Helgarpósturinn - 18.01.1980, Page 6

Helgarpósturinn - 18.01.1980, Page 6
Föstudagur 18. janúar 1980. hnlrjrirpn^tl irinn „Lygavefurinn „Baldur Möller svaraöi þvi til aö ekki væri unnt að leyfa mér aö fá nafnbreytingu. Sagöi hann aö almenningur gæti þá haldiö aö yfirvöld væru aö leyfa mér aö fara i felur fyrir fólki.” þvi i nóvembermánuði 1977, er ég haföi setið i gæsluvarðhaldi i nokkra mánuði, aö ég hafði sett i mig kjark og þrek til að segja sannleikann og draga þannig allt þaö bull sem ég hafði áður sagt, til baka. Karl Schtftz var þá með málið og byrsti sig þegar ég til- kynnti þetta. Hann sagði eitthvað á þá leiö, að þeir væru engin börn, sem væri hægt að hringla með fram og til baka. Ég svaraði og sagði, að ég væri orðin þreytt á þessari endalausu lygi og vildi fara að segja satt. Svona gekk þetta fram og til baka i þessari yfirheyrslu og hvorki gekk né rak. Viðbrögð hans þykja mér i dag mjög skiljanleg, þegar ég skoða þá aðstöðu sem hann var i gagnvart okkur sakborningum, sem sifellt lugum úr og i.” Segir Erla siðan frá þvi að Karl Schiitz, túlkur hans og rann- sóknarlögreglumaður sem hefði verið viöstaddur fara að tala saman um það hvar þeir ættu að fá sér að borða kvöldmat. Þeir heföu rætt nokkuð um þetta, en Schíitz siðan spurt Erlu hvort hún væri ekki svöng. ,,Ég svaraði Framhald af bls. 3 honum játandi, enda hafði ég þá ekki borðað um nokkurra daga skeið. Bæði fannst mér maturinn i fangelsinu á Skólavörðustig vondur, auk þess sem ég var i þannig andlegu ásigkomulagi stundum, að illa gekk að koma matnum niður. Oft kúgaðist ég ef ég reyndi að snerta matinn,” seg- ir Erla og heldur siðan áfram frá- sögninni af Karli Schiitz og henni i yfirheyrsluherberginu á Skóla- vörðustignum i nóvember 1977: „Karl spuröi þá hvort ég vildi ekki eta með þeim almennilegan mat. Jánkaði ég þvi. Við fðrum þá út og var fanga- vörðunum sagt að þeir ætluðu með mig niður i Borgartún til frekari yfirheyrslu. Hins vegar ókum við niður á Ask og þar borð- aði ég 250 grömm af nautakjöti, auk alls meölætis. Ég held ég hafi aldrei borðað jafn mikið á ævi minni, enda varð ég illa lasin af þessu áti.” Erla segir að hún hafi horft mikið i kringum sig og reynt að þekkja einhvern á Aski. ,,Ég var búin að vera i einangrun i gæslu- varðhaldinu og ekki séð manns- sálu nema rannsóknarlögréglu- menn og fangaverði og fannst þvi mikið til þess koma að sjá fólk.” Eftir þennan málsverð var Erlu ekið i fangelsið aftur. Daginn eftir voru siðan yfirheyrslur á nýjan leik. „Ég segi þá það sama og daginn áður, að öll frásögn min hafi verið ósönn. Þyngist þá nokkuð brúnin á Karli SchUtz og i framhaldi af þessu fékk ég það á tilfinninguna i samskiptum min- um við þá þarna, að ég væri sek um vanþakklæti við góða menn, sem legðu ýmislegt á sig ein- göngu fyrir mig, eins og að bjóða mér út að borða o.s.frv. Ég hélt mér þó fast i sannleik- ann og kvaðst ekki vilja lengur halda áfram að ljúga. Ég stóðst þennan þrýsting lögreglunnar þann daginn, en gafst siðan upp og fór i sama farið og fyrr — hélt áfram að ljúga um Keflavikur- ferðina, likflutninga og fleira.” //Gettu-þrisvar-leikur" Erla nefnir fleiri dæmi frá yfir- heyrslunum. Hún segist hafa fundið inn á það, að eftir þvi sem hún var samvinnuþýðari og gat skáldað hluti sem féllu rannsókn- armönnum vel i geð þeim mun mildari og geðugri urðu þeir: „Þessar yfirheyrslur voru stund- um eins og ágiskunarleikur. Gettu-þrisvar-leikur. Þannig var það t.d. um bensinbrúsann, sem ég