Helgarpósturinn - 28.11.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTAPÓSTUR
Stjórn SÍS líst ekki á Hafskip!
Æðstu ráðamenn Sambandsins urðu að lúta i
lægra haldi fyrir kaupfélagsstjórum úti á landi
þegar gengið var til atkvæða í vikunni í stjórn
SÍS um það hvort gaumgæfa ætti þann mögu-
leika að innlima Hafskip í skipadeild SÍS.
Stjórnarformaður og varaformaður stjórnar SÍS
guldu tillögunni hinsvegar jáyrði, svo sem vitað
var, að hæði forstjóri og aðstoðarforstjóri SÍS og
framkvæmdastjóri skipadeildar SÍS voru allir
tillögunni hlynntir.
Hafskipsmálið hleður utan á sig
Guðmundur Einarsson þingmaður BJ stóð upp
í pontu Alþingis i vikunni og fór þess á leit við
bankamálaráðherra að gerð yrði tafarlaus opin-
ber rannsókn á rökstuðningi og sannleiksgildi
yfirlýsingar bankastjórnar Utvegsbankans frá í
júní síðastliðnum — þ.e. í kjölfar þess að HP
opnaði Hafskipsmálið með yfirlitsgrein um
stöðu firmans — en yfirlýsingin var á þá leið að
bankinn hefði tryggingu í eignum fyrirtækisins
og eignum hluthafanna fyrir þeim skuldum
sem Hafskip væri í við bankann.
Fjármálaráðherra kastar ekki út björgunar-
hring
Þorsteinn Pálsson sagði í vikunni að ríkið
myndi ekki fara að blanda sér í kaupskipaút-
gerð í landinu, hvorki með hlutafjárframlögum,
ná ábyrgð um þau, þegar hann var spurður
hvort hann léði máls á því að bjarga Hafskipi frá
því að sökkva endanlega. ,,Égtelaðþað sé miður
hvernig komið er fyrir þessu skipafélagi, því það
hefur virkilega gegnt mikilvægu hlutverki í
flutningastarfsemi og í því að viðhalda eðlilegri
samkeppni," sagði ráðherrann m.a. í samtali við
Morgunblaðið í gær, miðvikudag.
Hvað verður um Hafskip / íslenska skipafélag-
ið?
Stíf fundahöld hafa verið um það allt frá því að
Helgarpósturinn kom síðast út, hvernig málum
Hafskips verður komið fyrir þegar í ljós eru nú
komnar stórkostlegar skuldir fyrirtækisins,
ekki aðeins við Útvegsbankann, heldur og við
flesta viðskiptaaðila þess erlendis. Bankastjór-
ar Útvegsbankans funduðu lengi með Matthíasi
Bjarnasyni bankamálaráðherra i gær, miðviku-
dag, þar sem þeir kynntu honum stöðuna. Pull-
trúar Dagsbrúnar hafa einnig fundað stíft,
vegna hugsanlegs atvinnuleysis skjólstæðinga
sinna hjá skipafélaginu.
Konur útundan í prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík
Aðeins ein kona náði öruggu sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir næstu borgarstjórnar-
kosningar í prófkjöri flokksins um helgina.
Katrín Fjeldsted hafnaði í þriðja sæti, en úrslit-
in urðu annars þessi: 1. Davíð Oddsson. 2. Magn-
ús L. Sveinsson. 4. Páll Gíslason. 5. Vilhjámur Þ.
Vilhjálmsson. 6. Hilmar Guðlaugsson. 7. Árni
Sigfússon. 8. Júlíus Hafstein. 9. Jóna Gróa Sig-
urðardóttir. Og 10. sætið hreppti Sigurjón Fjeld-
sted. Árni Sigfússon er eini nýliðinn sem náði
öruggu sæti í borgarstjórnarkjöri flokksins.
Ungt fólk vill eignast þak yfir höfuðið!
Könnun sem gerð var á húsnæðismálum ungs
fólks á aldrinum 18 til 29 ára leiðir í ljós að mik-
ill meirihluti þess hóps styður sjálfseignar-
stefnuna í húsnæðismálum. Félagsvísindadeild
HÍ gerði þessa könnun í sumar að tilhlutan Hús-
næðisstofnunar ríkisins og félagsmálaráðu-
neytisins. Það kom einnig fram í könnunninni
að 82% þeirra sem spurðir voru, er fylgjandi
skyldusparnaði ungs fólks.
