Alþýðublaðið - 26.02.1936, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 26.02.1936, Blaðsíða 4
MIÐVtKUDAQ » .ÍEBH. 1336 GAMLA BIÓ Sólskins' barnið. 1 Gullfalleg og hrífandi mynd, þar sem aðalhlut- verkið leikur undrabamið SHIKLEY TEMPLE ennfremur CARY COOPEK CAROLE LOMBARD Sýnd í dag (öskudag) fyrir börn kl. 6 og full- orðna kl. 9. M&ériFíaifirafi? Eftir Arnold & Bach. Sýning á morgun kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag kl. 4—7 og á morgun eftir kl. í. Sími 3191. Ódýrar vörnr. Matskeiðar frá 0,20 Matgaflar frá 0,20 Teskeiðar frá 0,10 Vatnsglös frá 0,30 Vínglös frá 0,50 Desertdiskar frá 0,35 Asjettur, gler, frá 0,25 Barnakönnur frá 0,50 Sjálfblekungasett á 1,50 Litunarkassar, barna 0,35 Höfuðkambar, fílabein 1,25 Höfuðkambar, svartir 0,37> Hárgreiður frá 0,50 Handsápur frá 0,40 K. Einarsson & Bjiirnsson^ Bankastræti 11.' I. O. G. T. Sjónleikur er meðal skemtiat- riða á öskudagsfagnaði st. Einingin í kvöld. Hin árlega Barnaskemtun glímufélagsins Ármann verð- ur haldin í Iðnó á Öskudaginn kl. 4 (í dag). Margt verður til skemtunar að vanda. Helztu skemtiatriðin eru þessi: Fim- leikasýning, 16 drengir, einsöng- ur, upplestur, danzsýning, börn, gamanvísur, glímusýning, hljómsveit leíkur, gamanleikur, aflraunasýningar og að lokum danz. Þetta er allra fjölbreytt- asta barnaskemtun ársins og ef að vanda lætur verður hún mjög fjölsótt. Skemtunin er fyrst og fremst fyrir börn úr félaginu eit önnur börn fá aðgang meðan húsrúm leyfir. Nánar auglýst síðar. Höf nin: Enskur togari, bilaður, kom í gærkveldi að fá viðgerð. Súðin var flutt inn á Kleppsvík í gær. Tíðarfar í Vestur-Húnavatnssýslu hefir verið kalt og stormasamt. Snjór er kominn aftur og sauðfé er litið bieitt. KARFAVEIÐAR. Frh. af 1. síðu. Hvaða verð hafið þið hugsað ykfcur að gefa fyrir fcarfann? „Við höfum hugsað okkur að gefa 4 krónur fyiir málið, en i haust við fyrstu tilraun með þenn- i an atvinnurekstur var gefið fyrir málið kr. 5,40, en við sáum brátt að svo hátt var ekki hægt að gefa, svo að lengst af var gefið kr. 4,50 og 5,00 fyrir málið á sl.. hausti. — Ég vil taka það fram, að þó að þessi tilraun hafi verið gerð sl. haust, þá er enn ekki fengin fullkomin reynsla fyrir þessum atvinnuvegi. Verð- um við t. d. að gera ráð fyrir, að karfinn sé magrari að vorinu og leins mikið lýsi fáist ekki úr hon- tim.“ Verða Siglufjarðarverksmiðj- urnar ekki einnig látnar byrja karfavinslu í vor? „Verksmiðjustjórnin hefir sam- þykt, að hafa nýju verksmiðjuna á Siglufirði tilbúna til þess að geta byrjað á karfavinslu um miðjan apríl eða í máíbyrjun, ef tíð og allar aðstæður leyfa og vlnslan á Sólbakka gefst vel. — Vegna þess, að karfi fæst ekki neitt að ráði nema á Halamiðum, en þaðan er allmiklu lengra til Siglufjarðar en til Sólbakka, verð- um við að gefa skipunum, sem leggja uppp á Siglufirði, hærra verð fyrir aflann. En ég býst við að fiengnir verði í vor tveir tog- arar til að leita karfamiða, bæði fyxír Norður- og Austur-landi. Það mun verða unnið að þvi öllum árum, að hægt verði að láta verksmiðjuna á Siglufirði taka til starfa svo fljótt sem auð- ið er, eða um mánaðamótin apríl og maí, og ef það tekst, þá þarf 5—6 togara til að veiða fyrir hana., og fá 2—300 manns at- vtnnu við það auk þeirra, sem á skipun'um verða. Ef þetta tekst, byrja þessar tvær verksmiðjur að starfa 2—3 mánuðum fyr en venjulegt hefir verið undanfarin ár.