Helgarpósturinn - 18.01.1980, Side 23

Helgarpósturinn - 18.01.1980, Side 23
23 halrjarpri^tl irinn Föstudagur 18. janúar 1980 Nú stendur yfir siðasta lota i umfangsmesta sakamáli sem komiö hefur upp á Islandi — á seinni áratugum aö minnstakosti. Hæstiréttur hefur til meöferöar hin svonefndu Guömundar- og Geirfinnsmál og þarf aö fara i gegnum þúsundir siöna af máls- skjölum frá undirrétti. Og i undir- rétti var þetta mál einmitt sögu- legt aö þvi leyti aö hann dæmdi i fyrsta sinn eftir aö dauöarefsing var numin úr gildi, árið 1928, sak- borningi ævilangtfangetsi. Slikan dóm hlutu tveir hinna ákærðu i þessum málum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem viö höfum aflaö okkur þýðir þaö ekkert annað en ævilangt fangelsi, sem ekkert getur leyst menn undan annaö en dauöinn. Um möguleika á náðun er ekkert hægt aö segja þar sem ekkert fordæmi er til á íslandi fyrir slikum dómum. Þessi mál eru ekki bara um- frrá réttarhölddunum i Guðmundar og Geirfinnsmálum I Hæstarétti I gær. HVAÐ GERIR HÆSTIRÉTTUR? fangsmikil, þaueruaöýmsu leyti sérkennileg og ólik öörum glæpa- málum sem hafa komið upp á siö- ustu áratugum. Bæði málin byrj- uðu með mannshvarfi, árið 1974, annað átti sér stað i janúar, hitt i nóv. Siöan voru þau óleyst þar til i desember 1975. Við yfirheyrslu á fjársvikamáli veitti annar sak- borninga i þvi máli, Erla Bolla- dóttir, upplýsingar um Guð- mundarmáliö, sem leiddi til þess að nokkrir menn voru handteknir. Seinna gaf Erla upplýsingar sem bentu til þess, aö einn þeirra væri lika viðriöinn Geirfinnsmáliö. Þá rak hver atburðurinn annan. Sakborningar geröu ýmist aö játa á sig þessa tvo verknaöi eöa draga játningar sínar til baka. Sjálf flæktist Erla meir og meir i málið og játaði að hafa sjálf orðið Geirfinni Einarssyni að bana með riffli, i dráttarbraut suður i Keflavik, Þ'á játningu dró hún reyndar litlu siðar til baka. Fjölmiðlar fylgdust náiö meö framvindu rannsóknar málsins, sem er ekki að undra, þegar þess ergætt aö það tók sifellt á sig nýj- ar myndir. Fljótlega var málið oröið svo flókið, að erfitt var að henda reiður á þvi. En „almanna- rómur” bætti nokkuð þar um og kviksögur um það, sem „raun- verulega gerðist” fengu byr undir báða vængi. En niðurstaða alls almennings held ég hafi verið sú, aö skýringar rannsóknaraðila á atburðarásinni væru allt aðrar en þær sem sakborningar ýmist staðhæfðu eða neituðu. Málið var of laust i reipunum og of margir endar þess lausir til þess að menn legðu trúnað á þá skýringu, sem varð niðurstaðan á yfirheyrslum yfir sakborningunum.Menn settu það ekki sist fyrir sig að hvorugt likið hafði fundist þrátt fyrir itrekaða leit, samkvæmt ábend- ingum sakborninganna. Þá kom að þvi að hinni islensku réttvisi barst sú hjálp sem um munaði. Þýskur rannsóknarlög- reglumaður á eftirlaunum, Karl Schutz, var fenginn til landsins og leiddi rannsóknina eftir það. Eftir að hafa unnið i málinu nokkurn tima virtist hann hafa „fest alla enda” og fékk fram játningar sakborninganna. En hann fann ekki likin frekar en islensku starfsbræður hans. Málið var sið- an tekið til dóms i Sakadómi Reykjavikur, en áður en dómur- inn féll höfðu allir sakborningar nema tveir dregið játningar sinar til baka. Annar þeirra var Erla Bolladóttir. Viðbrögð fólks við þessum endalyktum voru misjöfn. En mörgum varð það á að fá á til- finninguna, að málið væri jafn óleyst og áður. En það gekk sinn gang, og tveir dómanna hljóðuðu upp á ævilangt fangelsi eins