Helgarpósturinn - 10.12.1982, Síða 24
24
Föstudagur 10. desember 1982
hlelgai-----
pösturinn
<te\áa< «
^e\9a® *-
Innflytjendurnir
Howard Fast
„Ótrúlega mannleg og trúverðug saga,
sem þú munt njóta við lestur og aldrei
gleyma."
Daily Mirror.
Innflytjendurnir eru stórkostleg bók, um ít-
alska innflytjendur í Bandaríkjunum. Bókin
er saga Dan Lavette, sem er fæddur í sárri
> fátækt, en af harðfylgi stofnar skipafélag
sem verður stórveldi. Hann verður leiðtogi
ríkrar og valdamikillar fjölskyldu. Baksviðið
er San Francisco jarðskjálftarnir, fyrri
heimstyrjöldin og kreppan.
Innflytjendurnir eru merkileg saga, um
stórkostleg ævintýri, ástir, hamingju og
hörmungar á uppbyggingartímabili Kali-
forníuríkis.
Bernnúda þríhyrningurinn
eftir Charles Berlitz
Flestir kannast við að hafa heyrt talað um
Bermúdaþríhyrninginn. Far hafa í gegnum
árin gerst vægast sagt undarlegir atburðir.
Síðan 1945 hafa horfið á annað hundrað
skip og flugvélar með um eitt þúsund
manns innanborðs.
Charles Berlitz er víðfrægur fyrir rannsóknir
sínar á óskýranlegum fyrirbærum.
Metsölubók um allan heim!
ÆGISÚTGÁFAN
Elsku mamma
Höfundur: Christina Crawford
Þessi bók hefur valdið mikilli umræðu,
vegna þess hve hreinskilnislega er hér sagt
frá.
Sagan er sögð frá óvenjulegu sjónarhorni.
Hún er skrifuð af Christinu, dóttur hinnar
þekktu leikkonu Joan Crawford.
Heimilislíf þekktra kvikmyndastjarna er
ekki neinn dans á rósum, og oft er þar
stormasamt. Margt kemur hér á óvart, sér-
staklega fyrir þá sem ekki þekkja stjörnur
eins og Joan Crawford nema í kvikmynd-
um. Margir neita því að trúa að uppáhalds-
stjarnan þeirra hafi átt eins brogað líf og hér
er lýst.
Hér segir dóttir sögu móður sinnar og
dregur ekkert undan. Hver og einn verður
að meta fyrir sig, eftir lestur þessarar merki-
legu bókar.
samdrætti í vöruflutningum sem
aftur eiga rætur að rekja til þess að
farþegaflugvélar hafa í auknum
mæli farið inn á þá braut til að
mæta kreppunni í farþegafluginu.
yl Af því verið er að tala um
Y J flugmál þá heyrum við á Flug-
S leiðamönnum að þeim lítist
hreint ekkert á blikuna í innan-
landsflugi, því að fyrirsjáanlegt sé
verulegt tap á því, svo mjög að það
sé nú að verða helsti höfuðverkur-
inn í rekstri þess...
»y%Búist er við því að flug-
f' Istöðvarmálið svokallaða, þ.e.
-^lbygging flugstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli, komi upp á yfir-
borðið aftur þegar þing kemur
saman að loknu jólaleyfi þing-
manna, og er sagt að Framsóknar-
menn muni nú að engu hafa sam-
þykktir stjórnarsáttmálans sem
fært hefur Alþýðubandalaginu
stöðvunarvald í málinu. Telja þeir
sig engu hafa að tapa í stjórnarsam-
starfinu lengur - það taki því ekki
fyrir Alþýðubandalagið að rjúfa
stjórnarsamstarfið út af þessu máli
og telja Framsóknarmenn álitlegra
fyrir sig að sýna að þeir séu hvergi
fdrifaríkur fundur um
framtíð Cargolux verður hald-
inn í Luxemborg á næstunni.
