Helgarpósturinn - 28.11.1985, Side 7
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGIÐ OG NÁTTÚRULÆKNINGAHÆLIÐ í HVERAGERÐISKRÝTIN FYRIRBÆRI
RÆÐUR FÁMENN
VALDAKLÍKA
LÖGUM OG LOFUM?
Guðrún Jóhannsdóttir með-
limur í Náttúrulækningafélag-
inu og ritstjóri tímarits félags-
ins, Heilsuvernd, fyrir utan
skrifstofur NLFÍ:
„Ölögleg stjórn NLFI hefur
tögl og hagldir hvernig millj-
ónunum úr rlkissjóöi er sóað."
- EFAMÁL HVORT FÉLAGSSTARFSEMIN SÉ LÖGLEG
- ÆTTARTENGSL VIRÐAST RÁÐA MIKLU UM VÖLDIN
- FÆR DAGGJÖLD EN TEKUR AÐ AUKI SÉRGJALD AF SJÚKUNGUM
- LANDLÆKNIR VILL AÐ RÍKIÐ HAFIAFSKIPTI AF SVONA REKSTRI
- MIKLUM SÖGUM FER AF MEINTUM HLERUNUM Á HÆLINU
myndir: Jim Smart
Sl. mánudag var haldinn fundur í
rekstrarstjórn Náttúrulækningahæl-
isins í Hveragerði. Þar var m.a.
Marta B. Marteinsdóttir kosin í
stöðu hjúkrunarforstjóra hælisins.
Viku áður hafði þeim fundi verið
frestað á þeim forsendum að meðal
starfsfólks hælisins væri í gangi róg-
ur gegn Mörtu sem þótti sýnt að
rekstrarstjórnin yrði meðmælt, en
hún hefur verið settur hjúkrunarfor-
stjóri í nokkra mánuði. Starfsfólk á
einn fulltrúa í rekstrarstjórn hælis-
ins en hafði lýst yfir vantrausti á við-
komandi og sat því varafulltrúi
fundinn í síðustu viku. Á þeim fundi
var honum falið að kanna eftir ein-
hverjum leiðum hvað væri hæft í
þessum meinta rógi. Starfsmenn
ákváðu með greinargerð að gera
skoðanakönnun um málið meðal
þess fólks sem hjúkrunarforstjóri
starfar með beint, en það eru fjórtán
manns. Spurt var einfaldlega: Kýstu
viðkomandi manneskju í þetta starf,
já eða nei? Svörin voru innsigluð.
Síðan vildi svo til að varamanneskj-
an sem hafði verið falið að sjá um
þessa könnun var ekki boðuð á
fundinn sl. mánudag. Hún frétti af
honum og mætti á hann eigi að síð-
ur með innsiglaðar niðurstöður
könnunarinnar sem urðu gerðar
berar á fundinum. Þá kom í ljós að
tólf höfðu svarað spurningunni neit-
andi, en tveir skilað auðu. Sam-
kvæmt heimildum HP er málum
ekki þannig háttað að starfsfólki sé
í nöp við Mörtu B. Marteinsdóttur
heldur var því kunnugt um að um
starfann sóttu manneskjur með
mun meiri starfsreynslu, einkum í
stjórnunarstörfum. Niðurstaða
fundar rekstrarstjórnarinnar varð
samt sú, að eindreginn vilji starfs-
manna var hundsaður og stjórnin
valdi sér þann stjóra sem henni
hugnaðist. Raunar er því haldið
fram að Marta fengi starfið hvað svo
sem öðru liði.
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
SJÁLFSEIGNAR-
STOFNUN
REKIN FYRIR
ALMANNAFÉ
Þetta er eitt lítið dæmi af fjöl-
mörgum sem HP hefur borist til
eyrna og sannreynt, úr rekstri og
stjórnun þessa hælis og Náttúru-
lækningafélags íslands, sem við
nánari athugun virðist varla standa
undir nafni sem löggildur félags-
skapur, samanber það hvernig stað-
ið var að landsþingi félagsins í síð-
asta mánuði.
Heilsuhælið í Hveragerði, sem
tekið var í notkun fyrir þrjátíu ár-
um, var svo til eingöngu byggt fyrir
gjafa- og samskotafé af hugsjóna-
mönnum náttúrulækningahreyfing-
arinnar með Jónas Kristjánsson
lækni í fararbroddi. í upphafi var
hælið rekið þannig að trygginga-
stofnun reiddi af höndum árlegan
styrk, hvert einstakt sjúkratilfelli
var metið, borgað fyrir suma en
aðra ekki. Síðan var hælið tekið inn
í sjúkrasamlagið og fékk sömu dag-
gjöld fyrir sjúklinga og aðrar sjúkra-
stofnanir í landinu. En undanfarin
ár hefur stofnunin ekki sætt sig við
úrskurð daggjaldanefndar og krefst
því aukagjalds af vistmönnum sín-
um.
Páll Sigurdsson, ráðuneytisstjóri í
heilbrigðismáiaráðuneytinu, hafði
eftirfarandi um málið að segja:
„Eins og málum er háttað núna
greiðir sjúkrasamlag og trygginga-
stofnun það gjald sem daggjalda-
nefnd ákveður. Síðan hefur stofnun-
in heimild til að krefja aukagreiðslu
af sjúklingunum. Þetta er eina stofn-
unin í landinu þar sem heimilt er að
láta fólk borga til viðbótar því sem
sjúkrasamlögin greiða. Það verður
að segjast eins og er að það hefur
alltaf verið dálítil togstreita um
þessa stofnun."
Rekstrarstjórn hælisins fer sam-
kvæmt reglugerð með öll mál hælis-
ins, ráðstafar því m.a. þeim milljón-
um sem fengnar eru úr vasa skatt-
borgara á ári hverju. í henni eru
fimm manns: NLFÍ skipar þrjá full-
trúa, einn er skipaður af starfs-
mönnum hælisins og einn af við-
komandi sveitarfélagi. Ríkið kemur
hvergi nærri rekstrinum og heldur
er ekki ráð fyrir gert samkvæmt lög-
um að það skipi endurskoðendur.
Hælið er því sjálfseignarstofnun
þótt það sé að mestu rekið fyrir al-
mannafé.
ÓLÖGLEG
FULLTRÚAKOSNING
26. október sl. var haldið 20.
landsþing Náttúrulækningafélags
HELGARPÓSTURINN 7