Helgarpósturinn - 11.06.1982, Page 14

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Page 14
14 Vonbrigði — þéttur og góður flutningur Rokk í Hafnarbíói og ný Fræbbblarokksplata Síðastliðinn föstudag héldu hljómsveitirnar Vonbrigði, Purkur Pillnikk og Þeyr tvenna hljómleika í Hafnarbiói. tónleikunum i Hafnarbló, þá var það hljómsveitin Vonbrigði sem hóf leikinn. Ég held að þetta sé 1 þriðja sinn sem ég heyri i Hvert var tilefni þess að Purkurinn og Þeyr héldu hljóm- leika saman veit ég ekki en þetta var a.m.k. i siðasta skipti sem Þeysarar spila hér á landi um hrið, þar sem þeir hafa nú haldið út i heim I leit aö frægð og frama og munu þeir fara viða um Evrópu næstu sex vikurnar. En svo við snúum okkur að hijómsveit þessari á hljóm- leikum og sannast sagna þá likar mér æ betur við hana. t fyrsta skipti sem ég heyrði i henni, i Félagsstofnuninni um páskana,þótti mér þeir heldur litið spennandi og kraftlitlir en það hefur liklega verið mikið fyrir það hversu slæmur hljómur var hjá þeim. En hvað um það, i Hafnarbiói var hljómurinn hins vegar góöur og flutningur hljómsveitarinnar hinn þéttasti. Tónlist Vonbrigða einkenndist einkum af hröðum og kraftmiklum bassa- og trommuleik og er trommu- leikurinn einkum athyglis- verður. Gitarleikurinn er svo öllu rólegri og effektiskur. Hljómsveitin hefur á efnisskrá sinni mörg ágætis og oft á tiðum nokkuð melódisk lög en mér finnst þeir hefðu mátt stytta leik sinn nokkuð með þvi að vinsa út úr þau lög sem ekki eru nógu góð, þá hefðu þeir komið enn betur út. Næst kom Purkurinn á sviöið en þetta var i annað skipti sem þeir spiluðu opinberlega frá þvi þeir komu úr Bretlandsferö sinni. Hljómsveitin er um þessar mundir sérlega vel samanspiluð og framkoma þeirra á sviði er öll hin besta. Einar er óhræddur við að segja áheyrendum til syndanna, liki honum ekki framkoma þeirra, og hann reynir mjög að kalla fram andsvar fólks meö ýmsum móðgandi athugasemdum. Og þegar hann „syngur” er hann ýmist dansandi eða skriðandi um allt sviö. Tónlist Purksins hefur breyst mikið frá þvi að þeir komu fyrst fram og spiluðu lög sem ekki tóku nema svo sem minútu i flutningi hvert um sig. Nú hafa lögin lengst mjög og i þeim er margt að gerast og alltaf hef ég meira gaman af þeim á hljóm- leikum en á plötum, þvi þeir eru svo helv... góðir sviðsmenn. Hljómsveitin Þeyr lék siðust á fyrri tónleikunum og hef ég sjaldan heyrt I henni lélegri. Þ.e.a.s. hljómsveitin var kannski ekki léleg, heldur var „sándið”alveg hræöilegt. Varla heyrðist I bassanum, tromm- urnar komu illa I gegn og gítar- arnir voru skerandi háir. Ég hlýddi hinsvegar á þá spila nokkur lög á seinni tónleik- unum, þar sem þeir spiluðu fyrstir og haföi þessu þá verið FöstijdágWÍl. júhf 1 ‘JojSsti irínn -f-X.i.C kippt I lag og þcir þvi sjálfum sérlikir, þéttir og góöir.Ein hálf hlægileg lenska er nú komin upp á meðal þessara nýju rokk- hljómsveita og þaö er hvimleið notkun á blásturshljóðfærum. Einar örn reiö á vaðiö með klarinettuna sem hann g'etur ekkert spilað á en blæs i i tima og ótíma. Þorvar i Jonee Jonee er farinnað nota saxófón, sem hann kann litið á en þó eitthvað. Einar Kristjánsson, sem lék meö Spilafiflum, blés nokkra tóna i hornið sitt, þegar Spila- fiflin komu siöast fram en hann á vist aö kunna eitthvaö fyrir sér i hornleik, þar sem það er þaö hljóðfæri sem hann hefur stundað nám á. Nú og á tónleik- unum á föstudaginn dró Magnús Þeyssöngvari trompett upp úr pússi sinu og fretaði nokkrum illa völdum tónum framan i áheyrendur og ég held bara svei mér þá að hann kunni minna fyrir sér á trompett en Einar á klarinettuna. Heldur hjákátlegt uppátæki þetta og varla hægt að segja að þetta sé hluti af þróun þessara hljómsveita. t heild voru þessir tónleikar I Hafnarbiói vel heppnaðir og hafði ég hina bestu skemmtan af. Fræbbblarnir (Platan hefur mörg nöfn, sem ekki