Helgarpósturinn - 30.08.1984, Síða 8
NOKKUR
GULLKORN
ÚR STAFSETNINGAR-
ÆFINGUM
Lífið fyrir fæðingu
Námsgagnastofnun kynnir nýja bók, -
Lífið fyrir fæðingu. Þetta er 48
síðna litprentuð bók í handhægu broti
og í henni er þroska mannsfósturs lýst
í máli og myndum. Hrólfur Kjartans-
son og Stefán H. Brynjólfsson þýddu
úr ensku. Lífið fyrir fæðingu er unnið
upp úr samnefndum skyggnuflokki
sem breska náttúrufræðisafnið lét
gera.
Framsetning bókarinnar er við það
miðuð að hún geti nýst bæði skóla-
nemendum og almenningi. Reynt er
að útskýra þroska mannsfósturs og
ýmis atriði sem honum tengjast,
þannig að jafnt börn og unglingar,
verðandi mæður og feður, hafi gagn
af. Bókin á reyndar erindi til allra þeirra
sem öðlast vilja nokkurn skilning á því
sem gerist þegar fóstur vex og þrosk-
ast og verður að fullburða barni í móð-
urkviði.
Bókin kostar 130 krónur og fæst í
Skólavörubúð Námsgagnastofnunar
og í flestum bókaverslunum.
Námsgagnastofnun /ÖL NAMSGACNASTOFNUN
Pósthólf 5192,125 Reykjavík. Sími 28088. r POSThOlf 5i92 • 125 REYKJAVÍK • SÍMl 28088
Föndurvörur
pappfr frá Galt
skæri, litir, leir
leikspil og
pússluspil
Auk úrvals af leikföngum.
V-þýzku veframmarnir nýkomnir í 3
stærðum á kr. 160,-, 313,- og 477,-.
Sendum í póstkröfu.
Valin leikföng
Vönduð leikföng
BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF
VÖLUSKRÍN Sérverzlun
KLAPPARSTÍG 26, 101 REYKJAVlK, ISLAND, SfMI 15135
Þeir eru eflaust ófáir sem eiga ljúf-
ar, eða a.m.k. ljúfsárar, minningar
úr starfsetningartímum. Þar höfðu
kennarar lengi vel að keppikefli að
snúa saman sem svínslegastar setn-
ingar og leggja fyrir nemendur sína.
Erfiðustu æfingarnar voru svo
snúnar að hálærðir íslenskumenn
þurftu að sitja lengi yfir þeim og
fletta fram og til baka í heilabúi sínu
til að fá viðunandi einkunn. Höf-
undar slíkra æfinga voru ekki að
hugsa um samhengið við samning-
una heldur stóð hver setning eins
og sjálfstætt listaverk. Réttritunin
var íþrótt og það kostaði ekki síður
vinnu að ná árangri í þeirri grein en
öðrum hefðbundnari íþróttagrein-
um. Hér á eftir fylgja nokkrar setn-
ingar úr gömlum
stafsetningaræfingum og þær eru
skráðar eftir Örnólfi Thorlacius
rektor:
— Þórarinn er stiginn af baki og
hniginn í ómegin.
— Þráinn gleymdi að hylla kóng-
inn þegar hann sá hilla undir jötun-
inn á fjallsbrúninni.
— Húsfreyjan keypti stigna
saumavél og signa ýsu með víum.
— Skrímslin klifu klifin og rifu í sig
klyfjahestana.
— Kisu klígjaði ekki við leifum
Jóhanns kaupmanns(I)
Sigurkarl Stefánsson kennari við
MR vildi síður kalla mál stafsetn-
ingaræfinganna íslensku en talaði
gjarnanumortógrafíu.Hann átti það
einnig til að bæta um betur, t.d.:
Kisu klígjaði ekki við spýjunni úr
kríunni.
Að endingu eru rifjaðar upp tvær
setningar sem raunar tilheyra liðnu
menningarstigi en þær eru birtar
hér til heiðurs núverandi iðnaðar-
ráðherra.
— Sagt er að þau hafi hitzt og
kysstst í lautinni bak við leitið.
— Sjaldgæft er að rauðsenzkur
silungur sjáist á veizluborðum Þing-
eyinga.
Breiöholtsbúar
Skólafólk
Hjá okkur
fáið þið allar
skólavörurnar
á hagstæðu verði
m
EUROCAROj
BÓKABÚÐ
Arnarbakka
BREIÐHOLTS
2. Sími 71360
f
20 HELGARPÓSTURINN