Helgarpósturinn - 11.06.1982, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Blaðsíða 13
13 Miðasala i Gimli v/Lækjargötu frá kl. 14 til kl. 19.30 Simi 29055 Listahátíð 1982 Sinfóníuhljómsveit íslands jtpBsturínn. Föstudagur 11. júní 1982 heldur tónleika i Laugardalshöll mánudaginn 14. júni kl. 20.30 Einleikari: Ivo Pogorelich Umdeildasti píanóleikari heims/ aöeins 24 ára Litli leikklúbburinn æfir Úr aldaannál — öllu betri en þetta gerast áhugamannasýningar ekki, segir Jón Viöar m.a. i umsögn sinni um sýninguna á Listahátlö i Reykjavik. FORDÆMT FÓLK Grobbgeltir í stríði Listahátiö: Flugmennirnir. Leiksýning samin og flutt Farid Chopel og Ged Marion. Sýnti Gamla-Bió. af Flugmennirnir er leiksýning þarsem aöeins koma fram tveir menn. Þeir hafa sáralitinn sviösbúnaö, talaöur texti er nánast enginn. Sýningin byggir þvi nær eingöngu á hreyfingum ieikaranna og leikhljóöum sem ýmist eru framleidd af þeim sjálfum eöa af hljómbandi. Þau leikhljóö eru tvennskonar, hljóö úr umhverfinu og slagarar frá ýmsum timum. Samspil hljóö- anna og hreyfinganna var mjög mikiö og mikilvægt atriöi i sýningunni, ýmist þannig aö hljóöin voru bakgrunnur, þó oft- ar þannig aö þau höföu bein áhrif á hreyfingarnar eða aö þeir liktu eftir þvi sem hljóöin táknuöu og liktu eftir efni slag- aranna. Þetta samspil hljóöa og hreyfinga var mjög nákvæmt og skemmtilega útfært. Ég er ekki alveg viss um hvernig best er aö skilgreina þessa tegund af leiklist, enda skiptir þaö i sjálfu sér ekki öllu máli. Látbragðsleikur er grunn- urinn þó ýmsum brögöum úr öörum áttum sé einnig beitt. Þaö sem skiptir mestu máli er aö útkoman er mjög ásjáleg og skemmtileg sýning sem lyftir sér hæglega yfir mörk tungu- málanna. Það eru tvær meginhugmynd- ir sem byggöar eru inn i þetta verk. Annarsvegar er lýsing á mönnum sem veröa aö dylja ör- yggisleysi sitt og tilfinningalega einangrun meö töffarastælum og hinsvegar ádeila á hernaöar- anda og hermennsku, sem i raun byggir tilveru sina á harkalegri tilfinningalegri kúgun karlmanna, þar fær eng- inn aö vera manneskja. Aöferö leikaranna var auk þess sem aö framan er frá greint sú aö beita skopstælingu og eftirhermu. Lýsingar þeirra á atferli grobbgaltanna var oft á tlöum hreint óborganleg. Þaö var aödáunarvert aö sjá hvern- ig vald þeir höföu yfir likams- hreyfingum sinum, sem gekk svo langt aö þeim tókst jafnvel aö gera barkakýlishreyfingarn- ar merkingarþrungnar. Samt sem áöur fannst mér þeir stundum fara óþarflega langt út i hrein skripalæti og þá um leið teygja sum atriöin ein- um um of. Þaö mætti nefna mörg einstök atriöi sýningarinnar til dæmis um sérlega skopnæmni höfund- anna. Þaö er til dæmist allt aö þvi ósvifni af þeim aö drekka dýrindis Guld-Tuborg fyrir framan islenska leikhúsgesti og ofan i kaupiö sprauta þeir úr dósunum yfir fremstu bekkina þannig aö allt angaöi af höfugri bjórlykt. Annað sem orkaöi sérlega spaugilega á mig var aö þrátt fyrir allar ádeilurnar á töffara og grobbgelti, þá gat ég ekki betur séö en óvenjuleg fagnaö- arlæti i lok sýningarinnar stöf- uðu einmitt af þvi aö kvenpen- ingurinn i salnum heföi snar- fallið fyrir þessum töffuöu, sjarmant og sexy fransmönnum — lái þeim hver sem vill. G.Ast. Farid Chopel og Ged Marlon I Flugmönnunum — sýning sem lyfti sér hæglega yfir mörk tungumálanna, segir Gunnlaugur m.a. i um- sögn sinni. Rajatabla leikhúsið um helgina: Af ástandinu í Rómönsku Ameríku! Úr sýningum Rajatabia á Forseta