Helgarpósturinn - 28.07.1983, Blaðsíða 24
Eins og kunnugt er á Lána-
f~ J sjóður íslenskra námsmanna
S við mikinn fjárhagsvanda að
etja. Albert Guðmundsson, fjár-
málaráðherra hefur lýst yfir vilja til
að leysa vandann í samráði við
stjórn LÍN. Helgarpósturinn hefur
heyrt að „samráðið" felist í því, að
fá stjórn LÍN til að standa sjálfa að
þeirri skerðingu á námslánum sem
Fjármálaráðuneytið óskar eftir.
Þennan málarekstur annast Geir
Haarde, formaður Sambands
ungra Sjálfstæðismanna og aðstoð-
armaður Alberts Guðmundssonar.
Þrátt fyrir harða frjálshyggjustefnu
gagnvart námsmönnum, er Geir
Haarde kunnur af því að hafa þegið
viðurværi sitt úr opinberum sjóð-
um. Hann var til skamms tíma sér-
legur aðstoðarmaður Sigurgeirs
Jónssonar, aðstoðarseðlabanka-
stjóra og hann á einnig sæti í stjórn
Kísilmálmvinnslunnar á Reyðar-
firði sem varð fræg af óhóflegri
meðferð skattfjár borgaranna þeg-
ar hún skammtaði sér ómæld laun,
utanferðir o.fl., eins og Helgarpóst-
urinn skýrði frá í fyrrasumar.
Helsta markmið Geirs Haarde í
„samráðinu" við stjórn LÍN mun
vera að fela stjórn Lánasjóðsins að
reikna út leiðir til að skerða lán
námsmanna sem mest án þess að
það brjóti í bága við lög um náms-
lán og námsstyrki. Hann er sagður
bregðast hinn versti við þegar
stjórnin lætur ekki að vilja hans í
þessum efnum. Helgarpósturinn
hefur heyrt að á nýliðnum samráðs-
fundi hafi Geir Haarde hlaupið upp
og tilkynnt einum stjórnarmanni
LÍN, að nærveru hans væri ekki
lengur óskað á fundinum. Vék
stjórnarmaðurinn af fundi eftir
nær klukkustundar „samráð".
Þegar blöðin birtu nú í vik-
/ J unni lista yfir hæstu gjald-
y endur skatts í Reykjavík ráku
margir upp stór augu þegar þeir sáu
hver skipaði 2. sætið yfir hæstu
gjaldendur aðstöðugjalds í Reykja-
vík. Þar var komið Tónlistarfélag-
ið. Því er samkvæmt skattskrá gert
að greiða 11.375.000 kr. í aðstöðu-
gjald á þessu ári. Aðeins SÍS er
hærra á þessum lista, en Tónlistar-
félagið skýtur aftur fyrir sig fyrir-
tækjum á borð við Flugleiðir, Eim-
skip, Hagkaup, Hafskip og tvö
tryggingafélög. Tónlistarfélagið er
með nokkurn rekstur sem heyrir
undir menningarmál og því skatt-
Fimmtudagur 28. júlf 1983'
jjfísturinn
laus. Er þar helst að nefna Tónlist-
arskólann í Reykjavík. Einnig á það
nokkrar húseignir á góðum stöðum
í borginni. Ekki er þetta þó skýring-
in heldur er það rekstur Tónabíós
sem hleypir aðstöðugjaldinu upp í
þessar hæðir. Ekki ber þó að líta
svo á að rekstrartekjur bíósins hafi
verið svona ofboðslegar á síðasta
ári heldur er skýringin sú að bíóið
skilaði ekki skattframtali og því á-
ætlaði skattstjórinn gjaldið. Þessi
áætlun samsvarar því að rekstrar-
tekjur bíósins hafi verið hartnær
einn milljarður króna...
í helgarblöðunum um síðustu
f~J helgi var heilsíðuauglýsing
y frá Húsasmiðjunni hf. hér
í borg þar sem er spurt: „5000 kr.
mánaðargreiðsla fyrir nýtt einbýlis-
hús. Er það hægt?“ Þessari spurn-
ingu er hvergi svarað beint, en það
er gefið í skyn að þetta sé hægt. í
auglýsingunni eru einnig tíunduð
húsverð og greiðsluskilmálar. Þar
er m.a. boðið upp á 107 fermetra
einbýlishús fyrir 490.000 kr. Þar af
greiðast 10%, eða 49.000 út við gerð
samnings og 5.000 kr. á mánuði í
hálft þriðja ár eða þangað til 40%
húsverðsins hafa verið greidd. Þá er
húsið afhent, en eftirstöðvarnar,
294.000, eiga að greiðast á 18 mán-
uðum. Við afhendingu er húsið frá-
Nú getur þú eignast einbýiishús
— eftir þínum óskum — án þess að fá magasár
SNORRAHÚS
heitir það
‘by00 mánaftargraiÖBla fyrir
nýtt elnbýtixhús. Er það hægt?
Kynntu þór þessa nýju mögulefka
i|k
IBYLISHUS — fyrir unga sem aldna
.. _ ri7--.vvíi
gengið að utan „á þínum grunni“.
Sem þýðir að kaupandi þarf sjálfur
að kaupa lóð, byggja grunn og
ganga frá öllum leiðslum áður en
hægt er að semja um húsakaupin.
Fyrirtækið býður einnig upp á
samskonar hús tilbúið undir tréverk
á lóð sem fyrirtækið hefur fengið
úthlutað í Grafarvogi. En þá kostar
húsið liðlega 2.1 milljón króna.
Með sömu skilmálum þarf að borga
212.000 kr út við samning, 10.600
kr. á mánuði í 5 ár og eftir það
1.272.000 á 18 mánuðum. Og vita-
skuld allt verðtryggt samkvæmt
byggingarvísitölu. Sniðugt, ekki
satt?...
stræti 7. Þar verður veitt öll almenn þjónusta á sviði
erlendra viðskipta. Um leið voru opnaðar gjaldeyris-
afgreiðslur í útibúum bankans í Reykjavík og úti á landi.
Búnaðarbankinn býður viðskiptavini velkomna í bankann
til gjaldeyrisviðskipta.
^BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
PLASTPOKA OG PRENTUN FÆRÐU HJÁ