Helgarpósturinn - 10.12.1982, Side 16
Te
fyrir tvo
...er ein af mörgum hljómsveit-
um sem hefur spilað á músíktil-
raunakvöldum í Tónabæ. Þeir
komu fram fimmtudaginn 23. nóv
ember og lentu í neðsta sæti.
Aðrar hljómsveitir sem komu fram
þctta kvöld voru: Meinvillingarnir,
Lotus og Satus frá Stykkishólmi,
sem lenti í fyrsta sæti.
Teboð
Hvað um það. Te fyrir tvo bauð
mér í heimsókn nýlega og ég þáði
boðið, Þar voru fjórir piltar sam-
ankomnir, þeir Trausti Jónsson
(húðaþrumari), Kristján Leifson
(bassaplokkari) og þeir Bragi
Valgeirsson og Ásgeir Pálsson
barkabeitar.
Vitlaust kvöld
Við byrjuðum auðvitað að tala
um Músíktilraunirnar: „Við vorum
eiginlega á vitlausu kvöldi; þessar
hljómsveitir voru svo heföbundnar
og langt á eftir í tónlist“ - „Nema
þessi sem vann, þau voru nokkuð
góð“.
ósáttir...
Það mátti hcyra á strákunum að
þeir voru ekki alveg sáttir við
skipulagið á Músíktilraunum. Ég
spurði hverju þeir vildu breyta.
„Okkur finnst að það ætti að vera
dómnefnd, eins og t.d. í hæfi-
leikakeppni Kópavogs" (strák-
arnir eru úr Kópavogi), „það er
ekki nógu gott að láta áhorfendur
bara dæma, því þá geta hljóm-
sveitirnar smalað liði..alveg einsag
Selfyssingarhir gerðu þetta kvöld“.
Nú hvernig þá?
„Þeir komu með fulla rútu af
liði með sér - en þeir voru ekki með
nógu mikið frumsamið til að geta
unnið“.
Og meira um skipulagið.. „Okk-
ur finnst að það ætti að skipta
kvöldunum eftir músík".
lærðum mikið
„En við lærðum mikið af þessut'
- „Núna ætlum við ekkert að spila
fyrr en eftir áramót, við ætlum að
skipta algerlega um prógramm".
Hvernig verður það öðruvísi?
„Hingað til höfum við spilað
spænskt líkkisturokk - en núna ætl-
um við að þróa upp hjá okkur ís-
lenskt náttúrurokk"....Við vilj-
um hafasoidið léttara yfirþessu..."
alvaran inní
Hvað með textana...?
„Við höfum verið mikið með
gríntexta, en núna er ætlunin að
blanda alvörunni inní“... „Allt
frumsamið".
Á að gefa eitthvað út??
„Stefnum að því að gefa út
plötu.. allavega plötuumslag, ann-
ars er aðalmarkmiðið að skemmta
öðrum“.
vantar staði
Hvar getiði spilað nýja pró-
grammið?
„Það vantar alveg staði til að
spila á“. „Á Villta þarf maður að
vera svo hræðilegur diskógæi svo
hjá Upp og Ofan eru alltaf sömu
grúppurnar. Við spilum allt öðru-
vísi músík.. en það er samt algjör
misskilningur að við séum pönk-
hljómsveit.“
sýiishorn
Að lokum ætla ég að birta eitt
sýnishorn af textum hljómsveitar-
innar, og þið myndið ykkur bara
skoðun...
Jón.
Jón var úti í garði
að raka saman
laufblöðunum sínum.
Hann er vesalingur
hlustar á gelda tónlist
hann er giftur rauðsokku.
Hann er ósköp venjulegur
drengur
étur kókó-pöfjs í hádeginu
og efað kókópöffs er ekki til,
þá fœr hann sér lökkí tjarms
eða kelloggs kornfleks...
í Tónabæ
Laugardaginn 4. desember hóf-
ust Maraþon tónleikar í Tónabæ.
Ætlunin er að spila daga og nætur í
fimmtán sólarhringa og reyna þann-
ig að slá heimsmet.
Hver hljómsveit spilar í 6 tíma í
einu og fær fimm mín. hlé eftir hver
þrjú lög.
Það er Satt sem stendur fyrir
þessu maraþoni í samráði við
Tónabæ.
Tækifæri
Nú er komið enn eitt tækifærið
fyrir hljómsveitir sem vilja koma
fram. Állir sem vilja mega taka
þátt... hafiði bara samband við
Tónabæ..
Það þarf 60 hljómsveitir ef þetta
á að takast. Drífið ykkur í
Tónabæ!!!
Mynd frá Maraþon, tekin 7. des.
Flytjendur: Einar Rúnarsson,
Guðbrandur Gísli Brandsson
(hljómborð), Gunnar Örn Sig-
urðsson, Magnús Jónsson (gít-
ar), Friðbjörn H. Ólafsson
(bassi), Guðbrandur og Einar
(bassi)
...fyrir alla
Og auðvitað eru allir áhorfendur
velkomnir hvenær sem er... það
kostar 50 kr. inn (happdrættismiði
Satt innifalinn).
Verðlaunin, já ekki má gleyma
þeim...
Þær hljómsveitir sem spila í
meira en 12 klukkutíma fá 20
stúdíótíma í verðlaun...
Þetta eru Gísli og Þorbjörg
Wm ~
Snjólaug og Guðjón segja álit sitt.
Ilærisplanið
krökkum á þessum aldri“. „Ég
fékk reyndar svolítið á tilfinning-
una að höfundur vildi hafa allt sem
gæti gerst, með í bókinni".
„gott mál“
Snjólaug bætti við að henni fynd-
ist málið á bókinni gott, - „ung-
lingamál" - og að sagan kæmi heim
og saman við reynslu hennar af
unglingunum og Planinu, nema
hún bætti við að það „pirraði" hana
hvað stelpurnar í bókinni væru
gerðar svæsnar og látnar vera til í
allt, „því ég held einmitt að þetta sé
öfugt í rauninni“, sagði hún að
lokum.
MISTÖK
í síðasía Stuðara birtust ekki réttar myndir af bókagagnrýnendun-
um. Hérna kemur myndin af þeim Gísla og Þorbjörgu sem lásu Á
flótta undan nasistum og Leyndardóm gistihússins. Eg vona að þið
fyrirgeflð mistökin...
Bók vikunnar heitir Hallæris-
planið og er eftir íslenskan höfund,
Pál Pálsson. Ég fékk þau Snjólaugu
og Guðjón til að lesa bókina og
segja álit sitt á hcnni. Snjólaug get-
ur nú varla talist til unglinga
lengur, en hún umgengst mikið
unglinga og er sérfræðingur í
þeirra málum, svo mér fannst alveg
tilvalið að fá hennar álit á þessari
unglingabók.
„nær andrúms-
loftinu"
„Mér fannst þetta alveg prýðileg
bók, reyndar mjög stutt", sagði
Snjólaug. „Hún nær nokkurn veg-
inn því andrúmsiofti sem er hjá
„gafst upp“
Þá sneri ég mér að Guðjóni.
Hann var fljótur að segja sitt álit á
bókinni, því hann hafði gefist upp
við lesturinn þegar hann var hálfn-
aður. „Ég hætti bara að lesa hana
af því hún var svo leiðinleg".. svo
mörg voru þau orð.