Alþýðublaðið - 06.04.1927, Blaðsíða 3
ALÞfÐUBLAÐIÐ
3
er vmdlingurinn,l
sem flestir munu reykja á|
$
næstanni.
Það ber tvent til þesss
1. Ódýr.
2. HSrssgðfeetrt o@ pægÞ
legrl eii sBtenm elgss að
venjast nm vindlinga
af svipnðn verðt.
Enn þá er „YACHT44 ekki komln i hverja
búð, en þess verður ekkl langt að bíða.
Þetta
BY SPEClAL appoihtment to
THE ROYAL tXANISH VAGHT CLUB
Fimm sjómeim slasast.
Togarinn „Maí“ kom hingað inn
í gærkveldi meci prjá menn slas-
aða, þá Guðmund Helgason,
Hverfisgötu 106, Odd Jónasson,
Brautarholti, og Kristinn Símonar-
son, Birtingaholti. Tveir hinix síð-
ast nefndu voru fótbrotnir, en
Guðmundur mjög mikið meiddur
á höfði. Tveir menn aðrir meidd-
ust lítils háttar. Slys þetta vildi til
kl. 11 árdegis í gær. Skipið, sem
var austur á Selvogsgrunni, and-
æfði upp í veðrið. Gekk hol-
skefla yfir skipið og fleygði skip-
verjum aftur eftir skipinu, en þeir
voru að enda við að gera að fiski
þeim, er á þilfari var.
Mennirnir voru fluttir í sjúkra-
hús.
Togarinn „Karlsefni kom í gæh-
kveldi með tvo menn dálítið
meidda, annan marinn á baki,
hinn brákaðan um hné. Gerðust
þessi slys á sama tíma og hin
og á sama hátt, við andóf.
Erlend sslinskeyti.
Khöfn, FB., 4. apríl.
Stöðugt meira brezkt lið til
Kína,
Frá Lundúnum er símað:
Stjórnin á Bretlandi er staðráðin
í því að krefjast skaðabóta af
Kantonstjórninni út af Nanking-
atburðunum og gera, ef út í það
fer, tilraun til að neyða hana til
greiðslu á þeim, enda þótt Eng-
lendingar standi einir um slíkar
kröfur gagnvart þeim. Bretar hafa
sent að nýju um 1000 hermenn til
Kína. Sá orðrómur leikur á, að
flotamálastjórnin brezka haf! lagt
það til, að England leggi hafn-
bann á Suður-Kína.
Það eru stórveldin, en ekki
Kínverjar, sem eru ómannúðleg.
Frá Shanghai er símað: Chen,
utanrikisráðherra Kantonstjórnar-
innar, heíir rannsakað, hvort Kan-
tonmenn eigi sök á því, að út-
'lendingar urðu hart úti í skærun-
um í Nanking. Komst Chen að
þeirri niðurstöðu, að óþjóðalýður,
sem er Kantonhernum allsendis ó-
viðkomandi, hafi framið ofbeld-
iisverkin. Fregnirnar um ofbeld-
isverkin og einkanlega um það,
hve útlendingar hafi verið grátt
leiknir, séu mjög orðum aulmar,
því svo vitanlegt sé, þá hafi að
eins tólf útlendingar fallið í skær-
unum, en hundrað sinnum íleíri
Kínverjar hafi fallið og særst, er
herskip stórveldanna hófu skot-
hríð sína.
Er Chiang- Kai-shek farinn frá
völdum.
Frá Lundúnum er simað: Fregn-
ir haía borist h'ngað um, að Chi-
ang Kai-shek ha i verið settur af,
en eigi verður um það sagt, hvort
fregnin sé áreiðanleg eða ekki.
Rúmeníukonungur dauðvona.
Frá Berlín er símað: Rúmeníu-
konung-ur er alveg i andarslitrun-
um. Stjórnin safnar herliði, því
hún óttast óeirðir af hálfu fylgis-
manna Karls fyrr verandi krón-
prinz.
Khöfn, FB., 5. apríl.
Skærur í Hankow.