lýðveldisins. Leikflokkurinn Rajatabla frá Venezuela mun sýna tvö leikrit á vegum Listahátiöar I Þjóðleik- húsinu um og eftir hclgina. Leik- flokkur þessi var stofnaður árið 1971 og hefur hann á siðari árum leikið I fjölmörgum lönduml Evrópu og komið fram á leik- listarhátiðum. Leikritin tvö, sem flokkurinn sýnir, eru Bolivar, sem lýsir baráttu samnefndrar frelsishetju Suður-Ameriku, og ástandinu i löndum álfunnar 150 árum eftir dauða Bolivar, og Forséti lýö- veldisins, sem gert er eftir sam- nefndri sögu Asturias, og lýsir heimi suður-amerisks stétta- veldis. Verkin eru bæði flutt á spænsku, en i leikskrá er efni þeirra rakið atriði fyrir atriði, þannig að þeir, sem ekki skilja spænsku ættu að geta fylgst vel með.Til aö hjálpa upp á sak- irnar, er leikhús þeirra Rajatabla félaga mjög sjónrænt. Sýningar Rajatabla verða á föstudag, laugardag, mánudag og þriðju- dag og eru þær einstæður leik- listarviðburður, og upphaf að leikför hópsins til ellefu Evrópu- landa. Stjórnandi: David Measham EFNISSKRÁ: Rossini: Forleikur Chopin: Píanókonsert nr. 2 í f-moll Joseph Haydn: Sinfónía nr. 44 í e-moll Francis Poulenc: Dádýrasvíta Litli leikklúbburinn á isafiröi sýnir Úr aldaannál eftir Böðvar Guðmundsson á Listahátfð i Reykjavík. Leikstjórn og leik- mynd: Kári Halldór. Raddþjálf- un: Hilde Helgason. Böðvar Guðmundsson er sýni- lega mikill áhugamaður um miðöld Islandssögunnar. Nú hafa á skömmum tima komið frá honum tvöleikverk um þetta efni, Þórdis þjófamóðir i Nem- endaleikhúsinu og Úr aldaannál — flatt nafn sem ætti betur við um útvarpsþátt en dramatiskan skáldskap — sem Litli leik- klúbburinn á Isafirði sýndi hér á vildi senda i útrýmingarbúðir, með trosnaðan söguþráð i eftir- dragi og ætlast svo til að við lif- um okkur inn i öll herlegheitin. Samt hef ég á tilfinningunni að á milli hans og írans liggi leyndir þræðir og að Böðvar myndi vaxa sem leikskáld af þvi að læra af Beckett; ekki til að stæla hann, heldur til að skoða hvern- ig hann fer að þvi að koma kenndum böls og dauða á fram- færi. 1 sýningu Litla leikklúbbsins á Úraldaannál eru margir prýðis góöir sprettir og á heildina litið er sýningin minnisverður sigur I eftir Gunnlaug Astgeirsson og Jón Viðar Jónsson Listahátiö nú i vikunni. Þetta erukeimlik verk á margan hátt og f jalla i rauninni um nákvæm- lega sama hlutinn: fólk sem lifir — ef hægt er að kalla tilveru þesslif — i ystu myrkrum. Mörg efnisatriöi eru hliöstæð og sama má segja um tilraunir höfundar — sem leikstjórarnir fylgja i báöum tilvikum frábærlega eft- ir — til að virkja myndmál leik- sviðsins, gæða það sem sést táknrænu gildi. Gallar beggja þessara verka, miklir ög marg- vislegir, eru einnig af svipuðum togaspunnir: hnökrótt bygging, langlokur, flatneskja i textan- um, persónur sem eru út i hött. 1 meðferö Litla leikklúbbsins sýndist Úr Aldaannál þó stórum burðarmeiri en Þórdis þjófa- móöir sem er sannast sagna af- ar hrátt verk og i rauninni eng- an veginn á borö berandi. En af hverju stafar dálæti Böðvars á þessum ömurlega kapitula Islandssögunnar? Hvað koma okkur þessir þjófar og morðingjar við; hvers vegna að vera að velta okkur upp úr glæpsku og þjáningum liöinna kynslóða? Er Böðvar e.t.v. að reyna að endurlifga þjóðlega leikritagerð, nú með formerkj- um þjóðfélagsádeilu og grimmi- legs raunsæis? Svör við þessum spurningum liggja ekki i augum uppi. En mér finnst athyglisvert að i báð- um þessum verkum beinist at- hyglin mjög að fólki, sem lokast inni i hryllilegri einangrun. 