Helgarpósturinn - 11.06.1982, Page 21

Helgarpósturinn - 11.06.1982, Page 21
21 ^pBsturinn F8s1udaa ur 11. júní 1982 mundur, „sem er vaxtamálin. Hér voru vextir neikvæöir um langt árabil. Allir vissuaö þetta var ekki hægt — i hvert skipti sem maður fékk lán i banka, þá vissi hann aö hann var að taka þaö fé frá gömlu fólki og öörum sparifjáreigendum. En ég hef engan hitt, sem ekki styöur það sem viö geröum með vaxtakerfisbreytingunum, jafnvel þótt gamla fyrirkomulagið hafi komið þeim beturá sinum tima. Þorri þjóö- arinnar veit og skilur, að verðbólgugróðinn er illa fenginn. Og hér hefur þjóöarsálin einfaldlega skipt um skoðun. Það hlýtur að teljast til bóta. Það er lika skortur á pólitisku siðgæöi þegar Steingrimur Hermannsson tilkynnir með fyrirvara, að gengisfelling sé væntan- leg. Þannig upplýsingar koma sumum vel og þeir geta i mörgum tilfellum notaö sér þær. En við búum við svo undarlegar aö- stæður, svo mikla tvöfeldni. Hér rikir for- hertur rikiskapitalismi, sem menn kalla stundum pilsfaldakapitaiisma, og svo þessi hrikalega verðbólga. Hún hefur geFt það að verkum, að menn hafa misst sjónar af ýms- um gömlum verðmætum og heppilegra gildismati. NU viðurkenna menn kerfið og spillinguna og segja sem svo: 1 þessu kerfi er allt leyfilegt.” Blessuð verðbólgan Veröbólgan já. HUn hefur stundum veriö tekin fyrir sem einn helsti sökudólgurinn og ég vita, aðgangi maður hart að sérhverjum einstakling, jafnvel hinum forhertustu, þá viti menn betur og kunni að gera greinar- mun á góðum sið og vondum,” sagði Vil- mundur. Hann tók skipainnflutning landsmanna sem dæmi um skort á pólitisku siðgæði. „Allir vita að þetta hefur gengið of langt og Ut yfir öll velsæmismörk. En kerfið býður uppá þetta. Sjavarútvegsráðherrann lætur undan þrýstingi — i þessum leik eru menn annað hvort meðeða þá að þeir eru dæmdir úr leik. Við skulum taka annað dæmi,” sagði Vil- Kerfið býður upp á þetta Og svo getur vaknað sú spurning, hvort pólitisktsiðgæði sétilyfirleitt. Pólitiskt sið- ferði hlýtur að vera til; siðferði er hlutlaust orð, en i sjálfu orðinu siðgæði felst ákveðið mat. Við spurðum Vilmund Gylfason al- þingismann, sem stundum hefur verið ómyrkur i máli um siðleysi og spillingu, hvort hann teldi pólitiskt siðgæði vera til. „Já, ætli maður verði ekki að segja að það sétil, þaðhlýtur að bærast með flestum — eni ákaflega misrikum mæli. Þó þykist eftir Ómar Valdimarsson mynd: Ólafur Lárusson orsök margra meina þjóðarbús og þjóðar- sálar. Viglundur Þorsteinsson, formaður Félags islenskra iðnrekenda, segir að hann telji engan vafa leika á þvi, að „óðaverð- bólga undanfarinna tólf ára hafi dregiö Ur siðferðisþreki þjóöarinnar allrar. Að þvi leyti tel ég að enginn einn sé öðrum sek- ari,” sagði Viglundur i samtali við blaða- mann HP. „Þegar við hins vegar litum til baka yfir þessi tólf óðaverðbólguár er það min skoðun, aö veik pólitisk forysta ein- kenni þau sérstaklega. A þessum árum hafa flestir stjórnmálamenn hrakist fram og aftur i átökum hagsmuna- og þrýstihópa en ekki veitt þá ábyrgu pólitisku forystu, sem krefjast verður af þeim.” Jón Jónsson, forstjóri Hafrannsóknar- stofnunar, hefur unnið meö fjölmörgum stjórnmálamönnum i gegnum tiöina. Sum- um merkilegum. Hann segistekki geta séð, að