tekur aö telja upp) Nýir tlmar/sama fólk/nýir frasar/sama rugl, syngja Fræbbblarnir á nýútkominni L.P. plötu sinni, sem enginn veit álmennilega hvað heitir, en það á liklega bara að vera brandari. Einhvern tima lét ég þau orð falla að Fræbbblarnir væru ekki merkileg hljómsveit og yrði sennilega aldrei. Liklega hef ég haft rangt fyrir mér þvi það er margt merkilegt um Fræbbbl- ana að segja. Það er nú t.d. út af fyrir sig stórmerkilegt að hljómsveitin skuli enn vera til og það sem er enn merkilegra að það skuli vera einhver slött- ungur af fólki sem hefur gaman af þeim. Þó held ég að þeir höfði fyrst og fremst til svona 13 til 14 ára krakka, sem misskilja eitt- hvaö stöðuna og halda að Fræbbblarnir séu pönkarar. Þó að fyrri plata Fræbbblanna Viltu nammi væna? hafi ekki verið sérlega góð, þá var þó ein- hver kraftur i tónlistinni á henni, svona burtséð frá öllu öðru. Tónlistin á nýju plötunni er hins vegar algerlega kraft- laus og er þaö helsti galli plöt- unnar og raunar þaö sem ég er hræddur um að muni dæma hana til dauða. En af hverju þetta kraftleysi stafar veit ég ekki. Þaö er þó ljóst að mixunin er ákaflega misheppnuð þar sem heldur liflausar trommur og bassi eru mixað mjög fram- arlega en gitarar hins vegar mjög aftarlega og sums staðar svo illilega að varla heyrist i þeim. Hljómborðsleikur, sem nokkuð mikið er af á plötunni,er einnig blandaður afkáralega framarlega á köflum. Svo getur lika vel verið að Fræbbblarnir séu bara ekki betri en þetta og mixinu alls ekki einu um að kenna. Það er þó greinilegt að þeir eru að reyna að gera betur en áður, þó það takist nú svona upp og niður. Lögin eru t.d. mörg hver ágæt popplög sem hefði verið hægt aö gera eitthvað betra úr en gert er að þessu sinni; út- koman er nefnilega litið annaö en eitthvað sem kannski mætti kalla kúlutyggjópönk. Ég er þvi hræddur um að upp- hafsorð greinarinnar eigi vel við um Fræbbblana sjálfa, þó það hafi liklega ekki verið meining- in. Ég vona bara að niðurlags- orö sama texta eigi ekki eftir að rætast en þar segir: Alltaf koma fleiri til/alltaf koma fleiri fifl/- alltaf viröist einhver til/að ganga i gamla söfnuðinn. Með þvi á ég viö að vonandi stækkar ekki söfnuður Fræbbblanna meðan þeir standa sig ekki betur. Nýja málverkið í Nýlistasafninu „Thinking of the Europe” i Nýlistasafninu — vonandi skilur ai- menningur mikilvægi þessarar sýningar, segir Halldór Björn m.a. I umsögn sinni. A undanförnum 3 - 5 árum hafa átt sér stað mjög örar breytingar i evrópskri list. Ung- ir málarar hafa fundið sér nýja leið að málverkinu og eru það einkum Italir, Svisslendingar og Þjóöverjar sem gerst hafa merkisberar þessarar listar, en þaðan hefur hún svo fetað sig til annarra landa, eða öllu heldur heimsálfa, m.a. Ameríku. Þessi málaralist er mjög breytileg eftir löndum og lista- menn frá einu og sama landinu eru mjög ólikir. Þó hefur ýmis- legt orðið til þess aö spyrða þá saman undir heitinu „sið-mód- ernistar”, „ný-expressiónistar” og myndlist þeirra er gjarnan kölluð „ný-figúrasión”. Það er einkum hinn sýnilegi heimur i málverkum flestra þessara listamanna, sem veldur siðast- nefndu nafngiftinni. Ofsafengið og grófgert pensilfar veldur þvi að þessari málaralist svipar mjög til expressiónisma. Eink- um á þetta við um þýska mál- verkið, enda er expressiónism- inn Þjóðverjum i blóð borinn. Aö endingu hefur hugtakið slö-modernismi verið notað af gagnrýnendum, vegna tilvisun- ar margra listamanna til list- sögulegra stilbragða af ýmsu tagi, gagnstætt „módernisma” sem vill sverja af sér öll vensl við stilistiskar tilraunir fyrri tima. Fyrir tilstilli Nýlistasafnsins við Vatnsstig, fá Reykvikingar smjörþefinn af þessari nýju myndlist, með sýningunni „Thinking of the Europe”, sem opin verður til 20. þessa mánað- ar. Þegar hanga verk eftir 6 listamenn á veggjum safnsins, en tveir eiga eftir