sagði að heföi verið notaður til að kveikja i liki Geirfinns. Yfir- heyrslan um það atriði voru eitt- hvað á þessa leið: Ég var spurð um stærð brúsans. Ég svaraði, að hann hefði verið svona tveggja litra. Þá urðu rannsóknarlög- reglumennirnir einkennilegir á svipinn og sögðu. „Heldurðu að hann hafi ekki verið stærri? Hinir segja að hann hafi verið stærri.” Ég jánkaði þvi eitthvað og sagði að, jú, llklega hefði hann nú verið stærri. Þá spyrja þeir hvort þetta hafi liklega ekki verið 5 litra ben- sinbrúsi. Þá svaraði ég strax aö mjög liklega hefði þetta verið 5 litra bensinbrúsi. Þannig var stundum velt fram og til baka ýmsum smáatriðum málsins og lögreglan reyndi að fá eina sam- eiginlega sögu allra sakborn- inga.” Erla kemur inn á það, þegar hún fór með rannsóknarlögreglu- mönnum til að leita að möguleg- um stað þar sem liki Geirfinns átti að hafa verið komið fyrir. Hún segist hafa farið margar ferðir til að benda á staðinn. „En auövitað gat ég ekki bent á neinn staö, þar sem öll min saga var uppspuni. Ég þvældist um Rauð- hólana og nálægt fjörunni i Álfta- nesi og reyndi ásamt rannsóknar- lögreglumönnum, að finna eitt- hvað. Ég vissi auövitað að við fyndum engar likamsleifar, en var samt að vona að viö fyndum eitthvað, sem gæfi sögu minni gildi. Einu sinni fann ég t.d. bein á Alfranesinu sem var sent i rannsókn. Það bein reyndist vera af kind, að mig minnir. Af skilj- anlegum ástæðum var lögreglan orðin þreytt og önug á þessum til- gangslausu ferðum.” //Fjölmennar samprófan- ir" 1 samtali okkar, lýsir Erla þvi hvernig lögreglan reyndi að sam- prófa framburð sakborninga, þar sem misræmis gætti. Hún lýsir þvi t.d. þegar 7-8 rannsóknaraðil- ar voru inni I yfirheyrsluherberg- inu, auk hennar og Kristjáns Við- ars. Siðan hafi Sævar verið leidd- ur inn og settur niöur á stól á miðju gólfi. Hinir hafi allir setið I hring um hann. Segir Erla, að þessi samprófun hafi öll gengiö út á það aö hún og Kristján Viðar hafi átt að bera sakir á Sævar og fá hann til andsvara. Bætir Erla þvi við, að það hafi einmitt verið við þessa samprófun, sem Sævar hafi verið sleginn kinnhesti eins og áður hefur komið fram i blöð- um. „Oftar voru samprófanir reyndar og þá leiddir saman tveir eða fleiri hinna grunuðu og þeir látnir rekja sögur sinar og sam- hæfa þær ef unnt væri. Þetta voru óþægilegar samkundur,” segir Erla Bolladóttir. — Hvers vegna játaðir þú að hafa myrt Geirfinn með riffli, eftir margra mánaða yfirheyrsl- ur? „Það er erfitt að svara þvi. Þaö var I yfirheyrslu i mai 1976 aö þeir segja viö mig, að nú veröi að fara finna eitthvaö ákveöið út úr þessu máli. Þeir spyrja mig hvort ég haldi að ég hafi mögulega átt beinan þátt i þvi sem gerðist i fjörunni þegar átökin áttu sér stað, og það gæti verið skýringin á tiöu minnisleysi minu. Ég svar- aði þvi, aö mig minnti að ein- hverju hafi verið komið i hendur minar og að ég hafi togað i eitt- hvaö. Þeir spyrja þá hvort þetta eitthvaö gæti mögulega hafa ver- iö riffill. Ég sagði það mögulegt. Þannig varð nú þessi „játning” til, sem leiddi til þess að ég var sett i 8 mánaða gæsluvarðhald. Þegar þetta gerðist var sektar- kenndin mjög ofarlega i mér og ég hafði hugleitt þann möguleika að taka aukna sök á mig i þessari skröksögu ailri. Ég uppliföi þarna eitthvert skáldað drama. Þessá játningu tók ég svo til baka siðar og varð þetta þá ekki meira mál. Þetta er eitt dæmið úr þessari miklu lygasögu minni i Geirfinns- málinu.” Fór á milli 70 vinnuveit- enda Eins