á þeim þrjátiu árum sem hann hefur veriö forstjóri stofnunarinnar, „hafi oröið nein sérstök afturför i svokölluöu pólitisku siðgæði þeirra (þ.e. stjórnmálamannanna). Ég held að flestir reyni að gera það, sem þeir álita best fyrir land og þjóð en viö verðum að muna, að Islendingar eru með afbrigöum harðir i horn aö taka og mjög óvægir i skoöunum sinum um menn og mál- efni. Þetta er kannski sambiand af erfð og umhverfi. Af þessum sökum eru stjórn- málamenn okkar oft dæmdir mun óvægi- legar en ástæða er til og gengur og gerist i nágrannalöndum okkar,” sagöi Jón Jóns- son. „Þaðer svo annað mál,” bætti Jón viö, „að siðferðiskennd almennings er ekki nógu ákveöin og stjórnmálamennirnir fá ekki nógu mikið aðhald. En þetta þjóðfélag okkar er náttUrlega allt annaö en i öörum löndum, hér er allt smærra og samtvinn- aðra.” Fjalla stjórnmál aðeins um efnahagsmál? Það hefur komið fram hér aö framan, að pólitisk umræða á Islandi eigi erfitt upp- dráttar. Þvi hefur og verið haldið fram, aö á hinni pólitisku umræðu megi merkja póli- tiskt siðgæði i landinu. Um það geta menn veriö ósammála en trUlegast eru margir sammáláþvi, að pólitisk umræöa hérlendis gæti verið málefnalegri. Við spurðum dr. Björn Björnsson prófessor um þessa um- ræðu. „Ein skýringin á þvi hversu siðferðilega bágborin hin pólitiska umræða vill verða gæti verið sU, hversu háð hUn er flokkspóli- tiskum málgögnum,” sagði dr. Björn. „Slik’málgögn eru næstum knúintil að vikja út af braut sannleikans, nú eöa láta satt kyrrt liggja, sé þaðflokknum i hageðaand- stæðingnum i óhag. Slik málgögn temja sér leikreglur i mannlegum samskiptum, sem þættu allsendis óþolandi til dæmis á vinnu- stað eða á heimili. Alið er á tortryggni manna á meðal, pólitiskir andstæöingar eru bornir þungum ásökunum en gjörðir okkar eigin manna ætið réttlættar. Sú þum- alfingursregla virðist gilda, að sjáirðu flis i auga bróður þins, þá skaltu umsvifalaust gera Ur henni bjálka. Sé enga flis að sjá, þá gildir aö búa hana til. Það siðasta sem ég vildi nefna varðandi pólitiskt siðgæði á Islandi um þessarmund- ir er dálitið annars eðlis. Mér finnst það bera vott um kannski ekki lágt en brenglað pólitiskt siðgæöi hversu einskorðuð hin pólitiska umræða er við skammtimalausn- ir, fyrst og fremst af efnahagslegum toga. Ætla mætti samkvæmt þessu, aö stjórnmál fengjust einungis viö efnahagsmál. En svo er auðvitaö ekki. Stjórnmál velta upp hin- um stóru spurningum um manninn, um mannlegt samfélag, um völd og áhrif, um réttlæti, um friö. Stjórnmál endurspegla ætiö tiltekið verðmætamat. Um þessa hlið málanna skortir tilfinnanlega umræðu. A meðansvoer, er litil von tilþessað pólitiskt siðgæði nái þeirri reisn, sem gera verður kröfu til,” sagði dr. Björn Björnsson. Við látum það verða lokaorðin i þessari um- fjöllun um pólitiskt siðgæði á islandi 1982. Egill SkUli Ingibergsson: Stjórn- málamenn eru fyrst og fremst I slag. Svavar Gestsson: Aróður Sjálf- stæðisflokksins lágkúrulegt póli- tiskt siðleysi. Jón Sólnes: Þetta fylgir sam- steypustjðrnunum — samábyrgö siðleysisins hefur alltaf verið til« Jón Jónsson: Stjórnmálamenn irnir fá ekki nóg aðhald. Asmundur Stefánsson: Spillingin var miklu meiri á haftaárunum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.