Alþýðublaðið - 20.02.1936, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 20.02.1936, Blaðsíða 4
FIMTUDAGINN 20. íebr. 1936. GAMLABIO | Lifa oy elska. Efnisrík og vel leikin mynd. Aðalhlutverkin leika: Clark Gable, Joan Crawford, Otto Kruger. Aukamynd: HEIMSMEKTARINN 1 BILLARD. |Eruð pér frímúrari? Eftir Amold & Bach. Frumsýning í dag kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í dag eftir kl. 1. Sími 3191. HAGUR IÍÍKISINS. Frh. af 1. síðu. stjórnir látið það viðgangast, að gjöldin væru á fjárlögum áætl- uð miklu lægri en þau höfðu reynst og orðið á landsreikningi undanfarin ár. Hafa stjórnarand- stæðingar bygt árásir sínar á fjár- málastjóm núverandi stjórnar að miklu leyti á því, að fjárlög henn- ar væm hærri en nokkurn tíma hefði áður þekst hér á landi, en það er eins og margoft hefir ver- ið sýnt fram á, fyrst og freinst vegna þess ,að stjórnarflokkamir hafa ekki falsað fjárlögin, eins og viðgengist hefir áður. Fjármálaráðherra sýndi fram á, að gjöld ríkissjóðs árið 1935 hefðu orðið rúmlega 1 millj. kr. lægri en árið 1934 og ekki hærri en útgjöld síðustu 5 ára liafa neynst að meðaltali. Tók f jármála- ráðherra það þó fram, að bann myndi ekki hafa harmað, þótt gjöld ríkissjóðs hefðu orðið hærri en áður og enn meira fé hefði verið varið t. d. til styrktar at- vinnuvegunum. VESTMANNAEYJAR. Frh. af 1. síðu. tll félagsfundar í gærkveldi, eftir að samningamir höfðu verið undirritaðir, og var húsið troð- fult út úr dyrum. Samningarnir og einstök atriði þeirra vom ræddir, og tóku piargir þátt í umræðum. Formaður hins sálaða sjó- mannafélags kommúnista bar fram tillögu um að ógilda samn- ingana og haida deilunni áfram, en hún var feld með rúmum 200 atkvæðum gegn 7. Að umræðum loknum voru samningarnir bornir upp til at- kvæða og samþyktir með 200 at- kvæðum gegn 2. Þetta er 1 fyrsta skifti sen? .Sjómjen'. 1 Vestmannaeyjum vinna verkAU, enda hafa samtök þeirra verið alveg órjúfandi. Má segja, að innan sjómannafélagsins sé kjarninin úr sjómannastétt Vest- mannaeyja, og hafa t. d. formenn- irnir á bátunum ekki komið þarna fram, eins og viða annars staðar, sem andstæðingar háseta sinna, heldur sem öruggir stéttarbræðu'r þeirra, og margir þeirra verið fremstu mennirnir í þessu verk- falli, sem hefir staðið nú um 6 vikna tíma. Ef að vanda lætur, munu bæði íhaldsmenn og kommúnistar hrópa upp um ósigur sjómanna I deilunni, en atkvæðagreiðslan á sjómannafélagsfuindinum tekur af öll tvímæli um það hvaða af- stöðu sjómenn hafa tekið til samninganna og að þeir álíta að þeir séu sigur fyrir þá. Kommúnistar hafa, síðan þeir gáfust algerlega upp við að halda líftórunni í síinu eigin fé- lagi, lagt kapp á að smala sín- lum mönnum inn í félagið, en svo hefir brugðið við, að þessir menn hafa greitt atkvæði á móti þeim, þegar þeir voru komnir í Jötunn, eins og sést á atkvæða- gneiðslunni í gærkveldi og fyrri atkvæðagneiðslum í þessari deilu. Fjármálaráðherra skýrði einnig frá því, að skuldir ríkissjóðs hafi raunverulega ekki aukist á árinu nema um 379 þúsundir króna. Þá dvaldi hann nokkuð við stefnu ríkisstjórnarinnar um við- skiftín út á við og gjaldeyris- málin og þann mikla árangur, sem náðst hefir um þau á árinu, þar sem greiðslujöfnuðurinn út á við hefir batnað um 6 milljónir króna. 