og fyrr segir. Aðrir dómar voru væg- ari og Erla hlaut þriggja ára fangelsi. Málinu var siöan áfrýj- að til Hæstaréttar, þar sem mál- flutningur er nú hafinn. En þá gerðist aftur óvæntur atburður. Erla Bolladóttir dró til baka fyrri játningar um aðild, að Geirfinns- málinu, en stóð áfram við þaö sem hún hafði sagt um Guð- mundarmálið. Og þessa dagana, þegar sak- sóknari rikisins er að flytja hina löngu sóknarræðu sina, spyr fólk: Hvaða stefnu tekur málið nú? Er framburður Erlu Bolladóttur ekki orðinn mikilvægari en svo i hinu 26 binda „verki” Sakadóms um málið, að það breytir engu um niðurstöðu Geirfinnsmálsins, þótt hún dragi hann til baka? Eða er ekki ástæða til að taka þessi nýju viðhorf hennar til greina? Sam- kvæmt okkar bestu lögfræöilegu heimildum er það einmitt þetta, sem dómarar Hæstaréttar þurfa að vega og meta á næstunni. Það er siðan þeirra að ákveöa hvað af orðum hinnar ákærðu skuli tekið til greina. Þetta er vandasamt mat, og þvi fylgir mikil ábyrgð, en „Sönnunarbyrði um sekt söku- nauts og atvik sem telja má hon- um til óhags, hvilir á ákæruvald- inu...” segir i lögum um meðferð opinberra mála. Sá möguleiki sem er fyrir hendi, til að full- nægja öllu réttlæti er aö visa máli Erlu Bolladóttur til Sakadóms aftur, til frekari rannsóknar. Málinu i heild, þ.e. Geirfinnsmál- inu, verður hinsvegar ekki visað til baka til undirréttar. Til þess að það megi gerast þurfa að vera formgallar á þvi frá hendi dóms- ins, en slikt hefur að minnstakosti ekki komið fram ennþá. Með formgalla er átt við, að málið hafi ekki gengið fyrir sig eins og skyldi, t.d. að ekki hafi verið rétt að kröfum staðið. Fyrir þvi að visa einstökum at- riðum máls, sem er komið fyrir Hæstarétt til frekari rannsóknar, eru mörg fordæmi. Eitt hæsta- réttarmál sem varðar meinta öivun við akstur, hefur nú frestast i næstum heilt ár, vegna öflunar nýrra gagna. Þegar málið var komið fyrir rétt þótti sýnt að afla þurfti ákveðinna gagna, sem vörðuðu töku á blóðsýnum, og gáfu dómararnir nákvæm fyrir- mæli um hvaða gagna skyidi afl- að. önnur leið, sem fara má i máli Erlu Bolladóttur er að taka sið- asta framburð hennar trúanlegan og sýkna hana. Hinn lögfræðilegi heimildarmaður okkar sagði reyndar, aö sú leið væri ekki úti- lokuð, þegar þess væri gætt, aö fyrri framburðir sakbornings, hafi verið mjög á reiki. Þó benti hann á, að fyrri framburöur Erlu hafi verið talinn það trúlegur, að héraðsdómur hafi talið þær upp- lýsingar sem þar komu fram hafa verið réttar. Hann taldi þvi, að sé litið almennt á málið hafi það litla þýðingu að hún skyldi draga játn- ingu sina til baka núna. Komist Hæstiréttur samt að þeirri niðurstöðu, að taka beri fráhvarf Erlu frá játningunni til greina vaknar sú spurning, hvort hún kunni þá aö verða dæmd fyrir ljúgvitni. 1 hegningarlögunum eru viðurlög við sliku þriggja mánaða til fjögurra ára fangelsi, en allt að átta ára fengelsi sé ljúg- vitnið staðfest með eiöi. Sakborn- ingur verður aldrei dæmdur fyrir að gefa rangar upplýsingar við yfirheyrslu, samkvæmt þessari grein hegningarlaganna. Erla Bolladóttir hefur þvi ekki tekið þá áhættu að fá dóm sinn þyngdan fyrir Hæstarétti fyrir að bera ljúgvitni, eftir þvi sem við kom- umst næst. Það breytir lika heldur litlu i Geirfinnsmálinu i heild, þótt leik- manni virðist sem málatilbúnað- ur þess hafi hrunið að mestu til grunna rétt einu sinni. Eftir stendur reyndar játning eins sak- bornings og vitnisburður nokk- urra lykilvitna. Lik