Helgarpósturinn - 23.05.1985, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Elln Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ölafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Ásdls Bragadóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, slmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Kvikmyndahátíð
Það er erfitt að alhæfa nokk-
uð um kvikmyndasmekk heillar
þjóðar og gott ef það má ekki
kallast fáránlegt að ætla sér að
reyna það. Það gildismat sem
Islendingar leggja á kvikmyndir
virðist samt sem áður vera
nokkuð einhliða.
Það kemur glögglega fram í
umkvörtunum fólks á lesenda-
síðum dagblaðanna, ellegar í
aðsókn að myndbandaleigum
þegar svo fer um helgar að
sjónvarpið sýnir aðrar myndir
en engilsaxneskar. Fólk er
næsta æft, þegar svo ber undir,
hvorki meira né minna.
Þetta kemur einnig fram í
þeim skilningi sem fólk virðist
leggja í kvikmyndina sem slíka.
Islendingum er gjarnt að njóta
bíómynda sem afþreyingar.
Metnaður og listfengi að baki
myndanna skiptir litlu máli.
Kvikmyndadómar snúast um
hraða, spennu, æsing.
Skýringarnar á þessu ein-
hliða gildismati eru líkast til
' margvíslegar. En kannski rís ein
r"^upp úr: Hollywood-kvörnin
malar. Og hún hefir fengið að
mala óáreitt ofan í okkur svo
gott sem allt frá upphafi þess
að farið var að sýna kvikmyndir
á breiðtjöldum.
Sá magnaði iðnaður sem
engilsaxnesk kvikmyndagerð
er, hefur fangað hug manna.
Það gerðist reyndar strax á milli
stríða. Framboð amerískra
mynda varð gífurlegt á meðan
Evrópumenn fengu lítt staðið í
öðru en tveimur heimsstríðum
með stuttu millibili.
Forskotið varð Bandaríkja-
manna. Það var af þessum sök-
um varla annað að sjá en þeirra
myndir um og upp úr seinna
stríði. Fólk hugsaði; svona eru
þá kvikmyndir. Og svo virðist
vera enn í dag að allar kvik-
myndir taki sitt mið í hugum al-
mennings út frá Hollywood-
kvörninni. í sjálfu sér er þetta
skiljanlegt.
En þetta er langt frá því eðli-
legt. Kvikmyndaframleiðsla,
önnur en engilsaxnesk, hefur
að sönnu átt við vandamál að
stríða á undangengnum árum,
en hvað sem því líður hefur hún
í fullu tré við iðnaðarrisana
hvað gæði snertir. Og þá
kannski einkanlega fágun og
inntak.
Kvikmyndahátíðirnar í
Reykjavík hafa sýnt fram á
þetta. Þar hefur löngum verið
lögð áhersla á að sýna kvik-
myndir sem síður hafa átt upp
á pallborðið hjá almenningi og
kvikmyndahúsaeigendum, af
þeirri einu ástæðu að þær eru
annars lands en níutíu prósent
myndanna sem bíóhúsin sýna
hérna allajafna.
Kvikmyndahátíðirnar sýna
að það er svo auðveldlega
hægt að hrífast af öðru en
hraða, spennu og æsingi.
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
HELGARPÚSTURINN
íslensk stjórnspeki
Hver ríkisstjórnin eftir aöra bregst
á íslensku við því er hrjáir landann;
„Það reddast alltaf allt, það tekst, það tekst,
svo til hvers er að reyna að leysa vandann?"
Niðri
LAUSN Á SPILAÞRAUT
Leiðrétting
Arni Stefánsson lögfræðingur
hafði samband við HP vegna grein-
arskrifa í blaðinu þann 15. þ.m. þar
sem sagt var frá sölu íbúðar sem var
í eigu Háskóla íslands og vildi koma
eftirfarandi leiðréttingu á framfæri í
næsta tölublaði HP: Undirritaður
skoðaði umrædda íbúð við þriðja
mann (þ.á m. háskólaritara) „með
venjulegum hætti fyrir sölu íbúðar-
innar.“ Rangt er í blaðinu hermt að
íbúðin hafi ekki verið auglýst. Hið
rétta er að íbúðin var auglýst í
tveggja dálka auglýsingu og birt í
Morgunblaðinu í marsmánuði þar
sem óskað var eftir tilboðum sem og
bárust undirrituðum. Það skal einn-
ig tekið fram að háskólarektor var
erlendis í þrjár vikur þegar salan fór
fram.