1 öðru leikritinu segir frá hyski sem velkist um i bátsskel á Grænlandshafi eftir að hafa flú- iö eymdina og volæðið hér heima — i hinu sakamönnum sem eru nánast dysjaðir lifandi i grjóthaug. Bæði verkin lýsa að- draganda þess að þetta gerist og þeirri skelfingu sem siðan biður fólksins. Um þaö er engum blöðum að fletta að Böðvar Guðmundsson nálgast söguefni sitt af innlifun og djúpum skilningi. Hann skynjar réttilega aö lykiíinn að sálarástandi aldarinnar, þeim mannlega harmleik sem hún öll er, er að finna i ótta hins for- dæmda, trylltri forherðingu þess sem veit sig handan allrar náðar en berst fyrir lifi sinu til siöustu stundar, hljóðlátri kvöl hins veikari. Þaö er ekki laust við aö sumt i leikritunum leiði huga manns að einangrunar- klefum Becketts, þess höfundar sem betur en nokkur annar lýsir sárum kvölum útskúfaðs lifs og guðleysis. Miðaö við Beckett er Böðvar Guðmundsson auðvitað æði „gamaldags” leikritaskáld á kafi i þvi sem Brecht sálugi kallaði aristóteliskt leikhús og fyrir þá sem að henni standa. öllu betri en þetta gerast á- hugamannaleiksýningar ekki og þaö sem á vantar hneigist mað- ur til að skrifa á reikning höf- undar. Leikstjórinn Kári Hall- dór er sýnilega undir óskaplega sterkum áhrifum frá ákveðinni linu i finnskri sviðssetningalist og er vel hægt að velja sér verri fyrirmyndir: munir dreifðir um vitt sviöið gegna hlutverki leik- myndar, persónur standa kyrr- ar I hálfrökkri til hliðar án þess að taka beinan þátt i leiknum, natúralismi og stilfærsla i bland hvort við annað. Þessi sviðs- setning spillir að sönnu ekkert fyrir leiknum að þvi er séð verð- ur og hún er nýstárleg á is- lensku sviði, en hvort hún gerir verkinu sjálfu eitthvað gott veit ég ekki. Sérstaklega er þó á- nægjulegt að sjá, hvilika alúð Kári Halldór hefur lagt við leik- inn. Hann er jafn, nákvæmur, markviss og kröftugur, en býr þó yfir margvislegum blæbrigð- um, ris og hnigur eftir þvi sem framvinda sögunnar og innra á- stand persónanna þróast. Hann er ævinlega sannur, laus við öfga og ýkjur, og snertir mann stundum djúpt. Auðvitað eru ekki allir jafn góðir, slikt má heita borin von i áhugamanna- sýningu, en nokkrir standa sig svo vel að ástæða er til að geta þeirra sérstaklega. Umrenning- urinn Gunnsteinn er liklega ein efnismesta mannlýsing leiksins, bæði skopleg og átakanleg, og naut sin til hlitar i höndum Jóns Steinars Ragnarssonar; mynd hans i grjótinu gleymi ég ekki i bráð. Þétt á hæla hans komu þau Kristin Karlsdóttir og Reynir Sigurðsson, en enginn kastaði höndum til neins, hversu smátt verk sem honum var falið. Þeir Isfirðingar sýndu fyrir fullum sal i Gamla Biói á þriðju- dagskvöldið og að loknum leik fögnuðu áhorfendur þeim inni- lega. Þvi miður hef ég aldrei séð til Litla leikklúbbsins áður og hef þvi fátt til að miða við; hef aðeins heyrt vel látið af sumum sýningum hans en trúi þvi þö vart að leiklist sem þessi sé þar daglegt brauð. I öllu falli er ljóst að Húsvikingar hafa eignast skæðan keppinaut um fyrsta sætiö meðal áhugaleikfélaga landsins sem mættu öll lita til Isfirðinganna til að sjá hversu miklu dugnaður, vandvirkni og einlægni fá áorkað undir góðri stjórn. Að endingu er svo rétt að þakka stjórn Listahátiðar fyrir að gera Litla leikklúbbnum kleift að gista höfuðstaðinn; verst aö þeir skuli ekki sýna nema i þetta eina sinn. —JVJ

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.