Helgarpósturinn - 02.02.1984, Qupperneq 12
WmmMmMMMMWMMMMMMMMMMMWMMMMMMMMMMMMMMá
Þriðja píning (fyrir karlmenn)
Fátt fer jafn óskaplega í taug-
arnar á konu og það að hafa
gifst rolu. Eins og þið vitið álítur
hver kona að henni geti ekki
skjátlast í vali sínu á karlmönn-
um og síst á eiginmanninum
sjálfum, enda hafið þið heyrt
hverja konu segja:
Hafi ég vit á nokkru hef ég vit
á karlmönnum. Þeir eru allir
eins.
En í þessu skjátlast konunni,
auðvitað, vegna þess að enginn
karlmaður er öðrum líkur. Ef
fjölbreytni er til í nokkru þá er
hún í karlmannagerðinni. Aðra
eins fjölbreytni og í henni hefur
ekkert mannlegt auga litið. Það
er ekki til fjölbreyttara úrval af
þvottapokum en karlmönnum.
Og þessu megið þið trúa.
Ef þú ert rola þá skaltu reyna
að leyna því á ballinu þar sem
þú nærð þér í konu. A öðrum
stöðum er nú engin leið að ná í
þær. Haldið ekki að hægt sé að
ná sér í kvenmann í kirkju, úti á
götu, við það að gefa öndunum
á tjörninni eða inni í símaklef-
um. Nei, til þess eru böllin að
bestu menn nái sér þar í konu;
og jafnvel aumingjarnir líka.
Ef þú ert rola skaltu ræða
endalaust um rallí. Ef hún rekur
upp stór augu skaltu segja að
Pirellihjólbarðar séu ekki fyrir
bílinn þinn (sem þú átt auðvitað
engan fremur en aðrar rolur) og
segðu að þú látir aldrei sóla
dekkin og þér þyki ekki taka því
að taka nagladekkin undan á
sumrin vegna þess að þú sért
líka þá í torfæruakstri — ,,á jökl-
um úti“. Segðu það með áherslu
á úti. Auðvitað fer hún þá að
verða afskaplega skotin og láta
eins og hún sjái þig ekki heldur
félaga þinn, sem er líka rola en
kann ekki að leyna því. Þú skalt
kalla hann fjörkálf og þá fer hún
að verja hann gegn þér, því það
finnst konum svo gott þegar þær
eru að ganga í gildruna sem þær
verjast. „Látt’ekki sona," segir
hún. „Hann sem er svo ágætur
nagli."
Rektu nú upp roknahlátur og
biddu alla við borðið að skála í
botn. Það gerið þið auðvitað og
skálið sérstaklega fyrir vininum
og klappið á herðarnar á honum
sem kiknar og lifnar við og læt-
ur tunguna lafa: Það vekur enn
meiri kátínu, en enga ást. Þeir
sem ætla að gerast fjörkálfar
með lafandi tungu og rang-
hvolfdum augum renna venju-
lega á rassinn á kvennafari. Það
krefst rólegheita. Heimtaðu
núna þú fáir að aka fullur. Láttu
so öllum illum látum. Heimtaðu
að aka fullur. Segðu að þér sé
sama um lögregluna. Segðu að
bílstjóri vanur torfæruakstri og
röllum geti ekið rétt rakur. Láttu
í það skína að þú þolir þrjár
flöskur.
Nei, segir hún. Nú ek ég þér
heim, sko.
Og það gerir hún enda mann-
eskja sem stendur ævinlega við
orð sín: hún léti heldur drepa sig
en ganga á bak orða sinna, hún
léti heldur hengja sig, pína sig,
limlesta sig.