fyrirfinnst hinsvegar enn ekkert. Ef við leit- um aftur i lögfræðilegan heimildarmann okkar kemur i ljós, að það skiptir ekki höfuð- máli, „Ef lik finnst ekki verður aö bæta það upp með öörum sönnun- um" sagði hann. Og það er erfitt að staðihæfa að rannsóknar- mönnum og dómurum undirrétt- ar hafi skjöplast það alvarlega i umfjöllun málsins, að þær sann- anir sem nú liggja fyrir séu ekki nægilega haldbærar. Samt verður okkur að leyfast að lita með gagnrýni á máliö, ekki sist þegar framvinda þess i gegnum árin er höfð i huga. Stjórnmálaferill Indiru Gandhi er eitt af undrum Indlands. úr pólitiskum ósigri og persónulegri niðurlægingu hefur hún risið og sigrað i' nýafstöðnum þingkosn- ingum með glæsibrag. Hún tekur nú á ný við stjórnartaumum i Nýju Delhi viö aðstæður sem veita stefnu og afstööu Indlands- stjórnar i alþjóöamálum meiri áhrif og þýöingu en fyrr. Fyrst og fremst sýna þó úrslit þingkosninganna á Indlandi styrk og starfhæfni lýðræðis i öðru fjöl- mennasta riki heims. Þjóð sem telur 547 milljónir manna hefur reist við á ný i almennum kosn- ingum stjórnandann sem hún felldi áöur. Má ætla aö bæði Indverjar og Indira Gandhi hafi nokkuð lært af sviptingum siöustu ára. Kynslóðaskilin i indverskum stjórnmálum hafa mætt af feikna þunga á þessari einu konu. Það hefur komið i' hennar hlut að yfir- buga hvern hópinn eftir annan af öldungum indverskrar sjálf- stæðisbaráttu, sem sátu fastir i fortiöinni og reyndu að setja fast- heldni viö hindúasið eöa ogutanri'kismálum hljóta aövega upp óvinsældir alræðistimabils- ins. En indverskir kjósendur reyndust á öðru máli. Þeir felldu Þjóðþingsflokkinn frá völdum i fyrsta skipti frá þvi Indland hlaut sjálfstæði oglndirasjálf datt út af þingi. Til valda komst Janata- flokkurinn, sambræðingur gömlu Þjóðþingsflokksforingjanna, sem Indira hafði ýtt til hliðar,og herskárrahindúa. Nýju valdhafarnir voru staðráðniri aö láta Indiru gjalda ofrikisins á alræðistimabilinu. Þegar hún komst aftur á þing i aukakosningum, var hún umsvifalaust svipt þingsætinu og færð i fangelsi um skeið. Sérstakir dómstólar voru settir á stofn til að dæma 1 málum sem búin voru á hendur henni og Sanjay syni hennar fyrir fram- feröi þeirra á alræðistimabilinu. En Indira lét ekki bugast. Asamt tryggðustu fylgismönnum slnum tók hún sérfyrir hendur aö koma á laggirnar nýjum Þjóð- þingsflokki. I þvi varð henni svo vel ágengt, að þegar Janata- flokkurinn liðaöist sundur og ekki STÁLFRÚIN SPRETTUR UPP kenningar Mahatma Gandhi i stað stjórnmálastefnu. öldungaliðiö fékk sitt siöasta tækifæri, þegar Indira Gandhi fyrirgeröi trausti þjóðarinnar á tuttugu mánaða alræðistlmabili. Ritskoðun, fangelsanir stjórnar- andstæöinga, og sér i lagi vald- boðnar vananir sem þáttur I baráttu gegn fólksfjölgun, komu forsætisráðherranum og fylgis- mönnum hennar I koll I kosn- ingunum 1977. Þá rauf Indira þing mjög sigurviss og taldi árangur stjórnar sinnar I efnahagsmálum varðundan vikistaöefna til nýrra kosninga, var Þjóðþingsflokkur I svo vel viðbúinn aö hann náöi strax forustu 1 kosninga- baráttunni og hélt henni fram á kjördag meö þeim árangri, aö flokkurinnhefurriflega tvo þriöju þingsæta og þar meö liöstyrk til að breyta stjórnarskránni. Indirá Gandhi átti meginþátt i þessum fræga sigri. Húnferöaöist um Indland þvert og endilangt og hélt allt að 20 kosningafundi á dag I borgum og þorpum. 