Helgarpósturinn - 02.02.1984, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 02.02.1984, Blaðsíða 7
■*. v *- * u t » vv % > vnn v vn:wiik”WlV* ‘' • -.v.v.vfesfrrtffwrFWf% 4 ÞANNIG RGARÐU LÆGRI SKATT Það er ekki sama með hvaða hætti þú útfyllir skatt- skýrsluna þína. Nœsta auð- velt er að tapa tugum þús- unda á því einu að misskilja einhvern lið skattframtals- ins. Sú viðleitni að gera sér grein fyrir öllum þeim möguleikum sem bjóðast við útfyllingu skýrslunnar er í rauninni stórkostleg mennt. Endurskoðendur sem HP hafði samband við í þessum nýbyrjaða framtalsmánuði voru á einu máli um það að fólk væri margt mjög and- varalaust gagnvart útfyll- ingu framtals síns. Allt of mörg dœmi væru þess að fólk hefði, sakir þekkingar- skorts, ekki ratað á rétta möguleika við gerð skatt- skýrslu sinnar, og þessvegna fengið öllu hærri gjöld en það hefði með réttu þurft að borga. ,, Fólk er ákaflega gleymið í þessum efnum. Það vantar eirð og þolinmœði til að setj- ast niður og kynna sér skatta- lögih svo það geti talið þann- ig fram að útkoman verði því sem hagkvœmust, “ sagði viðurkenndur skattasér- frœðingur við HP. Hann kvað það vera svipað milli ára, hvaða liði skattfram- talsinsfólk misskildi, ellegar hvaða frádráttarmöguleik- um því vœri hættast við að gleyma. Hann sagðist svo sem vel geta nefnt okkur þá alla. Og við tókum hann á orðinu.____________________________ eftlr Slgmund Ernl Rúnarsson ,,Það er allt of algengt að fólk fylli út framtölin sín með þeim hætti að það greiðir töluvert hærri skatta en það þyrfti ef rétt hefði verið að málum stað- ið. Það er auðvelt að láta sér yfirsjást. Og ekki þarf að misskilja nema fáeina liði í framtalinu til þess að skatturinn hækki um nokkra tugi þúsunda, jafnvel yfir hundrað þúsund í versta fal!i.“ Þetta segir téður skattasérfræðingur og heldur máli sínu áfram: „Það er sér- staklega vandratað um skattalögin fyrir þá sem eru með flókið heimilisbókhald af einhverjum ástæðum. Ég get nefnt húsbyggjendur sem dæmi. Margirþeirra láta sem betur fer endurskoðendur líta yfir framtalið sitt og leiðrétta ef með þarf, áður en þeir skila því. En því mið- ur, vil ég segja, treysta of margir á eigin þekkingu á þessum efnum. Mjög al- gengt er að í framtölum síðamefnda hópsins gæti misskilnings á því hvað sé frádráttarbært og hvað ekki, ellegar þeir velji sér frádrætti í óhagkvæmari liði en skattframtalið býður upp á. Það er enda ekki hlaupið að því fyrir almenning að telja fram eftir leiðbein- ingapésa ríkisskattsstjóra. Hann er frá- leitt aðgengilegur fyrir þá sem vilja afla sér frumþekkingar á þessu sviði. Orða- lag hans er um of flókið, óskýrt og sér- fræðilegt. Að minnsta kosti er það mín reynsla af framteljendum að þeir þurfi að stúdera vissa liði leiðbeininganna Sjá næstu sídu HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.