8TYTTING VINNUTlMANS. Frh. af 1. síðu. tíma til náms og þroska í frí- stundunum, og fær þar með betri aðstöðu til þess að fylgjast með á fagsviði sínu. Sérstaklega verð- ur þetta ungu verkafólki að miklu tgagni í undirbúningnum undir líf- ið. Því er oft hreyft gegn stytt- ingu vininutímans, að auknar frí- stundir mundu mestmegnis fara í slark og þvílíkt. En þetta mun víst eingöngu bygt á einstökum dæmum, og mætti óefað finna margfalt flieiri dæmi, sem sönn- uðu hið gagnstæða. En um leið verður að leggja á- herzlu á, að það ætti einmitt að vera eitt af veigameiri hlutverk- um þjóðfélagsins, að skipuleggja og koma fyrir slíkri fræðslu. Seinna atriðið, þegar vinnutíma- stytting þýðir hærri laun og þar með aukinn framleiðslukosfcnað. mundi hún áreiðanlega hafa í för með sér aukna gjörnýtingu (ra- tionaliseringu) eða mmkun ífram- leiðslu, og þar af leiðandi í sfcað þess að minka atvinnuleysið yrði þá ef til vill að auka það. Annars geta þau áhrif, sem þetta leiddi af sér, orðið svo margþætt, að erfitt væri að skýra frá þeim i stuttu máli. Þau snúa að útflutn- ingi þjóðarinnar, vörulaunum o .s. frv., en aðalatriðið er það, aö menn fyrirfram geri sér Ijóst, hver tilgangurinn er með slíkum að- gerðum. Því ef það t. d. er minkun at- vinnuleysisins, þá verður óhjá- kvæmilega að bera saman þessa kostnaðarliði og út frá slíkri rannsókn má svo draga varanleg- ar ályktanir. Það er því óhætt að egg ja til allrar varkárni með stytt- ingu vinnutímans, því mikið velt- jur hér á því, í hvaða fögum eða iðngreinum þetta ætti að ske, —- t. d. kemur landbúnaður og fiskiveiðar varla til ináLa — og eins er það mikils um vert, að varlega sé farið af stað, og þann- ig fiengin nokkur reynsla á alt viðfangsefnið. Ekkert er hættu- . legra en álíking frá landi til Lands ; í þessum efnum. Heildarspursmálið um stytt- I ingu vinnutímans stendur í nánu ! sambandi við það, hvað langt er komið niður á við nú þegar í þessum efnum. Það er því ógern- ingur að gefa alment svar við slíku viðfangsefni. Afleiðingarnar | verða gerólíkar eftir því hvort 1 um er að ræða að stytta 18 tíma vinnudag niður í fjórtán eða 8 tíma niður í 7. En ef gefa á sögulegt svar við viðfangsefniny um styttingu vinnutímans, þá er ALÞYDUBUDI 1 DM SPÁNN. Frh. af 1. síðu. Azana bjrlltnr i Mad- rid i gærbvoidi. LONDON, 20/2. (FO.) Azana tók við stjórn á Spáni í gærkveldi, og hafa nöfn ráðherra hans verið birt. .Flestir ráðberr- arnir eru þegar komnir til Mad- rid. \ Þegar það spurðist, að Azana væri búinn að taka við völdum, safnaðist rnúgur og margmenni fyrir framan innanrikisráðuneyt- ið, og hrópuðu fagnaðarópum og hyltu hinn nýja forsætisráðherra. Varð hann að lokum að koma út á svalir hússins og talá til mann- fjöldans .Var þá klukkan orðin hálf eitt. Sagði hann, að eitt fyrsta verk stjómarinnar myndi verða það að setja aftur í emb- ætti þá menn, sem reknir voru frá embætíum sínum eftir októ- ber-uppreistina 1934. I gærkveldi og nótt voru götur Madridborgar fullar af fólki, siem stöðugt hrópaði húrra fyrir nýju stjórninni og sigri vinstri flokk- ánna í kosningunum. DAGSBRUN. Frh. af 1. síðu. morgwi eda á laugwdcigiiw, því þá um kvöldið verða atkvæðin talin og úrslitin tilkynt á fundi félagsins á sunnudaginn. Greiðið atkvæði, hvort sem þið emð með eða á móti fram- kvæmdinni nú. Það em allir Dagsbrúnarmenn með því að stytta vinnudaginn, en það em skiftar skoðanir hjá þeim, hvort það muni tímabært að gera það nú eða ekki. Það ier félagsleg skylda þeirra, að gneiða atkvæði