Helgarpósturinn - 17.11.1983, Qupperneq 11
gangastúlkur og ein hjúkrunar-
kona sinni 300 vistmönnum á
næturnar. Þetta þykir ægilega lít
ið. Nú er það svo að níutíu prósent
af fólki sefur um nætur enda segir
næturhjúkrunarkona sem unnið
hefur á Grund í fimmtán ár að vel
sé hægt að koma af verkunum
með þessum mannskap. Hún er
kannske örlítið dómbærari á það
en Dagmar.
Þar sem mér leiðist karp læt ég
hér með lokið, af minni hálfu,
skrifum um þetta mál. Mig langar
þó að minnast á þá tillögu Særiín-
ar að þar sem ég sé svona mikil
höfðingjasleikja ætti ég frekar að
færa Gísla blóm en vera að skrifa
um þessi mál.
Þetta er alls ekki slæm hug-
mynd og alveg víst að Gísli á frem-
ur skilin blóm en sérfræðingar
Helgarpóstsins í málefnum
aldraðra.
Með ljúfri kveðju
ÓIi Tynes
Naudug/viljug
og smekkurinn
Nokkrar upplýsingar fyrir
sjónvarpsgagnrýnanda
Helgarpóstsins Pál B. Bald-
vinsson.
Eg er afskaplega leiður yfir því,
að þér féll illa lýsingin í innisenun-
um í Nauðug/viljug, en að um
ofanlýsingu sé að ræða er rangt
hjá þér væni minn. Ofanlýsing í
innisenum er engin, nema sú sem
tilheyrði leikmyndinni og er þá
ljósgjafinn oftast sjáanlegur í
mynd, þ.e. í axlar- eða höfuðhæð
standandi manns. Vertu ekkert að
færa rök fyrir smekk þínum nema
þú hafir vit á, það borgar sig ekki
að sveifla svona orðum sem þú
hefur heyrt, nema þau eigi við.
Þú minnist á eitt innskot úr
gamalli varúlfamynd. Innskotin
voru nú reyndar fleiri og ekki
eldri en önnur myndskeið í
Nauðug/viljug. Upplýsingar um
þetta lágu frammi á forsýning-
unni.
Einnig ræðir þú um „Þessar
elskur sem ekkert fá nema launin
sín og festa sárafá verk á filmu ár-
lega“. Ég væri ánægður með eitt
verk á ári, en því miður líða hér
tvö til þrjú ár á milli verka að jafn-
aði. Það sem af er þessu ári hefur
kvikmyndadeild Sjónvarpsins
ekki tekið upp neina leikna mynd.
Varðandi spurningu þína hver
hafi valið þetta stykki til vinnslu,
ráðlegg ég þér að leita svara hjá
Hrafni Gunnlaugssyni, en hann
var leiklistarráðunautur Sjón-
varpsins er Nauðug/viljug varð
ofaná.
Virðingarfyllst
Baldur Hrafnkell Jónsson
kvikmyndatökumaður
Nú bjóðast verðtryggð spariskírteini
ríkissjóðs með betri kjörum en áður.
Hærri vextir
Vextir eru nú 4,16% í stað 3,5% áðiir.
Innlausn
tvisvar á ári
Að loknum binditíma sem er 3 ár eins
og áður, verða nú tveir gjalddagar á ári
í stað eins.
Andvirði seldra skírteina verður varið
til aðgerða í húsnæðismálum.
Skírteinin eru seld á nafnverði
til 1. desember n.k.
Að öðru leyti eru kjör spariskírteinanna sambærileg við
fyrri útgáfur t.d. að því er varðar skattalega meðferð.
Þau eru sem fyrr áhyggju- og fyrirhafnarlaus fjárfesting,
sem skilar öruggum arði.
Sölustaðir em bankar, sparisjóðir
og nokkrir verðbréfasalar.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
BÍLBELTIAFTURÍ BJARGAR!
Samkvæmt skýrslum Umferðarráös slösuðust 166 farþegar í bílum fyrstu 9 mánuði 1983, þar af sátu 79 í aftursæti - án bílbelta. Ljóst er
að margir hefðu sloppið við meiðsli, ef þeir hefðu notað bílbelti. Til þess að örva notkun bílbelta í aftursæti og þar með fækka slysum á
farþegum, býður ÁBYRGÐ HF., fyrst tryggingarfélaga, ennþá betri tryggingarverndþegaraftursætisfarþegarnotabílbelti.
Framyfir aðrar tryggingar greiðum við 50.000 krónur við dauðsfall og allt
að 150.000 krónur við örorku ef farþegar í aftursæti í einkabílum, tryggð-
um hjá ÁBYRGD HF., slasast alvarlega þrátt fyrir notkun bílbelta.
Þessi aukatrygging gildir einnig um ökumenn og farþega í framsæti í
einkabílum með ökumanns- og farþegaslysatryggingu hjá ÁBYRGÐ HF.,
slasist þeir alvarlega þrátt fyrir notkun bílbelta.
Tryggingafélag bindindismanna
HELGARPÓSTURINN 11