Helgarpósturinn - 19.12.1985, Síða 9
— regnhlífasamtökin Grafík skjóta á loft
nýrri hljómplötu
Undirritadur minnist þess aö hafa
áttspjall viö piltana ísfirsku í hljóm-
sveitinni Grafík um svipaö leyti í
fyrra, þeir voru nýbúnir aö gefa út
plötu, sögöu aö hún vœri léttpopp-
uö, og létu sig dreyma um aö ná eyr-
um fjöldans. Sú haföi víst ekki veriö
raunin fram aö því. Þessi hljóm-
plata ,,Get ég tekiö céns" umturnaöi
stööu Grafíkur í íslenskum dœgur-
lagaheimi; á einum jólum voru þeir
komnir í hóp stjarnanna, lög afplöt-
unni fóru sigurför á öldum Ijósvak-
ans og unglingarnir dönsuöu tryllt-
an dans viö undirleik Graftkur á
sjálfan þjóöhátíöardaginn.
Nú eru þeir búnir að gefa út aðra
plötu og fara ýmsar nýjar leiðir í að
kynna gripinn, skjóta henni á loft í
orðsins fyllstu merkingu. Þeir gerðu
náttúrlega vídeó — eitt af því skárra
sem sést hefur hér í sjónvarpi — og
útgáfudeginum var fagnað með
flugeldasýningu á Arnarhóli og
uppákomu í miðbænum, þar sem
ungt fólk baðaði sig uppúr málningu
í öllum regnbogans litum. „Þetta
fylgir tíðarandanum,“ segir Helgi
Björnsson, söngvari Grafíkur. ,,Sá
sem ekki er með í slagnum um hylli
almennings hlýtur að eiga erfitt
uppdráttar. Við erum líka búnir að
kosta það miklu til við gerð þessarar
plötu að það er annað hvort að duga
eða drepast."
Það er ungt útgáfufyrirtæki, Mjöt,
sem gefur út nýju Grafíkplötuna
sem ber heitið Stansað, Dansað &
Öskrað. „Það eru nú eiginlega þeir
sem standa á bak við þessa kynn-
ingarherferð," segir Helgi. „Þetta
eru einsog við, ungir menn með
stóra drauma sem eru til í að taka
sénsa og kljást við lífið — menn sem
er í alla staði ánægjulegt að vinna
með.“
Að sögn Helga var ætlunin að
kynna nýju plötuna á miklum
hljómleikum sem til stóð að halda í
Laugardalshöll nú á föstudagskvöld-
ið; griðarmiklum unglingadansleik.
„Af því getur því miður ekki orðið,"
segir hann. „Handboltamenn eru
sestir að í höllinni, æfa þar alla daga
og allar nætur og ætla sér greinilega
að verða heimsmeistarar. Svo við
BÖRN í BÍLUM
ÞURFA VÖRN
höfum bara látið okkur nægja að
kynna plötuna með hoppi, tralli og
kórsöng á götum bæjarins.“
Kjarninn í hljómsveitinni Grafík
er sá sami og lengst af: Rafn Jónsson
ber bumbur, Rúnar Þórisson þenur
gítara og Helgi syngur. Aðrir hljóð-
færaleikarar á plötunni eru láns-
menn, margir góðkunnir. „Það er
ágætt að hafa þetta svona opið í
báða enda," segir Helgi. „Það er stór
hópur í kringum okkur sem er
reiðubúinn að hlaupa í skarðið þeg-
ar vantar spilara — ætli megi ekki
segja að við séum eins konar regn-
hlífasamtök.
Get ég tekið céns var jólaplata
unglingsins í fyrra. En nýja platan —
er hún jafn vel lukkuð? Helgi:
„Þetta er tvímælalaust jólaplatan.
Við erum búnir að semja við jóla-
sveininn um að hann taki þessa með
sér til að gefa í skóinn. Það er bara
verst að hann er allur kominn útí
Euroið og Visað, svo það er víst eng-
in leið að fá hann til að fara með
hana fyrr en eftir þann átjánda."
Grafík; kynnum plötuna með hoppi, tralli og kórsöng á götum bæjarins.
- sama
hve gömul eru.
&H0T6L#
M
n
FLUGLEIÐA gm HOTEL
BLÓMASALUR, SUNDLAUG OG VEITINGABÚÐIR HÓTELANNA VERÐA OPIN, SEM HÉR
SEGIR UM HÁTÍÐIRNAR:
Þorláksmessa HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur Veitingabúð 19:00-22:00 05:00-20:00 Sundlaug 08:00-11:00 HÓTEL ESJA Esjuberg 08:00-22:00 Skálafell Frá kl. 19:00
Aðfangadagur LOKAÐ 05:00-14:00 16:00-19:00 08:00-11:00 08:00-14:00 LOKAÐ
Jóladagur LOKAÐ LOKAÐ LOKAÐ 18:00-20:00 09:00-14:00 LOKAÐ
2. jóladagur LOKAÐ LOKAÐ LOKAÐ 18:00-21:00 09:00-21:00 Frákl. 19:00
Gamlársdagur LOKAÐ 05:00-14:00 08:00-11:00 08:00-20:00 LOKAÐ
Nýársdagur LOKAÐ LOKAÐ LOKAÐ 09:00-22:00 Frákl. 19:00
Gistideild Hótel Loftleiða verður lokuð frá hádegi 24. desembertil 08:00 27. desember, og frá hádegi 31. desember
til 08:00 2. janúar 1986. Gistideild Hótel Esju opin alla daga.
GLEÐILEG JÓL FARSÆLT KOMANDI ÁR ÞÖKKUM ÁNÆGJULEG VIÐSKIPTI.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA HÓTEL
Vinsamlegast geymið auglýsinguna.
UNGIR MENN
SEM KLJÁST
VIÐ LÍFIÐ
HELGARPÖSTURINN
9