að bætast I hópinn. Þvi miöur varð töf á sendingum, en verkin verða hengd upp óðar og þau berast til landsins. Sexmenningarnir sem þegar eru til staðar, eru Þjóðverjarnir Peter Angermann og Helmut Middendorf, Tékkinn Milan Kunc (sem starfar i Þýska- landi), Hollendingurinn John Van’t Slot, Svisslendingurinn Martin Disler og Islendingur- inn Helgi Þorgils Friöjónsson. Peter Angermann og Milan Kunc eru ásamt Jan Knapp, meölimir I hópi sem starfar i Dílsseldorf og kallar sig „Normal”. Angermann hefur sent á sýninguna 160 teikningar, sem raöað er saman i eina stóra mynd. Þessar teikningar eru geröar með túss-blýöntum og snúast um hálfmána, eins og hann er túlkaður I myndasögu- klisjum barnabóka. Þetta er hin fáránlega (banale) alþýðulist, naiv og fyndin. Myndir Milan Kunc eru skyld- ar myndum Angermanns. Báðir fást þeir við að draga fram fag- urfræðilegt inntak „kitsch-menningarinnar” eins og hún birtist i þýskri neðan- málslist. Kunc notar smekk- lausar og útþvældar klisjur pseudo-kúbismans (sennilega komnar upphaflega frá Miró eða Chagall), úr auglýsingum og hasarblöðum. Þannig undir- strikar hann fáránleik róm- ans-stemmningarinnar i verk- um sinum. Nakin stúlka i sól- baði og hermaöur og stúlka und- ir suðrænu pálmatré, verða I höndum hans andhverfa hins rómantiska ástands, niðurrif goðsögunnar. Þeir Middendorf og Disler eru á hinn bóginn meöal þekktustu forvigismanna ný-expressión- ismans, hvor i sinu heimalandi. Middendorf er ásamt Bernd Zimmer (en verk hans eru ókomin enn) i fararbroddi ungra málara i Berlin. Olikt Zimmer sem notar náttúruna sem yrkisefni, er Middendorf málari borgarlifsins. Af þeim sökum hefur honum oft verið likt við forvera sinn E.L. Kirchner. Málverk Middendorfs eru ógnþrungin. I þeim má sjá grimmdarlegt næturllf, popp- stjörnur i teygðum stellingum, dansandi skuggamyndir ungra rokkara, sem minna á þátttak- endur I frumstæðu blóti. Úr myndum hans skin kraftmikil fegurð. Martin Disler er einnig ex- pressióniskur, en myndir hans eru þó öllu óhlutbundnari. Kraftmikil teikning og grafisk áhersla einkenna myndir hans. Disler hefur verið atkvæðamik- ill sem útgefandi og rithöfund- ur. M.a. hefur hann birt ljóö eft- ir sig og sjálfsævisögulega skáldsögu, „Bilder vom Maler” (útg. AQ, Dudweiler/Saar- brucken V-Þýskalandi). Lestina reka þeir John Van’t Slot og Helgi Þorgils. Van’t Slot vinnur út frá goðsögulegum hugmyndum. Verkin sem hann sýnir i Nýlistasafninu eru unnin á töflu, sem siðan er ljósmynd- uð. Þetta eru teikningar sem þræöa stigu hins undarlega, nokkurs konar borgargoðsagn- ir. Helgi Þorgils kafar einnig of- an I goösöguna. Hann er með 11 myndir á sýningunni, þar af tvö stór málverk. Sjálfskoöun Helga eru litil takmörk sett. Hann finnur sér efniviö I óvenjubreiðu myndmáli og tækni sem tengist öllum sviðum málaralistar. Hugmyndaflugið er sterkasta vopn hans og virð- ist hann eiga mjög létt með að finna þvi hentugt form, hvort heldur er I stærö frimerkis ell- egar i stórum og mónumental málverkum. Mynd hans af syndandi manni og kven-kantár (nr. 24), er meöal bestu verka, sem ég hef séð eftir hann. Það má þakka elju og dugnaði þeirra ungu manna, sem standa að Nýlistasafninu, að þessi nasasjón af nýja málverkinu skuli fást, meðan það er I fullu fjöri úti I heimi. Sýningarskráin er vandlega unnin af þeim fé- lögum safnsins og umboðs- manni þeirra á Italiu, Demetrio Paparoni, sem þekktur er sem gagnrýnandi og gallerihaldari. Þvl vakti það furöu mina, þegar ég sá að Sjónvarpið hafði með öllu hundsað þessa merki- legu sýningu, á ferðalagi þess um myndlistarsali borgarinnar. Vonandi er hér um gleymsku aö ræða, sem bætt verður úr hið bráðasta. Þá er það von min að almenningur skilji mikilvægi þessarar sýningar og hins mikla starfs, sem Nýlistasafniö hefur innt af hendi.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.