Daginn eftir þegar þú vaknar,
vaknar þú auðvitað í þínum eðli-
legu roluham, en hún er tilbúin
til að halda að þú sért timbraður
eða niðurdreginn og þreyttur
eftir nóttina med henni, því hún
krefst jafn mikils og hún gefur af
örlæti sínu. En til að breiða yfir
eðli þitt skaltu segjast vera langt
niður vegna framkomu þinnar
við vin þinn. Það finnst henni
vera afar mannlegt og virðir þig
enn meir. Nú ert þú niðurdreg-
inn dag eftir dag í hennar aug-
um og hún heldur að roluhamur
þinn sé samviskusemi og tryggð
og sektarkennd; og þú segist ná
þér aldrei. Og þá verður hún að
vera að hressa þig alla tíð, lífga
þig, hvetja þig, porra þið upp.
En þú verður alltaf að gera eitt-
hvað annað en þú átt að gera,
gleyma að koma í mat, hangsa
hvar sem þú getur hangsað, og
svo verður þú sífellt að snudda,
gleyma að gera hitt og þetta,
segja: já-já, en sökkva svo í
sama roluhaminn. Og hún verð-
ur að vera með hnefana yfir þér
og á þér, endalaust.
Þó er ein hætta á ferðum, að
konan þín vilji með tímanum
fara að porra upp vin þinn, sem
er sama rolan og þú, því dugn-
aður hennar eykst við and-
streymið.
MATKRÁKAN
Hrognabrækur á eilífðarbláum himni
ið í 225 gr. heitum ofni í u.þ.b. 30 mín.
3. Berið fram með grófu brauði eða kartöfl-
um sem baka má í ofninum samtímis
hrognunum.
Þorskhrogn meö kryddjurt-
um (f. 4)
u.þ.b. 500 g soðin hrogn
20 g smjör/smjörlíki
safi úr '/2 sítrónu
2 msk 'söxuð ný steinseija (eða % msk
þurrkuð)
2 msk smátt saxaður púrrulaukur.
2 msk saxaður nýr stjörnumeiís (u.þ.
b. 1 msk þurrkaður) eða önnur
kryddjurt
Bræðið feitina á pönnu og hrærið sítrónu-
safa, söxuðum kryddjurtum og salti saman
við. Skerið hrognin í sneiðar og hitið þau í
grænni sósunni. Berið st’rax fram með soðn-
um kartöflum og t.a.m. tómatsalati.
Ofnbökuð hrogn med spínati
(f. 4)
500 g soðin þorskhrogn
1 pakki frosið spínat (u.þ.b. 375 g)
Sósa:
20 g smjör/smjörlíki
2 msk hveiti
u.þ.b. 3 dl mjólk
1 dl rifinn ostur
salt og agnarögn af cayennepipar
1. Smyrjið eldfast fat og þekið með hálf-
þiðnuðu spínatinu. Skerið hrognin í
sneiðar og raðið þeim yfir.
2. Bræðið smjörið í potti, hrærið hveiti sam-
an við, hrærið mjólkinni smám saman út
í, látið suðuna koma upp. Hrærið rifnum
osti og kryddi út í sósuna og hellið henni
yfir hrognin í fatinu.
3. Bakið við 200 gr. í u.þ.b. 20 mín. og berið
fram t.d. með snittubrauði og blaðsalati.
Hrognakæfa (f.4)
u.þ.b. 400 g soöin þorskhrogn
25 g smjör/smjörlíki
2 egg
1 '/2 dl mjólk
2 msk kartöflumjöl eða maísenamjöl
salt, paprikuduft
smátt saxaður púrrulaukur
1. Fjarlægið himnur utan af hrognunum,
stappið þau með gaffli og hrærið hinum
hráefnunum saman við.
2. Hellið farsinu í smurt form og bakið í ofni
við 175 gr. í u.þ.b. 45 mín. Berið fram t.d.
með soðnu grænmeti og góðu brauði.
Nú á miðjum þorra er náttúrlega mikið
frost á Fróni og nauðsyniegt að gera sérstak-
ar ráðstafanir til að hindra að frjósi í æðum
blóð. Margir blóta þorra með vinum, vinnu-
félögum og ættingjum og örva blóðrásina
með brennuvíni og hver sannur íslendingur
herðir tær og fingur með rammstækum há-
kalli og súrsuðum millifótasviðum.