og taka þar með afstöðu til þessá stórmáls. SPELLVIRKIN. Frh. af 1. síðu. ur“ em faraldur meðal stráka hér í bænum, sem gýs upp við og við, og era þær ekki síður hættu- legar fyrir strákana sjálfa en þá, sem þeim er beitt gegn. Aldrei mun þessi faraldur hafa verið eins mikill hér í bænum og nú, og strákar aldrei unnið önnur eins spellvirki með byssunum og að þessu sinni, enda hefir lögreglan alt af afvopnað stráka, sem hún hefir séð með þessar byssur. I haust tók lögreglan t. d. 17—18 ára gamlan pilt, sem hafði skot- ið steinvölu úr „teygjubyssu“ af 30 rnetra færi á strætisvagn á ferð, og fór steinvalan gegnum eina rúðuna á vagninum, sem var þó 6 mm. þykk. Þetta eindæma spellvirki, sem framið var í nótt, er nú í rainn- sókn hjá lögreglunini, og tekst henni vonandi að ná i sökudólg- ana. Jafnaðarmannaféiag stofnað í Súganda- firði. SÚGANDAFIRÐI18. febr. F.Ú. Frá Súgandafirði er símað, að Jafnaðarmannafélagið „Sam- herjar“ hafi verið stofnað á Súgandafirði 15. þ. m. með 25 félögum. Formaður er Ólafur Frið- bertsson, ritari Trausti Frið- bertsson og gjaldkeri Þorgeir Ibsen. óhætt að fullyrða, að árangurinn heftr í heild sinni verið ágætur, — bæði fyrir vinnuna og fram- leiðsluna. Næturlæknir er í nótt Jón Norland, Skólavörðustíg 6 B. Sími 4348. Næturvörður er í jnótt í Lauga- vegs- og Ingólfs-apótddfc Veðrið: Hiti í Reykjavík — 3 stig. Yfirlit: Alldjúp, en nærri kyrrstæð lægð yfir hafinu milli Islandis og Skotlands. Otlit: All- hvass norðaustan. Bjartviðri. ÚTVARPIÐ: 19,20 Erindi: Fiskifélag Islands 25 ára (Vilhj. Þ. Gíslason). 19,45 Fréttir. 20.15 Erindi: Ferð til Suður-Amie- ríku, I (Thor Thors alþm.) 20,40 Einlieikur á píanó (Ámi Kristjánsson). 21,05 Lesin dagskrá næstu viku. 21.15 Upplestur: Úr ferðabókum Daniels Bruun (Pálmi Hann- esson rehtor). 21,30 Kveðja til Skaftfellinga, frá Skaftfiellingamóti í Reykja- vík (Nikulás Friðriksson raffræðingur). 21,35 ÚtvarpshljómSveitin. 22,00 Útvarp til Austfirðinga, frá Austfirðingamóti í Reykja- vík (ræður söngur a. s. frv.) Hljóðfæraleikur til kl. 24. F. U. J. heldur fund í kvöid lcl. 8*4 e. m. í Hótel Skjaldbreið. Félagar fjölmennið og mætið stundvís- lega. Leshringur Alþýðuskólans í Marxisma fellur niður í kvöld vegna fundahalda. Skipafréttir. Gullfoss kom til Kaupmanna- hafnar í dag. Goðafoss er í Vestmannaeyjum. Dettifoss er á leið til Vestmannaeýja frá Hull. Brúarfoss er í London. Lagar- foss er í Kaupmannahöfn. Sel- foss fór um hádegi til Keflavík- ur og þaðan fer hann til út- landa. — Esja fór frá Akur- eyri um hádegi í gær. — ísland fer kl. 8 í kvöld til Leith og Kaupmannahafnar. Drottningin fór frá Höfn í morgun kl. 10 >/2- Höfnin. Baldur kom frá Englandi í jgær- kveldi. Karlsefni kom í nótt frá Englandi. Tryggvi gamli kom í nótt frá Englandi og Geir í jmorg- un. Jarlinn með fisk í Sænska frystihúsið, sem á að senda til Ameríku. Helene Jónsson og Egild Carlsen skemtu sjúklingum á Vífils- stöðum síðast liðinn laugardag. Tagie Möller aðstoðaði. Kosning atanrikis- mðlanetndar. I gær fór fram kosning utan- ríkismálanefndar á Alþingi og voru kosnir Héðinn Valdimars- son, Stefán Jóh. Stefánsson, Jónas Jónsson, Bjarni Ásgeirs- son, Pétur Magnússon, Magnús Jónsson og Ólafur Thors. Um leið og forseti tilkynti að kosning utanríkismálanefndar ætti að fara fram, fóru Bænda- flokksmenn fram á það að f jölg- að væri í nefndinni og þeir fengju í hana einn