esja er í Reykjavík, fer í strandferð austurum þann 10. þ. m. Súðin fór frá Hamborg kl. 5 í gær á- leiðis til Kristianssand. Bíif ært um Bröttubrekku. I gær kom bíll frá Borgamesi yfir Bröttubrekku. — Bíllinn var frá Bifreiðarstöð Borgar- ness. Bílstjóri var Halldór Magnússon. Var hann 4 tíma milli bæja og þurfti lítið að moka. Mestur var snjórinn nið- ur undir bygð að sunnan, en mjög lítill á fjallinu. Þrír far- þegar voru í bílnum frá Borgar- nesi, en níu verða úr Dölum suður. (FÚ.). Töluverðlr kuldar hafa gengið undanfarið og ísalög komin á Hvammsf jörð og Gilsfjörð. Á laugardag komu tveir menn frá Bjarnareyjum í Breiðafirði til Salthólmsvíkur og hafa þeir ekki komist heim aftur sökum íss. (FÚ.) . Félag ungra Jafnaðarmanna hieldur framhalds-aðjaifund í OddJBellow-húsinu uppi á fimtu- dagskvöld kl. 8Va. I Dá® Næturlæfcnir er í nótt Gunn- laugur Einarsson, Sóleyjaigötu 5. Sími 4697. Næturvörður er í [nótt í Lauga- vegs- -og Ingólfs-apóteki, Veðrið: Hiti í Reykjavík — 2 st. Yfirlit: Grunn lægð við norð- urströnd Islands á hreyfingu aust- ur eftir. önnur lægð um 1500 km. suðvestur af Reykjanesi. Út- lit: Hæg norðaustan átt. Úrkomu- laust. ÚTVARPIÐ: 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Hljómplötur: Létt lög. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi: Heilbrigðismál, VI: Berklaveiki, I (Sigurður Sigurðsson berklayfirlækn- ir). 20,40 Sónata fyrir fiðlu og pianó, eftir Veracini (Hallgrímur Helgason og Margrét Ei- riksdóttir). 21,05 Erindi: Endurreisn islenzku glímunnar (Helgi Hjörvar). 21,30 Hljómplötur: Danzlög (til kl. 22,30). Jóiatrésskemtun Sjómannafélagsins í gæikveldi var mjög fjölsótt. Var þar yfir 500 böm. Höfnin: Geir, Gulltoppur og Belgaum komu af veiðum í gær og fóru til Englands. Fantoft fór í gær. — Sindri fór á veiðar í gær. Kári var tekinn af Skerjafirði í gær. Skrifstofa Vetrarhjálparinnar við SSkúlagötu, gegnt Sænska frystihúsinu, tekur á móti gjöf- um til starfseminnar alla virka daga kl. 10—12 f. h. og kl. 1—6 e. m. Peningagjafir til Yetrarhjálparinnajr. Landssmiðjan 15 kr., G. Helga- sön & Melsted h. f. 200 kr., Ó- nefndur 5 kr., S. 10 kr., Bama- skólinn Bnekkustíg 19 kr. 500, Helgi Helgason, Miðey, Landeyj- um, 30 kr. Kærar Þakkir. Stefám A. Pálsson. Farþegar með Goðafoss frá Rvík til Hull og Hamborgar: öm John- son. Sigríður Einarsdóttir. Guð- björg Hjörleifsdóttir. Þór Sand- holt. Héðinn ' Valdimarsson. Guðm. Jónsson. Geir Sigurðs- son. Páll Briem. Banks. Hjörtur Fjeldsted. Guðrún Briem. Hjónaband. Síðast liðinn laugardag voru gefin saman í hjónaband af séra Garðari Þorsteinssyni imgfrú Margrét Ólafsdóttir og Torfi Þorbjömsson. Heimili þeirra er á Hofsvallagötu 20. Jólatrésskemtun Matsveina- og veitingaþjóna- félags Islands verður á Hótel Borg miðvikudaginn 8. þ. m. kl. 5. Aðgöngumiðar seldir á Hótel Borg (suðurdyr). Hjónaefni. Á gamlárskvöld opinbemðu trúlofun sína Gyða Grímsdóttir verzlunarmær, Ránargötu 12, og Stefán Jónsson á varðskipinu „Ægi“. Frá Sauðárkróki hefir hvem dag, sem veður hefir leyft verið leitað að bátn- um Nirði, er fórst í ofviðrinu 14. dez. Það er ætlan manna að hann hafi sokkið á höfninni, eða mjög nálægt henni. Á það benda meðal annars þeir hlutir, sem úr honum ráku. FÚ. Farsóttir og manndauði í Reykjavík vikuna 15.