En ekki einungis tungurótin bráðnar við
brennuvínsstaupið, heldur aukinheldur grá-
brúnt kraðak gatna og fata fótgangandi und-
ir hundruðum litbrigða janúarhiminsins. Að
þreyja þorrann er ekki þyngst þrauta í slíku
andrúmslöfti. Þorrabakkinn klæðist nýjum
búningi brjóstbirtu og hugur leitar út í hafs-
auga mætrar matarmenningar. Dumbungur
borðsins eflist af díónýsískum krafti árs-
hátíða og ertingu bragðiaukanna af súrsuð-
um líkamshlutum sauðkindar og samsetn-
ingu þeirra.
En í froststillum vetrarvertíðar renna hrogn
og iifur á sjóndeildarhring líkt blóðinu sem
rennur um æðar íslendinga, sjóndeildar-
hring á hverjum þjóðin gengur þessar vik-
urnar. Bleikrauð skýin blakta á eilífðarbiá-
um himni eins og hrognabrækur af nýslægð-
um þorski eða undirbuxur flæmskrar gleði-
konu, ef menn vilja það heldur. Sem tungl í
fyllingu berast þessir bossar inn um opin-
mynntan möriandann. Er sem sólmyrkvi
verði er þessi egg hafsins ber við sólu áður
en þeirra er neytt. í unaði þorrans verður sú
sæla varla metin til jarðnesks auðs. Hverju
skiptir þá þótt menn hrasi nokkrum sinnum
um lifrarbrúna skafla á leið sinni inn í
„extase ultime" þessa lífs?
Og úr ilman kæsts hákalls vindum við okk-
ur að ferskum vertíðarinnmat þorsks,
hvernig prúðbúa megi t.a.m. öskugráa lifur
og orkideuföl hrognin.
Þorskalifur
Þorskalifur er afskaplega rík af A- og D-
vítamínum, en einnig fitu og því kemur dá-
lítil grútariykt úr pottinum þegar hún er soð-
in. Gott er að sjóða hana í vatnsbaði, þ.e.
setja hana í eldfast fat eða krukku, þekja
með álpappír og setja svo út í sjóðandi vatn
og sjóða í 20-30 mín. Eða þá að sjóða lifrina
í svokölluðum suðupokum. Berið hana fram
t.d. með ‘ úgbrauði, grófu salti og sítrónubát-
um.
Þorskhrogn
Auðlegð þeirra felst í gnótt B1 og B2 víta-
míns, ásamt dágóðum slatta af C-vítamíni.
Bleikur litur hrognanna getur verið dálítið
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
mismunandi, en liturinn stendur í engu sam-
bandi við gæðin.
Suða: Pakkið hrognabrókinni inn í álpappír
eða setjið hana í suðupoka og sjóðið í létt-
söltuðu vatni. Bæta má út í vatnið 2-3 pipar-
kornum, litlum Iauk sem skorinn hefur verið
í fjórðungsparta, einu lárviðarlaufi og ögn af
ediki. Sjóðið hrognin með loki við vægan
hita í 15-20 mín. (eftir stærð). Varist að sjóða
þau of lengi, þau eiga aðeins að komast í fast
form.
Ofnbökuö hrogn (f.4)
u.þ.b. 500 g hrá þorskhrogn
smjör/smjörlíki
salt og nýmalaður svartur pipar
nýtt dill eða þurrkað
1 dós niðursoðnir tómatar, u.þ.b.400 g
1. Skolið hrognabrækurnar, skerið himn-
una langsum í sundur og pressið hrognin
(eggin) úr himnunni beint í smurt, eldfast
fat.
2. Kryddið með saiti og nýmöluðum, svört-
um pipar og strájð ríkulegu dilli yfir. Hell-
ið niðursoðnum tómötum- yfir, dreypið
smör-/smjörlíkisklípum yfir fatið og bak-
12 HELGARPÓSTURINN