Á annað hundrað manns viðriönir okurmálið
Enn sér ekki fyrir endann á því hversu margir
tengjast okurlánamálinu sem RLR kom upp um
fyrir rúmum þremur vikum. Hermann Björg-
vinsson, sem nappaður var vegna málsins, situr
enn í gæsluvarðhaldi, en það var lengt núna í
vikunni. Að sögn rannsóknarlögreglumanna
má búast við því að í heild verði á annað hundrað
manns yfirheyrðir sem grunaðir eru um lögbrot
vegna rannsóknar málsins. Nöfn 89 manna,
sem lánuðu Hermanni fé gegn okurvöxtum,
fundust við húsleit hjá honum, eins og áður hef-
ur komið fram.
Fréttamolar
• Sjöstjarnan í Keflavik hefur orðið uppvís að
því að svík'ja milli 80 og 90 milljónir í afurðalán-
um út úr Utvegsbankanum.
• Langferðabíl með 30 starfsmenn Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga hvolfdi utan
Akranessbæjar í vikunni. Engan sakaði.
• í tilefni af 200 ára kaupstaðarafmæli Reykja-
víkur á næsta ári hefur verið ákveðið að efna til
samkeppni um sérstakt borgarlag.
• Byrjað er að reisa vegg- og loftklæðningaverk-
smiðju í Hveragerði, sem mun kosta um 130
milljónir fullbúin á næsta ári.
• Agnar Friðriksson forstjóri Arnarflugs hefur
sagt starfi sínu lausu og mun ástæðan m.a. vera
ósætti um rekstrarleiðir.
• Oggulítil leðurblaka fannst úti í glugga íbúð-
arhúss í Garðinum um síðustu helgi. Hún hefur
sennilega fokið hingað uppeftir.
• Hagnaður af rekstri Flugleiða fyrstu tíu mán-
uði ársins er eitthvað um HO milljónir króna.
Tap verður á síðustu tveimur mánuðunum.
• Sildarvertíðinni er að ljúka og verður veiðin
líkast til rúmlega 46 þúsund brúttólestir, en það
er aðeins minna en áætlað var.
• Samtök matjurtaframleiðenda voru stofnuð í
vikunni. Á stofnfundinum var þeim gefið nafn-
ið Ágæti, og voru menn ánægðir með það nafn.
• Viðræður eru á milli forystumanna krata og
B J um sameiginlegan lista þessara afla í borgar-
stjórnarkosningunum að vori.
• Minkur átti leið um höfuðborgina i vikunni
og trítlaði meðal annars út á Tjörnina í ætisleit,
en var skotinn þar.
• Komið er út á hljómplötu lag þar sem íslensk-
ir tónlistarmenn syngja til stuðnings hungruð-
um í Afríku. Það heitir „Hjálpum þeim“.
• Ný umferðarlög voru lögð fram á Alþingi í vik-
unni, en þau kveða m.a. á um að þeir sem eigi
lágu bílnúmerin missi þau!
• Nú, og svo eru fyrstu jólatrén komin á mark-
aðinn, ágætlega barrheldinn, að því er forráða-
menn Skógræktarinnar hreykja sér af.
Ráðningar
Stefán Thors hefur verið skipaður skipulags-
stjóri rikisins.
Þorsteinn Tómasson hefur verið skipaður for-
stjóri RALA, Rannsóknarstofnunar landbúnað-
arins.
Andlát
Henrik Sv. Björnsson sendiherra er látinn á 72.
aldursári.
Jón Kjartansson forstjóri ÁTVR er látinn á 69.
aldursári.
SMARTSKOT
Hvaða kjaftæði
er þetta í þér um
„sveiflukennda"
frjálshyggju?
Arni Sigfússon
„Þetta kjaftæði er ekki úr mér komið, þó svo að ég hafi verið
skrifaður fyrir því í forsíðufrétt DV á þriðjudag. Blaðakonan
sem hafði samband við mig í kjölfar prófkjörsúrslitanna var
greinilega syfjaðri og þreyttari en ég eftir erfiða kosninganótt,
því það sem hún lét vera mín orð í fréttinni af málinu, var meira
og minna vitlaust haft eftir."
— Hvað varstu að reyna að segja henni?
„Ég var að reyna að segja henni frá ástæðunni sem ég tel
liggja að baki góðum árangri mínum í kjörinu: Ég naut mjög
víðtæks stuðnings sjálfstæðisfólks í borginni. Síðan reyndi ég
að útskýra fyrir henni hvaða pólitík ég hefði fram að færa, sagð-
ist hneigjast undir sveigjanlega frjálshyggju, ég endurtek
sveigjanlega, ekki sveiflukennda eins og útkoman varð síðan í
fréttinni."
— Og hverskonar sveigja er á frjálshyggjunni þinni,
Árni?
