Helgarpósturinn - 28.07.1983, Side 16

Helgarpósturinn - 28.07.1983, Side 16
eða flugfreyja??? Þær heita Helga Björnsdóttir, Olga Guðrún Sigfúsdóttir og Heiðrún Pálsdóttir. Þær eru allar fjórtán ára. Þær vinna allar í unglingavinnunni. Líst ykkur ekki vel á þetta? Stuðaranum leist a.m.k. vel á og greip þær glóðvolgar, eða réttara sagt, ískaldar, í kuldanum um daginn, og bauð þeim inn í bilinn góða (gul Lada árgerð 1978),Og svo fórum við að rabba um heima og geima. —Hvernig líkar ykkur í ungl- ingavinnunni? „Það er ferlega leiðinlegt. Kaup- ið er lélegt, 31.40 kr. á tímann og veðrið er ömurlegt“ segja þær hálf skjálfandi. (Og „sumarið" er að verða búið) „Já við erum að verða brjálaðar útaf veðrinu," bæta þær við og halda svo áfram: „Þetta er enginn peningur sem við fáum, tæplega sexhundruð kalla á viku og ein bíóferð kostar a.m.k. 90 kall og við reynum að Ieggja eitthvað fyrir.“ „Ég er t.d. að safna gjaldeyri fyrir næsta sumar. Ég ætla til Bandaríkj- anna“, segir Olga Guðrún. Fjör í Valsskála — Eru fleiri stelpur í unglinga- vinnunni, en strákar? „Já þær eru fleiri, það er eins og strákarnir fái frekar vinnu hjá pabba sínumí1 — Hafiði eitthvað farið í útilegu í sumar? „Ég fór á Sognhátíðina rétt fyrir • utan Hveragerði um helgina“,segir Olga Guðrún, „það var fínt“ Helga og Heiðrún: „Við fórum uppí Heiðmörk og á Þingvöll og Selfoss. Það var allt í lagi. Um dag- inn fórum við uppí Valsskála og það var æðislegt“7segja stelpurnar með glampa í augum. Þær æfa nefnilega fótbolta með Val en Olga Guðrún æfir handbolta með Vík- ing. — Er algengt að stelpur leiki fót- bolta? SYNGJANDI SVEINAR MEÐ Og þaö eru fleiri búnir aö gefa út plötu en Hálft í hvoru. Eg er nú hrædd um þaö. Þaö var rosa veisla um borð í Ms. Eddu þegar nýja Stuðmanna- platan, Grái fiöringurinn, var kunngjörö blaöasnápum borgarinnar. Já, og okkur meira aö segja boðið upp á bannvöruna bjór. — Ekki meir um þaö. Grái fiðringur Stuö- manna fjallar aö sjálfsögðu um reynsluheim karla. Undir- tónn plötunnar er kynferðis- legur. Á plötunni eru sex lög, „Fáirréttiren góöir, matreidd- ir aö hætti hinnar hagsýnu húsmóður,“ sagöi Valgeir Guðjónsson m.a. um borö í Ms. Eddu. En nú nú. Stuðmenn eru ekki lengi um borö í Eddu. Þeir komu reyndar heim á miövikudaginn var (Fóru á miövikudeginum áöur.) Ætl- unin er aö þeir skelli sér í Atla- víkina um verslunarmanna- helgina þessa (Ætla ekki til GRAAN FIÐRING Vestmannaeyja, ef einhver skyldi misskilja). Síöan ætla þeir aö bruna um allt landiö þvert og endilangt. Syngjandi kátir sveinar Og sei sei. En Stuöarinn biður bara aö heilsa og þakkar svo bara fyr- ir síðast. Bæjó. Stuðarinn ræðir við Helgu, Olgu Guðrúnu og Heiðrúnu „Já, já það er orðið algengt. Við erum núna að keppa á íslandsmóti yngri kvenna. Höfum nú þegar spil- að tvo leiki, töpuðum einum og gerðum jafntefli í öðrum. Það eru nokkuð stífar æfingar. Við æfum tvisvar í viku og svo er keppt á mið- vikudagskvöldum!1 Olga: „Við í Víking erum í pásu núna. Við kepptum á íslandsmóti í vor og eftir það fór Víkingur til Sví- þjóðar og Danmerkur, í september hefjum við svo æfingar að nýju“ Dallas væmin vit- leysa — Fariði ekkert á tónleika? „Nei, það er svo dýrt inn“ — Hlustiði á útvarp? „Stundum á lög unga fólksins, þegar maður man eftir þeim og á unglingaþætti!