Helgarpósturinn - 23.05.1985, Blaðsíða 5
A
BM næsta ari verður Lands-
banki Islands 100 ára gamall og
hafa ráðamenn innan bankans í
hyggju að halda upp á þetta merkis-
afmæii með pompi og prakt eins og
slíkri stofnun sæmir. Fjölda erlendra
bankamanna verður boðið til af-
mælisfagnaðarins og telja menn, að
talsvert verði veitt af laxi um það
leyti sem afmælishátíðin verður.
HP hefur fregnað, að fyrirhugað
sé að gera kvikmynd um Lands-
bankann og hefur Olafur Ragnars-
son bókaútgefandi verið fenginn til
þess að sjá um það verk. Þetta þykir
sumum reyndar nokkuð einkenni-
legt, því Ólafur rekur ekki kvik-
myndafyrirtæki af neinu tagi. Það
gera hins vegar margir aðrir. Skýr-
ingin er talin sáraeinföld: Ólafur
Ragnarsson er tengdasonur Helga
Bergs, bankastjóra Landsbankans!
Og hver veit nema að bankinn hygg-
ist jafnframt gefa út bók í tilefni af
afmælinu. Bókaútgáfa Ólafs, Vaka,
gæti þá séð um það líka. . .
v
Wí ið höfum undanfarið verið
að segja frá nýstofnuðum „móður-
málsfyrirtækjum", sem kennarar
hafa einkum staðið að. Hins vegar
hefur þar alveg farist fyrir að nefna
eitt slíkt, sem heitir Rýnir sf. og er
orðið eins og hálfs árs. Fyrirtækið
veitir alhliða þjónustu í sambandi
við bókaútgáfu; lestur handrita,
prófarka og annað tilheyrandi. Auk
þess tekur fyrirtækið að sér þýðing-
ar og leiðbeiningar varðandi málfar
af öllu tagi. Þetta ku vera með eldri
fyrirtækjum í bransanum, og að-
standendur þess eru Guðni Kol-
beinsson kennari og Sigurgeir
Steingrímsson handritafræðing-
ur. . .
U
■ ■ raun heitir súkkulaðikex-
tegund, sælgæti, sem margir borða.
Hingað til hefur Hraun verið selt í
sjoppum með söluskatti og verðið
því hátt uppi. Nú hafa framleiðend-
urnir hins vegar brugðið á það ráð
að minnka stykkin niður í kökubita-
stærðir, pakka 10 stykkjum saman
og selja sem innlenda kexfram-
BILALEIGA
REYKJAVIK:
AKUREYRl:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUQÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÓRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚDSFJÖRDUR:
HÖFN HORNAFIRDI
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
leiðslu. Af slíkri vöru þarf ekki að
greiða söluskatt. Þeir lenda þannig
ekki á Hrauninu fyrir vikið. . .
o
^^^lafur Ragnar Grímsson
prófessor, sem hefur verið meira og
minna í leyfi frá kennslustörfum við
Háskóla íslands frá árinu 1980, mun
hefja störf við skólann að nýju 1.
júní n.k. Eftir kosningarnar 1978,
þegar Ólafur fór inn á þing, hélt
hann áfram að kenna stjórnmála-
fræði við H.Í., einkum vegna þess
að staðgengil vantaði. Síðan kom
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmála-
fræðingur frá námi og tók að mestu
við kennslu Ólafs. Eftir kosningarn-
ar 1983 varð Svanur Kristjánsson
deildarforseti félagsvísindadeildar
og frá og með þeim tíma má segja,
að Ólafur Þ. Harðarson hafi tekið að
fullu við starfi Ólafs Ragnars. Svanur
var orðinn p'rófessor, en Ólafur Þ.
lektor. Nú verður sú breyting á með
afturkomu Ólafs Ragnars, að hann
tekur við prófessorsstarfinu, Svanur
verður dósent, en Ólafur aðjúnkt
með mikla kennslu. Hins vegar er
óvíst hversu lengi Ólafur Ragnar
verður inni, því kosningar í haust
gætu sent hann inn á þing að
nýju.. . .
o
^^^kkur Islendingum fer stöð-
ugt fram í heimi viðskipta og alþjóð-
legra samskipta. Sjávarútvegsráðu-
neytið mun nýlega hafa gert dr.
Jónas Bjarnason út af örkinni tii
Kanada til þess að „njósna" um
starfshætti, aðbúnað og nýbreytni í
kanadískum sjávarútvegi. Þessi
„njósnaleiðangur" Jónasar hófst
þann 14. þessa mánaðar og Iýkur nú
um mánaðamótin. Þess má geta, að
sjálfir hafa Kanadamenn sent hing-
að við og við menn til þess að
njósna um íslenskan sjávarútveg.
Við skulum vona, að Jónas verði
einhvers vísari í ferð sinni...
U
I ■ ópurinn sem stendur að því
að fá ráðamenn þjóðarinnar til þess
að hlusta á nýjar hugmyndir um
leiðir út úr húsnæðisvandanum,
hefur áorkað því að fá stjórnarand-
stöðuna til þess að standa saman um
lausn húsnæðisvandans. Ella muni
stjórnarandstaðan ekki standa að
framgangi nauðsynlegra þingmála
og tefja þannig fyrir heimför bænda
af þingi t.d. vegna sauðburðar. Þessi
samstaða er til komin eftir að full-
trúar Húsnæðishópsins, þeir Ög-
mundur Jónasson og Björn
Ólafsson verkfræðingur, meðal
annarra, kynntu þeim hugmyndir
sínar. Nú hefur stjórnarandstaðan
tekið upp hugmyndir Húsnæðis-
hópsins. Annars kom svolítið bak-
slag í starf þessa áhugafólks um
lausn á húspæðisvandanum, þegar
ASÍ með Ásmund Stefánsson í
broddi fylkingar kynnti sínar eigin
hugmyndir. Þær fóru mjög á skjön
við hugmyndir hins þverpólitíska
hóps áhugafólksins og var ein skýr-
ingin talin vera sú, að ASÍ væri illa
við breytingar, þar sem verkalýðs-
hreyfingin átti talsverðra hagsmuna
að gæta. M.ö.o., ASÍ var hrætt um
Verkamannabústaðakerfið sitt. Með
þessu eyðilagði ASÍ baráttu Sigtúns-
hópsins og Búsetamanna vegna
eigin hagsmuna og er að vonum
harla óvinsælt fyrir vikið. ..
Á
:>/#
Athugi
Fresturinn er á
renna út
FRAD
tur
AF SKATTSKYLDUM TEKJUM
AF ATVINNU REKSTRl
Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur
af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt-
skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð.
Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm-
ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund-
inn 6 mánaða reikning fyrir 1.júní n.k. vegna tekna árs-
ins 1984. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið
skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum
reikningsárs.
Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar
samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands-
bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6
mánaða reikninga.
Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6
mánaða binditíma, en innan 6 ára.
Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að
framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts
á árinu 1985 vegna tekna ársins ’ 1. Fresturinn að
þessu sinni er til 1. júnín.k.
Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga
eru veittar í sparisjóðsdeildum og hagdeild
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir
HELGARPÓSTURINN 5