“ Geturðu nokkuð sagt mér um söluhorfur á karfaafurðunum ? „Verð á lýsi má heita ágætt sem stendur, og er það talið stafa af striðsundirbúningi pjóðanna, en ekki er full vissa enn fengin fjrrir því, að meira verð fáist fyr- ir skrokklýsið úr karfanum held- ur en síldarlýsið. Aftur á móti má telj-a fullvíst, að meira verð fá- ilst fyrir karfamjöl heldur en síld- arrnjöl, t. d. erum við búnir að * 1 selja til Belgíu 40 tonn af karfa- mjöli fyrirfram við allgóðu verði og búast má við að við getum unnið markað að allverulegu leyti í Belgíu fyrir þessa vöru. Af þvi karfamjöii, sem við unnum á sl. hausti, seldum við allmikið til Englands, og býst ég við að við getum fengið þar allgóðan mark- að, því að mjölið líkar ágætlega," Starfsemi og umsetning ríkis- verksmiðjanna hlýtur að aukast stórkostlega við það, að byrj,a svona miklu fyr en venjulega? j: „Já, það er áreiðanlegt, því að reksturstími a. m. k. þessara ; tveggja verksmiðja verður alt að því fjómm mánuðum lengri held- ur en veanja hefir verið og ef vel lánast og afli verður góður, þá eiga að fást í vor og í haust karfaafurðir fyrir 2—3 milljónir króna. Umsetning verksmiðjanna ; verður þvi áxeiðanlega meiri en I síðastliðið sumar. Á síðastliðnu J sumri fengum við ekki til vinslu ! nema helming af því síldannagni, sem við ;gerðu'.m ráð fyrir að fá. en þó keyptum við síld og karfa ! fyrir rúma 1 milljón kr. Útborg- uð vinnulaun í landi voru taejp 400 þús. fcr. En seldar afurðir verksmiðiuni lar á sl. ári .voru fyrir rúmar ,\2 milljónir króna.“ A1ÞÍ91IBLADID I DA6 TOGARI TEKINN. Frh. af 1. síðu. setja út bauju til að mæla út þann stað, sem varðskipið kom að togaranum á. Maður stórslasast. Var maður þá sendur upp í reiðann á „Leioester City“ til að leysa baujuna, sem var bundin þar. En piaðurinn féll niður á þilfarið og stórslasaðist. Tveir varðmenn voru aendir um borð í togararin, og var honum svo siglt til Keflavikur, en Ægir | snéri aftur út til að mæla ná- kvæmlega út staðinn, sem togar- inn var á. Þiegar togarinn kom til Kefla- víkur, voru þar fyrir 4 lögreglu- þjónar héðan. Slasaði maðurinn var skoðaður pf lækni i Keflavík, og taldi hann hann ekki færan til að fara í bíl hingað, svo að togarinn sigldi með hann hingað, og var hann er hingað kom fluttur í sjúkrahús. Mál togarans er í rannsókn. Hænsnabú brennur Hœnsnin brenna inni. I nótt um kl .12,15 var hringt á slökkvistöðina og henni tilkynt- ur eldsvoði fyrir ofan Árbæ. Hafði maður farið þar um veg- inn og fuudið sviðalykt. Var hann að flytja lækni og gat ekki til- kynt þetta fyr en hann hafði skil- að af sér lækninum. Sendi slökkviliðið þegar tvo menn á vettvang. Höfðu [>eir handslökkvitæki með sér, því vatnsskortur er mikill þar efra. Samtímis fóru Iögreglumenn á , staðinn. Þegar slökkviliðið kom á brunastaðinn, var hænsuáhús að bnenna að Ásheimum við Selás. Stóð hænsnahúsið í björtu báli, þegar komiö var að, og vaT engu hægt að bjarga. Brunnu þar inni allmörg hænsni. Eigandi hænsna- búsins heitir Sveinn Sveinsson. firjötkastariBB fnnð- inn. Lögneglan telur sig nú hafa fundið