Virðingarfyllst,
Árni Stefánsson lögfræðingur.
Vid virdum
nafnleynd
Það er vægast sagt makalaust
hversu Morgunblaðinu hefur tekist
listilega að klúðra skrifum sínum
um AIDS-málið svokallaða. í Stak-
steinum á þriðjudaginn var.belgist
blaðið af reiði vegna samtals HP við
mann, sem talið er að hafi mótefni
AIDS-veirunnar. Staksteinum þessa
þriðjudags lýkur með orðunum:
„Og helgarpóstssamtöl viö nafnleys-
ingja eru einskis viröi."
I glöggri og rækilegrí umfjöllun
Helgarpóstsins um sjúkdóminn
AIDS og fórnarlamb hans var Morg-
unblaðið gagnrýnt. Það gerði sjálft
fórnarlamb skrifa Morgunblaðsins,
„nafnleysinginn", og Guðmundur
Sigurðsson aðstoðarlandlæknir.
HP tók undir þessa gagnrýni, þar
sem blaðinu þótti Morgunblaðið
fara óvarlega með viðkvæmar upp-
lýsingar, auk þess að staðhæfa að
viðkomandi maður væri kynhverf-
ur. Þessu neitar maðurinn staðfast-
lega.
Morgunblaðið stimplar manninn
sem homma og lýsir því svo yfir, að
viðtal við hann í Helgarpóstinum sé
„einskis virði“ vegna þess að við
sáum sóma okkar í því að birta ekki
nafn viðkomandi!
Það virðist vera, að Morgunblaðið
telji það í verkahring sínum að
krossfesta með röngum staðhæfing-
um mann, sem hefur orðið fyrir
sárri og biturri reynslu, og til þess að
bæta gráu ofan á svart, vill blaðið að
við birtum nafn hans og leiðum
hann þannig nánast á höggstokk-
inn.
Svo virðist sem Morgunblaðið
geri sér ekki fyllilega grein fyrir
mikilvægi nafnleyndar. Stundum er
hún nauðsynleg í fréttaflutningi.
Stundum ber blöðum siðferðileg
skylda til að virða nafnleynd. Þetta
eiga þeir að vita, sem vinna á sóma-
kærum blöðum. Morgunblaðið telur
sig sómakært blað.
Þeir sem hafa fylgst með blaða-
mennsku síðast liðinna ára, hafa
fyrir löngu sannfærst um það að
„helgarpóstssamtöl við nafnleys-
ingja" eiga fullan rétt á sér og hafa
orðið að miklu gagni.
. —Ritstj.
Comins Mansfield: 1. Hb5l
Nú getur svartur leikið c2-cl eða
cxbl og vakið upp hvaða mann
sem hann vill og koma þá fram
mismunandi mát sem eru vel þess
virði að þau séu skoðuð. Rétt er að
benda á leppun svarta hróksins
sem skiptir máli við sum mátin.
Schmid-Rossolimo:
Svartur batt enda á skákina á
glæsilegan hátt:
1.-Hxg2+I! 2. Kxg2 Hxf2 + I!
3.Bxf2 e3+ og hvítur gafst upp.
FREE
STYLE
FORMSKi M
UORÉAL
PARfS
333,
tm 1
wv- '
sm-.
4
rrrrrVi r i • * * Já ~ n#a lagningarskúmið
SKUM í hánð? FtFSSMMr.
leikur einn.
HÖFUM
ADM Jln nýjabón- og
W " N Atl ÞVOTTASTÖÐ
O Gufuþvoum vélar og felgur
Q Djúphreinsum sœtin
og teppin
O Notum eingöngu hið
níðsterka Mjallarvaxhón
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN
V/UMFERÐARMIÐSTÖÐINA - Slmi 21845
10 HELGARPÓSTURINN