—21. dezember (í svigum tölur næstu viku á undan): Hálsbólga 94 (41). Kvefsótt 114 (113). Barnaveiki 1 (0). Iðrakvef 32 (10). Kveflungnabólga 1 (3). Skarlatssótt 1 (0). HOlaupabóla 3 (0). Kossageit 1 (0). Þrímla- sótt 0 (1). Mannslát: 0 (4). — Landlæknisskrifstofan. (FB.). Danz í Iðnó vierður amnað kvöld á eftir jóla- trésskemtun Sjómannafélagsins. I Hafnarfirði heldur O. Frenning samkomu í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 8. Állir velkomnir. Vetrarhjálpm. 1 sambandi við brennu „Fram“ á rnorgun h«efir Vetrarhjálpin fengið leyfi til að hafa samskota- kassa til styfktar starfaemi sinni. Trúlofun. Á gamlársdag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Vigdís Guð- brandsdóttir og Guðmundur Berg- mann Guðmundsson, kyndari á togaranum Rán, Hafnarfirði. nyja bio Raoða Akarliljan Ensk stórmynd samkvæmt skáldsögu með sama nafni, eftir barónsfrú Orczy. Aðalhlutverkin leika: MERLE OBERON og LESLIE HOWARD. Böm fá ekki aðgang. I Hólaskóla eru nú um 40 nemendur. 20 þeirra fóru heim í jólaleyfinu. I vetur hafa skólasveinar stundað útiíþróttir, knattspyrnu, skauta- hlaup og skíðaferðir. Skíði sín hafa þeir smíðað sjálfir ásamt fleiru. Snjólög hafa verið með mesta móti. I þessum mánuði starfar við skólann Alþýðudeild og stendur í 3 mánuði. FÚ. Til Hallgrímskirkju í Sanrbæ: Móttekin gjöf frá Sesselju Helgadóttur kr. 10,00. Bestu þakkir. — Ásm. Gestsson. Ouðmundur Viborg, gullsmiður, andaðist á heimili sínu, Suðurgötu 20, laugardag 4. janúar. Aðstandendur. Maðurinn minn og faðir okkar, Jón Guðmundsson, andaðist í dag, 6. janúar, í Landakotssþítalanum. Ragnheiður Kristófersdóttir og börn. Laugaveg 20 B. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Jóhannesar Sveinssonar. F. h. aðstandenda. Bjöm Jóhannesson. Sjómannafélag Reykjavíkur. Tilkynnin^^i^félagsmanna Samkvæmt ákvörðun félagsins aðvarast félags- menn um að lögskrást á mótorbáta fyr en samn- ingar eru komnir á. Ennfremur má enginn lögskrást á línugufubáta fyrir önnur kjör en þau, er félagið ákvað á síðastlið- inni vertíð. Rvík, 6. jan. 1936. Stjórnin. Tllkynning. Hér með tilkynnist, að mér er eftirleiðis bannað, með dóm uppkveðnum í gær, að selja mínar velþektu heimabökuðu köku hér í íbúð minni á öðrum tímum en venjulegar brauðsölubúði gera, og sel ég því hér eftir ekki þessar kökur lengur en til kl 7 á rúmhelgum dögum og kl. 1 á sunnudögum. Jafnframt eru það vinsamleg tilmæli mín, til minna mörgc kæru viðskiftavina, að þeir athugi eftirleiðis þennan lokunartím; og gæti þess að gera innkaup sín nógu tímanlega. Vænti ég þess þrátt fyri r takmörkun þessa, að ég megi áframhaldandi verð viðskiftanna aðnjótandi og mun framvegis, ekki síður en hinga til, gera mér far um að vera ávalt birg af allskonar góðum heima bökuðum kökum. Ég mun ef til vill síðar, í blaðagrein, gera nánar grein fyri málaferlum þeim, er undanfarið hafa staðið yfir út af kökusöi minni, og einelti því, sem bakarameistaramir hér í Reykjavík haf látið sér sæma að leggja mig i frá því er ég fyrst hóf kökusöl hér. Virðingarfylst GUÐMUNDA NIELSEN. Tjamargötu 3. Sími 2477. 15 Appelsínur fyrir 1 krónu. Drifandi Laugavegi 63, sími 2393.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.