Frá Lundúnum er símað: Kín-
verjar hafa ráðist inn á umráða-
slteði Japana í Hankow og rændu
þar búðir. Flestir Japanar á svæði
þessu lögðu á flótta og leituðu
verndar á herskipunum> úti. Sendu
Japanar þá herlið á vettvang, og
tókst því, að loknum bardaga á
götunum við Kínverjana, að reka
þá burt af umráðasvæðinu.
Gúmmíbúðin
er
full af allskonar góð-
um og ódýrum
IMiiiiiÞskéfatiiaðl.
Kantonmemi vinna á.
Kantonherinn vinnur stöðugt á
og er nú kominn tvö hundruð
mílur enskar norður fyrir Yang-
tzefljótið.
Ætlar Chiang Kai-shek að leika
Mussolini i Kina?
Sá orðrómur leikur á, að Chi-
ang Kai-shek, hershöfðingi Kan-
tonmanna, búi síg undir að hrinda
af stað byltingu með tilstyrk hers-
lins í þeim tilgangi að gerast ein-
valdsherra og eyða áhrifum sam-
eignarsinna.
Ætlar Averescu forsætisráð-
herra i Rúmeníu lika að leika
Mussolini?
Frá París er símað: Samkvæmt
fregnum frá Rúmeníu býr Ave-
rescu, stjórnarforseti, sig undir
það að mynda hervaldsstjöm, ef
konungur deyr.
Skiptapi á 'Eyras'b.akka.
Atta meim drukkna.
Vélbáturinn „Framtíði:i“ frá
Eyrarbakka, eign Sigurjóns Jóns-
sonar, fórst í gær mcð allri áhöfn.
Formaður var mágur eigandans,
Guðfinnur Pórarinsson frá Nýja-
bæ. Hásetar voru: Jónas Einars-
son, Garðhúium, um sextugt, Gísli
Björnsson, fyrr á Stokkseyrarseli,
Sigurður Þóra insson, Vegamót-
um, ógiftur, Krictlnn Axel Sig-
uxðsson (Sigmuncissonar), ógiftur,
Ingimar Jón :son ( kósmiðs Guð-
brandssonar), var hjá föður sín-
um, Páll Guðmundsson (renni-
smiðs Jónssonar), átíi 6 börn,
Víglunr’ur Jóucson (smáskamía-
læknis Ásgrims onar), áti 1 dreng
5—6 ára og ungbarn.
Að afliðnu hádegi rokhvesti
skyndilega, og stórbrimaði sjóinn.
Lágu þá þrír bátar til lags utan-
vert við Einarshafnarsundið. Þeg-
ar bátur þessi ætlaði að leggja inn
á sundið, tók sig upp boði (sem
s,Brynki“ er kallaður) og grandaðS
bátnum á svipstundu, svo að ekk-
ert sást eftir.
Wý toók.
„Vígsluneitun hiskupsins" kom
ý, markaðinn á laugardaginn. Era
það fyrirlestrar þeir, sem Lúðvig
Guðmundsson stud. theol. flutti
snemma í vetur, þegar biskup
neitaði að vígja Þorgeir Jónsson
guðíræðing, og eru þeir auknir
jnokkuð í ritinu. Það er vel íarið,
að mönnum gefst nú kostur á að
sjá þessa fyrirlestra á prenti, enda
mun marga fýsa þess. Höf. s gir
svo í formála: „Vona ég, að stein-
þögn biskupsins og drátturinn,
sem orðið hefir á útkomu er'nd-
anna, haíi geiið almenningi næði
til að íhuga þetta mál með fullri
rósemi.“ Ég vil ráðleggja fólki
að kaupa rit þetta og lesa. Er það
sálubót hverjum manni að kynn-
ast skoðunum þeirra mannn, s- m
dirfsku hafa til að fara lækn's-
höndum um andleg mehi þjóðié-
lag ins. Ágóði af sölu r:t ins re n-
ur til fátæks hljóm'istarnema
Þór.
(Jm dagiwn vegfiss
Næturlæknir
er í nótt Kjartan Ölafsson,
Lækjargötu 4 uppi, sími 614.
Skemtifundur
verður í kvöld kl. 8V2 í Kv>:n-
réttindaíélaginu að Kirkjutorgi 4.
Ungfrú Laufey Valdimarsdódir
isegir ferðasögu, trú Guðrún.