mann þann, er kastaði steimnum inn um glugga á íbúð Eyjólfs Jóhannasionar rakara, Sól- vallagötu 20, síðastliðið laugar- dagskvöld kl. 10,25. Maðurinn er til beimilis fyrir utan bæ og hafði brugðið sér til bæjarins á laugardaginn. Á 9. tímanum um kvöldið hafði hann farið inn á Barinn og var þá allmjög drukkinn. Lenti hann þar í slagsmálurn og fékk mikið höfuðhögg. Seg- ist hann ekkert muna eftir sér frá því hann fékk höggið og þar I til um kl. 1 um nóttina, og var hann þá kominn út fyrir bæ og var á leið heim til sín. Frá Rauða Krossi íslands. I dag, öskudag, verður eins og venjulega, merkjasala til á- góða fyrir starfsemi Rauða Krossins. Félagið er að byrja á bygging sjúkraskýlis og bað- húss fyrir sjómenn í Sandgerði. Ennfremur er Rauði Krossinn búinn að panta nýja sjúkrabif- reið, til viðbótar þeirri, sem fyr- ir er í Reykjavík. Rauði Kross- inn heitir því á almenning að kaupa hin vinsælu merki. Næturlæknir eer í nótt Valtýr Albertsson, Túngötu 3, sími 3251. Næturvörður er í Reykjavikur- og Iðunnar-apóteki. ÚTVARPIÐ: 19,20 Þingfréttir. Hljómplötur: Létt lög. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi: Efni og orka, III (Björn Jónsson veðurfr.). 20,40 Hljómsvteit útvarpsins (dr. Mixa): Scarlatti: Gonœrto Pnesto, f-moll. 20.55 Hljómplötur: Sönglög. 21,05 Erindi: Bandaríkjaför (Ás- geir Ásgeirsson alþingism.). 21,30 Hljómsveit útvarpsins (dr. Mixa): Brahms: Píanó-kvar- tett, Op. 26. 21.56 Hljómplötur: Nútíma-tónlist (Hindemith) (til kl. 22,30).. Jón Leifs í Svípjóð. KAUPM.HÖFN 24. febr. F.Ú. Jón Leifs er komin til Sví- þjóðar, til þess að taka þátt í tónlistarviku, sem nú stendur yfir í Stokkhólmi. Hafa sænsk blöð birt viðtöl við hann. Jón Leifs segir t. d. í Dagens Nyheter, að hann hafi í hyggju, að koma á tónlistar- hátíð í Reykjavík í júnímánuði ár hvert. Dönsk blöð minnast Sæmundar Bjarn- héðinssonar. KAUPM.HÖFN 24. febr. F.Ú. Dönsku blöðin, Berlingske Tidende og Aftenposten, flytja bæði minningargreinar um prófessor Sæmund Bjarnhéðins- son. Sænskur skíðakenn- ari til ísafjarðar. KAUPM.HÖFN 24. febr. F.Ú. Sænski skíðakennarinn, Tufves- son, er 1 þann veginn að leggja af stað til Islands, til þess að gerast, um eins mánaðar tíma, kennari skíðafélagsins á Isa- firði. í viðtali við Dagens Nyheter segir Tufvesson, að hann hlakki mjög til að fara til íslands, þar sem hann hafi ávalt haft mik- inn áhuga á íslandsmálum, og hafi aflað sér ýmsra upplýsinga um land og þjóð hjá Venner- ström ráðherra. Skipafréttir: Gullfoss ©r í Kaupmannahöfn. Goöafoss er á leið til Hamborg- ar frá Hull. Dettifoss fer vestur og norður annað kvöld. Brúarfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Leith. Lagarfoss var væntanleg- ur til Leith í dag, Selfoss er á lieið til útlanda frá Keflavík. Drottni'ngin fór héðan í gærkveldi kl. .6. Island er væntanlegt til Hafnar þann 28. Þvottakvennafélagið Freyja heldur fund í K.-R.-húsinu uppi fimtudaginn 27. þ. m„ og hefst kl. 9 síðdegis. Auk þess sem áð- ur lieflir verið auglýst, verður rætt um afmælishátíð félagsins. sem haldin verður í K.-R.-húsinu næstkomandi sunnudag. V. K. F. Framsókn heldiur fund í kvöld í .K.-R.