og áður kom fram, var Erla leyst úr gæsluvarðhaldi rétt fyrir árslok 1977 Lif hennar hefur ekki veriö dans á rósum siðan. Hún gifti sig ungum pilti fáum mánuðum eftir að hún var leyst úr haldi, en það hjónaband gekk ekki og skildu þau eftir 1 1/2 árs sambúð. „Ég var nú ekki auðveld i sambúð. Atti við þunglyndi að striða og veittist ekki auðvelt að umgangast fólk. Ég vann hjá Bæjarútgerðinni nokkurn tima og þar skiptist starfsfólkið algerlega i tvö horn — þá sem voru mér vin- samlegir og svo aftur þá sem sýndu mér beinan og óbeinan fjandskap. 1 dag skil ég það fólk, sem gat ekki tekið mér eins og hverri annarri manneskju. Það hefur fengið ákveðna mynd af mér og minu háttarlagi i gegnum fjölmiðla og dæmir út frá þvi. Hins vegar hlýtur það ávallt að vera réttasta leiðin, að kynnast persónu og forma siðan á henni skoðun sina.” En það hefur ekki gengið átakalaust fyrir Erlu að fá starf á hinum almenna vinnumarkaði. Hún segir frá þvi, að hún hafi gengið á milli rúmlega 70 at- vinnurekenda ileit að vinnu. Hún greip til þess ráðs að ,feðra sig með millinafni föður sins i þessari atvinnuleit. Undir þvi nafni var hún oftsinnis búin að fá ráðningu, en þá greindi hún frá þvi að hún væri einnig Bolladóttir. Kom þá annað hljóð i strokkinn hjá vinnu- veitendum. „Ég sagði þeim um leið og sagði mitt venjulega nafn, að ég skildi vel, ef þeir sæu sér ekki fært að taka Erlu Bolladóttur i vinnu. Ég aftur á móti lofaði að gera mitt besta. Sumir svöruðu strax og sögðust ekki geta ráðið mig fyrst svona væri i pottinn bú- ið, en flestir sögðust ætla að ihuga málið og tala við mig siðar. Aldrei heyrði ég siðan frá þeim.” En um siðir tókst Erlu að fá starf hjá bókhaldsfyrirtæki hér i bæ og starfaði þar i 13 mánuði. Upp á síðkastið hefur hún unnið heima fyrir að prjónaskap eins og i upphafi var getið. //Ætlaöi að skipta um nafn" „Þetta hefur veriö erfitt nafn að bera eftir þessa atburði alla. Ég hugleiddi þann möguleika að fá nafni minu breytt og hringdi niður á Hagstofu og spurði um möguleikana á sliku. Sá er ég tal- aði við kvað engin vandkvæði á þvi. Fór ég þá niður eftir og talaði við þá á Hagstofunni. Svörin urðu þá önnur en i simanum fyrr, þeg- ar i ljós kom hver það var sem vildi breyta nafni sinu. Var mér um siöir sagt að það væri skipan frá Baldri Möller i dómsmála- ráðuneytinu að mér væri ekki heimilt að skipta um nafn.” „Ég fór rakleiðis niður i dóms- málaráðuneyti og talaði við Bald- ur. Hann svaraði þvi til, að ekki Lukku- dagar Happdrættisalmanak þar sem dregið er um vinning daglega ■o r-- m - va3 CD 1! :0 0 E 0 'CD c0 v O) O C II cö "öj C CO — c g Lu > r \ KNATTSPYRNUFÉLAGID VÍKINGUR REYKJAVÍK KR. 2.500.- 366 vinningar Happdrættisalmanakið kostar aðeins 2.500 kr. Meöal vinningaer: FORD FIESTA BIFREIÐ REIÐHJÓL ALMENNA BÓKAFÉLAGINU SHARP MYNDSEGULBAND SKIL VERKFÆRASETT PHILIPS VEKJARAKLUKKUR DECCA LITSJÓNVARP KODAK MYNDAVÉLAR M/ÚTVARPI SANYO LITSJÓNVARP MOULINETTE KVARNIR BRAUN HÁRLIÐUNARSETT UTANLANDSFERÐIR Á VEGUM SHARP VASATÖLVUR O.FL. SAMVINNUFERÐA RITSÖFN FRÁ C • ÚTSÖLUSTAÐIR: Biðskýlið v. Bústaðaveg Bókabúöin Veda, Kópavogi G.T. Búðin, Síðumúla 17 Sportborg, Kópavogi Lúllabúð, Reykjavík Versl. Þróttur, Reykjavík Verls. Skalli, Hraunbæ Sportval, Reykjavík Verls. Guðm. Albertssonar, Lang Sportvöruversl. Ingólts Öskarssonar holtsv. Söluskálinn Arnarbergi, Seltossi Versl. Geysir, Aðalstræti Blómabúðin Fjóla, Garðabæ Sunnukjör, Reykjavik.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.