Helgarpósturinn - 28.11.1985, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea J. Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimaslmi: 74471)
Afgreiðsla:
Berglind Björk Jónasdóttir
Ritstjórn og augiýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Áþyrgð
an abyrgðar
Hin mikla umræða, sem orð-
ið hefur að undanförnu um fjár-
hagsvandamál Hafskips og
meðfylgjandi Útvegsbanka-
mál, hefur vakið marga til um-
hugsunar um þá gífurlegu
ábyrgð, sem hvílir á bankastjór-
um, einkum þeim er hafa lánað
ríflega í erfiðan eða vonlausan
atvinnurekstur.
Nú blasir gjaldþrot við Haf-
skipi og því fylgir atvinnuleysi
starfsmanna fyrirtækisins.
Þessi hópur hefur verið illa leik-
inn af þeim, sem hafa reynt að
þagga vandamál fyrirtækisins
niður, því með þögn um stað-
reyndir málsins en því meiri
málgleði um lygaburð og at-
vinnuróg Helgarpóstsins, hafa
forráðamenn Hafskips vakið
falskar vonir í brjóstum starfs-
manna, sem nú skýra frá því, að
þeim hafi aldrei verið skýrt frá
staðreyndum málsins á vett-
vangi fyrirtækisins.
Og ekki bætir úr skák, þegar
því er haldið fram, að gjald-
þrota félaginu hafi verið haldið
á floti vegna persónulegs metn-
aðar stjórnenda þess. Þannig
hafa ungir framapotarar í raun
verið að „leika" sér að framtíð
starfsmannanna.
En ábyrgðin liggur víðar. Hún
er og hefur verið í höndum
bankastjórnar Útvegsbankans.
Bankastjórarnir reyndust ekki
starfi sínu vaxnir og féllust á
áætlanir Hafskipsmanna, sem
voru rangar af ásettu ráði.
Bankastjórnin fór ekki í saum-
ana á gögnum Hafskips heldur
skrifaði upp á ábyrgðir vegna
erlendra lána, eins og ekkert
hefði í skorist.
Með þessu hélt Útvegsbank-
inn lífi í fyrirtæki, sem komið
var í þrot. Og vitanlega átti
bankinn að vita hvað hann var
að gera. En svo virðist ekki vera
og nú eru bankastjórarnir
komnir í sömu spor og efnilegu
bissnessmennirnir hjá Hafskipi
með ríkisábyrgðina á kapítal-
ismanum sínum. Bankastjór-
arnir eru farnir að gefa ranga
hluti ískyn. Þeir segja e.t.v. ekki
beint ósatt, en þeir reyna að
fegra mynd sína sem mest þeir
mega.
Og þótt eftirlitsstofnunin (?)
bankaráðið sitji fundi og biðji
um upplýsingar og taki þátt í
málinu nú, þá virðast þeir menn
einkum líta á það sem hlutverk
sitt að hlífa bankastjórunum
sínum.
Þetta er gert í skjóli banka-
leyndarinnar. Og þetta er gert í
skjóli nafni samtryggingar
stjórnmálaflokkanna, sem eiga
fulltrúa í bankaráðunum, þótt
þeir séu ákaflega misjafnir.
Þeir sem hér hafa verið
nefndir gegna ábyrgðarstörf-
um. Hins vegar er enginn látinn
vera ábyrgur gjörða sinna. Þeg-
ar kemur að þeim viðkvæma
punkti er búin til skjaldborg,
skjaldborg ábyrgðarleysisins.
systkinunum. Baráttan var að sjálf-
sögðu hörðust um efstu sætin og
einkum milli Vilhjálms P. Vil-
hjálmssonar og Magnúsar L.
Sveinssonar forseta borgarstjórn-
ar sem báðir börðust um 2. sætið.
Endalokin urðu þau að Magnús bar
sigur úr býtum og Vilhjálmur lenti í
5. sæti sem er reyndar stökk upp á
við, því áður var hann í 8. sæti. Það
hafði mikil áhrif á slag þessara
tveggja manna að nafnkunnir sjálf-
stæðismenn sendu lokað bréf til
allra flokksmanna skömmu fyrir
prófkjörið og hvöttu menn að kjósa
Magnús L. í annað sæti vegna þess
að það væri mjög mikilvægt að for-
seti borgarstjórnar kæmi sterkur út
úr prófkjörinu. Undir þessa yfirlýs-
ingu rituðu átta manns og þar á
meðal Birgir ísleifur Gunnars-
son, Ingibjörg Rafnar, Margrét S.
Einarsdóttir og Sveinn H. Skúla-
son.. .
LAUSNÁ
SKÁKÞRAUT
25. Lykilleikurinn 1. Hb3 er ljóm-
andi snotur:
1. - Kxb3 2. Bdl
1. - b5 2. Ha3
1. - Ha5 2. Hb4
26. Byrjum á því að athuga hvað
svartur gæti gert, ætti hann leik.
Hróksleikir leiða til 2. Hd6 mát,
biskupsleikir til Rf4 eða Rf6 mát,
f6 eða f5 til Bg8 mát. Svartur á að-
eins einn raunhæfan leik: 1. - c4.
Við honum þarf að finna máthót-
un.
1. Hba3! c4 2. H3a5 mát.
1. - ba3 2. c4 mát.
Hin mátin eru óbreytt.
MÚSIKFÓLK-TÓNUSTARNEMAR
NÝ LEIÐ
FYRIR ÞÁ SEM \AI\TIAR
PÍÁNÓ
LEIGA MEÐ KAUPRÉTTINDUM
Heimsþekkt merki: Schimmel • Bluthner • Zimmermann • Förster • Rönisch • Hupfeid
á þessum nýju kjörum:
Leiðin sem við bjóðum hentar bæði til að
kynnast vel hljóðfæri sem ætlunin er að
eignast - og létta átakið sem til þess þarf.
• Leigusamningur er gerður til a.m.k.
12 mánaða.
• Verð hljóðfærisins er óbreytt allt
leigutímabilið.
• Leigutaki getur gert kaupsamning
hvenær sem er á tímabilinu og fengið
allt að 6 mánaða lei^u dregna frá
kaupverðinu.
• Mánaðarleigan er 2,2% af útsöluverði
hljóðfærisins.
MQLTÓ,
Lampar8cglerhf
Píanóstólar og bekkir ávallt í úrvali.
Seljum og útvegum blásturs- og
strengjahljóðfæri ásamt fylgihlutum frá
Mittenwald í V.-Þýskalandi.
Suðurgötu 3
Reykjavík
Sími91-21830
10 HELGARPÓSTURINN