1 málflutn- ingi baðst hún afsökunar á þvi sem meö rangindum hefði verið gert í sinu nafni á alræöistlma- bilihu, en lagði megináherslu á þörfina fyrir styrka stjórn á Indlandi til að ráða viö vaxandi verðbólgu, kveða niöur upplausn oglögleysuriþjóðllfinu oghefjaá ný sókn til eflingar tæknivæddra atvinnuvega. Meginmunur á stefnu Indiru og gömlu stjórnmálaforingjanna sem hún hefur att kappi við frá upphafi stjórnmálaferils sins er sá, að hún leggur megináherslu á aðleysa vandamál Indverja, sem yfirsýn eru gifurleg, meö aðferðum tækni og visinda, þar sem þeir halda aftur á móti dauðahaldi I kenn- ingar Mahatma Gandhium aftur- hvarf til fyrri þjóðlífshátta, aö menn spinni þráðinn I fatnaö sinn á eigin rokk og vefi voðina í eigin vefstól. Dæmigerður fulltrúi þessahóps var Desai, sem tók við forsætisráöherraembættinu af Indiru. Helsta kappsmál hans var að koma á áfengisbanni um allt Indland, og þegar hann geröi hlé á bindindisboöskap var það einkum til að hvetja landa slna tU að taka upp það húsráö sitt aö drekka morgunpissuna á f astandi maga sér tU heilsubótar. Nú hefur indverska þjó.ðin kveðiö upp endanlegan úrskurð um aö hún kýs Indiru og stefnu hennar um rlkisvald óháö kenni- setningum strangtrúarhópa hindúa fram yfir öldungana sem sátu forðum viö rokkinn ásamt Mahatma Gandhi (rétt erað taka fram að Indira er ekkert I ætt viö hann). I endurteknum klofningi Þjóöþingsflokksins hefur skilist frá honum alitgamla forustuliðið. Þegar Indira myndaöistjórn eftir nýafstaöinn kosningasigur, valdi hún i' ráðherraembætti nær einvöröungu nýja menn og lltt þekkta. Athygli vakti, að hún gekk rækUega framhjá öllum þeim sem gátu sér illt orð fyrir valdnlðslu á alræöistlmabilinu. Indira segir sjálf, aö bæöi hún og aðrir ættu að hafa lært nóg af þvl sem liöiö er til að giröa fyrir að aftur komi upp ástand eins og þaö sem leiddi til að hún tók sér alræöisvald. Mestu máli skiptir I þvl sambandi, hve indverskir kjósendur hafa reynst ákveönir I dómum slnum. Þeir felldu Indiru, þegar hún brást trausti þeirra, en þegar þeir sem viö tóku reyndust Eftir Magnús Torfa Ólafsson ófærir um að stjórna, sneru kjós- endur sér ti) hennar á ný, þótt ekki væru liðin nema rúm tvö ár frá þvl að þeir lýstu á hana vantrausti. Og allar hafa þessar sviptingar átt sér stað án þess að komið hafi til tbðsúthellinga. Kosningarsigur Indiru kemur á þeirri stundu, þegar miklu skiptir hversu mikil festa rikir I stjórnarfari á Indlandsskaga. Innrás Sovétrikjanna I Afghanistan átti sér stað rétt fyrir indversku kosningarnar. Nú hefur Indira,sem á sfnum tima leitaði stuönings hjá Sovétrikjunum, þegar Banda- ríkin hölluðu sér aö Pakistan, lýst þvi yfir aö afsökun geti engin fundist á herferö sovéthersins, og hún hefur meira að segja gefiö I skyn, aö til þess geti siöar komið að Indland og Pakistan taki upp hernaöarsam vinnu gegn sameiginlegum háska, þtítt nú sé það ekki timabært. Það sem Indver jar setja sérstaklega fyrir sig, er bandalag Fakistans og Kina, sem þeir telja fyrst og fremst beint gegn sér. Carrington lávaröur, utan- rlkisráöherra Bretlands, er fyrsti málsmetandi stjórnmálamaður erlendis frá sem sækir Indiru Gandhi heim eftir aö hún endur- heiimti völdin. Taliö er aö breska stjórnin hafi það langtíma- markmið i Suður-Asiu, að koma á samsteypu fyrrverandi nýlendna sinna og verndarrlkja, Indlands, Pakistans, Sri Lanka, Bangladesh og Nepal , I þvl skyni að Sovétrlkin geti siöur <teygt klærnar suður og austur á bóginn frá nýju stöðvunum I Afghanistan.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.