Fyrirtækið á enn við gífurlega erf-
iðleika að stríða og kann að koma
til greina á þessum fundi að starf-
seminni verði hreinlega hætt eða
dregið svo verulega úr henni, að
félagið verði vart svipur hjá sjó'n
frá því sem var. Erfiðleikar félags-
ins stafa fyrst og fremst af miklum
hræddir. Munu bæði Ólafur Jó-
hannesson og Jóhann Einvarðsson
mjög ákveðnir í afstöðu sinni og
vilja láta sverfa til stáls í málinu...
^ Það ætlar ekki að ganga
/v \ átakalaust hjá þeim Arnar-
S\ flugsmönnum að kaupa nýja
flugvél í stað þeirrar sem hefur ver-
ið dæmd ónýt vegna tæringar og
var nýlega seld til niðurrifs á Ir-
landi. Fyrir skömmu leit út fyrir, að
flugvélakaupin væru að leysast og
búið var að gera tilboð í Boeing vél
af gerðinni 727-200 sem er í eigu
Singapore Airlines, vél sem kostar
9-10 milljónir króna. En skyndi-
lega bárust þau boð til Arnarflugs,
að ekkert yrði af kaupunum og
Gunnar Þorvaldsson forstjóri varð
að halda aftur utan til að leita að
annarri vél. Fregnum ber ekki
saman um það hvort umrædd flug-
vél var keypt fyrir framan nefið á
þeim Arnarflugsmönnum eða
Singapore Airlines hætti við að
selja á síðustu stundu. En hvað sem
því líður eru þeir Arnarflugsmenn
enn að leita að flugvél fyrir sumar-
flugið næsta sumar og valið stendur
á milli Boeing 727-200 og Boeing
737-200, sem er nokkru minni, en
hinsvegar dýrari. Vél af þeirri
gerð, þriggja til fjögurra ára göm-
ul, kostar 12-14 milljónir króna, en
aðeins um hálf önnur milljón
fékkst fyrir tærðu vélina, svo það er
engin smá fjárfesting sem Arnar-
flug stendur frammifyrir nú...
Rannsóknarmenn
f' l sýslumannsembættisins á
S Selfossi vinna ötullega að
rannsókn brunans í Allabúð á Stok-
kseyri um mánaðamót október/
nóvember s.l., undir stjórn Karls
F. Jóhannssonar, sýslufulltrúa.
Eins og kunnugt er sat eigandi
verslunarinnar í gæsluvarðhaldi
um tíma, enda er hann grunaður
um að hafa verið valdur að bruna-
num í búðinni og bentu niðurstöð-
ur sérfræðinga til að eldfimum vök-
va hafi verið hellt þar um sali áður
en eldurinn kom upp. Menn hafa
eðlilega nokkuð velt fyrir sér hugs-
anlegri ástæðu brunans, en eigandi
Allabúðar hefur auk verslunarinn-
ar á Stokkseyri rekið verslun í
Hveragerði. Þá rak hann og sölu-
skála í Hveragerði og hóf nýlega
rekstur söluskála ásamt bensínsölu
á Stokkseyri en sá skáli mun vera í
eigu Olíufélagsins Skeljungs h.f.
BÍLALEIGA
Mesta úrvalið.
Besta þijónustan.
Skeifan 9, 108 Reykjavik s. 91-86915
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
s. 96-23515
Verslunareigandinn er ekki alveg
ókunnugur olíuverslun. 1. sept-
ember s.l. yfirtók nefnilega Olíu-
verslun íslands (Olís) verslunina í
Hveragerði ásamt fasteign og vöru-
lager. Urðu eigendaskipti þessi
vegna skulda verslunareigandans
við Olís. Hafði hann dregið að gera
upp bensín- og olíusölu um langan
tíma og skuldaði orðið Olís rúmar
tvær milljónir króna....
| 0“T“ H|jómplötuverslun
LI O I Aðalstræti 9. Sími 22977
e\
\\s\
Kiúbbmeðlimir velja hvaða 4
plötur sem er, og svo eina í viðbót
ókeypis.
HLJÓMPLÖTUKLÚBBUR
TÓN-LIST