„Hún lýsir sér meðal annars í skoðun sem þessari: Ég tel vera
kominn tíma til þess að endurskoða ýmislegt í okkar velferðar-
þjóðfélagi, þó ekki þannig að því verði umbylt, heldur með
þeim hætti, að jafnt og sígandi verði undið ofan af því. Tak-
markið er ekki í sjálfu sér að minnka þjónustuna er við veitum
t.d. hér í Reykjavík, heldur bæta hana, og þá fyrst og fremst
með hagkvæmari rekstri. Það, ásamt því að auka og bæta at-
vinnutækifæri borgarbúa, tel ég vera undirstöðu bættrar þjón-
ustu og þar með bættra lífskjara. Þetta vil ég meðal annars kalla
sveigjanlega frjálshyggju. Og þetta er það sem ég var að reyna
að segja blaðakonunni af DV, blessaðri, með fyrrgreindum af-
leiðingum."
— Sveigjanlegt og sveiflukennt; er ekki málið bara
það að almenningur er farinn að sjá í gegnum þessa
frjálshyggju ykkar sem þið þar af leiðandi þorið ekki að
lýsa ykkur hlynnta með berum orðum?
„Nei, nei. Tilfellið er hinsvegar að sá mikli áróður sem verið
hefur uppi gegn þessu fyrirbæri, frjálshyggjunni, hefur haft
áhrif og þá einkanlega í þá veru að fólk hefur misskilið þetta
hugtak eins og það kemur fyrir eitt og sér. Það er orðið nánast
samasemmerki milli þess og markaðshyggju. I raun réttri legg-
ur frjálshyggja áherslu á siðfræði þar sem í felast réttindi og
skyldur anna í samfélaginu og slíka siðfræði verður aldrei hægt
að aðskilja frjálshyggjunni. Þá er hún ekki lengur frjálshyggja.
Allt um það, þá er það orðin hálfpartinn nauðsyn, því miður, að
skilgreina sig innan frjálshyggjunnar, í hvert sinn sem maður
segist vera hlynntur henni. Ástæðan sem sagt ruglandi áhrif
andróðursins."
— Víkjum þá að úrslitunum. Sáttur við sjöunda?
„Já, ég er mjög ánægður að hafa náð því sæti."
— Hverju þakkarðu þann árangur?
„Þeim sem kusu mig."
— Hefðirðu komist þetta langt án þeirra auglýsinga
sem þú birtir í blöðum fyrir kjörið?
„Nei, ég held ekki."
— Segir það okkur ekki svolítið?Til dæmis það að úr-
slitin í svona prófkjörum séu farin að ráðast meira af
dálksentimetrum en eiginlegum skoðunum manna,
efnum í stað inntaks?
„Ég get ekki svarað þessu játandi. Menn þurfa ekki alitaf að
horfa á auglýsingar sem neikvæðan hlut. Þið blaðamenn lifið
til dæmis á þeim að miklum hluta. Staðreyndin er auðvitað sú
að þegar líður að kosningu þurfa menn og stefnur að minna á
sig. Auglýsingar eru staðreynd, snar þáttur í okkar daglega lífi.
Hversvegna þá ekki að nota sér þær? Ég sé ekkert sem mælir
því í mót. Ég auglýsti fimm sinnum til þess að vekja athygli á
mér, minna á mig, og mér fannst það sjálfsagt. Ég leyni því hins-
vegar ekki að innst inni dreymir mig um persónulegri samskipti
kjósenda og frambjóðenda en nú er orðið. Samband þessara
aðila verður að byggjast á trausti og það næst aldrei betur en
milliliðalaust. Auglýsingar frambjóðenda eru í rauninni aðeins
til þess fallnar að breikka bilið hér á milli. Og er ekki á það bæt-
andi. Við verðum að hafa það í huga að þetta er lítið samfélag
sem við búum í. Samstaðan er mikils virði. Ég held að það færi
margt betur ef við reyndum að komast aðeins nær hvert öðru."
Árni Sigfússon vann góðan sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fýrir
komandi borgarstjórnarkosningar. Kjörið var um helgina og lenti Árni
f sjöunda sæti, langtum ofar en menn áttu von á, þar sem þetta er í
fyrsta sinn sem hann fer fram fyrir flokkinn. í viðtali við DV, að úrslitun-
um Ijósum, sagðist Árni vera fulltrúi „sveiflukenndrar" frjálshyggju.
Það orðalag höfðum við hér á HP aldrei heyrt áður, og slógum þess-
vegna á þráðinn til þessa verðandi borgarfulltrúa.
UÓSMYND JIM SMART
HELGARPÓSTURINN 3