* — Hvað með sjónvarp? „Það er mjög sjaldan. Kannski Derrik og Dallas, að venju þótt það sé væmin vitleysa!* — En hvaða blöð lesiði? „Við lesum Vikuna, Moggann, DV, Samúel og Bravo og einhver poppblöð!* Leiöinlegt í skólan- um — Hlakkiði til að byrja í skólan- um í haust? Neeheii „það er svo leiðinlegt!1 — Hvað er svona leiöinlegt? „Það er svo leiðinlegt að læra „heima!‘ Stundum og stund- um ekki — Hvað ætliöi að verða þegar þið eruð orðnar stórar? „Við vitum það ekki. Hjúkrunar- kona, hárgreiðslukona eða flug- freyjaþ stingur Olga Guðrún upp á. — Pæliöi ekkert í kvenréttinda- málum? „Nei.“ — Jæja, eigum við ekki að fara að slá botn í þetta rabb. — Er gam- an að lifa? „Stundum og stundum ekki. Oft- ast. Það er leiðinlegt þegar maður er að rífast. Stundum getur maður rifist úr af öllu við pabba og mömmu og vinkonurnar. En oftast er bara gaman að lifaj* segja stelp- urnar að lokum og Stuðarinn þakk ar fyrir spjallið. ab i'&'* v'»"‘ ov" Alltaf sömu strák- arnir í spilakössun- um — Þið eruð ekkert á kafi í tölvu- spilunum? „Við eigum nú allar lítil tölvuspil, en erum orðnar leiðar á þessum inn- antómu leikjum!* — Fariði kannski í spilakassana? „Nei, eiginlega aldrei.“ — Mér virðist sem það séu aðal- lega strákar sem stundi þá iðju, er það rétt? „Já, þeir eru ansi iðnir við spilin, alltaf sömu strákarnir sem koma dag eftir dag og eru orðnir alveg fastir við kassann. Staður eins og Tralli og Billi eru ansi vinsælir!* — En þið? Fariði á Planið? „Nei, það eru fáir þar núna. Flestir fara í D-14 það er nýr skemmtistaður í Kópavogi. Á fimmtudögum er þar opið fyrir fjórtán ára og eldri“ — Já guðsþjónustur hafa verið í Ölduselsskóla, er það ekki? „JÚ, en við fáum örsjaldan að hafa diskótek, varla einu sinni í mánuði. Þetta er miklu betra í Seljaskóla. Þar eru diskótek einu sinni í viku á veturna. En skólinn stendur auðvitað auður yfir sumar- tímann!* — Læriði einhvern tíma heima? „Nei, sjaldan eða aldrei!* — Og eru ekki allir aðal krakk- arnir í skólanum? „Jú, það er kannski það eina. En það er svo leiðinlegt að vera rekin út í frímínútur.“ — Iss, þetta er nú meiri barlóm- urinn í ykkur. Vilja frekar félags- miðstöð en kirkju — Nú búiði allar í Breiðholtinu í Seljahverfinu. Hvað brennur heit- ast á ykkur? „Okkur finnst að það ætti frekar að byggja félagsmiðstöð en kirkju. Það koma svo fáir í kirkju og það er nóg að hafa eina kirkju fyrir allt Breiðholtið. — Svo finnst okkur Iíka allt í lagi að messa í skólanum, eða bara í félagsmiðstöðinni!'

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.