- húsinu kl. 8V2. Skorað er á allar félagskonur að fjölmenwa. Vélbátnr sekbur i nött Maiðiir drukkn* ar. I símtali, sem fréttaritari Alþýðublaðsins átti við blaðið kl. 2þ£ í dag, skýrði hann frá því, að m.b. Eggert Ólafsson frá Hnífsdal liefði í nótt sokkið á Stapavík. M.b. Ásbjörn frá ísafirði bjargaði skipshöfninni, nema einum manni, Guðmundi Sig- urðssyni frá Hnífsdal, sem drukknaði. Öskudagsfagnaður stúkUnnar Eiiningin er í kvöld. Meðal skemtíatriða verður sjón- leikur. 55 ára jer í dag frú Hansína Hamdótt- if, Öldugötu 61. Nýja stúdentablaðið, gefið út af „Félagi róttækra Háskólastúdenta", er nýkomið út. Hefst það á grein eftir Eirík Magnússon kennara, og heitir greinin Alþýðuæska og fasismi. Þá ritar Þorvaldur Þórarinsson jum réttvísina í þriðja ríkinu, Mis- oellany, kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum o. m. fl. Skýrsla um Gagnfræðaskólann í Flensborg fyrir skólaárið 1934 —1935 er nýkomin út. Auk hinnar venjulegu skólaskýrslu flytur heftið grein um síra Þor- vald Jakobsson, sem var kenn- ari skólans frá 1921 og fram að síðastliðnu hausti. Bazar heldur kirkjunefnd dómkirkjusafnaðarins 6. marz næstkomandi í húsi K. F. U. M. Konur sem góðfúslega vildu gefa muni til baz- arsins eru beðnar að koma þeim til undirritaðra í síðasta lagi þann 4. n. m. Frú Bentína Hallgrímsson, Skálholtsstíg 2. Frú Áslaugar Ágústsdóttur, Lækjargötu 12. Frú Emelíu Sighvatsdóttur, Bergstaðastræti 56. Frú Júlíönnu Guðmundsdóttur, Miðstræti 10. Frú Steinunnar Pétursdóttur, Ránargötu 29. JafnaOarmannafél. í Hafnarfirði heldur fund í bæjarþingssalnum annað kvöld (fimtudag) kl. S]A. Dagskrá: Böðvar Grímsson: Alþýðuhúsið. Guðjón Guðjónsson: Ríkisútgáfa skólabóka. Stjórnin. Sjúkrasamlag Reykjavikur. Aukafundur verður haldinn í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur sunnudaginn 1. marz n. k. kl. 8 síðd. í Templarahúsinu. Dagskrá: 1. Skýrsla um fjárhag og starfsemi samlagsins. 2. Tillaga um aukagjald. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir í skrifstofu sam- lagsins og við innganginn, gegn sýningu gjaldabókar. Reykjavík 25. febrúar 1936. Stjórnin. Falltrúaráðsfnndur verður haldinn í baðstofu iðnaðarmanna miðvikudaginn 26. febr. kl. 8 Ú2 eftir hádegi. Dagskrá: 1. Nefndarkosning. 2. Reikningar. 3. Þingmál. Stjórnin. nYja bIö HIH Litli Ofurstinn. Amerísk tal- og tónmynd frá FOX-félaginu. Aðalhlutverkið leikur eftir- lætisgoð allra kvikmynda- vina, undrabamið: SHIRLEY TEMPLE ásamt Lionel Barrymore, Evelyn Venable o. fl. Aukamynd: Talmyndafréttir. Sýnd í kvöld kl. 7 og 9. Bamasýning kl. 7. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4. Skíðafélagið á Siglufirði hefir haldið aðalfund. Kosnir voru í stjórn: Vilhjálmur Hjart- ar formaður. Sveinn Hjartar gjaldkeri, Sigurður Gunnlaugs- son ritari og meðstjórnendur: Bjöm Jónsson íþróttakennari og Gunnlaugur Gottskálksson. Mikill áhugi er fyrir skíðaíþrótt- um. Félagið hefir á árinu reist handa sér myndarlegan skíða- skála á Saurbæjarási. Skálinn er nefndur Skíðafell. Skátar hafa einnig gert sér skála á sömu slóðum. (FÚ.). Á Hvammstanga hafa orðið 5 sýkingar af barna- vteiki, ten ekki hefir veikin borist Út í sviesitina. (FO.) 10, 15 eða 20 stk. Appelsínur fyrir 1 krónu. Drifandi Laugavegi 63, sími 2393.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.