fulltrúa. Gaf forseti fundarhlé svo að flokk- amir gætu athugað þessa mála- leitun. Að hléinu loknu var á- kveðið að kosning skyldi fara fram og jafnmargir kosnir og áður, en síðar skyldi athuga hvort fjölga bæri í nefndinni. Smygivðrar í koia- skipinu „Dania“. í fyrra dag kom hingað kola- skipið „Dania“ frá Nörre Sund- by í Danmörku. Hafði skipið kolafarm til h.f. Kol & Salt. Fór þegar fram tollskoðun í skipinu og fanst falið milli þilja í geymsluklefa í vélarrúmi skips- ins 1 flaska af brennivíni, Va flaska af líkjör, 8 pakkar með 48 þúsund blöðum af vindlingapapp- ír, 12 dusin af spilum, 120 stk. og 400 vindlingar. Eigandinn var skipverjinn Wil- helm Löding. Einnig fanst undir gólfi í hlið- arkliefa í vélarrúmi 1 kassi með 12 flöskum af ákavíti. Eigandi þess hefir ekki fundist, og ,er málið í rannsókn. Ált Heidelberg Leikur þessi, sem Karlakór Reykjavíkur er nú að sýna, er altaf leikinn fyrir troðfullu húsi Seljast miðarnir upp á svip- stundu, og leiknum er alt af tekið með miklum fögnuði áhorfenda. í .leiknum skiftast á stílþungar og formfastar senur úr hirðlíf- inu í Karlsruhe og glæsileg;r æskusöngvar stúdentanna í Hei- dielberg. Ástaræfintýri og háal- varleg dramatisk atriði, lunvafin spaugilegustu atburðum, taka huga áhorfandans föstum tökum. En hugðnæmast mun þó áhorf- andanum finnast atriðið í tungl- ljósinu á bökkum Neckar-fljóts- ins, sem glitrar í töfram tungl- skinsins, og hið sársaukafulla skilnaðaratriði elskendainna í leikslok. Leikurinn verður sýndur annað kvöld (föstudag). Miðar að þeirri sýningu verða seldir í Iðfnjó í Idíag frá kl. 4—7 og á morgun eftir kl. 1. Kylfingur, B. hefti er nýkomið út. Efni: Golfklúbbur Akureyrar. Eitt ó- gleymanlegt atvik. Frá stjórn og ritstjórn. The glorious game of golf. Olika slag af golftavlingar. Reynum að fara rétt að. Golfregl- ur. Nyrzti golfklúbbur jarðarinnar. NotaO frinerkl keypt. Notuð íslenzk frímerki, sér- staklega úrklyppur af bréfum, óskast keypt í stórum og smá- um kaupum. Sendið tilboð til Gunnar Christensen, Köbenhavn S. Trægaarden 10. (Sel frímerki allra landa). JSTÝJA Blð H Pabbi obbar er piparsveiiL Bráðskemtileg sænsk tal- og tón-skemtimynd. Aðalhlutverkin leika: Birgith Tengrot, Olof Winnerstrand, Allan Bohlin og fegurðardrotning Evrópu, danska leikkonan ÁSA CLAUSEN. Karlakór Reykjavíkur. Alt Heidelbem eftir Wilh. Meyer-Förster (5 þættir). verður leikið 1 Iðnó á morg- un kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í dag kl. 4—7 og á morgun eftir kl. 1. Pantanir sækist fyrir kl. 3 sýningardaginn. Aðgöngumiðasími: 3191. 1 Félag járniðnaðarmanna Árshátíð f élagsins verðu haldin laug- ardag 22. febr. kl. 9 í Iðnó. Stutt en mjög fjölbreitt Prógram. Danz. — Ljósabreytingar. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 í Iðnó á hátíðardag- inn. Skemtinefndin. 1» 0« T* Þingstúka Reykjavíkur heldur fund annað kvöld -— föstudag — kl. 8 y2. Nýmæli á dagskrá. Fjölmennið. Nýkomin blá ulsterefni. Hef einnig frakka og vetrarkápur. — Guðmundur Guðmundsson, dömuklæðskeri, Bankastræti 7, 2 hæð. AtMagreiðslnnni um styttingu vínnndagsins verður hætt á laugardagskvöld. Skrifstofa félagsins, verður opin frá kl. 10— 12 f. m. og 1—7 e. m. á morgun, en á laug- ardag til kl. 9 e. m. Allir fullgildir félagsmenn eiga atkvæðis- rétt, og ber þeim skylda til að nota hann. STJÓRNIN,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.